Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2011, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2011, Blaðsíða 20
20| Fókus 2. mars 2011 Miðvikudagur Menningarverðlaun DV afhent í 32. skipti: Aldrei fleiri flokkar Menningarverðlaun DV verða af- hent í Gyllta salnum á Hótel Borg á milli 17 og 19 í dag. Þetta er í 32. skipti sem verðlaunin eru veitt en þau voru fyrst afhent árið 1978. Verðlaunin hafa þróast og breyst í gegnum árin en að þessu sinni eru veitt verðlaun í níu flokkum; bók- menntum, byggingalist, danslist, fræðum, hönnun, kvikmyndum, leiklist, myndlist og tónlist. Þetta er í fyrsta sinn sem veitt eru verðlaun í danslist. Í hverjum flokki eru fimm til- nefningar sem valdar eru af þriggja manna nefnd. Tilnefningarnar í ár eru því 45 talsins en auk þess eru veitt verðlaunin Val lesenda og sér- stök heiðursverðlaun. Val lesenda fór fram á DV.is og gafst lesendum kostur á að kjósa á milli tilnefn- inganna 45. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra mun afhenda hin árlegu heiðursverðlaun en þetta er í níunda sinn sem þau eru veitt. Sem fyrr sagði voru Menningar- verðlaun DV stofnuð árið 1978. Stofnað var til þeirra þegar svoköll- uð gagnrýnendaverðlaun lögðust af, Silfurlampinn og Silfurhesturinn. Í nokkur ár fram að fyrstu afhend- ingu lágu öll listaverðlaun niðri hér á landi en það var fyrst og fremst fyr- ir áhuga og atbeina Ólafs Jónssonar gagnrýnanda sem Menningarverð- laun DV urðu að veruleika. Upphaf- lega voru verðlaunin veitt fyrir leik- list og bókmenntir en flokkunum fjölgaði hratt. Þeir hafa aldrei verið fleiri en í dag eða níu talsins. asgeir@dv.is Þjóðleg stef, sungin af löngu látnu fólki: Raddir þjóðar á Háskólatónleikum „Þetta er spuni þar sem hljóðfæra- leikur okkar kallast á við raddir þeirra gengnu,“ segir Pétur Grétars- son tónlistarmaður um áhugaverða tónleika í Árnastofnun miðviku- daginn 2. mars. Tónleikarnir bera nafnið Raddir þjóðar og eru með þeim Pétri Grétarssyni og Sigurði Flosasyni en í tilefni aldarafmæl- is Háskóla Íslands verður röð Há- skólatónleika með frumsamdri ís- lenskri tónlist á ólíkum stöðum um háskólasvæðið. Raddir þjóðar hefj- ast 12.30 og er aðgangur ókeypis. Pétur Grétarsson leikur á slag- verk, sér um rafhljóð og rödd og Sigurður Flosason á saxófón og rödd. En eins munu þeir flytja sam- felldan spuna þar sem hljóðfæra- leikur þeirra kallast á við raddir úr söfnum í Stofnun Árna Magnús- sonar og Þjóðminjasafni Íslands. Ýmis þjóðleg stef munu koma fyrir, sungin af löngu látnu fólki. Pétur Grétarsson er mörgum kunnur en hann hefur leikið á slag- verkshljóðfæri í aldarfjórðung. Pétur nam við Tónlistarskólann í Reykjavík, en stundaði framhalds- nám við Berklee College of Music í Boston. Þar nam hann jazztónlist, en kynntist jafnframt framúrstefnu- tónlist og afrískum trommuleik. Pétur leikur reglulega með Sinfón- íuhljómsveit Íslands og tekur þátt í kammertónlist. Hann hefur hald- ið einleikstónleika og tekið þátt í miklum fjölda tónlistarverkefna á ólíkum sviðum. Sigurð Flosason þekkja síðan allir áhugamenn á Íslandi um jazz- tónlist en hann hefur fjórum sinn- um hlotið hlotið íslensku tónlistar- verðlaunin og tvívegis að auki verið tilnefndur til tónlistarverðlauna. Sigurður hefur verið yfirkennari jazzdeildar Tónlistarskóla F.Í.H. frá 1989. Gluck í Sambíóunum Í kvöld verður endurflutt í Sambíó- unum-Kringlunni bein útsending Metropolitan-óperunnar í New York á óperu Glucks, Iphigénie en Taur- ide. Óperan er eitt af síðustu verkum Glucks sem sagði steinrunnum hefð- um óperulistarinnar stríð á hendur á síðari hluta átjándu aldar og bjó með því í haginn fyrir hinar dramatísku óperur Mozarts, Verdis, Wagners og annarra stórskálda óperulistarinnar. Það eru þau Susan Graham og Plac- ido Domingo sem syngja burðarhlut- verkin ásamt Paul Groves í sviðsetn- ingu Stephens Wadsworth frá 2007. Þó að Iphigénie en Tauride, sem sækir efnivið sinn í grísku sögnina af harmleik Agamemnos konungs í Ar- gos og fjölskyldu hans, sé ekki jafn oft flutt og frægasta verk Glucks, Orfeus og Evridís, er hún engu að síður jafn- an talin eitt af merkustu verkum hans. Íslenska hljómsveitin Retro Stefson hefur gert útgáfusamninga við Universal-útgáf- una í Berlín um útgáfu á plötunni Kimbabwe í Þýskalandi, Austurríki, Sviss og Austur-Evr- ópu. Í samningnum er líka gert ráð fyrir því að fyrirtækið fái fyrsta rétt á næstu tveimur plötum sveitarinnar. Þá hefur sveitin einnig gert samning við Sony ATV-útgáfuna til næstu þriggja ára sem nær til kynningar á tónlist hennar. Slíkur samningur hjálpar sveitinni að koma verkum sínum á framfæri í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum, segir í fréttatilkynningu frá sveitinni. Valgerður syng- ur í listasafninu Valgerður Guðrún Guðnadóttir, leik- og söngkona, kemur fram á hádegis- tónleikum í listasafninu Hafnarborg í Hafnarfirði á miðvikudag. Hún er ein þriggja sópransöngkvenna sem fram koma á hádegistónleikum á árinu. Valgerður Guðrún mun flytja lög úr söngleikjum og líflegar aríur. Meðal þess sem hún mun syngja eru lög úr Söngvaseið, eftir Rodgers og Hamm- erstein, en hún vakti mikla athygli fyrir söng og leik í hlutverki sínu sem María þegar söngleikurinn var síðast settur upp í Borgarleikhúsinu. Fyrir hlutverk sitt í Söngvaseið fékk hún meðal annars Grímuna, íslensku leik- listarverðlaunin, sem söngvari ársins. Magnús Jóns opnar sýningu Magnús Jónsson leikari opnar sína fyrstu málverkasýningu und- ir heitinu SKRÁMUR næstkom- andi laugardag. Sýningin verður í galleríinu Auga fyrir Auga sem staðsett er að Hverfisgötu 35 en sýningin verður opin frá klukkan 15.00 til 17.00 alla fimmtudaga og föstudaga og frá klukkan 14.00 til 17.00 laugardaga og sunnudaga. Sýningin stendur til 27. mars. Gera SamninG Við UniVerSal oG Sony Sigurður Flosason og Pétur Grétars- son Áhugaverðir tónleikar í Árnastofnun miðvikudaginn 2. mars kl. 12.30 Sigurvegararnir frá því í fyrra Aldrei fleiri verðlaunaflokkar en nú. L isa (Reese Witherspoon) spil- ar hafnabolta með landsliðinu af mikilli ástríðu. Skyndilega er hún í þeirri hrikalegu stöðu að vera hafnað í nýrri uppstillingu liðs- ins og verður í kjölfarið alveg týnd og vonlaus. Hún veit ekkert hvað hún á að gera við sig og það er oft þá sem nýjar hugmyndir banka upp á. Á sama tíma fylgjumst við með George (Paul Rudd) sem á svipaðan hátt fellur úr hæstu hæðum en í hans tilfelli er það vegna fjármálamisferlis innan fjölskyldufyrir- tækis hans. George leitar til Lisu sem síðan leit- ar í hafnaboltastjörnuna Matty (Owen Wilson) en honum gengur allt í hag- inn. Hún reynir að finna sig aftur, end- urmeta sína stöðu og væflast um í þessum ástarþríhyrningi með þeim fé- lögum. Þeir eru gjörólíkir en hafa engu að síður aðdráttarafl sem hún þarf svo að meta styrkleikann á. Matty er gleði- gjafi mikill en veitir ef til vill ekki vits- munalegu örvunina sem Lisa þarfnast, sérstaklega á þeim tímamótum sem hún stendur á þegar hér er komið sögu. George hins vegar er hálfskrýtinn lúði sem er hjartahlýr í meira lagi. Myndin spyr þig síðan hvor verði fyrir valinu. Málaferlin gegn fyrirtæki Georges hafa töluverð áhrif á sög- una og þar spilar pabbi Georges (Jack Nicholson) stórt hlutverk. Hann er fínn svo sem en ekkert meira en það. Reese Witherspoon er rosa sæt en heldur ekk- ert mikið meira að frétta þar. Hún leik- ur klisjukennt og er með nóg af sápu- óperusvipum fyrir allan gjaldeyrinn. Owen Wilson er eins og svo oft áður mjög hressandi og fyndinn í meira lagi. Maður nær að hlæja yfir honum þar sem hann gerir gloríur í sínu stóra egói og dettur óvart í sjálfumgleðina stund- um án þess að meina neitt illt með því. Við erum sem sagt með hefðbundna rómantíska gamanmynd sem dýfir tánni rétt sem snöggvast í alvöru lífs- ins. En ekki djúpt. Myndin gerir eflaust allt sem hún ætlar sér og kemur fín út sem slík. Hún er oft bráðfyndin og upp- fyllir kröfur „feelgood“-iðnaðarins. Hlutar handritsins eru sæmilega raunverulega skrifaðir og boðskapur- inn er góður en teiknimyndastrengja- sveit í stemningsdeildinni minn- ir mann reglulega á það hvílík froða er hér á ferð. Þetta er mynd sem væri hægt að gera sömu skil í sjónvarps- þætti, sápuóperu jafnvel. En af þessari og fleiri myndum Brooks metur maður það þannig að leikstjórinn er alveg full- fær um að taka á sínum myndum með dýpri dýfu í efniviðinn og þann veru- leika sem við búum við utan girðing- arinnar kringum Hollywood. Kannski þora menn það ekki, hver veit? Svo um leið og ég segi að myndin sé fín sem slík og hressi alveg þá verð ég að viður- kenna að áður en ég skrifa endapunkt þessa kvikmyndadóms verð ég búinn að steingleyma öllu sem viðkemur þessari mynd. Og það er þannig. Fín mynd til að SteinGleyma How Do You Know? IMDb 5,3 RottenTomatoes 30% Metacritic 46 Leikstjóri: James L. Brooks Handrit: James L. Brooks Leikarar: Reese Witherspoon, Paul Rudd og Owen Wilson 121 mínúta Bíómynd Erpur Eyvindarson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.