Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2011, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2011, Page 6
6 | Fréttir 14. mars 2011 Mánudagur Matsnefnd segir bæjarstjóra Seltjarnarness hafa beitt einelti: Vill láta reka bæjarstjórann Dómkvaddir matsmenn hafa kom- ist að þeirri niðurstöðu að Ásgerð- ur Halldórsdóttir, bæjarstjóri Sel- tjarnarness, hafi lagt Ólaf Melsted, fyrrverandi framkvæmdastjóra tækni- og umhverfissviðs bæjarins, í einelti. Hann hefur þess vegna í rúmt ár verið frá vinnu að lækn- isráði. Matsmennirnir telja að Ás- gerður hafi ótvírætt sýnt Ólafi ámælisverða og ótilhlýðilega hátt- semi sem stjórnandi. Hún hafi graf- ið undan virðingu hans, gagnrýnt hann ómaklega á fundi, veitt hon- um áminningu að ósekju og hótað honum árið 2009. Þá kemur fram að hún hafi lítillækkað hann með því að dreifa læknisvottorði til óvið- komandi aðila í janúar í fyrra auk þess að hafa gagnrýnt hann ómak- lega á fundum og látið hjá líða að grípa til ráðstafana sem væru til þess fallnar að bæta samstarfið á milli þeirra. „Þeir telja enn fremur að þær breytingar til hins verra á líðan, hög- um og heilsu Ólafs Melsted, sem lýst hefur verið hér að framan sé að rekja til þessarar háttsemi bæjarstjórans,“ segir meðal annars í matsgerðinni. Þá hefur Persónuvernd úrskurð- að að Ásgerði hafi verið óheimilt að framsenda læknisvottorð Ólafs til samstarfsmanna hans. Í bréfi til bæjarstjórnar Seltjarn- arness, sent af Jóhanni H. Hafstein fyrir hönd Ólafs, er þess krafist að Ásgerði verði vikið úr starfi vegna síendurtekins eineltis á vinnustað. Það sé í samræmi við eineltisáætlun sveitarfélagsins. Þá er bæjarstjórn veittur 20 daga frestur til að taka af- gerandi afstöðu til málsins þannig að honum verði bætt tjónið sem hann hefur orðið fyrir, ellegar verði málið rekið fyrir dómstólum. Ásgerður segist hissa á niður- stöðunni en forseti bæjarstjórnar hefur sagt að farið verði yfir kröfurn- ar. baldur@dv.is Endurnærir og hreinsar ristilinn allir dásama OXYTARM Í boði eru 60-150 töflu skammtar 30+ Betr i apotekin og Maður l i fandi www.sologhei lsa. is OXYTARM Sól og heilsa ehf = Losnið við hættulega kviðfitu og komið maganum í lag með því að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30 days saman120 töflu skammtur days detox „Ég er ekki að segja að við eigum ekki að borga eitthvað fyrir kisurnar okk- ar en þessar upphæðir eru alveg út úr kortinu,“ segir Ragnheiður Gunnars- dóttir, kattavinur á Akureyri. Kattaeigendur á Akureyri þurfa framvegis að borga skráningar- og leyfisgjöld fyrir ketti sína auk þess sem þær takmarkanir verða settar að hver einstaklingur má ekki eiga fleiri en þrjá ketti. Þeir sem fyrir eiga fleiri ketti þurfa ekki að losa sig við þá. Ný samþykkt um kattahald í bænum kveður á um þetta. Eigendum katta ber að skrá kettina, örmerkja þá og tryggja. Alla fressketti eldri en fimm mánaða skal gelda og allir kettir skulu vera með ól og plötu um hálsinn þar sem skráningarnúmer og símanúmer eigenda hans kemur fram. Kostnaðurinn úr hófi Ragnheiður amast ekki við því að regl- ur séu settar um kattahald í bænum, jafnvel þótt bærinn gangi lengra en flest önnur sveitarfélög sem sett hafa reglur um kattahald á undanförnum árum. Hún segir hins vegar að kostn- aðurinn keyri úr hófi fram. Skráning kattar mun kosta 10 þúsund krónur en fyrirhugað er, að sögn Ragnheiðar, að skráningin verði ókeypis fyrstu sex mánuðina eftir að reglurnar taki gildi. Flestir kattaeigendur ættu því að geta losnað undan þeim kostnaði. Aftur á móti ber kattaeigendum að greiða árlega 6 þúsund krónur fyr- ir að halda einn kött. Því til viðbótar ber kattaeigendum að tryggja þá fyr- ir 3 þúsund krónur á ári. Þá má ekki halda fleiri en þrjá ketti en þeir sem eiga fleiri ketti fyrir mega eins og áður segir halda þeim. Aðför að kattaeigendum Ragnheiður segir að reglurnar setji stórt strik í reikninginn hjá henni. Sjálf haldi hún tíu ketti. Jafnvel þótt hún sleppi við skráningargjaldið þarf hún að greiða níu þúsund krónur á hvern kött á ári. Það nemur 90 þúsund krón- um á ári í hennar tilfelli, haldi hún þeim öllum. Spurð hvort hún íhugi að fækka þeim segist hún ekki vita hvað verði – hún vilji helst ekki til þess hugsa. Ljóst sé að kostnaðurinn verði henni þungur baggi til viðbótar mat- ar- og lækniskostnaði sem hún þegar greiði. „Þessi aðför að kattaeigendum í kreppunni er til háborinnar skamm- ar,“ segir hún og bætir við að í ofan- álag dirfist bæjarstjórnin að segja að þetta sé gert fyrir kattaeigendur. Fleiri kettir á þvælingi Ragnheiður telur raunar að reglurnar verði til þess að villiköttum muni fjölga. Hún leggur til að bærinn taki Grundarfjörð sér til fyrirmynd- ar. Þar sé gjaldið 3.000 krónur á kött en innifalið í því sé ábyrgðartrygg- ing, merkispjald auk umsýslugjalda sveitarfélagsins. Þar sé auk þess ekk- ert takmark á fjölda dýra á heimili. Hún fullyrðir að verði gjaldið lægra en fyrirhugað er muni það skila sér í betri innheimtum. „Þegar gjaldið er eins hátt og Akureyrarbær vill setja það þýðir það bara tvennt; Fleiri kettir sem þarf að svæfa því fólk getur ekki tekið að sér kisur vegna gjalda eða að mun fleiri kettir lenda á þvælingi sem þýðir aukinn kostnað fyrir Akur- eyrarbæ við að farga villiköttum. Með því að takmarka fjöldann á hverju heimili við þrjá mun þetta verða enn líklegra til að gerast. Er þetta virkilega það sem bæjarstjórn Akureyrar vill gera?“ spyr hún og hvetur þá sem séu mótfallnir áformunum til að samein- ast á Facebook undir hópnum „Gegn nýjum reglum um hunda- og katta- hald á Akureyri“. Kettirnir kosta 90 þúsund á ári n Akureyrarbær hyggst rukka 9 þúsund á ári fyrir að halda kött n Kattavinur segir um aðför að kattaeigendum að ræða n Telur að villiköttum muni fjölga Baldur Guðmundsson blaðamaður skrifar baldur@dv.is *Samantekt Ragnheiðar Sveitarfélag Gjald Innifalið Hámarksfjöldi Akureyri 9.000 kr. Trygging 3 á heimili Ísafjörður 7.500 kr. Trygging og örmerking Enginn Seyðisfjörður 6.500 kr. Trygging, ormahreinsun og örmerking Enginn Skagafjörður (þéttb.) 5.500 kr. Trygging, ormahreinsun, örmerking og umsýslugjald Enginn Borgarbyggð 5.000 kr. Trygging, ormahreinsun, númeraplata og umsýslugjald Enginn Akranes 3.500 kr. Ekkert Enginn Norðurþing 3.000 kr. Trygging 2 á heimili Grundarfjörður 3.000 kr. Trygging, merkispjald og umsýslugjald Enginn Rangárþing 2.500 kr. Ekkert Enginn Flúðir 2.500 kr. Ekkert Enginn Hveragerði 2.500 kr. Ekkert Enginn Árborg 1.700 kr. Ekkert Enginn Gjald fyrir kattahald* Mikill kattavinur Ragnheiður segir reglurnar koma ákaflega illa við sig. Við- bótarkostnaðurinn sé heilmikill. MYND HEIDA.IS Ólga á nesinu Matsnefnd segir háttsemi Ásgerðar ámælisverða. Meint einelti í VR Starfsmenn á skrifstofu VR eru ósáttir við að formaður félagsins hafi sakað þá um einelti í sinn garð. Lögmaður félagsins hefur engar skýringar á hinu meinta einelti feng- ið. Ríkisútvarpið greindi frá þessu í gær. Þar sagði að nokkrir starfsmenn félagsins hafi leitað til sáfræðings vegna vanlíðunar á vinnustaðnum en 45 starfsmenn vinna á skrifstofu félagsins. RÚV hefur eftir nafnlaus- um starfsmönnum að samskiptin við Kristin Örn Jóhannsson formann hafi verið afar erfið. Þeir séu meðal annars ósáttir við að Kristinn hafi sagt, þegar hann tilkynnti að hann myndi bjóða sig fram til formanns aftur, að hann nyti stuðnings starfs- fólksins. Starfsmannamálin voru rædd á stjórnarfundi fyrr í vikunni þar sem varaformanni VR var falið að kanna málið með sérfræðingum Brotist inn í Dýraspítalann Lögreglan hafði í nógu að snúast aðfaranótt sunnudags- ins. Brotist var inn í Dýraspítal- ann í Víðidal í kringum mið- nætti en ekki ligg- ur fyrir hvort að verðmætum hafi verið stolið. Einnig var nokkuð um stympingar í miðborginni. Þá voru rúður brotnar víðs vegar um borgina, meðal annars á Kaffi París við Austurstræti, í verslun við Langholtsveg, í Fella- skóla og í bifreið við Grensásveg. Styrktartónleik- ar fyrir Keran Á miðvikudaginn verða haldnir tón- leikar á Sódómu til styrktar hinum tveggja ára gamla Keran Stueland Ólasyni á Sódómu. Keran er með tauga- og vöðvahrörnunarsjúk- dóminnn SMA. Á meðal þeirra sem koma fram á tónleikunum eru Lay Low, Friðrik Dór, Jón Jónsson, Haffi Haff og Sing For Me Sandra. Að- gangseyrir er 1.000 krónur og mun hann renna óskiptur til fjölskyldu drengsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.