Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2011, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2011, Page 16
16 | Erlent 30. maí 2011 Mánudagur Möltumenn kusu um lögleiðingu skilnaðar: Möltumenn mega skilja Yfirgnæfandi líkur eru á því að Möltumenn fái loksins að skilja við maka sína eftir þjóðaratkvæða- greiðslu á laugardag. Nú er Vatikanið eina landið í Evrópu þar sem skiln- aður er bannaður með lögum, en þannig hafði það verið á Möltu allt þangað til á laugardag. Nú þarf mal- tneska þingið að staðfesta lögin áður en þau taka gildi, en rúmlega 54 pró- sent Möltumanna greiddu atkvæði með hjónaskilnuðum. Lawrance Gonzi, forsætisráðherra Möltu, varð fyrir miklum vonbrigðum með úrslit kosninganna. „Þetta var ekki niður- staðan sem ég óskaði mér, en það verður að virða vilja almennings og nú ætti þingið að staðfesta þessi lög sem gerir fólki kleift að skilja.“ Skilnaðarmálið hefur verið áber- andi í umræðunni á Möltu undan- farna mánuði, ekki ósvipað Ice- save-málinu hér á landi. Fólk hefur skipt sér í fylkingar þar sem um mik- ið tilfinningamál er að ræða. Sam- tök voru stofnuð til að kynna kosti þess að segja já eða nei, en það var forsætisráðherrann sjálfur sem var einn harðasti andstæðingur þess að lögleiða skilnað. Hann er með- limur Þjóðernisflokksins sem er mjög íhaldsamur en hefur jafnframt meirihluta á maltneska þinginu. Þrátt fyrir það er fastlega búist við því að lögskilnaður verði gerður lögleg- ur, því Þjóðernisflokkurinn er með eins nauman meirihluta og hugs- ast getur – eða aðeins eitt þingsæti. Fleiri en einn þingmaður Þjóðernis- flokksins hefur lýst yfir stuðningi við lögleiðingu lögskilnaðar. Möltumenn eru flestir kaþólskrar trúar, eða um 95 prósent lands- manna. Kirkjan var áberandi í skilnaðarmálinu og sakaði stuðn- ingsmenn hjónaskilnaða um að eyðileggja gömul og góð fjölskyldu- gildi. „Við höfum reynt að gera umbæt- ur á lagaumhverfinu og það er al- gert grunnatriði, því eins og staðan er núna ríkir einræðisstjórn vinstri sinnaðra dómara.“ Þetta sagði Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, við Barack Obama, forseta Banda- ríkjanna, þegar leiðtogafundur G8- ríkjanna var í þann mund að hefjast á fimmtudag en fundurinn fór fram í strandbænum Deauville í Frakklandi. Berlusconi hélt að hann væri að tala við bandaríska forsetann í ein- rúmi en það voru varalesarar sem komust að því hvað flagarinn frá Sard- iníu lét út úr sér. Þessi fullyrðing Berl- usconis er sannarlega ekki ný af nál- inni, en hann er sannfærður um að kommúnistar sem sitja í dómaraemb- ættum á Ítalíu séu í krossferð gegn honum. Síðan friðhelgi þingmanna var aflétt undir lok síðasta árs, hef- ur ákærum rignt yfir Berlusconi – sú frægasta vafalaust þess efnis, að hann hafi keypt kynlífsþjónustu af ólögráða vændiskonu. Vinstri menn ósáttir Viðbrögðin við ummælum Berlus- conis hafa ekki látið á sér standa. Ítalska dagblaðið Corriere della Sera greindi frá ummælum Luca Palamara, forseta Samtaka dómara á Ítalíu. „Það er einstaklega alvarlegt að þetta hafi átt sér stað á erlendri grund, að ein mikilvægasta stoð stjórnkerfisins skuli vera svívirt fyrir augum eins valda- mesta stjórnmálaleiðtoga í heimi.“ Pier Luigi Bersani, leiðtogi demó- krata, sló hins vegar á létta strengi. „Ég veit ekki hvort Berlusconi vonist til að Obama sendi NATO hingað.“ Anton- io De Pietro, leiðtogi IDV-flokksins, benti á kaldhæðnina sem felst í því að Dominique Strauss-Kahn, fyrr- verandi framkvæmdastjóri AGS, bíði nú dóms í Bandaríkjunum fyrir kyn- ferðisglæpi – rétt eins og Silvio Berlus- coni gerir á Ítalíu. Hann sagðist vona að Obama hafi svarað honum fullum hálsi og útskýrt fyrir honum hvernig Bandaríkjamenn taka á kynferðisaf- brotamönnum. Missti fylgi Af Berlusconi er það annars að frétta, að Frelsisflokkur hans tapaði tals- verðu fylgi í sveitarstjórnarkosning- um sem fóru fram fyrir viku. Í síðustu þingkosningum sem fóru fram árið 2008 hlaut flokkurinn um 37 prósent atkvæða en í sveitarstjórnarkosning- unum hlaut hann aðeins 26 prósent. Fylgistapið kemur engum á óvart, nema þá kannski Berlusconi sjálfum, en hann hafði beitt heldur óvenjuleg- um aðferðum til að gera lítið úr and- stæðingum sínum fyrir kosningarnar. Sagði hann til að mynda að það væri fýla af vinstrimönnum, því þeir fara ekki nógu oft í bað. Hann vildi líka kenna hinu ofvaxna flokkakerfi á Ítalíu um fylgistapið. „Þegar ég fór sjálfur í kjörklefann fékk ég heilann borðdúk í hendurnar. Ég átti í erfiðleikum með að finna tákn Frelsisflokksins því önn- ur tákn flæddu yfir mig.“ Í dag, mánudag, þarf Berlusconi að mæta fyrir rétt í Mílanó – þar sem hann er sakaður um að hafa keypt vændi af ólögráða stúlku, Karimu el- Mahroug. Af hverju á mánudegi? Því Berlusconi er of upptekinn aðra daga vikunnar. Berlusconi vælir utan í Obama „Þetta eru allt kommúnistar“ Berlusconi hvíslar og kvartar í eyru Baracks Obama. n Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, vakti athygli á G8-fundinum fyrir helgi n Kvartaði sáran undan meðferð dómsvaldsins í eyru Baracks Obama n Sakar vinstri menn um að vera illa lyktandi„ ...eins og staðan er núna ríkir einræð- isstjórn vinstri sinnaðra dómara. Björn Teitsson blaðamaður skrifar bjorn@dv.is Kristur: já Skilnaður: nei Auglýsingaskilti í aðdraganda kosningarinnar. Bjór fái viður- kenningu Samband bjórgerðarmanna í Þýska- landi vill fá „þýsku hreinleikalögin“ (Reinheitsgebot) viðurkennd sem menningarfjársjóð af UNESCO, menningarstofnun Sameinuðu þjóðanna. Bjórdrykkjumenn hafa ef til vill einhvern tímann rekið augun í setninguna „gebraut nach dem deutschen Reinheitsgebot“ á þýskum bjór, en sú setning gefur til kynna að framleiðandinn fer eftir þýsku hreinleikalögunum, sem hafa verið í gildi síðan árið 1516. Lögin höfðu mikil og jákvæð áhrif á bjór- framleiðslu, ekki aðeins í Þýskalandi – heldur um Evrópu alla. Þurftu aðrir framleiðendur, sem vildu selja bjór í Þýskalandi, einnig að fara eftir lögunum til að komast inn á þýska markaðinn. Gæði bjórs jukust mikið fyrir vikið. Mladic vill hvíld Ratko Mladic, serbneski hershöfð- inginn sem hefur verið sakaður um stríðsglæpi og glæpi gegn mann- kyni, vill fá meiri hvíld í serbneska fangelsinu þar sem hann dúsir þessa dagana. Svo gæti farið að Mladic verði fluttur til hollensku borgar- innar Haag, en þar starfar sérstakur dómstóll Sameinuðu þjóðanna sem fer með mál fyrrverandi Júgóslavíu. Fjölskylda hans og vinir hafa sagt að hinn 69 ára Mladic glími við mikil heilsufarsvandamál, án þess að til- greina nákvæmlega hver þau eru. Mladic er meðal annars gefið að sök að hafa staðið á bak við þjóðernis- hreinsanir í Srebrenica, þar sem rúmlega 8.000 menn voru myrtir og grafnir í fjöldagröf. Palin elskar Ameríku Sarah Palin, sem var varaforseta- efni repúblikana í bandarísku for- setakosningunum árið 2008, elskar Ameríku – ef marka má fregnir af nýjasta afreki hennar. Í gær, sunnu- dag, lagði Palin af stað í rútuferðalag um sögufræga staði á austurströnd Bandaríkjanna. Staðirnir sem hún heimsækir skipa allir ríkan sess í hjörtum Bandaríkjamanna þar sem þeir skiptu miklu máli í sjálfstæðis- baráttu þeirra og í frelsisstríðinu við Bretland. Palin kallar ferðalag sitt „Ein þjóð“ (One Nation) en talið er líklegt að Palin muni nýta tækifærið og tilkynna um framboð sitt til for- seta Bandaríkjanna í ferðinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.