Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2011, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2011, Síða 26
26 | Fólk 2. mars 2011 Miðvikudagur Hildur Líf og Linda Ýr Kjerúlf: BEÐNAR UM AÐ PLANA GÓÐGERÐAKVÖLD Þ rátt fyrir að íslenska þotu-liðið hafi kannski vantað í VIP-partíið sem vinkonurnar Hildur Líf og Linda Ýr Kjerúlf héldu á skemmtistaðnum Re-Play um helgina eru þær ekki af baki dottn- ar. Strax í aðdraganda VIP-partísins voru þær farnar að leggja drög að góðgerðasamkomu sem þær voru beðnar um að skipuleggja, en það kom fram í samtali DV við Hildi í síðustu viku. „Það er búið að biðja okkur um að halda góðgerðapartí og eitt- hvað svona,“ sagði Hildur. Það væri mjög gaman ef til þess kæmi og að það væri heiður að fá að halda slíkt góðgerðakvöld. Leiða má lík- ur að því að kvöldið yrði með sama sniði og sjá má í mörgum erlendum kvikmyndum þar sem glæsilegar stúlkur bera fram drykki og mann- skapurinn borgar sérstaklega fyrir að fá að vera viðstaddur. Ásgeir Þór Davíðsson, betur þekktur sem Geiri á Goldfinger, eig- andi Re-Play, var sáttur með stúlk- urnar eins og myndir, sem DV birti úr partíinu, sýndu glöggt og er ekki óeðlilegt að áætla að góðgerðasam- koman færi fram á sama stað, verði af henni. Þá er líka spurning hvort Lilja Ingibjargardóttir, sem hætti eftirminnilega við að taka þátt í skipulagningu VIP-partísins fræga, taki þátt í undirbúningi góðgerða- kvöldsins. Góðgerðakvöld Mæta þessar glæsipíur næst á góðgerðakvöld? MYND BJÖRN BLÖNDAL Útgefandinn og stjórnarformaðurinn Björn Ingi Hrafnsson hyggst opna nýjan vef í vikunni undir nafninu menn.is. Vefnum verður ritstýrt af Helga Jean Claessen sem helst hefur unnið sér til frægðar að hafa skrifað bók byggða á æfi rukkarans Jóns Hilmars Hallgrímssonar, sem oftast er kallaður Jón stóri, og að skrifa reglulega pistla á annan vef í eigu Björns Inga og félaga, bleikt.is. Vefurinn sem Helgi ætlar að ritstýra er líklega tilraun Vefpressunnar, útgáfufyrirtækis Björns Inga, Róberts Wessmann og fleiri aðila, til að koma í loftið sams konar vef og bleikt.is nema fyrir karlmenn. Ritstjórinn Helgi Jean Ólína Þorvarðardóttir var fjarri öllum jarðskjálftum um helgina en hékk þess í stað í þyrlu. Hundur þingkonunn- ar, Skutull, tók þátt ásamt eiganda sínum í þyrluæfingu hjá Vestfjarða- deild Björgunarhundasveitar Ís- lands á dögunum. Þar voru þau Ólína og Skutull hífð upp í þyrlu í kaðli sem var látinn hanga niður úr björgunarþyrlunni TF-LÍF. „Hundunum var leyft að kynnast þyrlunni, fara um hana og kynnast áhafnarmeðlimum. Síðan var þyrl- an sett í gang og allir settir um borð í hávaðanum,“ segir Ólína um æfing- una. Eftir að hundarnir voru búnir að fá að kynnast þyrlunni og áhöfn hennar var öllum komið fyrir á Arn- arnesi á Vestfjörðum og þyrlan lát- in hífa hundana og eigendur þeirra upp. Skutull stóð sig vel Í lýsingum sínum á æfingunni segir Ólína að Skutull hafi verið farinn að ókyrrast í sigvestinu augnabliki áður en siglínan ver strekkt úr þyrlunni og þau dregin upp. „Hann byrjaði nú að sprikla í beltinu þegar það átti að fara að hífa okkur upp. Hann fór að brjótast um í sigbeltinu sem hann var í en um leið og ég losnaði frá jörðinni og við vorum í lausu lofti þá bara hætti hann og lét þetta yfir sig ganga,“ segir Ólína. „Greyið held ég að hafi bara áttað sig á því að það væri eins gott, að fylgja sínum for- ingja.“ Skutull var orðinn nokkuð ró- legur þegar í þyrluna var komið þrátt fyrir að þar væru dyrnar opnar og lætin í þyrlunni hafi ómað um allt. Mikill tími í æfingar Alls tóku fimm hundar og eigendur þeirra þátt í æfingunni ásamt þyrluáhöfn flugbjörgunarsveitar- innar. Æfingin fór fram á Arnar- nesinu við mynni Skutulsfjarðar á Vestfjörðum. Allir hundarnir eru á útkallslista björgunarsveitanna og eru sérþjálfaðir leitarhundar. „Það fer mikill tími í þetta. Maður sinnir ekki mörgum öðrum áhugamálum á meðan maður er í þessu,“ segir Ólína sem segir að hundasveitin æfi vikulega og fari svo reglulega á helgar- og vikulöng námskeið. n Ólína Þorvarðar fór með hundinn á þyrlu- æfingu n Hékk í lausu lofti með hundinn í fanginu n Hundurinn Skutull í Hundabjörg- unarsveit Íslands Glæsileg björgun- arsveit Hundarnir í björgunarsveitinni eru sérþjálfaðir leitarhundar og eru nú vanir þyrlum. í lausu lofti Þingmaður Spurningakeppninni Vitraun verður hleypt af stokkunum á Ölstofunni í kvöld, mið- vikudaginn 2. mars. Fyrirkomulagið er ekki ósvipað því sem þekkist á „pubquiz-um“. Keppendur geta verið frá einum og upp í sex í liði og hver þátttakandi greiðir 500 krónur í þátttökugjald sem fer í vinningspottinn. Liðið sem lendir í öðru sæti fær þátt- tökugjaldið sitt endurgreitt en sigurliðið hlýtur restina af pottinum í verðlaun ásamt óvæntum glaðningi í boði Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar. Keppnin hefst klukkan 20 og til stendur að Vitraun verði reglulegur viðburður á Ölstofunni. Vitraun á Ölstofunni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.