Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2011, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2011, Blaðsíða 29
Fólk | 29Miðvikudagur 2. mars 2011 www.birkiaska.is Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox). Birkilaufstöflur www.birkiaska.is Minnistöflur Bætir skammtímaminnið. Nýtist fólki sem er undir álagi og fæst við flókin verkefni. Hentar vel fyrir eldri borgara, lesblinda og nemendur í prófum. Dregur úr streitu, eykur ró og bætir skap. Charlie Sheen er brjálaður yfir því að sjónvarpsþættirnir Two and a Half Men hafi verið blásnir af og segist ekki bera ábyrgð á því. „Ég ætla ekki að láta fara illa með mig,“ sagði Charlie meðal annars í viðtalinu og hót- aði því að fara í mál við CBS til að fá þær launagreiðsl- ur sem hann tapar við að framleiðslu þáttanna sé hætt bættar. Samkvæmt fréttum bandarískra fjölmiðla er líklegt að hann fari fram á hundruð milljóna dala, sem nemur milljörðum króna. Charlie er þekktur partípinni og hafa fréttir af part- íhaldi hans borist víða en í partíin býður hann jafnan klámmyndastjörnum og býður upp á úrval fíkniefna, sam- kvæmt því sem gestir úr partíunum segja. Charlie er tvískil- inn og á nokkur börn en hann hefur lýst því yfir að hann vilji fá báðar fyrrverandi eiginkonur sínar til að flytja í nágrenni við sig svo að hann haldi betri tengslum við börnin sín. Sjálf- ur býr hann með tveimur stúlkum sem hann kallar kærust- urnar sínar. Þegar Charlie var spurður út í fíkniefnanotkun sína byrjaði hann á því að reyna að snúa út úr en sagðist svo ekki muna hve- nær hann notaði síðast fíkniefni. „Að deyja er fyrir fífl,“ sagði hann spurður hvort hann óttaðist ekki afleiðingar neyslunnar en sagðist vera hættur að nota fíkniefni. Hann bauðst meira að segja til að taka fíkniefnapróf í miðju viðtalinu, sem hann gerði. Samkvæmt fyrstu niðurstöðum úr prófinu fundust engin fíkni- efni í líkama Charlies en nánari athuganir verða gerðar á sýn- unum sem fengin voru hjá honum. Engu að síður segist hann vera stoltur af partístandinu. „Auðvitað, af hverju ætti ég ekki að vera það?“ Hin árlega Golden Rasp-berry-verðlaunahátíðin, eða Razzie-verðlaunin eins og hún er ávallt kölluð, fóru fram um helgina, daginn fyrir Óskarsverðlaunahátíðina, en þar voru veitt verðlaun fyrir verstu frammistöðu í kvikmyndum á síðasta ári. Fátítt er að verðlaunahafar mæti á þessi verðlaun en hátíð- in hefur þó engu að síður skap- að sér fastan sess. Í ár voru það kvikmyndirnar Sex and the City 2 og The Last Airbender sem voru sigursælastar en aðalpersónurn- ar fjórar úr Sex and the City voru saman valdar verstu leikkonur síðasta árs. Þá voru allir leikarar í kvikmyndinni valdir versti leik- hópur 2010. The Last Airbender var hins vegar valin versta kvik- mynd síðasta árs og gerð eftir versta handriti. Versti leikarinn í aðalhlut- verki er Ashton Kutcher fyrir leik sinn í kvikmyndunum Killers og Valentine‘s Day. Versta leikkona í aukahlutverki er Jessica Alba fyrir The Killer Inside Me, Little Fockers, Machete og Valentine‘s Day en versti leikarinn í auka- hlutverki er Jackson Rathbone fyrir leik sinn í kvikmyndunum The Last Airbender og Eclipse. Verðlaunin hafa á undan- förnum árum orðið sífellt stærri en þau hafa verið afhent árlega í meira en þrjá áratugi. Verðlauna- hafar á Razzie-hátíðinni virð- ast þó ekki vera lélegri en svo að margir hafa unnið til verðlauna fyrir góða frammistöðu en ekki bara slæma. Í fyrra gerðist það til dæmis að Sandra Bullock fékk bæði Razzie-verðlaunin og Ósk- arsverðlaunin fyrir leik í aðal- hlutverki í sömu vikunni. Charlie Sheen opnar sig í viðtali: Verðlauna það versta Razzie-hátíðin fór fram um helgina: Verstu leikkonurnar Leikkonurnar úr Sex and the City voru saman valdar verstu leikkonur síðasta árs. í sjónvarpinu Elizabeth Taylor á sjúkrahúsi: Fylgdist með Óskarnum Elizabeth Taylor eyddi 79 ára afmælisdeginum sín-um á sjúkrahúsi í Los Angeles og neyddist til að horfa á Óskarsverðlaunin í sjónvarp- inu. Hún er á batavegi eftir að hafa verið lögð inn eftir hjarta- bilun. Sjálf hefur Elizabeth tví- vegis unnið til Óskarsverðlauna og hefur verið fastagestur á verð- launahátíðinni á undanförnum árum. Fjölskylda hennar og nánir vinir voru með henni um helg- ina á sjúkrahúsinu til að horfa á hátíðina. Fjölmiðlafulltrúi henn- ar sagði í samtali við bandaríska fjölmiðla að hún ætlaði að halda upp á afmælið þegar hún kæmist heim af sjúkrahúsinu. Elizabeth hefur þó væntan- lega verið ánægð með kvöldið þar sem kvikmyndin The King‘s Speech vann verðlaun sem besta myndin en hún hafði lýst yfir ánægju sinni með myndina og að hún vonaðist til að hún fengi Óskarinn. „Ég ætla ekki að láta fara illa með mig“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.