Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2011, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2011, Blaðsíða 29
Fólk | 29Mánudagur 14. mars 2011 www.birkiaska.is Minnistöflur Bætir skammtímaminnið. Nýtist fólki sem er undir álagi og fæst við flókin verkefni. Hentar vel fyrir eldri borgara, lesblinda og nemendur í prófum. Dregur úr streitu, eykur ró og bætir skap. www.birkiaska.is Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox). Birkilaufstöflur L eikarinn Mel Gibson hef- ur samið við saksókn- ara Los Angeles í málinu sem fyrrverandi unnusta hans, Oksana Grigorieva, höfðaði gegn honum. Mel mun svara „no contest“ við væg- um ákæruliðum en það þýðir að hann hvorki játar né neitar. Mel verður hins vegar ekki sóttur til saka fyrir alvarlegustu ákærulið- ina og þarf ekki að sitja mínútu í fangelsi. Leikarinn og leikstjórinn taldi sig geta unnið mál- ið en er sagð- ur hafa viljað hlífa fjölskyldu sinni við þeim gríðarlega fjöl- miðlasirkus sem hefði fylgt málinu. Í yfirlýsingu sem lögfræðingur Mels sendi frá sér segir að það sé forgangsat- riði hjá leikaranum að hlífa ungri dóttur sinni sem hann á með Ok- sönu og í raun öllum börnunum sínum. „Með það í huga bað hann mig um að nálgast saksóknarann með sátt í huga til þess að binda enda á þessi mál í eitt skipti fyrir öll.“ Mál Oksönu og Mels reis sem hæst fyrir um ári en þá láku upp- tökur á netið þar sem leikarinn úthúðaði barnsmóður sinni. Upp- tökurnar vöktu hörð viðbrögð um allan heim og er óhætt að segja að vinsældir Mels hafi farið gjörsam- lega í vaskinn. Mel Gibson semur til að sleppa við réttarhöld: Fer ekki í FangeLsi Oksana og Mel Eiga saman dóttur. Mel Gibson Samdi við saksóknara. Grjótharður Pitt Svart hár og leðurjakki í stíl: B rad Pitt var eitursval- ur við tökur á nýjustu myndinni sinni, Cog- an´s Trade, í síðustu viku. Tökurnar fara fram í New Orleans en hinn 47 ára gamli Pitt gaf sér tíma til að drekka einn kaffibolla á milli atriða. Pitt hefur dvalið í New Orleans undanfarið en Cogan´s Trade er spennumynd sem Andrew Dominik leikstýr- ir. Búist er við því að myndin verði sýnd snemma á næsta ári. Í myndinni leikur Pitt Jack- ie Cogan en hann starfar sjálf- stætt við að rannsaka mál og í þetta skiptið er það rán sem átti sér stað þegar menn tengd- ir mafíunni héldu pókermót. Myndin er hlaðin stórleikurum og má þar meðal annars nefna Casey Affleck, Ray Liotta, Jam- es Gandolfini,Mark Ruffalo, Ja- vier Bardem og Sam Rockwell. Brad Pitt Með honum í myndinni leika Casey Affleck, Ray Liotta, Jam- es Gandolfini, Mark Ruffalo, Javier Bardem og Sam Rockwell. a ðeins tveimur mánuðum eftir skilnaðinn virðast Ryan Reynolds og Scarlett Johansson bæði vera farin að leita á önnur mið. Fyrst var það Scarlett sem sést hefur með Sean Penn og nú er orðrómur í gangi um að Ryan eigi í sambandi við fyrirsætuna Agnes Fischer. Ryan og Agnes hafa sést saman í Suður-Afríku þar sem Ryan er við tökur á myndinni Safe House. Þó að Agnes Fischer sé ekki mikið þekkt er fer- ill hennar athyglisverður að mörgu leyti. Hún hefur setið fyrir í auglýsingum fyrir Bebe, Reebok, Sure og Adidas. Hún hefur líka setið fyrir á forsíðu tímarit- anna Shape og Health & Fitness. Í fyrra sást hún í 30 sekúndur í tónlistarmyndbandinu Hurricane sem var bannað á MTV í desember. Ryan og Scarlett voru saman í nokkurn tíma en þau eru bæði meðal skærustu stjarnanna í Holly- wood um þessar mundir. sambandsslitin Ryan Reynolds og Scarlett Johansson: Bæði komin yfir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.