Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2012, Side 11
Fréttir 11Mánudagur 12. mars 2012
F
innur Ingólfsson, fyrrverandi
seðlabankastjóri og viðskipta-
ráðherra, græddi tæpar 100
milljónir króna á viðskiptum
með norskar krónur á árunum
2007 og 2008. Viðskiptin voru gerð í
gegnum eignarhaldsfélagið AB101
ehf. sem stofnað var í lok árs 2007.
Þetta kemur fram í ársreikningum
eignarhaldsfélagsins fyrir árin 2007
og 2008. Eignarhaldsfélagið á ennþá
þessar tæplega 100 milljónir króna
samkvæmt síðasta birta ársreikningi
þess.
Hagnaðurinn byggði á viðskipt-
um með 400 milljónir króna sem
félagið fékk með hlutafjárhækkun
frá eina hluthafa sínum, eignar-
haldsfélaginu Fikti ehf., í lok árs
2007. Þessir fjármunir voru svo
notaðir til kaupa á norskum krón-
um sem geymdar voru á banka-
reikningi á fyrri hluta ársins 2007.
Verðgildi íslensku krónunnar
hrundi á tímabilinu og fengust
því fleiri íslenskar krónur fyrir þær
norsku um mitt ár 2007 en í lok árs
2008. Þess vegna græddi AB 101
ehf. á viðskiptunum en félagið var
stofnað gagngert til að stunda um-
rædd viðskipti.
Hlutafé hækkað og lækkað
Í lok árs 2007 kostaði ein norsk króna
um 11,4 íslenskar krónur en ljóst
var að gengi krónunnar var byrjað
að lækka verulega. Ákveðið var að
hækka hlutafé félagsins um 400 millj-
ónir á hluthafafundi félagsins þann
27. desember 2007, líkt og kemur
fram í tilkynningu til ríkisskattstjóra
sem móttekin var degi síðar. Sú til-
kynning var undirrituð af Finni Ing-
ólfssyni. „Á hluthafafundi sem hald-
inn var þann 27. desember 2007
lagði stjórn félagsins fram tillögu um
að hækka hlutafé félagsins um kr.
400.000.000.“ Í ársreikningi félagsins
það árið kom fram að það ætti tæp-
lega 403 milljóna króna innistæðu í
norskum krónum.
Gengi krónunnar hrynur
Um mitt ár 2008 fengust um 15,5 ís-
lenskar krónur fyrir hverja norska
krónur. Hækkunin á sölugengi ís-
lensku krónunnar miðað við þá
norsku nam því rúmlega þriðjungi
á tímabilinu. Á hluthafafundi sem
haldinn var í stjórn AB101 ehf. þann
16. júlí 2008 var hlutafé félagsins
lækkað um þær 400 milljónir króna
sem félagið hafði verið hækkað um
nokkrum mánuðum áður. Stjórn
félagsins óskaði eftir undanþágu frá
innköllunarskyldu til viðskiptaráðu-
neytisins þegar hlutafé félagsins var
lækkað með þessum hætti. Undir
beiðnina til viðskiptaráðuneytisins,
sem dagsett er 17. júli, ritaði Finnur
Ingólfsson. Félagið fékk umrædda
undanþágu og voru 400 milljónirn-
ar greiddar aftur til Fikts ehf.
97 milljóna hagnaður
Inni í AB101 ehf. varð hins vegar til
tæplega 100 milljóna króna hagnað-
ur, líkt og fram kemur í ársreikningi
félagsins fyrir árið 2008. Ári áður
hafði AB101 hins vegar verið nærri
eignalaust fyrir utan hlutafjárhækk-
unina sem ráðist var í rétt fyrir árs-
lok 2007. Í ársreikningnum kem-
ur fram að gengishagnaður AB101
hafi numið rúmlega 114 milljón-
um króna árið 2008. Um 17 millj-
ónir króna fóru í skattgreiðslur. Eft-
ir stóð hins vegar hagnaður upp á
nærri 100 milljónir króna sem búinn
hafði verið til með umræddri hluta-
fjárhækkun og viðskiptunum með
norskar krónur.
Hagnaðist á hruni krónunnar
Í síðasta skjalinu um starfsemi
félagsins sem skilað var til ríkisskatt-
stjóra í byrjun árs 2010 kemur sterk
staða félagsins fram. Um er að ræða
endurrit af hluthafafundi félagsins
sem haldinn var sumarið 2009. Þar
segir, og er vitnað í formann stjórnar
félagsins, Finn Ingólfsson: „Formað-
ur fór yfir í sinni skýrslu þær hremm-
ingar sem gengið hafa yfir íslenskt
viðskiptalíf, hrun bankanna og þar
af leiðandi þá erfiðu stöðu sem
mörg félög eru komin í. AB101 væri
hins vegar í góðri stöðu eins og fram
kæmi í ársreikningi félagsins. […] Í
máli formanns kom fram að engin
starfsemi hafi verið í félaginu á árinu.
Hagnaður af starfseminni væri rúm-
ar 97 milljónir, eignir væru rúmar 98
milljónir og það væri einnig eigið fé
félagsins því félagið væri skuldlaust.“
Í fundargerðinni kom fram að ekki
ætti að greiða milljónirnar út sem
arð heldur ættu þær að vera áfram
inni í félaginu. Undir fundargerðina
ritaði Finnur Ingólfsson.
Finni Ingólfssyni tókst því að
búa sér til nærri 100 milljóna króna
hagnað sem byggði á hruni íslensku
krónunnar árið 2008.
n 400 milljóna hlutafjárhækkun n Keypti norskar krónur
Finnur græddi á
hruni krónunnar
„Á hluthafafundi
sem haldinn
var þann 27. desember
2007 lagði stjórn félags-
ins fram tillögu um að
hækka hlutafé félagsins
um kr. 400.000.000.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Gjaldeyrisbrask Finns
Finnur Ingólfsson bjó sér
til nærri 100 milljóna króna
hagnað á viðskiptum með
norskar krónur árið 2008.
Óheimilt að
vigta umbúðir
Neytendasamtökunum hafa bor-
ist ábendingar um að verslanir
sem eru með kjöt- og fiskborð
vigti alla jafna umbúðir með þeg-
ar varan er vigtuð við sölu. Vegna
þessa vilja Neytendasamtökin
koma því á framfæri að þetta er
óheimilt samkvæmt reglugerðum
um merkingu matvæla. „Þetta
gildir að sjálfsögðu einnig þegar
matvörur eru seldar uppvigtaðar
í kæliborðum eins og raunar um
allar aðrar matvörur. Neytenda-
samtökin ætlast til þess að versl-
anir fari að þessum reglum og
stilli vigtar þannig að umbúðir
séu dregnar frá við vigtun en slík
törun, eins og það er kallað, er
auðveld með þeim vogum sem
notaðar eru í verslunum. Neyt-
endasamtökin hvetja neytendur
til að fylgjast með þessu og láta
samtökin vita séu umbúðir vigt-
aðar með,“ segir á heimasíðu
Neytendasamtakanna.
Mottumars
skilar milljónum
8,4 milljónir króna hafa safnast í
Mottumars, átaksverkefni Krabba-
meinsfélags Íslands vegna bar-
áttunnar gegn krabbameinum hjá
körlum. Betur má ef duga skal því
markmiðið er að safna 35 milljón-
um króna. Átaksverkefnið, sem er
orðið árlegt, hófst þann 1. mars og
stendur það yfir út mánuðinn.
Á föstudag hófu aðildarfélög
Krabbameinsfélagsins um allt
land að selja lyklakippu til ágóða
fyrir átakið. Fyrirmyndin að kipp-
unni er yfirskegg Árna Þórs Jó-
hannessonar sem var útnefnt
Fegursta mottan 2011 af sérstakri
dómnefnd.
Ræktuðu
dóp í gámi
Lögreglan á Selfossi upprætti
kannabisræktun í gámi við sum-
arbústað í Grímsnesi á laugardag.
Við leit í gámnum fundust tólf
plöntur auk 40 til 50 gramma af
afskurði sem átti eftir að þurrka.
Málið komst upp þegar lög-
reglan á Selfossi stöðvaði bifreið
skammt frá Eyrarbakka rétt fyrir
hádegi á laugardag. Í ljós kom að
ökumaðurinn var undir áhrifum
fíkniefna og var hann færður á
lögreglustöð. Við leit í bifreiðinni
fundust um tuttugu grömm af
marijúana.
Lögreglumenn gerðu í kjölfarið
húsleit á Eyrarbakka, þaðan sem
maðurinn var að koma, og fund-
ust þar 230 grömm af marijúana.
Loks var farið í sumarbústaðinn
í Grímsnesi þar sem áðurnefnd
kannabisræktun var upprætt. Við
rannsókn málsins voru fimm ein-
staklingar á aldrinum 25 til 60 ára
handteknir og yfirheyrðir. Málið
telst upplýst.