Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2011, Side 20
20 | Fókus 30. maí 2011 Mánudagur
Aukatónleikar í Hörpu föstudaginn 3. júní:
Tenórarnir þrír orðnir fjórir
Garðar Thór Cortes, Gissur Páll Giss-
urarson, Jóhann Friðgeir Valdimars-
son og Snorri Wium koma fram sem
Tenórarnir 3 og einn í útrás á auka-
tónleikum í Hörpu, á föstudaginn eft-
ir viku. Um er að ræða endurflutning
á síðustu tónleikunum sem haldn-
ir voru í Ingólfsstræti, fyrir flutning í
Hörpu. Auk þeirra koma þau Sigrún
Hjálmtýsdóttir, eða Diddú, Óskar Pét-
ursson og Óperukór Reykjavíkur und-
ir stjórn Garðars Cortes fram á tón-
leikunum.
Á tónleikunum verða fluttar marg-
ar af vinsælustu tenóraríum óperu-
bókmenntanna og fleiri söngperlum,
að því er segir í kynningu. Þar seg-
ir að íslensku Tenórarnir þrír hafi oft
haldið tónleika, þar á meðal nokkrum
sinnum í Íslensku óperunni. Jóhann
Friðgeir og Snorri Wium hafa áður
sungið með en líka tenórar á borð
við Þorgeir Andrésson og Jón Rúnar
Arason. „Við undirbúning að þessum
tónleikum var ákveðið að tenórarnir
yrðu fjórir að þessu sinni.“
Garðar Thór Cortes er flestum
kunnur enda hefur hann sungið mik-
ið hér heima og erlendis undanfarin
ár. Gissur Páll syngur nú í annað
skiptið með Tenórunum 3 en hann
hefur einu sinni áður sungið með
þeim. Hann söng meðal annars á
síðustu Perlutónleikunum Íslensku
óperunni í apríl. Jóhann Friðgeir hef-
ur sungið hvað lengst með Tenórun-
um þremur auk þess sem hann hefur
sungið fjöldann allan af óperum um
allan heim. Snorri Wium hefur búið
í Þýskalandi og Austurríki og starfað
við fjölda óperuhúsa, ýmist sem gest-
ur eða fastráðinn söngvari. Antonia
Hevesi og Jónas Þórir leika á píanó.
Miða má nálgast á harpa.is.
Lesin upp til agna
Það er mikið fagnaðarefni að Bóka-
félagið Ugla hefur gefið út mynda-
bókina Heiðu eftir Jóhönnu Spyri í
endursögn Jakobs F. Ásgeirssonar.
Sagan af alpadísinni Heiðu hefur
heillað heiminn og gripið unga sem
aldna lesendur frá fimmta áratugn-
um og fellur aldrei úr gildi, enda býr
Heiða yfir eiginleikum sem hvað feg-
urstir þykja í veröldinni.
Undirrituð á fjögurra ára stúlku
sem hlýddi á söguna af Heiðu nokk-
ur kvöld. Merkilegt hvað sú litla skildi
og gat hlustað lengi. Bókin er yfir
hundrað blaðsíður en það tók ekki
nema þrjú kvöld að lesa hana upp til
agna.
Hún varð hugfangin af sögunni,
fjallafrænda, geitunum, náttúrunni
og síðast en ekki síst af hinni hjarta-
hreinu Heiðu. Nú vill sú litla drekka
mjólk úr skál eins og Heiða gerir í
Ölpunum, borða heilu oststykkin
og biður móður sína um að kaupa
handa sér geitur (áður snerust henn-
ar heitustu óskir um kettlinga).
Allar síður bókarinnar eru prýdd-
ar myndum norsku listakonunnar
Noru Axe Lundgaard og þær vill
sú litla skoða aftur og aftur. Engu
máli skiptir að þær eru svarthvítar
og smágerðar þær eru íðilfagrar og
vekja mikla forvitni.
Bókin um Heiðu er verulega eigu-
legur gripur og minnir foreldra um
leið á ýmis mikilvæg gildi og það að
börn geta vel gripið efni sem er ekki
einfaldað og matreitt ofan í þau í
skrautlegum æsistíl. Hún á ekki síð-
ur erindi við stráka en stelpur og leitt
er ef strákar missa af lestrinum ef for-
eldrar skyldu nú halda að um væri
að ræða stelpubók. Geita-Pétur er
skemmtilegur karakter í bókinni og
allir hafa gott af því að hlýða á fallega
sögu.
Heiða
Höfundur: Jóhanna Spyri
Teikningar: Nora Axe Lundgaard
Endursögn: Jakob F. Ásgeirsson
Bækur
Kristjana
Guðbrandsdóttir
Valinkunnir söngvarar Síðustu tónleikarnir við Ingólfsstræti verða endurfluttir í Hörpu.
Þ
etta er sýning um leynifé-
lög karlmanna og regluverk
eða nánast trúfélag þar sem
menn hittast og finna fyrir
samstöðu,“ segir Gunnlaug-
ur Egilsson listdansari um sýninguna
Klúbburinn sem frumsýnd verður 3.
júní í Borgarleikhúsinu.
„Við erum búnir að leika okkur
mikið með mystíkina, það eru for-
dómar fyrir því til dæmis þegar karl-
menn haldast í hendur. Miðað við
þegar tvær konur haldast í hendur.
Það er líka gaman að vinna þessa
sýningu vegna þess að enginn fær
að vera í sínu horni. Þetta hefur allt
gerst innan hópsins og allir þurfa að
samþykkja það sem gert er.“ Í verk-
inu dansa leikararnir og hafa að
sögn Gunnlaugs haft gaman af því að
vinna sýningu þar sem reynir á túlk-
un í dansi.
Flyst á gamlan herragarð með
unnustunni
Gunnlaugur er ekki fluttur til Ís-
lands og er hér í heimsókn meðan
hann sinnir stjórn sýningarinnar
ásamt Birni Kristjánssyni, Hugin
Arasyni, sem sér um leikmynd, og
öðrum félögum „Klúbbsins“. Hann
býr úti í Svíþjóð með unnustu sinni
Gunni Von Matérn, dóttur Eggerts
feldskera. Gunnlaugur og Gunnur
hafa fest rætur í Svíþjóð og bjuggu
lengst af í Södermalm í Stokkhólmi
nálægt gamla miðbænum, Gamla
Stan. Nú hafa þau hins vegar fest
kaup á gömlum og virðulegum
herragarði í úthverfi Stokkhólms
og hlakka til að eyða sumrinu á nýj-
um stað.
„Maður er svona meira út af fyrir
sig og meiri lúxus og svona. Það er
líka alveg frábært að vera með lítið
barn á þessum stað og við fjölskyld-
an hlökkum til að fara út og njóta
sumarsins í nýja húsinu okkar.“
Leyniklúbbur stofnaður
„Við erum líka búnir að stofna
klúbb, við sem stöndum að sýn-
ingunni.“ Mæta þeir þá svona reffi-
legir á fundi nýja klúbbsins? „Nei,
kannski ekki alveg alltaf, en í bland.
Svo þarf eitthvað karlmannlegt að
vera í glasinu. Eitthvað hart, sterkt
og meitlað.“ En hvar fengu þeir loð-
flíkurnar? Fékk Gunnlaugur sinn
jakka lánaðan hjá Halldóri Ás-
grímssyni?
„Nei,“ segir Gunnlaugur. „Þetta
er Eggert feldskeri,“ segir hann og
skellir upp úr. „Hver annar?“ En
Eggert var svo rausnarlegur að láta
leikurum karlmannlegar loðflíkur í
té vegna sýningarinnar.
kristjana@dv.is
Stofnuðu leyniklúbb
í raun og veru
Gunnlaugur Egilsson listdansari og „Klúbburinn“ setja upp sýningu:
Í klúbbnum eru: Björn Borko Kristjánsson, Björn
Thors, Gunnlaugur Egilsson, Huginn Þór Arason,
Ingvar E. Sigurðsson og Ólafur Egill Egilsson.
Blús í Salnum
Jazz- og blúshátíð Kópavogs fer fram
3. júní næstkomandi en þessi tón-
listarveisla hefur verið haldin árlega
frá árinu 2008. Frá því að Tónlistar-
safn Íslands hóf starfsemi sína á
Kópavogshæðinni hefur safnið verið
virkur þáttakandi í Jazz- og blúshá-
tíðinni og má sjá upptökur af fyrri
tónleikum á heimasíðu safnsins.
Mikið verður um góða tónlist en
þar má nefna orgelsnillinginn Þóri
Baldursson og Johnny Stronghand,
ungan og stórefnilegan blússöngv-
ara sem er að feta sín fyrstu spor í
blústónlistinni. Tónleikarnir verða 3.
júní í Salnum í Kópavogi.
Harpa og
Icelandair
í samstarf
Harpa og Icelandair hafa undirrit-
að samstarfssamning til tveggja ára.
Markmiðið er að fjölga ráðstefnu- og
menningarferðamönnum sem koma
til landsins og vekja athygli á Íslandi
sem spennandi alþjóðlegum áfanga-
stað. Í fréttatilkynningu er sagt að
þarna sé um að ræða mjög umfangs-
mikinn samstarfssamning sem meðal
annars felur í sér að Icelandair verður
aðalstyrktaraðili Hörpu næstu tvö ár
árin og mun styðja við fjölbreytt tón-
listarstarf og ráðstefnuhald í húsinu.
Margmenni
hjá Braga
Hátt í þrjú hundruð manns mættu
á sýningu Braga Ásgeirssonar sem
hann opnaði í Gallerí Fold um
helgina. Sýninguna heldur Bragi í
tilefni afmælis síns en hann er orð-
inn áttræður. Á sýningunni í Gallerí
Fold má sjá fjölda nýrra verka eftir
Braga auk nokkurra eldri verka eftir
hann. Sýningunni var vel tekið og
mættu nærri þrjú hundruð manns
á opnunina. Bragi gekk ekki burtu
tómhentur en hann fékk afmælis-
gjöf frá barnabarni sínu sem hann
tók við er hann stóð við hlið dóttur
sinnar, Kolbrúnar Bragadóttur.