Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2011, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2011, Blaðsíða 24
24 | Sport Umsjón: Tómas Þór Þórðarson tomas@dv.is 21. febrúar 2011 Mánudagur Fjögur gull, eitt silfur og fjögur brons á opna danska í BJJ: Medalíuflóð Mjölnismanna Ekkert lát virðist vera á sigur- göngu keppenda Mjölnis í brasil- ísku jiu-jitsu, BJJ, á alþjóða vett- vangi. Um helgina fór vösk sveit Mjölnismanna til Danmerkur og keppti þar á opna danska mótinu í BJJ. Uppskeran var glæsileg, fjög- ur gull, eitt silfur og fjögur brons. Á síðasta ári hélt hópur Mjöln- ismanna til London og uppskar þar ríkulega á sterku BJJ- og No- Gi-(enginn galli)móti. Þá rúllaði Mjölnir upp síðasta Íslandsmeist- aramóti sem haldið var í nóvem- ber í fyrra. Á opna danska um helgina vann Sighvatur Helgason 88 kg flokkinn í keppni manna með fjólublátt belti og einnig opna flokkinn. Sig- hvatur fór gersamlega hamförum en hann vann alla sína andstæð- inga með uppgjafartaki að undan- skildum félaga sínum úr Mjölni, Þráni Kolbeinssyni. Sighvatur er Íslandsmeistari í þessum flokki. Þráinn Kolbeinsson, Íslands- meistari í -94 kg flokki, vann flokk manna með fjólublátt belti á opna danska og þá náði hann einn- ig þriðja sætinu í opna flokkn- um. Sigurjón Viðar Svavarsson hirti gullið í +100 kg flokknum en í úrslitum hafði hann betur gegn andstæðingi sem var ríflega 40kg þyngri en hann. Bjarni Kristjánsson náði silfri í -94 flokki blábeltinga og tók brons- ið einnig í þeim flokki. Þá nældi Guðmundur Víglundsson í brons í opnum flokki. Eina konan í hópn- um, Íslandsmeistarinn Auður Olga Skúladóttir, fékk brons í flokki -64 kg kvenna með fjólublátt belti. tomas@dv.is Alfreð aftur á skotskónum n Blikinn Alfreð Finnbogason sem kjörinn var besti leikmaður Íslands- mótsins eftir síðasta sumar er heldur betur að fara vel af stað með sínu nýja félagi, Loker- en. Alfreð skoraði sitt annað mark í jafnmörgum leikjum helgina þegar liðið tapaði þó gegn stórliði Club Brugge, 2–1. Alfreð kom inn á sem varamaður í hálfleik og náði að minnka muninn fyrir Lokeren í 2–1 þegar átta mínútur voru eftir af leiknum en þar við sat. Lokeren er í fimmta sæti belgísku úrvalsdeildarinnar og í mikilli baráttu um að komast í sex liða umspil um meistaratitilinn. Kiel áfram og Björgvin í góðum málum n Þýska handknattleiksliðið Kiel sem Alfreð Gíslason stýrir er komið í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar eftir sigur á franska liðinu Chambéry um helgina, 28–26. Lands- liðsmaðurinn Aron Pálmarsson skoraði eitt mark fyrir Kiel sem vann þessa keppni í fyrra. Þá er svissneska liðið Kadetten með landsliðsmarkvörðinn Björgvin Pál Hólmgeirsson innanborðs einnig komið langleiðina í 16 liða úrslitin en liðið vann gríðarlega þýðingarmikinn sigur á ungverska liðinu Pick Szeged. Gleymdist að skrá Eið n Eiður Smári Guðjohnsen, sem breskir fjölmiðlar töldu að ætti að hefja leik fyrir Fulham í gær þegar liðið mætti Bolton í ensku bikarkeppninni, var fjarri góðu gamni. Fram kom á Vísi í gær að Fulham hefði gleymt að útvega Eiði keppnisleyfi í enska bikarnum en landsliðsfyrirliðinn fyrrverandi kom til Fulham á síðustu klukkutímum félagaskiptagluggans í janúar. Um ein- föld mannleg mistök var um að ræða en einhver seinheppinn starfsmaður á skrifstofu Fulham gleymdi að sækja um leyfið fyrir Eið Smára. Vela bjargaði WBA n Roy Hodgson stýrði West Bromwich Albion í sínum fyrsta leik á sunnudag- inn þegar liðið tók á móti Úlfunum í miklum fallslag. Jamie O‘Hara kom Úlfunum yfir und- ir lok fyrri hálfleiks en Mexíkóinn Carlos Vela, sem er á láni frá Arsenal, bjargaði stigi fyrir WBA í uppbótar- tíma. Markvörður Úlfanna, Wayne Hennessey, verður þó að taka markið á sig. Úlfarnir eru því áfram á botni ensku úrvalsdeildarinnar með 25 stig en WBA er í sautjánda sæti með þremur stigum meira. Taplaus í níu ár n Real Madrid vann um helgina auðveldan sigur á Levante í efstu deild spænska fótboltans, 2–0, þar sem Karim Benzema og Ricardo Carvalho sáu um marka- skorun. Sigurinn þýðir að Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, hefur nú ekki tapað heimaleik í deildarkeppni í níu ár. Hann tapaði síðast á heimavelli sem þjálfari Porto gegn gegn Beira Mar 23. febrúar 2002. Síðan þá hefur Portúgalinn magnaði stýrt Porto, Chelsea, Inter og Real Madrid í samtals 147 deildarleikjum á heimavelli án þess að tapa einum einasta. Í þessum 147 leikjum hefur liðið skoraði 331 mörk og fengið á sig aðeins 81. Molar „Það er algjör draumur að vinnan þennan bikar loksins,“ segir Fannar Ólafsson, fyrirliði körfuknattleiksliðs KR, en hann leiddi KR-liðið að fyrsta bikarmeistaratitli félagsins í tuttugu ár. „Þetta hefur verið eyðimerkur- ganga,“ segir Fannar kampakátur. KR fór létt með að leggja Grindavík að velli í úrslitaleiknum. Aðeins munaði einu stigi í hálfleik, 40–39, en í seinni hálfleik átti Grindavík aldrei mögu- leika. Breidd KR-liðsins var Suður- nesjapiltum ofviða og höfðu Vestur- bæingarnir á endanum tuttugu og tveggja stiga sigur, 94–72. Vannst á breiddinni „Þetta var algjör hamingja, þvílíkur dagur,“ segir Fannar sem var ánægð- ur með spilamennsku liðsins. „Við spiluðum flottan körfubolta, sér- staklega í seinni hálfleik. Þar spil- aðist leikurinn nákvæmlega eins og við lögðum upp með. Við vissum að þeir gætu aldrei hlaupið með okkur í fjörutíu mínútur,“ segir Fannar sem vill meina að breiddin hjá KR hafi skapað sigurinn. „Ég er eiginlega alveg klár á því. Þeir hafa ekki þennan djúpa bekk eins og við höfum. Við gátum leyft okkur að spila á mörgum mönnum. Undir lokin þegar við vorum enn á fullu gasi fannst mér Grindvíking- arnir vera orðir þreyttir. Við vissum að Grindavík myndi alltaf gefa okk- ur alvöru leik og því átti ég ekki alveg von á svona stórum sigri,“ segir fyrir- liðinn. Notaði tapið frá 2009 Fyrir tveimur árum mætti KR í Höll- ina með eitt besta lið sem sést hefur hér á landi. Það ár spiluðu bæði Jón Arnar Stefánsson og Jakob Örn Sig- urðarson með liðinu. KR gat þá rof- ið eyðimerkurgönguna með sigri á Stjörnunni, og var búið að spá KR sigri fyrirfram. Stjörnum prýtt lið KR var aldrei rétt innstillt í leikinn og tapaði í magnaðasta bikarúrslitaleik sögunnar. Þetta flopp notaði Fannar til að hjálpa sér í undirbúningnum fyrir leikinn gegn Grindavík. „Ég notaði þetta tap alveg heil- mikið. Bæði fyrir sjálfan mig og lið- ið. Ég reyndi að brýna fyrir mönn- um að þetta yrði hörkuleikur og það vissu allir. Fókusinn og hugarfarið voru bara virkilega sterk alla vikuna. Ég tók þetta tap gegn Stjörnunni mjög nærri mér og það sveið heillengi. Það árið áttum við að vera búnir að vinna bikarinn fyrir fram. Tapið 2009, sem ég kalla mistök, gerir sigurinn núna enn sætari. Nú náðum við að koma með bikarinn heim eins og ég vil kalla það,“ segir Fannar en ekkert lið hefur unnið bikarkeppni KKÍ jafnoft og KR eða tíu sinnum. Ætlum að vinna tvöfalt KR-liðið hefur verið óstöðvandi eft- ir áramót og af mörgum stjörnum liðsins skín líklega Pavel Ermolins- kij  hvað skærast. Hann fer varla inn á völlinn án þess að gera þrefalda tvennu. Pavel bauð auðvitað upp á eina slíka (21 stig, 11 frák., 11 stoð.) og var valinn maður leiksins. „Það er náttúrulega fáránlegt að vera með næstum þrefalda tvennu að meðal- tali í leik,“ segir Fannar og hlær. „Pavel er auðvitað frábær leikmaður og það sem hann hefur verið að læra núna með okkur er að vera leiðtogi. Hann hafði kannski verið meira í aukahlut- verki í atvinnumennskunni. Hann er okkur gríðarlega mikilvægur því hann er ekki bara að stýra sóknarleiknum heldur frákastar hann alveg helling. Við stóru mennirnir viljum reyndar meina að hann sé að stela fráköstun- um okkar en hann gerir starf okkar alla vega mun auðveldara,“ segir Fan- nar og eins og svo oft áður fer hann hvergi í felur með markmið liðsins. „Í KR er ætlast til þess að við vinn- um titla. Við ætlum að vinna tvöfalt í ár. Það er einn kominn í hús og við virðumst vera að toppa á réttum tíma. Það vill enginn toppa í desember. Þá vinnurðu enga titla,“ segir Fannar Ól- afsson, fyrirliði KR. n KR bikarmeistari í fyrsta sinn í 20 ár n Auðveldur sigur á Grindavík, 94–72 n Fannar Ólafsson fyrirliði notaði tapið 2009 sem hvatningu á enda Eyðimerkurgangan Loksins, loksins! Fannar Ólafsson vann sinn fyrsta bikarmeistaratitli með KR. MYND RÓBERT REYNISSON Kampakátir KR-ingar Körfuknattleikslið KR hampar Íslandsmeistaratitlinum í fyrsta skipti í tuttugu ár og er að vonum ánægt með afrekið. Tómas Þór Þórðarson blaðamaður skrifar tomas@dv.is Mjölnismaðurinn Þráinn Kolbeinsson (t.h.) Mjölnis- menn hafa farið hamförum á BJJ-mótum undanfarið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.