Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2011, Síða 25
Sport | 25Mánudagur 21. febrúar 2011
Utandeildarlið Crawley tapaði ósanngjarnt gegn Manchester United, 1–0:
Sendur heim með vínflösku
Utandeildarlið Crawley varð sér svo
sannarlega ekki til skammar á Old
Trafford um helgina þegar liðið tap-
aði með aðeins einu marki, 1–0, gegn
Manchester United í fimmtu umferð
ensku bikarkeppninnar. Eina mark
leiksins skoraði varnarmaðurinn
Wes Brown eftir tæplega hálftíma
leik.
Crawley-menn voru á löngum
köflum betri en stjörnum prýtt lið
Manchester United sem hvíldi þó
ógrynni lykilmanna sinna vegna
Meistaradeildarslagsins gegn Mars-
eille í vikunni. Minnstu mátti muna
að Richard Brodie jafnaði metin með
skalla í uppbótartíma en boltinn fór
í slána.
„Það var gott tækifæri til að skora.
Sumir strákanna héldu að boltinn
væri á leiðinni inn og mér sýndist
sumir leikmanna Manchester Un-
ited halda það líka,“ sagði stoltur
stjóri Crawley, Steve Evans, eftir leik-
inn. „Við förum heim vonsviknir. Við
héldum virkilega að við gætum unn-
ið þennan leik.“
Evans er Skoti eins og Sir Alex
Ferguson en hann hafði hlakkað
gríðarlega til að mæta fyrirmynd
sinni. Ferguson, sem þykir höfðingi
heim að sækja, olli Evans engum
vonbrigðum. „Ferguson veitti mér
alvöru Glasgow-móttökur. Hvernig
hann og Manchester United tóku á
móti okkur gerir mig stoltan af því að
vera frá sömu borg og Ferguson. Eft-
ir leikinn gaf hann mér vínflösku og
sagði mér að deila henni með kon-
unni minni. Þetta var gjörsamlega
frábær upplifun. Ekki bara stóðum
við okkur vel inni á vellinum held-
ur var þessi dagur skólabókardæmi
um hvernig á að koma fram við fólk.
Manchester United er frábært fót-
boltalið en það eru fleiri ástæður fyr-
ir því að félagið er kallað það besta í
heimi,“ sagði Steve Evans kampakát-
ur.
tomas@dv.is
Úrslit
„Það var orðið helvíti erfitt að fara allt-
af í Höllina og vinna aldrei gull í þess-
um leik. Þetta er því auðvitað gríðar-
leg hamingja og mikill léttir,“ segir Jón
Halldór Eðvaldsson, þjálfari kvenna-
liðs Keflavíkur í körfubolta sem um
helgina varð bikarmeistari með sigri
á KR í úrslitaleik, 72–62. Þetta er fyrsti
sigur Keflavíkur í bikarúrslitum síðan
árið 2004. Það sem meira er, þá hefur
Jón Halldór þrisvar áður farið í Höll-
ina á undanförnum árum með Kefla-
víkurliðið en tapað í öll skiptin. „Ég
hélt ég ætlaði bara aldrei að vinna
þennan bikar. Þetta var sá eini sem ég
átti eftir og því gaman að landa hon-
um loksins,“ segir Jón Halldór.
Hertur varnarleikur lykillinn
KR-konur leiddu í hálfleik í úrslita-
leiknum, 33–30, í hálfleik en í þriðja
leikhluta gerði Keflavík út um leik-
inn. Suðurnesjastúlkur skelltu í lás í
vörninni og gamla góða hraðlestin
fór í gang. KR skoraði snemma í leik-
hlutanum tíu stig í röð, breytti þar
stöðunni í 48–38 og þegar þriðji leik-
hluti var búinn hafði Keflavík skoraði
í honum 24 stig gegn 11. Sama hvað
KR reyndi í fjórða leikhlutanum hafði
Keflavík alltaf frumkvæðið og ætlaði
allt um koll að keyra þegar 72–62 sig-
ur þess var í höfn.
„Við hertum varnarleikinn í seinni
hálfleik,“ segir Jón Halldór aðspurður
um á hverju leikurinn vannst. „Vörn-
in small í gang og það var lykillinn
að sigrinum. Í fyrri hálfleik var KR að
stýra hraðanum og láta okkur spila
sinn leik. Í hálfleiknum ræddum við
um að hætta því bara og fara spila
okkar leik.“
Viljinn mikill
Þrátt fyrir að hafa tapað síðustu þrem-
ur bikarúrslitaleikjum segist Jón Hall-
dór hafa verið nokkuð rólegur þegar
hann kom í Höllina í gær. „Þegar ég
kom inn í íþróttahúsið hafði ég góða
tilfinningu fyrir leiknum. Við höfðum
öll eytt morgninum saman og mér
fannst leikmennirnir mínir mjög ein-
beittir,“ segir Jón Halldór en það var
augljóst hversu miklu máli sigurinn
skipti liðið þegar lokaflautið gall.
„Algjörlega. Ég er búinn að vera
með sama mannskapinn síðastliðin
fimm ár og við höfum gengið mjög
grýttan veg saman. Þar á meðal hef-
ur okkur aldrei tekist að landa þess-
um titli og við vildum þetta bara gríð-
arlega mikið. Við vorum búin að setja
okkur markmið og þegar sama liðið
er búið að vera saman svona lengi er
ánægjulegt að landa loksins eina titl-
inum sem eftir var,“ segir Jón Halldór
en hvað var það sem endanlega skil-
aði Keflavíkurliðinu sigri?
„Aðallega viljinn og vörnin. Það
kom bara ekki til greina að fara enn
eina ferðina í Höllina og tapa. Mér
fannst allar stelpurnar þannig inn-
stilltar. Þegar við fórum í morgunmat-
inn á leikdag fann ég að allir leikmenn
mínir voru virkilega tilbúnir í þetta.
Stelpurnar sýndu það líka og unnu
þennan bikar verðskuldað,“ segir Jón
Halldór Eðvaldsson.
Tómas Þór Þórðarson
blaðamaður skrifar tomas@dv.is
n Keflavíkurkonur bikarmeistarar eftir 72–62
sigur á KR n Búnar að tapa síðustu þremur
bikarúrslitaleikjum n Jón Halldór þjálfari sá
strax um morguninn að liðið var klárt í leikinn
KOM EKKI
TIL GREINA
AÐ TAPA
AFTUR
Ekki lengur John Silver Jón Halldór Eðvaldsson hefur haft viðurnefnið John Silver en nú
er hann Gull-Jón. MYND TOMASZ KOLODZIEJSKI
Ótrúleg gleði Keflavíkur-
konur hafa tapað þremur
úrslitaleikjum á síðustu árum
og því var fagnað vel og
innilega í leikslok.
Ganga stoltir af velli Crawley-menn munu seint gleyma deginum á Old Trafford.
Bikarkeppni KHÍ
KARLAR
KR - Grindavík 94-72
Stig KR: Brynjar Þór Björnsson 23, Pavel
Ermolinskij 21, Hreggviður Magnússon 13,
Fannar Ólafsson 11, Marcus Walker 9, Finnur
Atli Magnússon 8, Jón Orri Kristjánsson 5,
Ágúst Angantýsson 3, Ólafur Már Ægisson 1.
Grindavík: Kevin Sims 18, Ólafur Ólafsson
17, Ryan Pettinella 12, Ómar Örn Sævarsson
10/, Páll Axel Vilbergsson 8, Björn Steinar
Brynjólfsson 3, Helgi Björn Einarsson 2,
Mladen Soskic 2.
KONUR
KR - Keflavík 62-72
Stig KR: Chazny Paige Morris 19, Signý
Hermannsdóttir 14, Hafrún Hálfdánardóttir
10, Hildur Sigurðardóttir 9, Margrét Kara
Sturludóttir 6, Helga Einarsdóttir 2, Guðrún
Gróa Þorsteinsdóttir 2.
Stig Keflavíkur: Jacquline Adamshick 19,
Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 14, Bryndís
Guðmundsdóttir 12, Pálína Gunnlaugsdóttir
9, Ingibjörg Jakobsdóttir 8, Marín Rós
Karlsdóttir 4, Marina Caran 3, Hrund
Jóhannsdóttir 3.
Enski bikarinn
Chelsea - Everton 1-1 (4-5)
1-0 Frank Lampard (104.), 1-1 Leighton
Baines (119.).
Birmingham - Sheff. Wed 3-0
1-0 Jean Beausejour (6.), 2-0 Obafemi
Martins (17.), 3-0 David Murphy (53.).
Stoke - Brighton 3-0
1-0 John Carew (14.), 2-0 Jon Walters (22.),
3-0 Ryan Shawcross (43.).
Man. United - Crawley Town 1-0
1-0 Wes Brown (28.).
Man. City - Notts County 5-0
1-0 Patrick Vieira (37.), 2-0 Patrick Vieira
(58.), 3-0 Carlos Tevez (83.), 4-0 Edin Dzeko
(88.), Michah Richards (90.+1).
Fulham - Bolton 0-1
0-1 Ivan Klasnic (19.).
Leyton Orient - Arsenal 1-1
0-1 Tomás Rosicky (53.), 1-1 Jonathan
Téhoué (89.).
Enska B-deildin
Crystal Palace - Sheff. United 1-0
Ipswich - Hull 1-1
Leeds - Norwich 2-2
Millwall - Middlesbrough 2-3
Nott. Forest - Cardiff 2-1
Portsmouth - Barnsley 1-0
Preston - QPR 1-1
Reading - Watford 1-1
Scunthorpe - Derby 0-0
Swansea - Doncaster 3-0
Staðan
Lið L U J T M St
1. QPR 32 16 13 3 51:20 61
2. Nottingham F. 31 15 11 5 42:26 56
3. Swansea 32 17 5 10 44:30 56
4. Cardiff 32 16 7 9 51:38 55
5. Norwich 32 15 10 7 51:41 55
6. Leeds 32 14 11 7 59:49 53
7. Leicester 32 15 6 11 50:48 51
8. Burnley 31 12 11 8 47:38 47
9. Millwall 32 12 10 10 42:34 46
10. Hull 32 11 13 8 38:34 46
11. Watford 31 12 9 10 57:47 45
12. Reading 32 10 14 8 46:35 44
13. Ipswich 31 12 6 13 43:39 42
14. Barnsley 32 11 8 13 37:46 41
15. Coventry 31 11 6 14 35:38 39
16. Portsmouth 31 10 8 13 42:46 38
17. Doncaster 31 10 7 14 41:57 37
18. Derby 31 10 6 15 41:44 36
19. Middlesbro 31 10 6 15 39:43 36
20. Bristol City 32 9 8 15 36:48 35
21. Cr. Palace 32 9 7 16 30:50 34
22. Sheffield Utd 32 7 8 17 28:50 29
23. Scunthorpe 30 8 4 18 28:52 28
24. Preston 31 5 8 18 32:57 23