Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2012, Side 8
8 Fréttir 12. mars 2012 Mánudagur
Logandi deiLur
í Fríkirkjunni
L
ogandi deilur hafa staðið yfir
í Fríkirkjunni í Reykjavík að
undanförnu. Á dögunum
sögðu fjórir af sjö aðalfulltrú-
um í safnaðarráði Fríkirkj-
unnar sig úr ráðinu „vegna óásætt-
anlegrar framgöngu Hjartar Magna
Jóhannssonar (fríkirkjuprests, innsk.
blaðamanns) í mörgum málum, bæði
gagnvart starfsfólki safnaðarins og
okkur í safnaðarráðinu í langan tíma,“
segir í tilkynningu frá fulltrúunum
fjórum sem DV hefur undir hönd-
um. Er hún undirrituð af Steindóri I.
Ólafssyni formanni, Ingunni Hafdísi
Þorláksdóttur varaformanni, Rögnu
Sæmundsdóttur ritara og Sólrúnu
Siguroddsdóttur meðstjórnanda. Öll
hafa þau setið í safnaðarráðinu í sjálf-
boðastarfi í sjö til átta ár. en sáu sér
ekki fært að starfa áfram við þessar
aðstæður.
Vill losna við hinn prestinn
Samkvæmt heimildum DV höfðu
þessir einstaklingar reynt að fá vinnu-
frið og samstarfsvilja frá Hirti Magna í
mörg ár án árangurs. Hann hafi bara
verið eins og „kóngur í ríki sínu“, eins
og heimildarmaðurinn orðaði það,
ósamvinnuþýður og treysti illa sam-
starfsfólki sínu. Hann tók þó fram að
fríkirkjupresturinn væri „toppmaður
og flottur prestur“ sem því miður ætti
erfitt með samstarf við annað fólk.
Heimildirnar herma að kornið sem
fyllti mælinn hjá meirihluta safnaðar-
ráðsins hafi verið að Hjörtur Magni
vildi losna við Bryndísi Valbjarnar-
dóttur, sem einnig er prestur í Fríkirkj-
unni, burt úr sókninni. Hann hafi tjáð
henni sjálfri það og safnaðarráðinu.
Hjörtur Magni hefur þó einn og sér
ekki völd til að segja henni upp störf-
um heldur þarf ráðið að samþykkja
það.
Kirkjuvörður flúði
Upphaf þess að Hjörtur Magni
vildi reka séra Bryndísi má, sam-
kvæmt heimildum DV, rekja til þess
að kirkjuvörður í Fríkirkjunni hætti
fyrirvaralaust fyrir um ári. Heimild-
ir blaðsins herma að vörðurinn hafi
hætt vegna samskiptaörðugleika við
Hjört Magna. Bryndís mun hafa tal-
að við kirkjuvörðinn og sýnt aðstæð-
um hennar hluttekningu en Hjörtur
Magni litið á það sem trúnaðarbrest.
Herma heimildir blaðsins að æ síð-
an hafi Hjörtur viljað losna við Bryn-
dísi. Í viðtölum DV komu ítrekað fram
ábendingar um aðila sem átt hafa í
samstarfsörðuleikum við Hjört innan
kirkjunnar.
DV hefur einnig heimildir fyrir því
að Ása Björk Ólafsdóttir, fyrrverandi
prestur hjá Fríkirkjunni, hafi á sínum
tíma hætt vegna þess sem kallað hef-
ur verið vantraust og trúnaðarbrestur
milli hennar og Hjartar. „Ég var látin
skrifa undir að ég myndi ekki tjá mig
um mín samskipti og mitt starf inn-
an Fríkirkjunnar,“ svaraði Ása Björk
í samtali við DV þegar blaðið spurði
um samskipti hennar og Hjartar þeg-
ar hún starfaði fyrir söfnuðinn.
„Allt í góðum málum núna“
„Það er bara allt með friði og ró. Það
var bara minnihluti sem vék fyrir
vilja meirihluta í safnaðarráði,“ segir
Hjörtur Magni í samtali við DV þegar
blaðamaður ber undir hann ásakan-
irnar. Með minnihluta safnaðarráðs
á hann líklega við að með varamönn-
um þá telji ráðið tíu manns í allt.
Hjörtur Magni vildi að öðru leyti lítið
tjá sig um málið. „Þetta er allt í góðum
málum núna. Þetta er bara allt byggt á
misskilningi,“ bætti hann þó við.
„Ég get staðfest við þig að það voru
fjórir aðilar sem gengu úr safnaðar-
ráði á fundi í síðustu viku. Það var
vegna þess að þau urðu undir í at-
kvæðagreiðslu um ákveðið framtíðar-
skipulag hjá Fríkirkjunni,“ segir Eyj-
ólfur Ágúst Kristjánsson, sem kom
inn í safnaðarráðið sem varafulltrúi.
Hann segist þó ekki geta farið efnis-
lega út í um hvað sú atkvæðagreiðsla
snérist. Aðspurður hvort það varðaði
framtíð Bryndísar Valbjarnardótt-
ur hjá söfnuðinum sagðist Eyjólfur
hvorki geta játað því né neitað.
Skiptar skoðanir eðlilegar
Hann segir að þau sem eftir sitji í
ráðinu kannist ekki við alvarlegt
ósætti við Hjört Magna. „Þetta er
náttúrulega bara vinnustaður og
það koma alltaf upp smá vandamál
í öllum fyrirtækjum og öllum störf-
um. Það er eðlilegt að það séu skipt-
ar skoðanir en einhvern massífan
vanda, það könnumst við ekki við og
það er bara alls ekki rétt. Og eiginlega
ábyrgðarlaust að halda því fram.“
Eyjólfur tekur fram að safnaðar-
ráðið sé virkt og starfandi í dag þrátt
fyrir að fjórmenningarnir hafi sagt sig
frá störfum. Varamenn hafi komið inn
í staðinn og hópurinn verði endurnýj-
aður á aðalfundi í vor.
„Það er einhugur í safnaðarráði
Fríkirkjunnar og safnaðarráð og for-
stöðumaður ganga algjörlega í takt.
Það eru engar væringar í Fríkirkjunni,“
segir Eyjólfur að lokum.
Sáttafundur í vikunni
Sáttafundur vegna málsins er fyrirhug-
aður í vikunni. Heimildir DV herma að
Bryndís hafi þegar leitað lögfræðiráð-
gjafar Jóns Magnússonar, hæstaréttar-
lögmanns og fyrrverandi þingmanns
Sjálfstæðisflokksins. „Ég kannast nú
ekki við að vera að gegna neinni lög-
mannsþjónustu í þessu sambandi,“
sagði Jón þegar DV bar málið und-
ir hann. Jón bætti um betur og benti
blaðamanni á að hann myndi auðvi-
tað ekki tjá sig um mál af þessu tagi án
leyfis umbjóðenda sinna til að ræða
um málarekstur við fjölmiðla. „Ef þú
n Meirihluti safnaðarráðs gekk út af fundi n Ósátt við framgöngu fríkirkjuprests
„Þetta er náttúru-
lega bara vinnu-
staður og það koma
alltaf upp smá vandamál
í öllum fyrirtækjum og
öllum störfum.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
200 milljarðar
vegna Iceland
Slitastjórn Landsbankans hefur
gengið frá sölunni á Iceland Fo-
ods-verslunarkeðjunni í Bretlandi.
Keðjan var seld á 1.550 milljónir
sterlingspunda, sem er jafnvirði
um 300 milljarða íslenskra króna.
Fyrirtækið sem keypti keðjuna er
Oswestry Acquico Limited en for-
stjóri þess er Malcolm Walker,
stofnanda verslananna. Nýverið
var greint frá því að slitastjórnir
Landsbankans og Glitnis hefðu
gert samkomulag við fyrirtæki í
eigu yfirstjórnenda verslanakeðj-
unnar Iceland Foods um sölu á
hlutafjáreign bankanna í keðjunni.
Í febrúar greindi breska dag-
blaðið The Telegraph frá því að
Walker hafi leitað meðal annars
til fjölskyldu og vina og fjölmargra
stórra banka á borð við Deutsche
Bank til að fjármagna kaupin sem
The Telegraph segir einnig að hluta
til fjármögnuð með 250 milljóna
punda láni frá Landsbankanum og
Glitni. Nýlega var talið að Walker
tækist ekki að bjóða hærra en 1,25
milljarða punda en með tilboðinu
sem nú stefnir í að verði gengið frá
hefur hann skotið öðrum keppi-
nautum um keðjuna ref fyrir rass.
Slitastjórn Landsbankans á um
67 prósent í keðjunni og slitastjórn
Glitnis um tíu prósent. Aðrir fyrr-
verandi stjórnendur áttu afgang-
inn. Þetta þýðir að ekki munu
allir milljarðarnir falla slitastjórn
Landsbankans í skaut – heldur
aðeins um rúmur milljarður sterl-
ingspunda, sem er jafnvirði um 200
milljarða íslenskra króna.
Atli Þór Fanndal
blaðamaður skrifar atli@dv.is
Fríkirkjan í Reykjavík
Sáttafundur verður
haldinn í næstu viku sam-
kvæmt heimildum DV.
Kynntu
þér stefnu
Samstöðu
Félagsfundur Samstöðu, flokks
lýðræðis og velferðar, verður hald-
inn í Iðnó í kvöld, mánudag, frá
klukkan 20 til 22. Lilja Mósesdóttir
þingmaður er formaður flokksins.
Í tilkynningu frá Samstöðu
kemur fram að fundurinn verði
tvískiptur. Fyrst verður kynning-
arfundur Samstöðu flokks lýð-
ræðis og velferðar. Fjallað verður
um hugmyndafræði flokksins og
stefnu hans í efnahags-, atvinnu-,
velferðar- og lýðræðismálum.
Í framhaldinu verður stofn-
fundur nýs aðildarfélags Sam-
stöðu í Reykjavík. Þar verður kosið
til stjórnar félagsins og um sam-
þykktir þess. Drög að samþykkt-
um aðildarfélagsins er að finna á
heimasíður flokksins: xc.is.
Samstaða hvetur áhugasama til
að mæta og kynna sér hugmynda-
fræði og grundvallarstefnu flokks-
ins. Athygli er þó vakin á því að
síðari helmingur fundarins, stofn-
fundurinn, er aðeins opinn full-
gildum félögum Samstöðu.
Allir eru hvattir til að mæta
og kynna sér hugmyndarfræði
og grundvallarstefnu Samstöðu
flokks lýðræðis og velferðar.