Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2011, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2011, Qupperneq 14
14 | Neytendur Umsjón: Gunnhildur Steinarsdóttir gunnhildur@dv.is 30. maí 2011 Mánudagur Brauðafgangar í súpuna Það vita flestir upp á sig sökina þeg­ ar kemur að því að henda matar­ afgöngum eða hreinsa gamlan mat út úr ísskápnum. Það er þó ýmis­ legt sem má nýta þótt það sé komið yfir „best fyrir“ dagsetninguna. Til dæmis er upplagt að velgja brauð sem ekki er alveg nýtt í ofn. Það er þó hægt aðeins einu sinni því annars verður það annað hvort þurrt eða of lint og molnar. Þetta ráð má finna á heimasíðu Leiðbeiningarstöðvar heimilanna. Þar segir einnnig að brauðafganga megi skera í teninga, rista á pönnu og nota í hina ýmsu rétti svo sem út á salat eða súp­ ur. Eins megi þurrka og mylja brauð­ afganga og nota í rasp, setja út í kjöt­ bollufars eða strá innan í kökuform fyrir bakstur. Að lokum má safna brauðafgöngum og frysta og nota seinna í gömlu góðu brauðsúpuna eða einfaldlega gefa öndunum þá.  Festi teininn án endurgjalds n Lofið að þessu sinni fær Verkfæra­ salan í Síðumúlanum en viðskipta­ vinur sendi eftirfarandi: „Ég var með lausan tein á hjólinu mínu og kom við hjá Verkfærasölunni um daginn til að athuga hvort þeir ættu rétta skrúfu til að festa teininn. Þar gróf einn starfsmaður upp skrúfu, setti hana í hjólið og festi teininn. Þetta allt án þess að ég þyrfti að greiða krónu fyrir! Ég hef alltaf fengið góða þjónustu þarna og mæli með þessari verslun.“ Misstu viðskipti n Heimilistæki fær lastið fyrir slaka þjónustu. „Ég fór í Heimilistæki til að skoða sjónvarp og heimabíó og fékk enga þjónustu. Ég var tilbúin til að kaupa þessi tæki en þar sem þjón­ ustulundin var engin fór ég annað og keypti tæki fyrir hátt í 300.000 krónur. Heimilistæki hefði fengið þessi við­ skipti ef ég hefði fengið almennilega þjónustu þar,“ segir svekktur viðskiptavinur. SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS Lof&Last E ld sn ey ti Bensín Dísilolía Algengt verð 237,4 kr. 233,5 kr. Algengt verð 237,2 kr. 233,4 kr. Höfuðborgarsv. 237,1 kr. 233,3 kr. Algengt verð 237,4 kr. 233,5 kr. Algengt verð 238,9 kr. 233,5 kr. Melabraut 237,2 kr. 233,4 kr. Vorin og haustin eru algengustu kvef­ og flensutímabilin og börn eru mun líklegri til að smitast af þessum pest­ um en fullorðnir. Þótt heilbrigðisþjón­ usta á Íslandi sé að mestu ókeypis þá fer því fjarri að foreldrar beri ekki ekki talsverðan kostnað þegar börnin smit­ ast af þessum árlegu flensum og kvef­ pestum. DV tók saman hvað helstu lyf og vörur, sem foreldrar leggja út fyr­ ir vegna veikinda barna, kosta. Hvort sem um kvef eða flensu er að ræða þá kostar ein ferð í apótek alltaf sitt og foreldrar mega búast við að þurfa að punga út nokkrum þúsundum króna í hvert skipti. Ekkert lyf við kvefi Samkvæmt upplýsingum á doktor.is þá er talið að börn fái kvef sex til tíu sinnum á ári og er það ein algengasta ástæða þess að fólk leitar til heimilis­ læknis. Kvefið er meinlaus en hvim­ leiður sjúkdómur sem gengur yfir á sjö til tíu dögum. Þá eru um 200 veiru­ stofnar sem geta valdið kvefi og smit­ ast það á milli manna með úðasmiti eða snertismiti. Ekki eru til nein lyf á markaði sem lækna kvef og ekki eru líkur á að það takist að framleiða bólu­ efni gegn kvefinu í nánustu framtíð. Meðferðin byggist því helst á fyrir­ byggjandi aðgerðum og því að draga úr einkennum. Foreldrar vilja að sjálfsögðu gera það sem þeir geta fyrir börnin sín og koma þeim eins fljótt til heilsu og mögulegt er. Það er því algengt að far­ ið sé í apótekið og verslað það sem foreldrar telja að muni létta þeim róð­ urinn gegn sjúkdómnum. DV hringdi í nokkur apótek til að fá verðhugmyndir um slíkar vörur og voru það Rima Apó­ tek, Lyf og heilsa, Lyfja og Urðar apótek sem haft var samband við. Nefúði, panódíl og snýtiklútar Apótekin eru með mismunandi merki til sölu og var ekki hægt að gera beinan verðsamanburð þar sem ekki er hægt að leggja mat á gæði hvers og eins hlutar. Það kom hins vegar í ljós að verð á þeim vörum sem flestir kaupa, komi kvef­ og flensutilfelli upp, var mjög svipað í þessum tilteknu apó­ tekum. Þar má nefna að parasetamól eða pinex, 120 milligrömm, sem eru hitalækkandi lyf, voru alls staðar á um það bil 470 krónur en lægst var verð­ ið í Urðarapóteki; 429 krónur. Sömu sögu er að segja um Nezeril­nefúða sem var á tæplega 490 krónur í öllum apótekunum. Panodil Junior­mixtúra var ódýrust í Urðarapóteki á 589 krón­ ur en á milli 600 og 700 krónur á öðr­ um stöðum. Hóstasaftin var ódýrust í Lyfju á 500 krónur. Eyrnahitamælar voru á bilinu 8.000 til 10.000 krónur og ódýrastur í Lyfjum og heilsu. Gömlu kvikasilfursmælarnir eru á tæpar 600 krónur. Þar að auki er hægt að kaupa stafræna endaþarmsmæla sem eru bilinu 1.000 til 2.000 krónur. Electro Rice er saltupplausn sem gott er að gefa þegar börn hafa verið með í maga og hafa misst sölt úr líkamanum. Slík­ ur skammtur kostar um það bil 1.600 krónur. Afsláttur af listaverði Það er erfitt að fá nákvæmar upp­ lýsingar um hve mikið þarf að borga fyrir sýklalyf og önnur lyfseðilsskyld lyf. Að sjálfsögðu er það mismunandi eftir tegund sjúkdóms og aldri barns. Listaverð lyfjanna má finna á heima­ síðu Lyfjastofnunar en þar er gefið upp hámarksverð og apótekin gefa síðan mismunandi afslætti af því. Þær upp­ lýsingar fengust þó að foreldrar þurfi að gera ráð fyrir að borga 1.800 krónur fyrir ódýrasta sýklalyfjaskammtinn en verðið getur farið upp í 4.000 krónur. Ventolin, astmaúði, var ódýrast í Rima Apóteki eða á 819 krónur. Sjaldan undir 2.000 krónum Ein ferð í apótekið kostar að öllum lík­ indum sjaldan undir 2.000 krónum. Ef keypt er hitalækkandi lyf, Nezeril­ nefúði, hóstasaft, Panodil­mixtúra og snýtiklútar er kostnaðurinn 2.330. Sé þörf á hitamæli bætast 500 krónur við nema ákveðið sé að kaupa stafræn­ an mæli en þá hækkar reikningurinn um 1.000 krónur. Eyrnamælar, sem eru afar vinsælir nú á dögum, kosta á bilinu 8.000 til 10.000 krónur. Reikn­ ingurinn verður svo enn hærri ef barn­ ið þarf á sýklalyfjum eða astmapústi að halda. Neytendur eru hvattir til að kynna sér reglur um afsláttar­ og lyfjakort sem Sjúkratryggingar Íslands gefa út. Flýtir ekki fyrir bata „Flestir læknar eru á því að gefa börn­ um hitastillandi lyf. Ástæðan er fyrst og fremst til að láta þeim líða betur en það er líka betra að meta ástand barnsins þegar hitinn hefur lækkað,“ segir Guðmundur Ásgeirsson barna­ læknir. Hann segir að þær vörur sem foreldrar kaupa fyrir veik börn séu að mestu leyti til þess gerðar að láta þeim líða betur en flýti ekki fyrir bata. Þann­ ig sé nefúði nauðsynlegur fyrir börn sem eru með stíflað nef og geta ekki andað. „Ef börn eru með miklar nef­ stíflur þá mæli ég með því en ann­ ars ekki. Ef það er með venjulegt nef­ rennsli er ekki mikið gagn af spreinu. Það er líklega eitthvað ofnotað en á þó rétt á sér,“ segir hann en bætir við að lítil börn megi ekki fá Nezeril eða ann­ an nefúða heldur eigi frekar að grípa til saltvatnsskolunar. Um hóstasaftina segir hann að hún flýti heldur ekki fyr­ ir bata en börnunum líði kannski betur þar sem saftin geti létt á hósta og þar með hjálpað þeim að sofa. Aðspurður hvort foreldrar væru að eyða peningi í óþarfa í apótekinu segist Guðmundur ekki geta sagt til um það. Fólk leiti hins vegar ráða hjá starfsfólki í apótekum. „Þetta eru for­ eldrar sem eru í vandræðum. Þeir eru með veik börn en þó ekki það veik að leita þurfi til læknis og fá því ráðlegg­ ingar hjá starfsfólkinu. Hlutverk þeirra er hins vegar að selja viðskiptavinum. n Börn fá kvef og flensu oft á ári n Læknaþjónusta er gjaldfrjáls en foreldrar eyða háum upphæðum í apótekinu n Hver ferð í apótek kostar að jafnaði ekki undir 2.000 krónum Kvefið kostar „Ekki eru til nein lyf á markaði sem lækna kvef og ekki eru líkur á að það takist að framleiða bóluefni gegn kvefinu í nánustu framtíð. Meðalverð á vörum Hitalækkandi lyf, 125 gr. 450 kr. Nezeril-nefúði 480 kr. Panodil Jr.-mixtúra 700 kr. Hitamælir stafrænn 1.000 kr. Eyrnamælir 8.000- 10.000 kr. Kvikasilfursmælir 600 kr. Hóstasaft 500 kr. Sýklalyf 1.600- 2.500 kr. Astmapúst (listaverð) 1.350 kr. Snýtiklútar 200 kr. Electro rice 1.600 kr. Meðhöndlun kvefs og flensu n Hvíld er mikilvæg og nauðsynlegt er að fá nægilegan vökva. n Gott er að skola nefgöng með saltvatni en einnig er hægt að nota lyf sem minnka nefstíflur. n Gott er að skola hálsinn með blöndu af vatni og asperíni n Gott er að anda að sér gufu. n Hægt er að nota verkjastillandi lyf við höfuðverkjum og til að lækka hita. n Börn skulu frekar fá parasetamól en asperín þar sem það getur valdið aukaverkunum. Upplýsingar af doktor.is Meðhöndlun Fyrirbyggjandi aðgerðir Fyrir utan að borða ávallt hollan og góðan mat þá er handþvottur talinn áhrifaríkasta fyrirbyggjandi aðgerðin. Aðrar eru til dæmis: Hvítlaukur – er talinn hafa veiru- og bakteríu- drepandi áhrif og getur því hjálpað til við að fyrir- byggja sýkingar. C-vítamín – virkar sem vörn gegn oxun á vefjum líkam- ans og flokkast sem andoxunarefni. Hluti af verkun þess byggist því á að örva ákveðin efni sem stuðla að því að styrkja ónæmiskerfið. Sink – hugmyndir eru uppi um að sink geti myndað hjúp utan um kvefveirur. Þannig getur sinkið komið í veg fyrir að þær valdi sýkingu. Þó hafa rannsóknir ekki staðfest þetta. Eins er talið að sink geti stytt sjúkdómstímann. Sólhattur –margir hafa trú á því að sólhattur sé fyrirbyggjandi gegn veirusýkingum en engar rannsóknir hafa sýnt fram á það. Á hinn bóginn eru til rannsóknir sem benda til þess að hann veiki varnir ónæmiskerfisins sé hann tekinn í langan tíma. Ekki er ráðlagt að taka sólhatt í meira en 8 daga í röð. Upplýsingar af doktor.is Heitt sítrónuvatn eða hunangs- mjólk – geta dregið úr ertingu í hálsi. Kjúklingasúpa – rannsóknir sýna að kjúklingasúpa virki gegn kvefi. Þetta er útskýrt á þann hátt að þegar bakteríur eða veirur ráðast inn í líkamann fer af stað ákveðið ferli til að vinna bug á þeim. Ferlið veldur kvefeinkennum svo sem nefstíflu, hósta og hnerra en nú hafa rannsóknir sýnt að efni í súpunni hindra þetta ferli og minnka því einkenni kvefsins. Önnur rannsókn sýndi að kjúklingasúpa flýtir fyrir því að líkaminn losar sig við sýkta nefslímhúð og flýtir þannig fyrir að sjúklingur losni við einkennin. Upplýsingar af doktor.is Gömul og góð húsráð Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is Flensa Kvef og flensa eru algeng- ustu ástæður þess að fólk leitar til heimilislæknis. MYND PHOTOS.COM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.