Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2011, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2011, Side 16
Helmingsafsláttur af nýjum ísskáp n Lofið fær verslunin Bræðurnir Ormsson að þessu sinni. Viðskipta- vinur hafði samband og vildi koma eftirfarandi lofi til skila: „Við áttum fimm ára gamlan ísskáp sem datt úr ábyrgð í janúar. Þegar við fórum með hann í verslunina litu þeir fram hjá því að hann væri fallinn úr ábyrgð þar sem það var ekki pressan sem fór og ákváðu að gefa okkur helmings afslátt af nýjum AEG-ísskáp. Ástæðan var að þeir vildu bara koma til móts við okkur þar sem þetta var ekki hin klass- íska bilun,“ segir við- skiptavinurinn sátti. Eyðublöð skulu merkt Umferðar- stofu Umferðarstofa bendir fólki á að þann 1. mars tóku gildi reglur um að eingöngu verður tekið við tilkynn- ingum um eigendaskipti á bifreiðum á fullgildum eyðublöðum merktum Umferðarstofu. Þetta er gert til að einfalda úrvinnslu gagna og tryggja áreiðanleika þeirra. Borið hefur á því að að seljendur og kaupendur bíla séu enn með gömul eyðublöð merkt Skráningarstofunni. Eyðublöðin sem nú skal nota eru aðgengileg á us.is og hjá umboðsaðilum Umferðarstofu. Jafnframt er hægt að tilkynna eig- endaskipti rafrænt á vef Umferðar- stofu. Þeir aðilar sem enn hafa undir höndum eyðublöð um eigendaskipti sem ekki eru merkt Umferðarstofu eru hvattir til að farga þeim. Má ekki kaupa lottó með VISA n Fjarðarkaup fær lastið núna. Fasta- kúnni þar segist vera afskaplega ánægður með verslunina en hann vilji lasta að þar sé ekki tekið VISA þegar greitt er fyrir lottó. „Ég fékk þær skýringar að þeir lánuðu manni ekki fyrir getspám. Þegar ég hváði og spurði hvort það væri ekki frekar VISA sem lánaði fyrir þessu sagði hún að þeir greiddu beint úr kassanum í getspána. Mér er spurn hvort þeir greiði ekki einnig beint úr kassanum til birgja fyrir aðrar vörur. Mér finnst alla vega skýrtið, í þessari annars ágætu búð, að mega borga með VISA fyrir eina vöru en ekki aðra.“ SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS LOF&LAST Tímabundin frysting Þegar matvæli eru fryst stöðvar það örveruvöxt og minnkar ens- ímivirkni lífrænna afurða. Frysting getur þó aðeins verið tímabundin og háð því að hitastiginu sé haldið jöfnu eða -18°C út allan geymslutímann. Eins þarf að standa rétt að frágangi matvæla og hreinlæti. Á nattura.is er ráðlagt að geyma ekki mat lengur en í eitt ár í frysti og jafnvel skemur. Við frystingu hægi einungis á niðurbrotsferlinu en það stöðvist ekki. Skoða skal upplýsingar um hve lengi varan geymist á þeim vörum sem keyptar eru. Þegar um eigin framleiðslu er að ræða er ráðlegt að merkja umbúðirnar með upplýsingum um hvenær maturinn var settur í frystinn. Þrátt fyrir að maturinn missi eitthvað af næringarefnum sínum við frystingu getur verið mikill sparnaður í að eiga frysti. Sér í lagi fyrir stórar fjölskyldur og þá sem hafa tækifæri til þess að geyma þar heilu eða hálfu skrokkana. 16 | Neytendur Umsjón: Gunnhildur Steinarsdóttir gunnhildur@dv.is 14. mars 2011 Mánudagur E ld sn ey ti Verð á lítra 230,6 kr. Verð á lítra 235,5 kr. Bensín Dísilolía Verð á lítra 230,7 kr. Verð á lítra 235,6 kr. Verð á lítra 231,9 kr. Verð á lítra 236,8 kr. Verð á lítra 230,6 kr. Verð á lítra 235,5 kr. Verð á lítra 230,7 kr. Verð á lítra 235,6 kr. Verð á lítra 230,9 kr. Verð á lítra 235,8 kr. Algengt verð Almennt verð Algengt verð Höfuðborgarsv. Melabraut Algengt verð Gosdrykki, majónes, beikon og aðra unna kjötvöru má finna í ísskápum landsmanna en slíkar vörur hafa lengi verið taldar slæmar fyrir heilsuna. Jafn- vel stórhættulegar ef þeirra er neytt í óhófi. Það er hins vegar ekki víst að þetta sé það versta sem finna má þar því það er í raun ísskápurinn sjálf- ur sem hættulegastur, eða öllu held- ur óhreinindin sem þar er að finna. Myglusveppir og listeríubakteríur geta lifað þar góðu lífi sé skápurinn ekki þrifinn reglulega. Myglusveppurinn verstur Það er góð ástæða til að þrífa ísskáp- inn með stuttu millibili því bakteríur sem þar lifa blandast matnum og geta orsakað uppköst og niðurgang, sam- kvæmt dönsku vefsíðunni söndags- avisen.dk. Þar segir frá könnun sem gerð var á hreinlæti í eldhúsum þar í landi. „Verstur er þó myglusveppur- inn sem myndast ef matvörur hellast niður í ísskápnum eða matarafgang- ar eru geymdir þar lengi í þessu raka umhverfi. Það geta myndast eiturefni og sum þeirra eru beinlínís hættu- leg frumum líkamans,“ segir Morten Lisby, starfsmaður matvælaeftirlitsins (Födevareregion Öst). Hann sagði að ísskápa ætti að þrífa að minnsta kosti einu sinni í viku. Myglusveppur er tal- inn geta verið krabbameinsvaldandi finnist hann á vissum matvælum og getur því óhreinn ísskápur verið stór- hættulegur heilsu okkar. Bakteríuveisla í grænmetisskúff- unni Það eru hins vegar ekki einungis gaml- ar matarleifar sem láta ónæmiskerf- ið vinna vinnuna sína. Verstu og mest sjúkdómsvaldandi bakteríurnar geta leynst í grænmetisskúffunni. Skúffa sem er full af gömlu grænmeti, til dæmis hálfspíruðum kartöflum, get- ur hæglega orðið bakteríuveisla sem mengar allan ísskápinn, alveg upp í efstu hilluna. Þegar ísskápinn er opn- aður og rótað í honum þyrlast upp bakteríur og gró myglusveppsins sem dreifast um allan skápinn. Eins þarf að passa að hreinsa grænmeti vel áður en það fer í ísskápinn þar sem bakteríur lifa í moldinni auk þeirra baktería sem berast um ísskápinn. Í besta falli ógeðslegir Í fyrrnefndri könnun kom í ljós að ís- skápar á vinnustöðum eru þeir allra verstu hvað þetta varðar. Þar ægir saman súrri mjólk, gömlum mataraf- göngum, mygluðum nestispökkum og þar fram eftir götunum. Þessir ísskáp- ar sem eru sjaldan þrifnir eru í besta falli ógeðslegir, í því versta ástæða fyr- ir almennri magapest á vinnustaðn- um. Samkvæmt Lisby eru vinnustaða- ísskápar ekki nægilega kaldir, þeir eru sjaldan þrifnir og í þeim má finna matarafganga sem geta breitt út list- eríubakteríur og myglusveppi. Hann segist sannfærður um að rekja megi ýmsa kvilla og veikindi starfsmanna til óhreinna ísskápa. Íslendingar oftar með nesti Íslendingar eru farnir að vera meðvit- aðri um hollt mataræði en einnig um sparnað síðustu árin. Það má því gera ráð fyrir að algengara sé að við tökum með okkur nesti í vinnuna. Mataraf- gangar frá kvöldinu áður og nestis- pokar ættu þess vegna að vera algeng- ari sjón en áður fyrr þegar ísskápur á vinnustað er opnaður. Við munum þó vonandi hugsa til örsmáu íbúanna sem þar lifa, fara eftir ráðum Danans og sameinast um að halda honum hrein- um. Það er ekki góð tilhugsun að bakt- eríur sem lifa í skólpi og þörmum valsi um í ísskápnum. Hættulegir ísskápar n Mikilvægt er að þrífa ísskápinn oft og vel n Bakteríur grassera á matarleifum og gömlu grænmeti n Þar geta myndast eiturefni og sum þeirra eru beinlínis hættuleg Ýmislegt óæskilegt þrífst í ísskápnum Samkvæmt heimasíðu Matvælastofnunar er listería mjög útbreidd í náttúrunni og finnst í jarðvegi, plöntum, skólpi og þörmum bæði manna og dýra. Vegna gífurlegrar útbreiðslu bakteríunnar er erfitt að koma í veg fyrir mengun af hennar völdum í unnum matvörum. Dýr geta smitast af fóðri og frá dýrunum getur bakterían breiðst meira út í umhverfið. Dýr sem smituð eru af listeríu eru oft á tíðum einkennalausir smitberar. Bakterían finnst oft í hráum matvælum en hún getur einnig fundist í elduðum mat ef um krossmengun er að ræða eftir hitameðhöndlunina. Þannig getur bakterían fundist í ýmsum tegundum af matvælum eins og til dæmis hrámjólk, kjúklingi, kjöthakki, kjötáleggi og grænmeti. Hún getur orsakað sjúkdóm bæði hjá mönnum og dýrum og kallast þessi sjúkdómur listeriosis. Einkenni sjúkdómsins eru mild flensueinkenni, vöðvaverkir, hiti og stundum ógleði og niðurgangur. Alvarlegri einkenni eru heilahimnu- bólga í ungbörnum, blóðeitrun og getur sjúkdómurinn einnig valdið fósturláti. Í einstaka tilfellum getur bakterían valdið dauða, þá er yfirleitt um að ræða einstaklinga sem eru með skert ónæmiskerfi. Áhættuhópar eru barnshafandi konur, ófædd og nýfædd börn og einstaklingar með skert ónæmiskerfi. „Það sem er hættulegast er ef óhreinindin berast í matinn en fólk setur nú sjaldnast matinn óvarinn í hillurnar. Það er líka aðallega lyktin sem er slæm,“ segir Margrét Dóróthea Sigfúsdóttir hússtjórnarfrú. Hún segir að Íslendingar þrífi allt of sjaldan ísskápana sína. Ef eitthvað hellist niður og er ekki þurrkað upp geti verið ansi erfitt að ná lyktinni úr ísskápnum. Fólk reyni ýmislegt, svo sem matarsóda og klór, til að ná burtu óhreinindum og vondri lykt. „Besta ráðið er að reyna að tæma ísskápinn alveg og bera innan í hann ab-mjólk eða súrmjólk. Þannig skal hann standa í sólarhring og síðan þrifið.“ Hún segir ísskápa oft rispast að innan og þar setjist að bakteríur sem afar erfitt sé að ná til. Því sé gott ráð að láta ab-mjólkina liggja á í um það bil sólarhring þar sem hún inniheldur lifandi gerla. „Ab-mjólkin vinnur á þessu og étur þetta í rauninni upp,“ segir hún. Eftir þetta þurfi svo að þrífa ísskápinn mjög vel og skrúbba. Margrét segir að einnig þurfi að huga vel að gúmmíkantinum. Hann þurfi að þrífa vel og fylgjast með hvort hann sé farinn að harðna og molna. Ef svo er þurfi að skipta um hann því hann gegni ekki lengur hlutverki sínu þannig. Hann sé ekki lengur þéttur og hleypi heitu lofti inn í ísskápinn sem kælir þá ekki nægilega vel. Aðspurð um myglusveppi segir hún að fái sveppamyndun að grassera í ísskápnum byrji að myndast gró sem geti borist í matinn á sama hátt og af mygluðu brauði. „Öll mygla er hættuleg og maður borðar aldrei myglaðan mat.“ Margrét Dóróthea Sigfúsdóttir Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is „Þegar maður opn- ar ísskápinn og rótar í honum þyrlast upp bakteríur og gró myglu- sveppsins og dreifast um allan skápinn. Vinnustaðarísskápur Ísskápar geta verið sælustaðir fyrir hinar ýmsu bakteríur og myglusveppi. MYND: SIGTRYGGUR ARI JÓHANNESSON

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.