Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2011, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2011, Síða 26
26 | Fólk 30. maí 2011 Mánudagur Maður fólksins á fullu skriði og á leiðinni til Kaupmannahafnar: „Rokkið kveikiR í manni“ „Það er nóg að gera. Rokkið – rokk- ið kveikir í manni,“ segir tónskáldið og maður fólksins, Bjartmar Guð- laugsson. Hann er á leiðinni til Kaupmannahafnar að spila á hinni árlegu götuhátíð Distortion en hann verður vart lentur í Keflavík aftur þegar hann fer í að setja upp málverkasýningu í tilefni af Hátíð hafsins. Það voru íslensku bræðurnir Friðrik og Ómar Arnarssynir sem sáu um að bóka Bjartmar á há- tíðina en þeir eiga og reka Café Salonen í miðbæ Kaupmanna- hafnar. Bjartmar mun stíga á úti- sviðið í Sankt Peders Stræde klukk- an 16.30 þann 1. júní. „Svo kem ég líka fram á Skarfinum eða Skarven sem er mjög þekktur staður á með- al Íslendinga og Færeyinga,“ segir Bjartmar sem kemur fram á Skarf- inum fimmtudagskvöldið 2. júní. Það leggst vel í Bjartmar að vera leiðinni til Danmerkur en hann bjó þar lungann af tíunda áratugnum ásamt fjölskyldu sinni. „Það er al- veg sérstaklega gott að komast til Danmerkur.“ Á meðan Bjartmar bjó úti sinnti hann myndlistinni af miklum móð en hann verður ekki fyrr kominn heim úr tónleika- ferðinni þegar hann rýkur niður á Sjávarbar að setja upp myndlistar- sýningu. „Ég er opna sýningu í til- efni af Hátíð hafsins,“ en 4. júní er Dagur hafsins. „Þennan sama dag kemur svo út bók eftir mig með prósum og ljóðum. Bókin fjallar öll um hafið. Um samskipti barnsins og fullorðinna við hafið. Allra sem áttu afkomu sína undir hafinu; Ís- lendinga.“ Það þarf varla að spyrja hvert þema sýningarinnar er. „Hún er til dýrðar hafinu. Hún fjallar um mín samskipti við hafið frá því að ég fæddist.“ Síðasta ár var gríðarlega við- burðaríkt hjá Bjartmari en hann gerði það gott með hljómsveit sinni Bergrisunum. Bjartmar hreppti bæði Menningarverðlaun DV og Íslensku tónlistarverðlaunin sem besti textahöfundur. Bjartmar Guðlaugsson Er ekki síðri myndlistamaður en tónskáld og opnar sýningu á Sjávarbarnum þann 4. júní. Fúskarar í Róm Þó að pítsur séu frá Ítalíu virðist Rómverjum eitthvað verið að fatast flugið í pítsugerð. Það er alla vega mat blaðamannsins Þorfinns Ómarssonar. „Fékk mér þrjár pizzur í Róm og þær voru allar handónýtar. Fúskarar...“ skrifar Þorfinnur, fyrrverandi ritstjóri Eyjunnar. Þorfinnur býr erlendis ásamt ástkonu sinni, Ástrós Gunnarsdóttur, dansara og pílateskennara, Þau eru þó ekki búsett í Róm heldur búa þau Brussel þar sem Ástrós rekur pílatesstúdíó. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra stóð í ströngu í síðustu viku. Hún fór ásamt starfs- mönnum iðnaðarráðuneytisins og fleiri opinberum starfsmönnum austur fyrir fjall að taka til hendinni á Kirkjubæjarklaustri og nágrenni eftir gosið í Grímsvötnum. Ráðherrann verðlaunaði sig með því að snæða hádegismat á hinum geysivinsæla matsölustað Laundromat í hádeginu á fimmtudag. Með henni var hennar heitt elskaði Bjarni Bjarnason rithöfundur en þau gengu í það heilaga fyrir skemmstu. Virtust þau kunna vel við sig og létu örtröðina á staðnum ekki á sig fá. Úr öskunni á Laundromat DV1105295436 Of kalt til að spila gOlf í BOlungarvík V ið erum búnir að tapa einum og vinna tvo. Við erum rétt að fara af stað,“ segir knattspyrnuþjálfarinn Guðjón Þórðar- son en lærisveinar hans í 1. deildarlið- inu BÍ/Bolungarvík hafa byrjað ágætlega í deildinni. Á laugardag sigruðu þeir Fjölni nokk- uð sannfærandi 3–1 á heimavelli en þegar Guðjón er spurður hvort að hann sé sáttur við þessa byrj- un segir hann: „Ég vil ekki tapa fótboltaleikjum og ég tapaði fyrsta leiknum í deildinni, en lífið er ekki bara einn draumur.“ Líkt og nafnið gefur til kynna er BÍ/Bolungarvík sameinað lið Boltafélags Ísafjarðar og Bolungar- víkur. Liðið æfir að mestu leyti í Bolungarvík en spilar leikina í deildinni á Ísafirði. Guðjón býr í Bolungarvík og segist kunna ágætlega við sig, þó að það hafi verið fremur kalt þar undanfarið. „Það er ósköp hljóðlátt eins og við var að búast,“ segir Guðjón um lífið í Bolungarvík en hann segist hafa lítið annað fyrir stafni en sinna liðinu. „Ætli það sé ekki ærið verk að reyna að halda því gangandi þessa stundina, svo er maður að hugsa um sjálfan sig náttúrulega,“ segir Guðjón sem er þó genginn í Golfklúbb Bolungarvíkur. Hann er þó ekki búinn að fara eins mikið í golf á Syðridals- velli líkt og hann hefði viljað. „Maður bara for- kælist ef maður fer mikið í golf þessa dagana, það eru ekki nema fjórar gráður hérna. Svona gömul liðamót þurfa mikinn yl áður en þau geta farið að djöflast mikið,“ segir Guðjón sem hlakkar til að fá að spreyta sig í golfi á móti strákunum fyrir vestan, líkt og hann orðar það. BÍ/Bolungarvík er nýliði í fyrstu deild Íslands- mótsins í knattspyrnu og var spáð áttunda sæti fyrir leiktíðina. Þrátt fyrir að ágætlega hafi gengið í fyrstu þremur leikjunum er Guðjón ekki tilbúinn til að gefa upp væntingar um stöðu liðsins við lok leiktíðarinnar. „Ég er ekkert að spökulera í svoleiðis, ekki nokk- urn skapaðan hlut. Ég er bara að fara af stað með liðið og við vorum að taka inn menn á síðustu dög- unum áður en mótið byrjaði, það hefur verið mjög erfitt að vinna að undirbúningi hérna því það var heil vika sem fór undir snjó um daginn. Aðstæður hafa verið vægast sagt mjög erfiðar til að gera það sem maður hefði viljað gera,“ segir Guðjón. birgir@dv.is n Lærisveinar Guðjóns komnir á skrið n Guðjón genginn í Golfklúbb Bolungarvíkur n Of kalt fyrir golf í Bolungarvík Vill ekki tapa Lærisveinar Guðjóns Þórðarsonar hafa unnið tvo af þremur fyrstu leikjum liðsins í deildinni. Mynd TOrfi JóhannssOn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.