Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2011, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2011, Síða 24
24 | Sport Umsjón: Tómas Þór Þórðarson tomas@dv.is 14. mars 2011 Mánudagur Valskonur deildarmeistarar í handbolta: Valur valtaði yfir Fram Valskonur urðu um helgina deildar- meistarar í handbolta þegar þær völt- uðu yfir sinn helsta keppinaut, Fram, á heimavelli. Valur hafði öruggan sig- ur, 31–23, eftir að hafa verið mest tíu mörkum yfir í seinni hálfleik, 26–16. Leikurinn var jafn, 4–4, í fyrri hálfleik en þá skoruðu Valskonur fimm mörk í röð og nýkrýndir bikarmeistarar Fram náðu aldrei að halda í við Hlíðarenda- stúlkur eftir það. Hrafnhildur Ósk Skúladóttir var markahæst Valskvenna með sjö mörk en Anett Köbli skoraði fjögur. Guð- ný Jenný fór á kostum í markinu og varði sextán skot. Stella Sigurðardóttir var að vanda markahæst hjá Fram en hún skoraði átta mörk. Birna Berg Har- aldsdóttir skoraði fjögur og þá varði Íris Björk Símonardóttir þrettán skot í markinu. Náðu Valskonur þarna að hefna fyrir tapið í bikarkeppninni um dag- inn en stóri titilinn, Íslandsmeistara- titillinn, er eftir. Með deildarmeistara- titlinum er ljóst að Valur verður með heimaleikjarétt út úrslitakeppnina. Ein umferð er eftir í deildinni en ljóst er að Valur endar í fyrsta sæti, Fram í öðru sæti og Stjarnan í því þriðja. Mikil barátta er þó um fjórða og síðasta sætið. HK hleypti mikilli spennu í baráttuna um fjórða sæt- ið með því að leggja Fylki að velli um helgina, 21–20. Fylkir er í fjórða sætinu með tuttugu stig en rétt á eftir kem- ur HK með nítján. Í lokaumferðinni á HK töluvert léttari leik en Fylkir. Kópa- vogsstúlkur mæta ÍR sem hefur ekki unnið leik á tímabilinu á meðan Fylkir fær Stjörnuna í heimsókn. Gæti HK því komist í úrslitakeppnina og mætt þar Val fái liðið smá hjálp frá nágrönnum sínum úr Garðabæ. tomas@dv.is Rooney gæti farið n Breska götublaðið News of the World greindi frá því um helgina að Wayne Rooney hefði aftur lent upp á kant við knatt- spyrnustjórann Sir Alex Ferguson. Er hann ósáttur við leikmanna- hóp United, gengi liðsins og lífið í Manchest- er. Ferguson á að hafa sagt Rooney að líta í eigin barm en hann hefur verið skugginn af sjálfum sér á þessu tímabili. Í fréttinni kemur fram að svo gæti farið að Ferguson bjóði Rooney að fara í sumar og þykir ekki ólíklegt að Rooney muni taka því tilboði. Coyle vill meira n Bolton komst um helgina í undan- úrslit enska bikarsins með frábærum 3–2 sigri á Birmingham. Bolton er því komið á Wembley en Owen Coyle, knattspyrnu- stjóri liðsins, vill meira. „Við erum komnir í und- anúrslit bestu bikarkeppni heims. Það er al- gjörlega frábært afrek. En nú vill maður komast í úrslitaleikinn,“ sagði Coyle við frétta- menn eftir sigurinn á Birmingham. Grétar Rafn Steinsson verður því þriðji Íslendingurinn til að spila á nýja Wembley á eftir Hemma Hreiðars og Jóhannesi Karli Guðjónssyni. Kenny fær samning n Kenny Dalglish verður áfram stjóri Liverpool en eigendur liðsins hafa boðið Skotanum tveggja ára samn- ing og fimmtíu milljónir punda til þess að kaupa leikmenn í sum- ar. Dalglish vill horfa til framtíð- ar og hefur beðið Kanana um fjög- urra ára samn- ing. Þeir vilja þó ekki binda sig svo lengi. Dal- glish hefur held- ur betur rétt við gengi Liverpool eftir að Roy Hodgson var rekinn í janúar en liðið er nú í baráttu um Evrópusæti í stað fall- baráttu eins og fyrr á tímabilinu. Beckham endar heima n David Beckham ætlar bara að spila eitt ár til viðbótar með LA Galaxy í bandarísku MLS-deildinni. Hann ætlar þó ekki að hætta eftir næsta tímabil þó hann sé orðinn 35 ára gamall. Hann dreymir um að ljúka ferlinum í ensku úrvals- deildinni og eru sögusagnir um að hann gangi í raðir Tottenham á næsta ári. Þó Beckham sé harð- ur United-maður ólst hann upp í Tottenham-hverfinu og var afi hans mikill stuðningsmaður liðsins. Þá æfði hann með Spurs fyrr á árinu. Gætu framlengt við Schumi n Mercedes hefur ekki útilokað að framlengja samning sinn við Michael Schumacher haustið 2012 þegar þriggja ára samningi hans lýkur. Norbert Haug, einn yfir- manna liðsins, segir það vel geta gerst að Schum- acher aki fyrir liðið tímabilið 2013 en þá verð- ur hann orðinn 44 ára. „Ef Michael vill halda áfram að keyra og við komumst að samkomulagi um laun þá er ég meira en til í að halda hon- um. Michael lítur virkilega vel út þessa dagana,“ segir Norbert Haug. Molar Jafnt á með liðunum í titlum Fram er bikarmeistari og Valur deildarmeistari, en sá stóri er eftir. Íslenska landsliðið í handbolta þurfti að sætta sig við smánarlegt tap gegn sterku liði Þýskalands, 39–28, þeg- ar liðin mættust öðru sinni í undan- keppni EM 2012 í gær. Ísland hafði fyrr í vikunni valtað yfir Þýskaland í Laugardalshöll en strákarnir okkar voru ekki skugginn af sjálfum sér í Þýskalandi og urðu sér til skammar. Það stóð ekki steinn yfir steini í einu né neinu sem íslenska liðið reyndi í leiknum. Frá markverði, til varnar, til sóknar, það var einfaldlega allt lélegt. „Ég vil byrja á því að biðja þjóðina af- skökunar fyrir hönd liðsins á þess- ari spilamennsku. Við spiluðum illa frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu,“ sagði hundsvekktur landsliðsþjálf- ari Íslands, Guðmundur Guðmunds- son, í viðtali við Henry Birgi Gunnars- son á Stöð 2 Sport eftir leikinn. „Ég er mjög svekktur yfir þessum úrslitum,“ bætti Guðmundur við. Úrslitin þýða að Ísland verður að vinna síðustu tvo leiki sína í riðlinum ætli það sér á EM í Serbíu í janúar á næsta ári. Þeir leikir eru gegn Austurríki heima og Lett- landi ytra. Möguleikarnir eru því góð- ir en spilamennskan gegn Þýskalandi í gær myndi ekki duga til að vinna hvaða landslið sem er. Mættu ekki til leiks Þjóðverjar voru ekki lengi að taka forystuna í gær, 5–1, og var strax ljóst hvað væri í vændum. Íslenska liðið spilaði vondan varnarleik og þá var sóknarleikurinn enn verri. Ekkert flot var á boltanum í sókninni, lið- ið kom sér í erfið færi og gerði Silvio Heinevetter afar auðvelt fyrir í mark- inu. Heinevetter, eins og á HM, var í miklu stuði og varði allt sem á mark- ið kom, þar af þrjú vítaköst. Guðmundur tók leikhlé í stöðunni 5–1 og reyndi að útskýra fyrir strák- unum hvað væri að. Það fór inn um annað og út um hitt því Þýskaland hélt áfram að skora auðveld mörk og leiddi með sjö mörkum í hálfleik, 20– 13. Sveinbjörn Pétursson kom inn í markið um miðjan fyrri hálfleikinn en hann mátti sín lítils með hripleka vörn fyrir framan sig. Heilt yfir gekk einfaldlega ekkert upp. Vörnin fann sig ekki, markvarslan nánast eng- in, sóknarleikurinn hægur, Róbert greip varla boltann inni á línunni og þá voru íslensku strákarnir ótrúlega seinir til baka. „Ég hafði áhyggjur af því að menn væru enn að baða sig í ljómanum eftir sigurinn í Höllinni. Því ræddi ég um það við menn að mæta sterk- ir til leiks,“ sagði Guðmundur Guð- mundsson í viðtali á Stöð 2 Sport eftir leikinn. Þær áhyggjur áttu svo sann- arlega rétt á sér því strákarnir okkar mættu aldrei til leiks í Gerry Weber Halle. Andleysi sveimaði yfir lið- inu og í seinni hálfleik mátti greina hreina uppgjöf. Það var því ekki furða að Aron Pálmarsson tók undir afsök- unarbeiðni þjálfarans og sagði strák- ana hafa spilað eins og aumingjar. Litla markmiðið tókst ekki Þegar tæpar tíu mínútur voru eft- ir tók Guðmundur aftur leikhlé og setti upp lítið markmið innan leiks- ins. Þá munaði aðeins átta mörk- um og þurfti liðið ekki annað en að n Skammarlegt ellefu marka tap gegn Þýskalandi, 39–28. n Guðmundur þjálfari baðst afsökunar n Enn fínn mögu- leiki að komast á EM Tómas Þór Þórðarson blaðamaður skrifar tomas@dv.is STRÁKARNIR OKKAR RASSSKELLTIR Ekki búið enn Ísland getur enn komist á EM. MYNDIR TOMASZ KOLODZIEJSKI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.