Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2011, Síða 15
Neytendur | 15Mánudagur 30. maí 2011
FARÐU
AFTUR
Í BÍÓ
Í FYRSTA
SINN
www.bioparadis.is
hverfisgötu 54 / 101 reykjavík
Samhliða því að netverslun færist í
aukana verður slík verslun æ örugg-
ari. Það leynast þó óprúttnir ná-
ungar á netinu eins og annars staðar
og því mikilvægt að fara að öllu með
gát. Á síðunni taenk.dk má finna
nokkrar ráðleggingar um hvað fólk
ætti að hafa í huga áður en vörur eru
keyptar á netinu sem geta hjálpað til
við að komast hjá því að lenda í klóm
svindlara.
Hvernig lítur heimasíðan út?
Skoðaðu vel heimasíðu verslunar-
innar. Athugaðu hvort hún líti fag-
mannlega út, hvort textinn sé vel
fram settur og án staðfsetningar-
villna. Eins er gott að skoða hvernig
varan er sett fram og henni lýst.
Athugaðu hvort að á síðunni megi
finna réttindi þín sem kaupanda. Til
dæmis hvaða rétt þú hefur til að skila
vörunni og hvað þú getur gert komi
í ljós að varan sé gölluð. Athugaðu
hvort að nafn verslunarinnar komi
fram á síðunni sem og heimilisfang,
netfang og símanúmer. Best væri að
finna nafn á þeim sem ber ábyrgð á
versluninni. Eru vöruverðin grun-
samlega lág? Þá eru líkur á því að um
svindl eða eftirlíkingar sé að ræða.
Er allur kostnaður innifalinn? Einn-
ig sendingarkostnaður? Þegar þú
verslar á erlendum síðum skaltu at-
huga að stundum þarftu að borga
skatta og önnur gjöld.
Það er ávallt góð regla að hringja
í verslunina áður en þú pantar. Þá er
hægt að spyrja til dæmis hve langan
tíma það tekur að senda vöruna eða
hvort hún sé til á lager. Með þessu
færðu vissu um að búðin sé til. Ef
ekki er svarað í símann ætti maður
að hugsa sig tvisvar um áður en var-
an er keypt því það gæti reynst erf-
itt að ná í einhvern sem ber ábyrgð
ef varan skilar sér ekki eða er gölluð.
Leitaðu eftir reynslu
annarra af síðunni
Leitaðu að fyrirtækinu eða verslun-
inni á Google og hvort þar séu við-
varanir frá öðrum viðskiptavinum.
Settu inn nafn verslunarinnar sem
leitarorð en einnig „aðvörun“, „pass-
ið ykkur“ eða „gagnrýni“.
Í Danmörku eru verslanir á net-
inu sem hægt er að treysta merktar
„e-merki“. Hér á landi er ekki til nein
vottun sem verslanir geta merkt sig
með en vert er að skoða lög um hús-
göngu- og fjarskiptastölu áður en
varan er keypt.
Ef neytendur eru í vafa um hvort
ráðlegt sé að versla í gegnum hina
eða þessa heimasíðu er sjálfsagt að
spyrja Howard, sem er ráðgjafar-
forrit sem aðstoðar fólk við kaup í
gegnum netið. Howard er á vegum
Evrópsku neytendaaðstoðarinnar.
Howard getur verið hjálpsamur en
er að sjálfsögðu einungis til ráðgjaf-
ar og aðstoðar fólk við að finna upp-
lýsingar um netfyrirtæki. Á heima-
síðu Neytendasamtakanna er bent á
að hann sé ekki trygging fyrir því að
fólk geri góð kaup.
Geymdu kvittanir og pantanir
Skoðaðu vel samanlagt verð og skil-
yrði fyrir sölu og afhendingu. Prent-
aðu út allar upplýsingar í sambandi
við kaupin.
Mundu eftir að að prenta út bæði
pöntunina og staðfestingu á henni
og geymdu vel. Borgaðu með korti í
stað þess að millifæra af bankareikn-
ingi þínum. Aldrei gefa upp lykil-
númer á kortinu þínu á netinu.
Athugaðu á bankayfirliti hvort að
þú hafir nokkuð verið rukkaður um
meira en verðið á vörunni sem þú
pantaðir eða hvort rukkað hafi verið
oftar en einu sinni.
Hafðu skilarétt þinn á hreinu
Hafir þú verslaði við netverslun inn-
an Evrópusambandsins áttu rétt á
að hætta við kaup á vörunni inn-
an 7 daga. Þessi réttur gildi þó ekki
um flugmiða, ferðalög, listaviðburði,
mat og heimilistæki. Ef varan er göll-
uð á verslunin að borga endursend-
ingarkostnaðinn.
Mundu eftir að fá kvittun í póst-
húsinu þegar varan er endursend.
n Sé verslað á netinu er gott að hafa nokkur atriði í huga n Gott er
að skoða vandlega heimasíðuna og hvort hún líti fagmannlega út
Svona vörumst við
svindlurum á net-
„Ef neytendur eru í
vafa um hvort ráð-
legt sé að versla í gegnum
hina eða þessa heima-
síðu er sjálfsagt að spyrja
Howard, sem er ráðgjafar-
forrit sem aðstoðar fólk
við kaup í grgnum netið.
Neytendur eru hvattir til að kynna sér
lög um húsgöngu- og fjarskiptastölu en
þar segir meðal annars að seljandi verði
að gefa upp nafn og heimilisfang. Verð
á vöru eða þjónustu, þar með talin öll
opinber gjöld, svo og afhendingarkostn-
aður, ef það á við á að koma fram. Eins
verði að vera upplýsingar um fyrirkomu-
lag á greiðslum, afhendingu og hvenær
hún fer fram.
Þekktu rétt þinnGunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Vefkerra
Mikilvægt er að
vera á varðbergi
þegar kemur að
verslun á netinu.
Mynd PHotoS.coM