Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2011, Blaðsíða 12
„Meiri móðursýkin í þessum kelling-
um alla daga. Undir niðri dauðlangar
hana í nauðgun, það er nú heila mál-
ið.“ Þetta sagði Baldur Hermanns-
son, eðlisfræðikennari í fjölbrauta-
skólanum Flensborg, þann 30. apríl í
fyrra. Ummælin lét hann falla á Face-
book-síðu Ásgeirs Þórs Davíðssonar,
sem oftast er kenndur við Goldfinger,
og átti þar við Sóleyju Tómasdóttur
borgarfulltrúa.
Baldur heldur sjálfur úti heima-
síðu og komst í fréttirnar vegna at-
hugasemdar sem hann skrifaði þar,
þar sem hann hvatti til kynferðis-
legrar áreitni með þessum orðum:
„Og sýna kellingunum kynferðislega
áreitni. Ekki gleyma því.“ Var þetta
svar hans við annarri athugasemd
þar sem maður sagðist vilja að níu-
menningarnir yrðu settir í búr eða
gapastokk, þeir síðan grýttir og loks
yrði sparkað í þá.
Erfitt að áreita femínista
Daginn áður en sú færsla birtist
sagði annar bloggari í kommenta-
kerfi Baldurs að það ætti að áreita
femínista hvar sem til þeirra næðist,
helst kynferðislega, og að á Alþingi
væru allmargar sem full þörf væri á
að áreita. Þá svaraði Baldur og sagði
að þessar ábendingar væru „... góðra
gjalda verðar en sá böggull fylgi
skammrifi að flestir femínistar eru
þannig útlítandi að erfitt mun reyn-
ast jafnvel hraustasta karlmanni að
áreita þær kynferðislega.“ Og bætti
því síðan við að það þyrfti minnst
fimm bláar viagra-pillur á þær óðu
frenjur.
„Fjöldi kvenna lætur sig dreyma
um nauðgun“
Ummælin sem hann lét falla á fés-
bókarsíðu Ásgeirs Þórs voru þó öllu
grófari og þegar þeim var mótmælt
stóð ekki á svari frá Baldri: „Bjána-
gangur er þetta. Það er alþekkt vís-
indaleg staðreynd að fjöldi kvenna
lætur sig dreyma um nauðgun. Um
þetta má finna lærðar ritsmíðar en
það er líka til fjöldi vefsíðna, t.d.
Wiki pedia, fyrir þá sem ekki hafa
bækur við höndina,“ og vitnaði í um-
ræðu um að konur hefðu kynferð-
islegar fantaísur um nauðganir. Þar
segir meðal annars að sumir telji að
þetta sé leið kvenna til þess að fást
við sektarkennd eða leið til þess að
tjá langanir án ábyrgðar.
Ásgeir Þór leiðrétti þennan mis-
skilning Baldurs og sagði að slík-
ar hugrenningar ættu ekki við um
raunverulega nauðgun heldur það
að draumaprinsinn tæki þær föstum
tökum. „Það er að Georg Clooney
eða Tom Cruise komi og bindi þær
við rúmið silkiklút og flengr þeim,
ekki einhver hardkor nauðgari.“
Við þá, sem ekki tóku undir þetta,
sagði Baldur: „Þetta eru dæmi um
menn sem annað hvort hafa aldrei
kynnst konum eða lifa í afneitun.“
„Gert til þess að stríða“
Blaðamaður bar þessi ummæli
undir Baldur og spurði hvort hann
stæði í þeirri meiningu að kon-
ur vildu lenda í nauðgun. „Nei,
nei, nei. Þetta er bara gert til þess
að stríða. Þetta er látið falla á Fac-
ebook, það kemur alltaf mýgrút-
ur manna þarna inn og æ, ég lét
þetta flakka. Auðvitað hefði ég átt að
sleppa þessu.
Ef ég segi þér alveg eins og er þá
hef ég ekki verið svo heppinn að vera
kona og ég veit ekkert hvernig kon-
ur hugsa. Og langar eiginlega ekkert
sérstaklega til að vita það.“
Í huga Sóleyjar Tómasdóttur er þó
ekki hægt að túlka slík ummæli sem
stríðni. „Það kemur mér ekki á óvart
að hann skuli reyna að halda því
fram að þetta sé stríðni enda alþekkt
að þegar karlar hafa afhjúpað skoð-
anir sínar með þessum hætti reyni
þeir að slá því upp í grín.“
Orðin ýmsu vön
Sjálf hefur hún oftar en einu sinni
þurft að sitja undir hótunum um
kynferðisofbeldi og þessi ummæli
komu henni ekki á óvart. „Ég er orðin
ýmsu vön sjálf en ég óska engri konu
þess að þurfa að taka á sig svona at-
hugasemdir né þess að fleiri konur
þurfi að venjast þessu. Konur eiga
ekki að þurfa að venjast því að það
sé farið með fleipur um kynferðis-
ofbeldi gagnvart þeim.
Ég vildi geta sagt að þetta kæmi
mér á óvart en það virðist vera
ótrúlega algengt, og það á meðal
allra þjóðfélagshópa, að karlmönn-
um takist að sannfæra sjálfa sig og
reyni að sannfæra aðra um að kyn-
ferðisofbeldi sé réttlætanlegt með
einhverjum hætti. Mér finnst það
vera alvarlegt áhyggjuefni að mað-
ur með þessar skoðanir skuli gegna
mikilvægu hlutverki í lífi og upp-
eldi ungmenna, mér finnst það
áhyggjuefni að stúlkur og drengir
þurfi að reiða sig á siðferðisvitund
þessa manns.“
„Afar sorglegt“
Sóley er ekki sú eina sem hefur
áhyggjur og Eiríkur Jónsson, formað-
ur kennarasambandsins, fordæmir
ummæli Baldurs. „Mér finnst þessi
orðræða alveg ömurleg og ég get
ekkert annað en fordæmt öll um-
mæli í þessa veru. Sama hvort það
eru kennarar eða aðrir sem eiga hlut
að máli.
Kennarar eru í þeirri stöðu að
þurfa enn frekar en aðrir að gæta
orða sinna og gjörða því þeir vinna
með börnum og unglingum og eiga
að hegða sér í takt við það, þeir eiga
að vera fyrirmyndir. Það sem ég hef
frétt af þessu máli, þá hefur það far-
ið út yfir allt. Það er afar sorglegt að
menn skuli detta niður í svona.“
Spurning um siðanefnd
Eiríkur segir að í fæstum tilfellum sé
kennurum vikið beint úr starfi. „Ef
maðurinn er búinn að fá áminningu
frá skólanum er skólastjórinn búinn
að grípa til þeirra ráða sem hann hef-
ur. Lögin eru alveg skýr þannig að ef
hann lætur áminningu sér ekki að
kenningu verða er framhaldið alveg
ljóst.
Það hafa komið upp mál sem
maður hefði viljað að væri tekið á og
þetta er eitt af þeim. En við getum í
sjálfu sér lítið gert því við erum ekki
með siðanefnd, aðeins siðareglur og
siðaráð. Nú verðum við með kenn-
arasambandsþing eftir rúman mán-
uð og það er ekkert ólíklegt að þar
munum við ræða það hvort það eigi
að skipa siðanefnd, fagráð eða eitt-
hvað þess háttar.“
Veitt áminning í gær
Einar Birgir Steinþórsson, skóla-
meistari Flensborgar, var í fríi frá
því að þessi ummæli féllu og þar til
á mánudagsmorgun. Þá kom hann
aftur til starfa og hans fyrsta verk var
að kynna sér allar hliðar málsins og
ræða við Baldur. Í kjölfarið var Baldri
veitt formleg áminning vegna um-
mæla sinna í netheimum. „Það gilda
ákveðin lög og reglur um starfsmenn
ríkisins og réttindi þeirra og skyldur.
Það verða menn að skilja að þau lög
verðum við að virða.
Þetta eru orð sem ekki nokkur
maður á að láta sér um munn fara,
hvorki í gamni né alvöru. Hins veg-
ar dettur engum sem þekkir Baldur
hér innan skólans annað í hug en að
þetta sé gaspur í honum. Hann hef-
ur starfað hér í nokkur ár og er einn
vinsælasti kennari skólans í áfanga-
mati þannig að ég hef engar áhyggjur
af störfum hans hér innanhúss. Hins
vegar hef ég áhyggjur af svona um-
mælum.“
Í yfirlýsingu frá skólanum eru
ummæli Baldurs fordæmd. „Af hálfu
skólans eru þau ummæli sem þarna
eru höfð eftir fordæmd og skiptir
engu mál hvort þau eru sett fram í
gamni eða alvöru.“
Reiðialda gagnvart skólanum
Mikil reiðialda hefur dunið á skólan-
um og þangað hafa borist bréf og sum
hver ljót. „Í svona málum verðum við
líka að hugsa um nemendur og aðra
starfsmenn skólans. Það er ömurlegt
að verið sé að setja alla starfsmenn
undir sama hatt, allt það góða starf
sem hefur verið unnið í skólanum í
þessum málum sem og öðrum. Það er
líka ábyrgðarefni. Menn eru voðalega
fljótir að skjóta og stundum á fleiri en
eiga það skilið. Það er ekkert endilega
allt smekklegt sem hingað berst.
En eins og ég hef sagt við mína
kennara, að vissu marki erum við op-
inberar persónur og menn verða að
gæta sín. Mönnum er það ekki alltaf
augljóst, hvorki í þessu starfi né öðr-
um, hvar sú ábyrgð byrjar og hvar hún
endar. Hins vegar eru ákveðnar siða-
reglur sem menn verða að fara eftir.
Núna er það okkar hlutverk að vinna
með nemendum og foreldrum.“
Ætlar að reyna að bæta sig
Aðspurður segist Baldur ætla sér að
halda kennslu áfram. „Því á ég fylli-
lega von á, en það er ekki á mínu
valdi hvort þetta hefur áhrif þar á.
Ég verð samt að reyna að bæta mig,
bæta mitt ráð og bæta mína mynd.
Við erum öll í þeirri stöðu. Það er
aldrei að vita nema mér takist það.
Lærum við ekki öll af lífinu? Lærum
við ekki af því sem við gerum rétt og
af mistökum okkar?
Ég veit að þú skilur það að akkúrat
þessa dagana er þetta mál rosalega
íþyngjandi fyrir skólann og skóla-
meistarann. Skólastjórnendur eru
núna á fullu að gera hreint fyrir sín-
um dyrum gagnvart nemendum og
foreldrum, senda út bréf og veita mér
áminningu. Á meðan það ástand er
hef ég ekki alveg frjálsar hendur til
þess að tala. En það er tvennt sem
stendur eftir. Í fyrsta lagi hefðu öll
þessi orð betur verið ósögð. Í öðru
lagi hefði ég átt að hlusta á konuna
mína.“
Óheiðarlegt að segjast sjá eftir
þessu
„Það væri svolítið óheiðarlegt af mér
að segja að ég sæi eftir þessu,“ segir
hann. „Ég er bara gamall strigakjaft-
ur sem hefur látið margt flakka um
ævina. Það er enginn vandi að finna
urmul af ummælum sem ég hef lát-
ið falla sem eru óviðurkvæmileg. En
ég get sagt þér hverju ég sé eftir, því
að hafa ekki hlustað betur á konuna
mína. Hún sagði við mig: „Baldur
þú ert allt of mikill glanni. Þú verður
að vara þig á því hvað þú lætur út úr
þér.“ Ég sé eftir því að hafa ekki hlust-
að betur á hana. Ég hvet alla karla til
þess að hlusta á konuna sína.“
12 | Fréttir 2. mars 2011 Miðvikudagur
KENNARI SAGÐI KONUR
DREYMA UM NAUÐGUN
n Menntaskólakennari hvatti til kynferðislegrar áreitni n Sagði að Sóleyju Tómasdótt-
ur dauðlangaði í nauðgun n „Gert til þess að stríða“ n Sóleyju er ekki skemmt n „Væri
óheiðarlegt af mér að segja að ég sæi eftir þessu“ n Áminntur en heldur kennslu áfram
„Ég óska engri konu þess að þurfa að taka
á sig svona athugasemdir né þess að fleiri
konur þurfi að venjast þessu. Konur eiga ekki að
þurfa að venjast því að það sé farið með fleipur um
kynferðisofbeldi gagnvart þeim.
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is
Hver er maðurinn?
Baldur Hermannsson er fæddur árið 1942. Hann lærði raungreinar í Noregi
og Svíþjóð. Þar dvaldi hann lengi við nám og ýmis störf. Síðan kom hann
heim og starfaði á fjölmiðlum, meðal annars á DV og í sjónvarpinu. Fyrir
18 árum gerði hann heimildarmyndina Þjóð í hlekkjum hugarfarsins sem
var eins konar uppgjör við fortíð Íslendinga og vakti mikla athygli. Hann
hóf að kenna stærðfræði og eðlisfræði árið 1999 við Iðnskólann í Reykjavík
en færði sig yfir í Flensborg árið 2002 þar sem hann kennir nú eðlisfræði og
stjörnufræði.
Baldur Hermannsson Lét gróf ummæli falla um konur á netinu.
Sóley Tómasdóttir
Baldur sagði að Sóley
vildi láta nauðga sér.