Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2011, Qupperneq 8
8 | Fréttir 14. mars 2011 Mánudagur
Skorið niður í Vinnuskóla Reykjavíkur:
Áttundu bekkingar fá ekki vinnu
Í nafni hagræðingar hefur Reykja-
víkurborg ákveðið að nemendur í
8. bekk grunnskóla fái ekki vinnu í
Vinnuskólanum í sumar. Þá verður
vinnutími skertur hjá nemendum í
9. og 10. bekk í sumar en þeir munu
starfa í þrjár vikur á sex vikna tímabili
í stað fjögurra vikna áður. Nemendur
í 9. bekk starfa hálfan daginn en þeir
sem eru í 10. bekk fá vinnu allan dag-
inn á þessu þriggja vikna tímabili.
Þetta kemur fram í tilkynn-
ingu frá Umhverfis- og samgöngu-
sviði Reykjavíkurborgar. Vinnuskóli
Reykjavíkur mun auk þess að skerða
vinnutímann fella niður svokallaða
Græna heimaþjónustu en í henni
fólst að eldri borgarar og öryrkj-
ar gátu sótt um þá þjónustu að láta
nemendur Vinnuskólans hreinsa
garða sína.
Í tilkynningunni segir einnig að
búist sé við því að rúmlega tvö þús-
und ungmenni skrái sig í Vinnu-
skólann í sumar en skráning hefst
snemma í apríl.
Samkvæmt upplýsingum af
heimasíðu Vinnuskóla Reykjavík-
ur höfðu nemendur í 9. bekk 403
krónur á tímann. Þeim gafst færi
á að vinna 3,5 tíma á dag. Ef sama
tímakaup verður í sumar getur 15
ára ungmenni því haft 21.158 krón-
ur, með orlofi, upp úr krafsinu þær
þrjár vikur sem vinnan er í boði. 16
ára ungmenni geta unnið sjö tíma á
dag. Upphæðin sem þeir geta unnið
sér inn er 56.175 krónur, með orlofi.
baldur@dv.is
Íslenskir fangar sem dæmdir eru fyr-
ir alvarleg brot geta átt von á því að
komast í opið fangelsi hagi þeir sér
vel. Plássleysi í almennum fangelsum
veldur því að glæpamenn eru sendir
í opin fangelsi. Tvö slík fangelsi eru
starfrækt á Íslandi. Í þeim er talsvert
minni öryggisgæsla en í hefðbundn-
um lokuðum fangelsum og ganga
fangar nær frjálsir um á fyrirfram til-
greindu svæði sem er þó ekki afmark-
að með girðingu eða múrum. Ekki eru
rimlar fyrir gluggum í slíkum fangels-
um en þess í stað öryggismyndavélar
og fangaverðir.
Hvernig afbrot fangarnir eru
dæmdir fyrir vegur ekki endilega
þungt þegar ákvörðun er tekin um
hvort fangi fái vistun í opnu úrræði og
er það ástæðan fyrir því að kynferðis-
brotamenn og fíkniefnasmyglarar
geta fengið vistun í opnu fangelsi með
lágmarksöryggisgæslu.
Þarf fleiri rými í lokuðum
fangelsum
Páll Winkel fangelsismálastjóri segir
að vegna skorts á plássi í íslenskum
fangelsum séu kynferðisafbrotamenn
og ofbeldismenn meðal þeirra sem fái
vistun í opnum fangelsum hér á landi.
„Ef við hefðum stærri hóp manna
sem væri dæmdur fyrir vægari brot
eða ekki svona alvarleg brot myndi
ég auðvitað heldur vilja sjá þá í opn-
um fangelsum en þá sem eru dæmdir
fyrir manndráp og meiri háttar brot,“
segir hann. Hann segir þó að vel sé
farið yfir málin og að einhverju leyti sé
litið til þess brots sem fangi er dæmd-
ur fyrir þegar ákvörðun er tekin um
hvort hann fái að vera í opnu fangelsi.
Það snúist þó fyrst og fremst um það
hvort hann hafi hagað sér vel og eftir
settum reglum það sem af er vist hans
þegar umsókn um breytta vistun er
lögð fram.
„Það verður að vera einhvers kon-
ar gulrótarkerfi í okkar kerfi, menn
verða að geta grætt eitthvað á því að
haga sér vel, að þeir geti unnið sig
upp,“ segir Páll og bætir við að nauð-
synlegt sé að fangar sjái ástæðu til
þess að fylgja settum reglum. Hann
bendir hins vegar á að nóg sé komið
af rýmum í opnum fangelsum í bili.
„Núna er einfaldlega komið að því að
við fjölgum rýmum í lokuðum fang-
elsum.“
Næsta skref við áfangaheimili
Áfangaheimilið Vernd er svo næsta
skref fyrir fanga en það er í Reykjavík
og er í raun sambærilegt opnu fang-
elsi að undanskildu umhverfinu. Á
Vernd gilda sambærilegar reglur og
í opnu fangelsunum. Þar hefur þó
húsnefnd Verndar lokaorðið um það
hverjir fá vistun. Samkvæmt heim-
ildum DV lítur húsnefndin ekki til af-
brota þeirra sem sækja um vistun á
heimilinu, frekar en í opnu fangels-
unum, með þeirri undantekningu að
barnaníðingum er hafnað.
10 prósent brjóta reglur
Tilgangurinn með opnum fangelsum
er að fækka föngum sem koma oftar
en einu sinni í fangelsi. Opin fangelsi
eru einungis í boði fyrir þá sem eiga
minna en tvö ár eftir af fangelsisvist
sinni og eru að undirbúa sig fyrir að
refsivist ljúki. Önnur skilyrði sem sett
eru fyrir því að fangar fái að afplána
í opnu fangelsi eru að þeir séu ekki
háðir vanabindandi lyfjum og séu
færir um að stunda vinnu eða nám.
Skriflegur samningur er gerður við
fanga þegar þeir koma til afplánunar
í opnu fangelsi. Rifti fangi samningn-
um verður hann fluttur aftur í öryggis-
fangelsi.
Eins og áður segir eru svipaðar
kröfur gerðar til fanga sem sækjast
eftir því að fá vistun á Vernd og í opnu
fangelsi. Af þeim föngum sem fengu
að ganga lengra og ljúka vistun sinni
á áfangaheimilinu Vernd eru rúm 10
prósent sem gerast brotlegir við þær
reglur sem þeim eru þar settar. Regl-
urnar snúa fyrst og fremst að hegðun
og umgengni á áfangaheimilinu.
Treystir öllum í opnu fangelsi
Margrét Frímannsdóttir, fangelsis-
stjóri á Litla-Hrauni og Bitru, seg-
ir að þeir fangar sem fá flutning frá
Litla-Hrauni í opið fangelsi séu metn-
ir af starfsfólki fangelsisins áður en
mælt sé með flutningnum. Hún seg-
ir að það hafi ekki gerst oft að fangar
séu sendir til baka í lokuð fangelsi frá
Bitru. „Við erum með mjög stífar regl-
ur á Bitru, húsreglur og umgengnis-
reglur, og ef þær eru brotnar er mönn-
um umsvifalaust vísað í burtu en sem
betur fer er langstærsti hlutinn sem
virðir alfarið þær reglur sem þar eru,“
segir hún.
Margrét segir að fangar sem fluttir
séu frá Litla-Hrauni og að Bitru þurfi
að standast strangar kröfur og að allur
ferill þeirra sé skoðaður. Þar á meðal
hvort viðkomandi hafi farið eftir öll-
um reglum fangelsisins. „Það fer eng-
inn í opið úrræði nema að honum sé
treyst til þess,“ segir hún.
En hvað með öryggismálin í slíkum
fangelsum? „Það eru eftirlitsmynda-
vélar bæði inni og úti og mjög vel
fylgst með. Það er bara ákveðið svæði
sem þeir fara um. Þó að þeir hafi mun
meira frelsi en í lokuðu fangelsi er það
samt sem áður þannig að þeir eru ekki
annars staðar en innan þess svæðis
sem er fyrirframafmarkað.“
n Fangar sem fremja alvarlega glæpi eru í opnum fangelsum vegna plássleysis í öðrum n Tvö opin fangelsi eru
starfrækt á Íslandi auk áfangaheimilis n Ekki litið til brota þegar ákvörðun er tekin um vist í opnum fangelsum
HÆTTULEGIR FANGAR
Í OPNUM FANGELSUM
„Núna er einfald-
lega komið að því
að við fjölgum rýmum í
lokuðum fangelsum.
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Margrét Frímannsdóttir „Það fer enginn í
opið úrræði nema að honum sé treyst til þess.“
Tvö opin fangelsi Kvíabryggja er
annað opnu fangelsanna á Íslandi en
hitt er Bitra. MYND SIGTRYGGUR ARI JÓHANNSSON
8.15 Morgunverður framreiddur
8.30 Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, ávarpar fundinn
8.40 Hrefna Friðriksdóttir, höfundur skýrslu um ættleiðingar á Íslandi:
Staða og framkvæmd ættleiðinga - er breytinga þörf?
9.05 Hörður Svavarsson, formaður Íslenskrar ættleiðingar:
Í upphafi var orðið. Í tilefni af skýrslu um ættleiðingarlöggjöfina
og framkvæmd ættleiðingarmála á Íslandi
9.25 Snjólaug Elín Sigurðardóttir, MA-nemi og kjörforeldri:
Fjölskyldur ættleiddra barna af erlendum uppruna
– fræðsla og stuðningur
9.40 Umræður
ÆTTLEIÐINGAR Á ÍSLANDI:
Í þágu hagsmuna barns
Innanríkisráðuneytið boðar til opins
morgunverðarfundar um ættleiðingar á Íslandi
miðvikudaginn 16. mars næstkomandi.
Fundurinn fer fram í Iðnó og stendur frá 8.15-10.00.
Hægt verður að kaupa morgunverð á staðnum fyrir 650 krónur.
Fá vinnu í þrjár vikur Sextán ára
unglingar geta unnið sér inn 56 þúsund
krónur í Vinnuskóla Reykjavíkur í sumar.