Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2011, Side 12
12 | Fréttir 30. maí 2011 Mánudagur
„Ég vil koma fram og segja sögu mína
því veit að hún er ekki einsdæmi,“
segir Jóna Sigurbjörg Guðmunds-
dóttir, móðir átta ára drengs, sem
flúin er til Svíþjóðar undan barnsföð-
ur sínum. Faðir drengsins og frændi
voru kærðir fyrir kynferðisbrot gegn
drengnum og er málið nú í höndum
Ríkissaksóknara. Við húsleit á heim-
ilum mannanna fundust fíkniefni,
maríjúana og hvítt efni sem lögregl-
an taldi vera kókaín.
Metinn hæfur
Málið vakti mikla athygli þegar það
kom upp fyrr á árinu en faðir drengs-
ins var metinn hæfur af barnavernd
Hafnarfjarðar árið 2007 til að um-
gangast drenginn þrátt fyrir að eiga
að baki langa sögu fíknefnamisnotk-
unar og fjölda dóma, meðal annars
fyrir líkamsárás á hendur barnsmóð-
ur sinni og tengdaföður. Jóna og nú-
verandi sambýlismaður hennar búa
nú í Svíþjóð en þangað flúðu þau eft-
ir að maðurinn hótaði þeim í kjölfar
þess að hann var kærður fyrir hina
meintu misnotkun.
Lögreglan hefur lokið rann-
sókn sinni og er málið nú í hönd-
um Ríkissaksóknara. Brotin sem
mennirnir eru grunaðir um að hafa
framið eru mjög gróf og varða kyn-
ferðislegt, andlegt og líkamlegt of-
beldi. Jóna telur barnaverndarnefnd
hafa brugðist syni sínum en hún og
barnsfaðir hennar hafa staðið í um-
gengnisdeilu frá því að þau skildu
árið 2004.
Efast um ofbeldi
„Þetta er búið að taka mjög á mig og
fjölskylduna. Nú liggur fyrir að ég
þarf að koma heim og höfða forræð-
ismál á hendur barnsföður mínum,
sem ég treysti mér ekki til að gera.
Mér finnst að það ætti að vera nóg,
að maðurinn hafi hótað fjölskyld-
unni lífláti, hann hafi verið tekinn
með fíkniefni og hann sé grunað-
ur um hrottalega misnotkun, til að
hann missi forræðið.“
Hún segir þetta ekki vera eina
skiptið sem barnaverndarnefnd
hafi brugðist en það vekur athygli
að í greinargerð sem félagsráðgjafi á
vegum barnaverndar Hafnarfjarðar
gerði í kjölfar umgengnisdeilu þeirra
segir orðrétt „að X og Jónu greini á í
frásögnum sínum um hugsanlegt of-
beldi X gagnvart Jónu. Hún heldur
því fram að hann hafi lagt á sig hend-
ur á meðan hann segist aldrei hafa
gert henni mein“. Síðar í greinargerð-
inni er talað um dóminn sem X fékk
fyrir að ráðst á tengdaföður sinn og
fyrir eignarspjöll, en hann sparkaði
margoft í bifreið hans svo hún varð
fyrir þó nokkrum skemmdum. Tekið
er fram að hann „iðrist árásarinnar
sáran og taki fulla ábyrgð á henni“.
Ekkert kemur fram um líkamsárás-
ina á hendur Jónu sem þó var dæmt í
á sama tíma og árásin á föður henn-
ar. Dómurinn í því máli féll þann 14.
mars 2007 en greinargerðin er skrif-
uð í júní sama ár. Það ætti því ekki að
vera ástæða til að efast um að barns-
faðir Jónu hafi lagt á hana hendur
eins og virðist hafa verið raunin.
Breiðavíkurdrengur
Barnsfaðir Jónu var vistaður á Breiða-
vík, frá níu ára aldri í átján mánuði,
þar sem hann varð fyrir miklu of-
beldi og vanrækslu af hálfu staðar-
haldara, að því er segir í greinagerð
félagsráðgjafans. Á sama tíma og
matið var gert á barnsföður Jónu var
umræðan um reynslu Breiðavíkur-
barnanna í hámæli og vill hún meina
að hann hafi fengið ákveðna samúð
hjá félagslega kerfinu vegna fortíðar
sinnar. En í greinargerðinni stendur
„að ekki er hægt að horfa fram hjá
dapurri sögu X sem einkennist af
stofnana vist frá unga aldri“.
Jóna segir að vist barnsföðurs
hennar á Breiðavík og erfið reynsla
hans þar eigi ekki að koma þeirra
umgengnisdeilu við. „Þetta er mað-
ur sem hafði nýlega verið dæmdur
fyrir líkamsárás á mig og föður minn.
Maður með langa sögu um óreglu en
hann sprautaði sig daglega í fjórtán
ár með amfetamíni og kókaíni ásamt
því að reykja hass og misnota áfengi.
Allt í hans fortíð segir manni að taka
verði öllum loforðum um betrumbót
„Núna langar mig
að hefja nýtt líf“
Föður barns veitt umgengni þrátt fyrir að hann hafi nýlega hlotið dóm fyrir líkamsárás á hendur móður barns-
ins og afa n Móðir drengsins telur að hann hafi fengið samúð félagsmálayfirvalda vegna vistar á Breiðavík„Mér var boðið að
hafa lögreglu-
mann á staðnum en lög-
reglan getur ekki verndað
mig alltaf.
Jóna Sigurbjörg Guðmundsdóttir „Hann var þá útúrdópaður
einn með syni mínum sem þá var nýorðinn þriggja ára.“
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is