Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2011, Page 17
Erlent | 17Mánudagur 21. febrúar 2011
Forsetaframbjóðandi í Kasakstan með nýstárlegt kosningaloforð:
Allar konur fái eiginmann
Amanday Asilbek er einn þeirra sem
ætla að bjóða sig fram í forsetakosn-
ingum í Kasakstan sem fara fram í
byrjun næsta árs. Asilbek er greini-
lega með hugmyndaflugið í lagi þeg-
ar kemur að því að lokka til sín kjós-
endur, en það á eftir að koma í ljós
hvernig nýjasta útspil hans heppn-
ast. Asilbek ætlar sér að ganga í aug-
un á kvenkyns kjósendum með því
að lofa þeim að allar einhleypar kon-
ur komi til með að giftast, verði hann
kjörinn forseti. Asilbek telur þetta
mögulegt ef fjölkvæni verður gert
löglegt. „Það er allt of mikið um ein-
hleypar konur í Kasakstan, sem er
þjóðarharmleikur. Þannig missum
við af mögulegum mæðrum,“ sagði
Asilbek. Sjálfur er hann 70 ára að
aldri og á bara eina konu, þó hann
hafi reyndar íhugað að taka sér aðra.
„Ungar stúlkur hafa iðulega stigið í
vænginn við mig og beðið um hönd
mína. Engin þeirra hefur hins vegar
staðist gæðapróf eiginkonu minnar.“
Fréttaskýrendur hafa bent á að
kosningaloforð Asilbeks gæti átt
heima í kvikmynd breska grínist-
ans Sacha Baron Cohen um fræg-
asta fulltrúa Kasakstan frá upphafi,
Borat Sagdiyev. Afar ólíklegt verður
hins vegar að teljast að Asilbek nái
kjöri. Hann hefur tvisvar áður boðið
sig fram til forsetaembættisins, árið
1998 og árið 2005. Þá gaf hann svipuð
ævintýraleg kosningaloforð en hlaut
ekki brautargengi hjá kjósendum og
var kjörfylgi hans undir einu pró-
senti. Í Kasakstan ræður líka forset-
inn Nursultan Nazerbæjev því sem
hann vill ráða. Hann hefur verið for-
seti síðan 1990, og ólíklegt að hann
hverfi á braut öðruvísi en með eigin
vilja. bjorn@dv.is
Aðeins er liðin ein vika síðan rúm-
lega milljón ítalskar konur söfn-
uðust saman í meira en 100 borg-
um og bæjum víðs vegar um Ítalíu
til að mótmæla kynlífsbrölti Silvios
Berlusconis, hins 74 ára forsætis-
ráðherra Ítalíu. Vaxandi óánægja
ríkir meðal ítalskra kvenna vegna
framferðis forsætisráðherrans
gagnvart konum, en sú ímynd af
konum sem hann virðist beita sér
fyrir að verði sem útbreiddust er
sú að konur eigi að vera lítið ann-
að en snotrir fylgihlutir karlmanna.
Nú hafa hins vegar kvenkyns stuðn-
ingsmenn Berlusconis, sem má
þrátt fyrir allt telja í milljónum,
tekið höndum saman og ætla sér
á næstunni að safnast saman og
„mótmæla mótmælendunum“ – og
þar með lýsa yfir stuðningi sínum
við Berlusconi.
Ótrúleg orðræða
Það eru fyrst og fremst stjórnmála-
konur sem tilheyra Frelsisflokki
Berlusconis sem standa á bak við
þessa gagnhreyfingu til stuðnings
honum. Hafa þær farið mikinn í ít-
ölskum fjölmiðlum, þá einkum og
sér í lagi þeim sem eru í eigu for-
sætisráðherrans sjálfs. Hafa þær
bent á að í síðustu þingkosningum
á Ítalíu, sem fóru fram fyrir tæp-
um þremur árum, voru konur um
helmingur þeirra kjósenda sem
kusu Frelsisflokkinn. Þær segja
enn fremur að mótmælin sem
fóru fram fyrir rúmlega viku hafi í
raun verið skipulögð af leiðtogum
stjórnarandstöðunnar, sem sam-
anstendur af karlmönnum. Því séu
konurnar sem mótmæltu ekki fem-
ínistar í raun.
„Það eru ennþá konur þarna
úti sem vilja kljúfa Ítalíu, tefla Evu
fram gegn Evu,“ sagði Daniela Sant-
anché, meðlimur Frelsisflokksins.
„Jafnvel nú á 21. öldinni kunna þær
ekkert annað en að vera verkfæri í
höndum karlmanna.“
Gera lítið úr mótmælunum
Í sama streng tekur menntamála-
ráðherra Ítalíu, Mariastella Gelmini.
„Mótmælendurnir voru vinstrisinn-
aðar snobbkonur, sem vilja helst
brenna Berlusconi á báli eins og
nornirnar voru brenndar í Salem.“
Konurnar sem skipulögðu mót-
mælin gegn Berlusconi virðast
einnig gera sér grein fyrir að staða
Berlusconis er enn sterk meðal
kvenna. „Ein milljón kvenna er lít-
ið þegar fjöldi kvenna á Ítalíu er
31 milljón,“ sagði Lorella Zanardo,
einn skipuleggjendanna. „Það eru
9 milljónir kvenna sem eru 55 ára
og eldri á Ítalíu og margar þeirra
búa einar, eru ekkjur eða fráskildar.
Þeim líkar vel við Berlusconi vegna
skemmtunarinnar sem hann býður
upp á með sjónvarpsstöðvum sín-
um því margar af þessum konum
eiga engan annan félaga en sjón-
varpið.“
Sætta sig við spillingu
Mörgum kann að finnast ótrúlegt
hvernig Berlusconi virðist ætíð ná að
hrista af sér hvert hneykslið á fætur
öðru. Sem stjórnmálamaður lítur út
fyrir að hann eigi fleiri líf en kettir, alltaf
tekst honum að snúa orðræðunni sér í
hag. Það er engu líkara en Ítalir séu líka
sáttir við það. Í nýlegri könnun sem
gerð var á Ítalíu kom í ljós að 53 pró-
sent þjóðarinnar telja Berlusconi vera
sekan um að hafa borgað ófullveðja
stúlku fyrir kynlíf og jafnframt reynt að
hylma yfir glæpinn. En það kemur ef til
vill ekki á óvart, að hin sömu 53 prósent
telja líkurnar á því að Berlusconi verði
sakfelldur litlar sem engar.
Konur styðja
Berlusconi
n Þrátt fyrir kröftug mótmæli ítalskra kvenna gegn Silvio Berlusconi nýtur hann stuðnings
kvenna n Fjölmiðlaveldi hans vinnur að því að snúa orðræðunni honum í hag
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
„ Jafnvel nú á 21.
öldinni kunna þær
ekkert annað en að vera
verkfæri í höndum karl-
manna.
Silvio Berlusconi Þótt ótrúlegt megi virðast nýtur
forsætisráðherrann enn stuðnings fjölda kvenna.
Borat Sagdiyev Persóna Sacha Baron Cohen þykir
minna á forsetaframbjóðandann Amanday Asilbek.
Stálu marijúana
Tveir iðnaðarmenn sem voru ráðnir
í vinnu af lögreglunni í smábænum
Florence í Alabama-fylki í Banda-
ríkjunum hafa verið handteknir fyrir
stórfelldan fíkniefnastuld. Mennirnir
voru ráðnir til að setja upp loftræsti-
kerfi í sama herbergi og sönnunar-
gögn eru geymd. Stóðust mennirnir
ekki mátið og stálu um 20 kílóum
af marijúana, sem þeir smygluðu út
með því að fylla verkfærakassa sína
í lok hvers vinnudags. Lögreglunni í
Florence tókst ekki að endurheimta
nema um tvö kíló af efninu, sem
þýðir að iðnaðarmennirnir hafa
væntanlega hagnast talsvert með því
að selja það. Iðnaðarmennirnir eru
komnir á bak við lás og slá.
Palin gerir gys
að Obama
Sarah Palin, sem talin er líkleg til að
tilkynna um framboð sitt til forseta
Bandaríkjanna innan skamms, gerði
grín að Obama á fundi repúblikana
í Long Island í New York-fylki á dög-
unum. Það var hins vegar ekki Bar-
ack Obama, forseti Bandaríkjanna,
sem varð fyrir barðinu á kímnigáfu
Palin, heldur forsetafrúin, Michelle
Obama. Obama hefur verið tals-
maður herferðar sem mælir með
því að mæður gefi börnum sínum
brjóstamjólk og hefur febrúarmán-
uður í raun verið tileinkaður mál-
staðnum í Bandaríkjunum. Palin sá
sér leik á borði: „Það er ekki furða
að hún vilji að mæður gefi brjósta-
mjólk. Nýmjólk er orðin svo dýr að
engin móðir hefur efni á henni.“
Stjórnlausir í
253 daga
Belgar hafa nú verið án ríkisstjórn-
ar í rúmlega 250 daga, en þar ríkir
stjórnarkreppa. Hafa flæmskumæl-
andi stjórnmálaflokkar ekki viljað
starfa með vallónskum flokkum,
en Vallónar tala frönsku. Í tilefni af
þessu langa stjórnarleysi ákvað fjöldi
ungmenna í bænum Ghent að halda
upp á tilefnið, með því að fækka
fötum og dansa. Vilja ungmenn-
in benda á að Belgar hafi nú sett
heimsmet í lengd stjórnarkreppu í
lýðræðisríki. Stjórnmálaleg framtíð
Belgíu er mjög óljós þar sem land-
ið er í raun klofið milli Vallóna og
Flæmingja.