Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2011, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2011, Blaðsíða 4
4 | Fréttir 14. mars 2011 Mánudagur Samtök lífrænna neytenda vilja auka veg lífrænna framleiðsluaðferða: „Auðlindir hverfa“ Samtök lífrænna neytenda hafa verið stofnuð og var húsfyllir á stofnfund- inum sem fram fór fyrir viku. „Þetta er ekki félag með stjórn heldur vild- um við hafa þetta hreyfingu. Það fá allir tækifæri til að skrá sig í nefndir og starfshópa. Það virðist vera mikill áhugi fyrir þessu alls staðar í samfé- laginu og fólk tekur þessu fagnandi,“ segir Oddný Anna Björnsdóttir, hvatamaður að stofnun samtakanna. Oddný bjó í Bandaríkjunum þar sem hún var í svipuðum samtökum. „Þegar ég kom heim sá ég að það var margt að gerast hér en það vantaði samtakamátt neytenda. Það vantaði sameiginlegan vettvang þar sem all- ir gætu unnið saman; framleiðend- ur, bændur, söluaðilar og neytend- ur. Okkar markmið er að auka veg þessara framleiðsluaðferðar og auka neysluna á slíkum vörum því það er betra fyrir heilsuna, umhverfið og búfénaðinn.“ Aðspurð segir Oddný að Íslend- ingar séu um það bil 5–10 árum á eft- ir þeim löndum sem við berum okk- ur saman við þegar kemur að þessum málum. Til að mynda hafi þingsá- lyktunartillaga um aðlögunarstuðn- ing og mótun framleiðslustefnu ver- ið lögð fram í hátt í áratug en hafi ekki enn fengið þar hljómgrunn. „Við trú- um því statt og stöðugt að þetta sé til bóta fyrir samfélagið og viljum koma því á framfæri með stofnun þessara samtaka. Hér á jörðinni okkar eru auðlindir sem eru að hverfa og þetta gengur allt út á sjálfbærni og notk- un náttúrulegra aðferða sem menga ekki og að selja matvæli sem eru ekki stútfull af aukaefnum og eitri.“ Oddný segir að hingað til hafi starfið ekki krafist fjármagns en þau muni reka þetta meðal annars með fjáröflun. „Við munum ekki vera með auglýsingar heldur biðja um styrki en þeir munu ekki vera of háir. Við viljum frekar fá frá mörgum smá- um aðilum og þetta á ekki að vera of dýrt,“ segir hún að lokum. gunnhildur@dv.is NoseBuddy nefskolunarkannan Nefskolun er gott ráð gegn • Áhrifum loftmengunar • Ryki og frjókornum • Bakteríum og veirum Mælt er með nefskolun til að draga úr líkum á kvefi og ofnæmi – og til að auka skýrleika í hugsun! Opið virka daga kl. 9 -18 og á laugardögum kl. 11 - 16 Verð: 3.975 kr. Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is Almennir starfsmenn Sparisjóðsins í Keflavík eru bæði sorgmæddir og reiðir, að sögn séra Erlu Guðmunds- dóttur, sóknarprests í Keflavíkur- kirkju. Starfsmenn sparisjóðsins, sem var sameinaður Landsbankan- um í síðustu viku, leituðu til Erlu og báðu hana um aðstoð en flestir þeirra urðu fyrir miklu tilfinningalegu áfalli. Starfsmönnunum gramdist það sér- staklega að þeir voru ekki látnir vita af sameiningunni við Landsbankann, heldur þurftu þeir að lesa um mál- ið í netheimum um þarsíðustu helgi. Þegar starfsmenn sparisjóðsins fóru heim úr vinnu sinni föstudaginn 4. mars vissu þeir ekkert af fyrirhugaðri sameiningu. Eftir helgi, mánudaginn 7. mars, voru þeir hins vegar orðnir starfsmenn Landsbankans. Sorg og reiði „Starfsmennirnir áttu erfitt með að svara í símann þegar þeir mættu til vinnu þarna á mánudaginn. Þeir svöruðu með nafni eins og tíðkast, en kynntu sig ekki sem starfsmenn Landsbankans – heldur sem fyrrver- andi starfsmenn Sparisjóðs Kefla- víkur,“ segir Erla, sem opnaði dyr Keflavíkurkirkju fyrir starfsmönnum sparisjóðsins síðastliðið fimmtudags- kvöld. „Þau þurftu nú bara á áfalla- hjálp að halda. Að fá svona fréttir sem koma öllum starfsmönnum að óvör- um er eins og hvert annað áfall. Fyrst voru einfaldlega allir í sjokki, en eftir því sem leið á vikuna fóru tilfinning- arnar að koma fram. Þær einkenndust af kvíða, sorg og jafnvel mikilli reiði,“ segir hún. Engin huggun Á fimmtudaginn birti Landsbankinn í Keflavík, áður Sparisjóður Keflavíkur, fréttatilkynningu þess efnis að eng- inn starfsmanna gamla sparisjóðs- ins ætti á hættu að verða sagt upp. Starfsmönnunum fannst hins vegar litla huggun vera að finna í þeirri til- kynningu. Þeir eru óvissir um fram- tíðina, sérstaklega í ljósi þess með hvaða hætti þeir fréttu af samruna sparisjóðsins og Landsbankans. „Fólk er hrætt um framtíðina, það er ekk- ert leyndarmál. Okkar litla samfélag hérna á Reykjanesi hefur þurft að þola margt á síðustu árum. Nú þurfum við að horfa upp á aldargamla stofnun hverfa og vitanlega eru starfsmenn- irnir fullir efasemda um framtíðina.“ Starfshættir stjórnvalda vonbrigði Erla segir að margir starfsmannanna hafi á fundinum látið í ljós reiði sína í garð stjórnvalda. Telja þeir að stjórn- völd hafi ekki komið hreint fram í málinu og hafa þeir enn fremur orðið fyrir miklum vonbrigðum með þing- menn kjördæmisins. Að mati starfs- mannanna áttu þeir að geta tekið upp hanskann fyrir Reykjanesskagann, af mun meiri krafti en raunin varð. „Það braust fram mikið tilfinningaflóð, bæði reiði og sorg. Sumir felldu tár á meðan aðrir fengu útrás fyrir reiði sína. En í því felst einmitt áfallahjálp- in, að gefa fólkinu tækifæri til að losa um tilfinningar sínar og finna jafn- vægi á nýjan leik.“ Þrátt fyrir erfiða tíma í Reykjanes- bæ segist Erla vonast til þess að fólk sjái ljósið í myrkrinu. „Fundurinn var góður því fólkið gat komið saman og fundið samhug. Því miður þarf sam- félagið okkar að búa í mikilli óvissu enn um sinn, örlög heilbrigðisþjón- ustunnar eru til að mynda óráðin. En það er ætíð til hins betra þegar samfé- lagið stendur saman, eins og á fund- inum á fimmtudag,“ segir Erla að lok- um. „Fólk er hrætt um framtíðina“ n Starfsmenn Sparisjóðs Keflavíkur þurftu áfallahjálp í kjölfar samruna sjóðsins við Landsbankann n Fréttu fyrst af samrunanum í netheimum n Kvíða framtíðinni og óttast um störf sín, þrátt fyrir loforð Landsbankans„Eftir því sem leið á vikuna fóru til- finningarnar að koma fram. Þær einkenndust af kvíða, sorg og jafnvel mikilli reiði. Björn Teitsson blaðamaður skrifar bjorn@dv.is Oddný Anna Björnsdóttir Einn af hvatamönnum að stofnun samtakanna. Breiðholtsbúar mótmæla harðlega Haldinn var íbúafundur í Breiðholti á laugardaginn þar sem rædd voru sameiningaráform borgaryfirvalda í hverfinu. Fundarmeðlimir sendu frá sér einróma ályktun þar sem mótmælt var áformum um víðtæka samein- ingu á leikskólum í hverfinu og ýmsar breytingar á tilhögun menntastofn- ana þar í hagræðingaskyni. Í ályktun- inni segir meðal annars að fundurinn mótmæli harðlega þeirri aðför sem blasi við Breiðholtinu og skorað sé borgarráð að falla frá fyrirhuguðum sameiningaráformum í leikskólum og grunnskólum hverfisins. Karlmenn fá skoðun Karlmönnum á öllum aldri býðst nú sérstök skoðun hjá Heilsu- vernd í tilefni af Mottumars. Þar geta menn pantað sér tíma og komið í yfirgripsmikla heilsufars- skoðun og viðtal þar sem meðal annars er skimað fyrir ristilkrabba séu menn komnir á vissan aldur. Teitur Guðmundsson, læknir og framkvæmdastjóri Heilsuverndar, segir þetta þarfaþing því almennt sé ekkert markvisst eftirlit með heilsufari karlmanna meðan konur séu hvattar sérstaklega til að koma í kynbundna krabbameinsskoð- un. Þeim hjá Heilsuvernd fannst því kjörið að nýta Mottumars til að vekja sérstaka athygli á þessu. Launakostnaður hækkar Áætlað er að launakostnaður Fjár- málaeftirlitsins hækki um 42 prósent á þessu ári. Forstjóri FME segir þetta vera vegna nýrra ráðninga á árinu ásamt launakostnaði í tengslum við tilfallandi verkefni. Fréttastofa RÚV greinir frá því að stöðugildum verði fjölgað um 18 á árinu. Þá sé ekki um að ræða meðal- lagslaunahækkun á starfsmenn held- ur nýjar ráðningar. Enn fremur hefur launakostnaður á hvern starfsmann hækkað frá því í fyrra um tæp 20 pró- sent, frá um 745 þúsund krónum upp í 892 þúsund krónur. Launakostnaðar Fjármálaeftirlits- ins er getið í frumvarpi á Alþingi um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit. Erla Guðmundsdóttir „Það braust fram mikið tilfinningaflóð, bæði reiði og sorg. Sumir felldu tár á meðan aðrir fengu útrás fyrir reiði sína.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.