Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2011, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2011, Blaðsíða 22
22 | Úttekt 14. mars 2011 Mánudagur Þ egar Vísindakirkjan, Church of Scientology, kemst í fréttirnar kem- ur það alla jafna ekki til af góðu. Á meðal safnaðarmeðlima kirkjunnar er að finna fjölda frægð- armenna og eru sum meira áberandi en önnur. Ekki einasta er kirkjan um- deild heldur er það mat stjórnvalda víða um heim að hún eigi lítið skylt við trúarbrögð og hefur starfsemi hennar víða verið bönnuð. Vísindakirkjan komst síðast í heimsfréttirnar fyrir tilstuðlan Star Magazine sem bendlaði fræga Holly- wood-stjörnu við lyfjafíkn. Með stríðs- letri á forsíðu janúartölublaðsins stóð: „Addiction Nightmare. Katie Drug Shocker!“ Stjarnan sem fékk þennan merkimiða er leikkonan Katie Hol- mes. Katie er eiginkona Toms Cruise sem ekki aðeins tilheyrir söfnuði Vís- indakirkjunnar heldur er hann meðal æðstu stjórnenda hennar. Katie Holmes brást ókvæða við, höfðaði mál á hendur tímaritinu og krefst 50 milljóna bandaríkjadala í skaðabætur. Og skyldi engan undra, því inni í blaðinu er hvergi ýjað að fíkniefnaneyslu stjörnunnar en gert að umræðuefni að Katie sé „föst í hringrás ávanabindandi meðferða“. Lögfræðingur Katie Holmes sagði að „illgirnislegar“ fullyrðingar tíma- ritsins séu allt í senn ósannar, sið- lausar og ólöglegar, og auk þess að vera ærumeiðandi sé það lágkúru- legt bragð af hálfu tímaritsins gagn- vart almenningi að vera með ósann- ar fullyrðingar á forsíðunni sem hvergi séu rökstuddar inni í blaðinu. Hlakka til að takast á við Katie Forráðamenn Star Magazine láta sér fátt um finnast og talsmaður Amer- ican Media, útgáfufélags Star Mag- azine, sagði að félagið myndi verjast málsókninni hatrammlega. Þeir sögu lögfræðinga sína hlakka til að takast á við Katie Holmes og það sem hún hefði að segja um reynslu sína af Vís- indakirkjunni. Ef fer sem horfir má leiða getum að því að Star Magazine hafi komist i feitt enda ekki óþekkt með öllu að slúðurtímarit og -blöð fari frjálslega með staðreyndir til að auka söluna og taki jafnvel slaginn í réttarsal ef skaða- bótakrafan er lægri en sem nemur hagnaði af sölu blaðsins. Hvort sú er raunin í þessu tilfelli skal ósagt látið enda 50 milljónir Bandaríkjadala álit- leg upphæð, um 6 milljarðar íslenskra króna. Lögræðingar Katie sögðu að leik- konan væri neydd til að höfða mál til að „... hreinsa mannorð sitt eftir að American Media neitaði að draga til baka svívirðilegar lygar um hana.“ Ljóst er að Katie Holmes lítur mál- ið alvarlegum augum og er lítt skemmt enda sagði hún að allur uppspuni sem um hana hefði verið viðhafður blikn- aði í samanburði við þann sem Star Magazine birti á prenti. E-mælirinn umdeildi Sem fyrr segir eru Cruise-hjónin bæði meðlimir Vísindakirkjunnar. Hef- ur fimm ára hjónaband þeirra verið botnlaus uppspretta vangaveltna og í málshöfðun Katie á hendur Star Mag- azine er fullyrt að tímaritið ýi að því að hún hyggist segja skilið við Tom Cruise, sem sé rakin lygi. Það sem grein Star Magazine fjallar um eru umdeildar meðferðir sem beitt er innan Vísindakirkjunnar og sagði í yfirlýsingu frá tímaritinu að umfjöllun þess kveikti áleitnar spurningar og áhyggjur af ýmsum aðferðum sem Vísindakirkjan beiti, til dæmis notkun svokallaðs e-mælis, tækis sem sagt er nema andleg áföll þess sem notar það. Í yfirlýsingu Star Magazine sagði að notkun e-mælisins á einstaklinga væri nokkuð alvarlegt áhyggjuefni og að tímaritið stæði að fullu við sannleiks- gildi þess sem skrifað var um notk- un Katie Holmes á þessum umdeilda mæli. Hvað varðar hjónaband Katie Hol- mes og Toms Cruise hefur það verið slúðurblöðum og -tímaritum ærið um- fjöllunarefni og oft og tíðum er fallað um yfirvofandi skilnað. Hjónabandið virðist vera ritstjórum Star Magazine mikið hugðarefni og samkvæmt um- fjöllun þess fylltist Katie óðagoti í kjöl- far ítarlegrar greinar í tímaritinu New Yorker þar sem meðal annars var fjall- að um rannsókn bandarísku alríkis- lögreglunnar F.B.I. á Vísindakirkjunni. „Hangir á bláþræði“ Samkvæmt umfjöllun Star Magazine varð greinin, eftir leikstjórann Paul Haggis, til þess að reka fleyg á milli Katie og Toms. Paul Haggis hafði ver- ið meðlimur Vísindakirkjunnar í þrjá áratugi og nærri hálfum betur þeg- ar hann sagði skilið við hana síðla árs 2009. Þrátt fyrir að hann hafi ekki verið jafn þekktur og áberandi og ákveðnir safnaðarmeðlimir á borð við leikar- ana Tom Cruise og John Travolta var úrsögn hans mikið áfall fyrir Vísinda- kirkjuna. Í grein sinni í New Yorker sagði Haggis meðal annars að sjóðir Vís- indakirkjunnar hefðu verið notað- ir til að mylja undir Tom Cruise og vitnar Star Magazine í ónafngreindan heimildarmann sem sagði að Katie hefði flogið til Vancouver í Kanada þar sem Tom var staddur við tökur á enn einni Mission: Impossible-myndinni. „Hún hefur áhyggjur af því að núna gæti ástríða Toms fyrir kirkjunni hafa komið þeim í lagaleg vandræði,“ hef- ur tímaritið eftir heimildarmanni sín- um. Tímaritið fullyrti aukinheldur að hjónaband Katie og Toms „héngi á bláþræði“. Eðli málsins samkvæmt hefur ein- hver innan kreðsa Toms Cruise vísað þessu öllu á bug; Tom njóti engra sér- fríðinda innan Vísindakirkjunnar og því fari fjarri að hjónaband þeirra hvíli á brauðfótum. Áheyrnarprufur fyrir hentugt kvonfang Engan skyldi undra í ljósi sögusagna um hjónaband Katie og Toms að það sé oft og tíðum umfjöllunarefni slúð- urblaða. Samkvæmt einni sögusögn var ekki til þess stofnað eins og alla jafna gengur og gerist. Samkvæmt frásögn fyrrverandi meðlims Vísindakirkjunnar, Marcs Headley, þurfti Katie Holmes að gangast undir „áheyrnarprufu“ til að giftast Tom Cruise og var hjónaband þeirra skipulagt af leiðtoga Vísinda- kirkjunnar, David Miscavige. Að sögn Marcs kvartaði Tom við David vegna þess hve óheppinn hann var með kvenfólk, en Tom hafði þá ný- lega sagt skilið við leikkonuna Penel- ope Cruz. „Svo Miscavige gaf háttsett- um embættismanni skipun: „Finndu konu handa Tom Cruise.“ Embætt- ismaðurinn sendi út áheyrnarboð til leikkvenna, þeirra á meðal meðlima Vísindakirkjunnar, með skilaboðun- um: „Það er á döfinni kvikmynd með Tom Cruise sem þú gætir fengið hlut- verk í. Komdu í áheyrnarprufu,““ var haft eftir Marc Headley. Marc sagði að á meðal þeirra leikkvenna sem komu í áheyrnarprufu hefðu verið Jenni- fer Garner og Jessica Alba, en hvorug þeirra „beit á“. Þegar Tom sá upptökuna af áheyrnarprufu Katie Holmes var ekki aftur snúið og síðar átti hann eftir að tjá henni ást sína í þætti Opruh Win- frey, eins og frægt er orðið, þegar hann hoppaði eins og geðveikur væri í sófanum. n Vísindakirkjan hefur ávallt verið umdeild n Mörg frægðarmenni eru á meðal safnaðarmeðlima n Hjónin Tom Cruise og Katie Holmes eru í innsta hring í Vísindakirkjunni n Katie Holmes bendluð við ávanabindandi meðferðir á vegum kirkjunnar Gustar um Vísindakirkjuna Ástralía Árið 1983 úrskurðaði hæstiréttur í Ástralíu að Vísinda- kirkjan væri trúarleg stofnun. Stofn- unin hafði átt erfitt uppdráttar fyr- ir þann tíma og meðal annars verið bönnuð í þremur fylkjum landsins Belgía Skuggi málsóknar af hálfu hins opinbera hefur hvílt yfir Vís- indakirkjunni síðan 2007. Frakkland Vísindakirkjan hefur átt við ramman reip að draga í Frakk- landi þar sem stofnunin er flokk- uð sem hættulegur sértrúarsöfn- uður í þingnefndarskýrslu. Árið 1996 var leiðtogi kirkjunnar í Lyon, Jean-Jacques Mazier, dæmdur fyrir svik og manndráp af gáleysi og gert að dvelja á bak við lás og slá í eitt og hálft ár. Fjórtán aðrir voru sakfelldir fyrir svik. Árið 2009 var Vísindakirkjan í Frakklandi sakfelld fyrir svik og gert að greiða 600.000 evrur. Fjórir með- lima hennar fengu skilorðsbundna dóma fyrir svik og var gert að greiða sektir. Þýskaland Viðhorf til Vísindakirkj- unnar í Þýskalandi eru almennt neikvæð og er hún talin ólýðræðis- leg stofnun. Ýmsar öryggisstofnan- ir fylgjast grannt með henni meðal annars vegna gruns um að brotið sé á rétti meðlima hennar, sem tryggð- ur er í stjórnarskrá Þýskalands. Innanríkisráðherra Þýskalands upplýsti árið 2007 að til greina kæmi að banna Vísindakirkjuna, en um ári síðar var fallið frá þeim áformum. Írland Vísindakirkjan er ekki við- urkennd opinberlega sem trúar- leg stofnun á Írlandi en henni er þó frjálst að boða kenningar sínar. Rússland Árið 2007 úrskurðaði Mannréttindadómstóll Evrópu að Rússar hefðu, með því að banna Vísindakirkjunni að skrá stofnun- ina sem trúarsamfélag, brotið gegn ákvæðum mannréttindasáttmála Evrópu. Sama ár lokuðu yfirvöld í Pétursborg kirkju safnaðarins þar í borg. Spánn Í október 2007 úrskurðaði þarlendur dómstóll að Vísinda- kirkjan skyldi sett á skrá yfir trúar- félög landsins. Bretland Frá 1968 til 1980 var út- lendum meðlimum Vísindakirkj- unnar bannað að koma inn í landið, bannið var síðar lagt af. Beiðni Vís- indakirkjunnar um að verða skráð sem góðgerðafélag var hafnað árið 1999 á þeim forsendum að starf- semin samræmdist ekki almanna- hagsmunum. Vísindakirkjan víða um lönd Herra og frú Cruise Katie Holmes hefur höfðað mál á hendur Star Magazine. Tímaritið fjallaði um umdeilda meðferð sem beitt er innan Vísindakirkjunnar. Sagt er að Tom Cruise njóti sérmeðferðar innan vébanda Vísindakirkjunnar. Mynd Jay TaMBoli Vísindakirkjan í los angeles Alríkislögregla Bandaríkjanna rannsakar stofnunina vegna ásakana um frelsisskerðingu og ofbeldi. Mynd MFiEld

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.