Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2011, Blaðsíða 3
Fréttir | 3Miðvikudagur 2. mars 2011
FYRIRTÆKI PÁLMA FÉKK UM
800 MILLJÓNIR AFSKRIFAÐAR
Fékk afskrifað
Eignarhaldsfélag
í eigu Pálma
Haraldssonar,
Ferðaskrifstofa
Íslands, fékk um
800 milljóna
króna afskriftir
hjá Landsbank-
anum á síðasta
ári. Um var að
ræða afskriftir
á skuldum sem
fyrri eigendur
félagsins
höfðu stofnað
til.
Með um 60 prósenta
markaðshlutdeild
Tveir stórir aðilar eru með ríkjandi
markaðsstöðu í orlofs- og sólar-
landaferðum á Íslandi. Undir Ferða-
skrifstofu Íslands, sem var í eigu FL
Group og Saxbyggs en er nú í eigu
Pálma Haraldssonar, eru þrjár ferða-
skrifstofur sem áður voru sjálfstæð-
ar. Það eru Plúsferðir, Úrval Útsýn og
Sumarferðir. Ferðaskrifstofa Íslands
er talin hafa um 60 til 65 prósenta
hlutdeild á markaðnum en um fjórð-
ungur utanlandsferða Íslendinga er
keyptur í gegnum ferðaskrifstofur.
Hinn stóri aðilinn á markaðnum er
Heimsferðir.
Ljóst má vera að velta Ferðaskrif-
stofu Íslands hefur verið mikil síð-
astliðin ár. Þannig sýna mælingar
Hagstofunnar árin 2007 og 2008 að
á bilinu 31 til 41 prósent þeirra sem
ferðuðust til útlanda gerðu það með
aðstoð ferðaskrifstofa en það hlut-
fall hefur heldur lækkað. Samkvæmt
upplýsingum DV bítast ferðaskrif-
stofurnar nú um fjórðung markað-
arins en um þrír fjórðu Íslendinga
kaupa utanlandsferðir beint af flug-
félögunum. Enn fremur kemur á vef
Hagstofunnar fram að fyrstu fjóra
mánuði ársins 2008 fóru Íslending-
ar í um 119 þúsund utanlandsferð-
ir. Út frá hlutfalli þeirra sem versla
við ferðaskrifstofur og því að Ferða-
skrifstofa Íslands sé með 60 til 65
prósenta markaðshlutdeild má ætla
að margir tugir þúsunda Íslendinga
kaupi ferðir af Sumarferðum, Plús-
ferðum og Úrvali Útsýn á ári hverju.
Sökum eignarhalds Pálma Haralds-
sonar á Ferðaskrifstofu Íslands og
flugfélaginu Iceland Express má ætla
að staða skrifstofanna þriggja hafi
batnað umtalsvert frá því að Pálmi
eignaðist þær í ársbyrjun 2009.
Saga þessara þriggja fyrirtækja,
sem nú eru undir sama hatti, er
löng saga sameininga. Þannig keypti
Ferðaskrifstofan Úrval ferðaskrif-
stofuna Útsýn árið 1989 en þaðan
er nafnið komið. Of langt mál væri
að rekja sameiningar þessara ferða-
skrifstofa hér en þær eiga allar rætur
sínar að rekja til frumkvöðla í ferða-
þjónustu á Íslandi. Mörg fyrirtæki
hafa lagt upp laupana eða samein-
ast öðrum og þar má nefna Veröld,
Sögu, Atlantik, Pólaris og Samvinnu-
ferðir/Landsýn.
Í stuttu máli má segja að fyrirtæk-
in þrjú starfi á sama markaði og því
sé ekki óeðlilegt í sjálfu sér að þau
sameinist.
Úrval Útsýn býður fjöldann allan
af ferðum til margra landa. Á heima-
síðunni má bóka ævintýraferðir,
skíðaferðir, ferðir í golf, borgarferðir
og ferðir á íþróttaviðburði. Úrval Út-
sýn hefur gríðarlega fjölbreytt úrval
af ferðum.
Plúsferðir, rétt eins og Sumarferð-
ir, leggja áherslu á sólarlandaferðir
en helstu áfangastaðir beggja ferða-
skrifstofa eru Alicante, Kanaríeyj-
ar, Flórída og Tenerife. „Okkar fólk
leggst í sólbað undir sömu sólinni,
við sama hafið og fólkið sem ferð-
ast með hinum ferðaskrifstofunum.
Bara fyrir mun lægri upphæð,“ segir á
heimasíðu Plúsferða. Lausleg athug-
un á verði vikulangrar ferðar fyrir tvo
fullorðna til Kanaríeyja með Sumar-
ferðum annars vegar og Plúsferðum
hins vegar leiðir í ljós að verðið er ná-
kvæmlega það sama. baldur@dv.is
Fjórðungur kaupir ferðir af ferðaskrifstofum á Íslandi:
Tveir risar eiga mark-
aðinn Flestir Íslendingar
kaupa ferðirnar beint af
flugfélögum.
hluthafafundi þann 2. febrú-
ar 2010 var hlutafé félagsins
fært niður að fullu, samtals
að fjárhæð 307,7 millj.
kr. að nafnverði til að
mæta tapi. Jafnframt
var hlutafé félagsins
aukið um 750 millj. kr.
að nafnverði. Skuldbréf
félagsins við NBI var
fryst í ársbyrjun 2009 þá
að uppreiknuðum eft-
irstöðvum 496 millj. kr.
Samkvæmt samningi
dagsettum 29. janúar
2010 hefur félagið fengið
heimild til að greiða lánið
að fullu með eingreiðslu
að fjárhæð 250 millj. kr.
Að því gefnu að greiðslan
eigi sér stað eigi síðar en
3. febrúar 2010 og að hlutafé
félagsins hafi verið aukið um 750
millj. á sama tíma. Félagið nýtti sér
ofangreinda heimild.“
Getur samþætt reksturinn
Staðan á viðskiptum Pálma með
Ferðaskrifstofu Íslands er því sú að fé-
lagið hefur gengið í gegnum fjárhags-
lega endurskipulagningu sem ætti að
geta gert rekstur þess viðráðanlegri
fyrir Pálma þótt skuldirnar séu enn-
þá mjög miklar. Afskriftir á skuldum
félagsins við Landsbankann nema,
samkvæmt ársreikningnum, um 800
milljónum króna.
Landsbanki Íslands hefur væntan-
lega metið stöðu félagsins sem svo að
betra væri fyrir bankann að halda fé-
laginu gangandi með nýjum eiganda
frekar en að setja það í þrot vegna
slæmrar skuldastöðu þess. Mat bank-
ans hefur væntanlega byggst á því að
hann myndi að öllum líkindum fá
meira upp í kröfur sínar með þessum
hætti. Því til stuðnings skal þess get-
ið að rúmar 600 milljónir af tæplega
1.000 milljóna króna eignum Ferða-
skrifstofu Íslands eru svokölluð við-
skiptavild, óefnislegt eignamat sem
eingöngu er hægt að bókfæra sem
eign ef félagið heldur áfram rekstri.
Landsbankinn hefði því ekki getað
gengið að nema litlum hluta þessara
eigna til að fá upp í kröfur sínar ef
félagið hefði verið sett í þrot. Til að
koma til móts við þennan nýja eig-
anda áttu sér stað skuldaafskrift-
ir. Án skuldaafskrifta má ætla að
erfiðlega hefði gengið að fá ein-
hvern til að taka félagið yfir.
Eignarhald Pálma á Ferða-
skrifstofu Íslands getur kom-
ið sér vel fyrir hann þar sem
hann getur samþætt rekst-
ur hennar og flugfélags-
ins Iceland Express, og
hefur hann gert þetta í
einhverjum mæli sam-
kvæmt heimasíðum
ferðaskrifstofanna.
Pálmi er því í nokkuð
góðri stöðu að þessu
leyti og ætti þessi
staða hans að hafa
góð áhrif á rekst-
ur allra fyrirtækj-
anna fjögurra.
„Því leikur vafi á
áframhaldandi
rekstrarhæfi félagsins.