Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2012, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2012, Blaðsíða 20
20 Lífsstíll 12. mars 2012 Mánudagur Hollari og bragðbetri hafragrautur Hafrar eru ofurfæða og því ekki vitlaust að fá sér skál af hafragraut á morgnana. Hafrar eru trefjaríkir, hita- einingasnauðir, innihalda prótein og eru ríkir af magn- esíum, kalíum, sinki, kopar, mangan, selen, tíamíni og pantoten-sýru. Það eru ýmsar leiðir til þess að gera hann enn hollari og víst er að ein af þeim felst ekki í því að strá kanilsykrinum yfir. Eldið hafragrautinn upp úr blöndu af vatni og fjörmjólk (eða sojamjólk), bætið örlitlu af sjávarsalti í pottinn. Til að auka enn frekar á hollustugildi og fjölbreyti- leika hafragrautarins má borða hann með nokkrum rúsínum eða bæta við fleiri tegundum ofurfæðis svo sem þurrkuðum goji-berjum eða bláberjum. Einnig er gott að strá yfir hörfræjum, ristuðum möndlum, ristuðu hveitikími og örlitlu af agave-sírópi. Bjargvætt- ur í töskunni Mesta hættan á að fólk leiti í óhollan skyndibita eða fitu- rík sætindi er þegar hungrið sækir að í önnum dagsins. Hollur skyndibiti er sjaldan í augsýn þegar slíkt hendir og þess vegna er óbrigðult ráð að hafa með sér poka af möndlum í töskunni. Bland- aðu þér hollt nasl heima og skiptu niður á daga vikunnar. Möndlur með söxuðu dökku súkkulaði og rúsínum slær á hungrið og er sannarlega hollur og ljúfur skyndibiti. Fáðu þér hollt kakó Flestir eiga bágt með að sneiða hjá sætindum síðla kvölds. Matgæðingar sem gæta að heilsu sinni þurfa hins vegar ekki að fá sér súkkulaði hlaðið sykri og fitu. Þeir geta fengið sér heitt kakó úr dökku súkkulaði. Það má nota 70% súkkulaði brætt í heitu vatni og fjör- mjólk og bragðbætt með vanillu, eða ósætt kakóduft sem er blandað með prótein- dufti með vanillubragði. Betra að hjóla á háum hælum n Oddný Sturludóttir hefur aldrei átt bíl n Konur hjóla minna en karlar í Reykjavík É g hef aldrei átt bíl og reyni að ferðast alltaf um á hjóli, það getur verið snúið en ég reyni að skipuleggja mig til hins ýtrasta,“ segir Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, sem stendur að því verkefni borg- arinnar að grípa til aðgerða til að fá fleiri konur til að hjóla í Reykjavík. Verkefnið ber yfir- skriftina; Fröken Reykjavík á hjóli. Oddný segir verkefnið vera lið í því að auka val borgar- búa um vistvæna samgöngu- kosti og segir frá því að í nýrri ferðavenjukönnun hafi vakið sérstaka athygli hennar að konur virðast mun síður en karlar nýta sér hjólreiðar. „Það er mikill munur eftir kynjum því 8% kvenna hjóla allt árið en 17% karla. Nú ætlum við að greina ástæð- ur þessa munar og gera eitt- hvað í því. Við þurfum að kortleggja hjólaleiðir til og frá vinnustöðum, huga að betra öryggi og efla fræðslu.“ Konur hafa ekki tíma til að hjóla Oddný segist nú þegar hafa fengið mikil viðbrögð við verkefninu. „Ég hef feng- ið mikið af tölvupóstum og skilaboðum um ástæður þess að konur nota síður hjól en karlar. Margar konur segja sömu söguna, þær segjast sækja börn í leikskóla og skóla fremur en makinn og þá standa þær í skutli í tóm- stundir. Það þarf að skoða hvers vegna konur standa frekar í þessu en karlmenn og hvetja til jafnræðis. Það verður ekki hlaupið að því að gera alla þessa hluti á hjóli.“ Það hefur Oddný hins vegar gert í fjölda ára. „Ég fer sjaldan í búð að kaupa mikið magn inn í einu. Ég kaupi mikið inn í einu til heimilis- ins. Ég bý og starfa stutt frá skóla barna minna og ég nýt góðs af því. Auðvitað eru ekki allir jafn heppnir.“ Spandexið fælir frá Oddný segir að ef við viljum sjá árangur í bættum sam- gönguvenjum og betri og um- hverfisvænni borg þá þurfi konur sér í lagi að nota aðra samgöngumáta en bílinn. „Ég mæli með síðunni girl- bike.love.com, á henni kemur til dæmis fram það sem hefur verið rannsakað – að konur stýra neyslu heimilisins. Þær eru mikið breytingarafl og ef konur eru þess ekki fullvissar að það sé öruggt og gott að hjóla, þá gerist ekkert. Ef við byrjum ekki á þeim og tryggj- um örugga, mannvæna og kvenvæna borg, þá náum við engum árangri.“ „Síðan er önnur pæling í þessu samhengi en hún snýr að því hvernig við höfum hugað að hjólaleiðum. Við höfum etkið mörg góð skref hvað það varðar í borginni. Þú átt að geta þrætt þig í gegnum borgina, hjól er samgöngutæki en ekki að- eins sporttæki. Ég á ekki að þurfa að hjóla eftir strandlín- unni, eða sérmerktum hjóla- stígum til að komast leiðar minnar. Svo höfðar mun minna til kvenna en karla þessi græjub- isness sem virðist fylgja hjól- reiðum karla. Alls kyns mælar og útbúnaður, appelsínugul föt og spandex. Ein þeirra kvenna sem skrifaði mér bréf sagði græjubisnessinn hafa fælandi áhrif.“´ Sjálf er Oddný alltaf í háum hælum á hjólinu. „Ég er oft spurð hvernig ég geti hjólað á svona háum hælum. Þá svara ég að það sé miklu auðveldara að hjóla í þeim en ganga á þeim,“ segir hún og hlær. „Þetta er satt!“ bætir hún við. „Það er miklu auð- veldara að hjóla í hælum en að ganga í þeim langar vega- lengdir, svo er hællinn hag- nýtur líka. Skorðar pedalann af og svona.“ kristjana@dv.is Hjólað með stæl Fjölbreytt úrval hjólafatnaðar sem höfðar til kvenna. Úrval útbúnaðar sem ætlað er til hjólreiða hefur aukist mjög síðustu ár og það færist í aukana að hann sé þróaður fyrir konur. 1 Hjálmar eins og hattar Yakkay framleiðir hjálma sem líta út eins og hattar og henta vel þegar svalt er í veðri. Loðhattar fyrir veturinn og svartur gervileðurhjálmur með krókódílsprenti. Hjálm- arnir hafa verið til sölu í GÁP og víðar á Íslandi en má líka kaupa af vefsíðunni yakkay.com. 2 Körfur eða töskur Þægilegt er að hafa körfur á hjólinu. Margir kjósa að vera með körfu í stað geymslupláss á bögglabera. 3 Fallegar og vel hannaðar töskurPo Campo-töskurnar eru framleiddar í Chicago. Þessi festist ofan á bögglaberann. Þá má líka fá töskur sem eru festar á stýrið. Kíkið á úrvalið hjá PoCampo: pocampo.com 4 Hátíska á hjóli Rilfa-tískulínan frá Kathleen Scully er bæði hönnuð með öryggi og útlit að leiðar- ljósi. Henni gramdist að sjá konur hjóla án öryggisbúnaðar og hannar nú hjólavænan tískufatnað. „Það er miklu auðveldara að hjóla í hælum en að ganga í þeim langar vegalengdir. Kostir hjólreiða Þú sparar pening Hjólreiðar eru mun ódýrari en akstur. Það er hægt að hjóla meirihlutann af árinu á Íslandi en þegar það er ekki hægt má notast við almenningssam- göngur og/eða leigubíla. Þú lifir lengur Í hvert skipti sem þú reynir á þig styrkir þú ónæmiskerfið sem ver þig fyrir lífsstílstengdum sjúkdómum svo sem offitu, krabbameini og hjartasjúk- dómum. Þú ert grennri og stæltari Hjólreiðar eru auðveld hreyfing þar sem þú stýrir álaginu. Það er auðvelt að brenna fitu með því að hjóla án þess að fara í megrun. Þú ert greindari Í rannsókn frá Spanish National Research kom fram að stúlkur sem hjóla eða ganga til skóla fá hærra skor í greindarmælingum en aðrar. Enginn sjáanlegur munur var á greind drengja eftir því hvort þeir kusu að hreyfa sig eður ei. Það er hins vegar stað- reynd að fólk sem byrjar daginn á því að hreyfa sig er meira vakandi og á auðveldara með að leysa verkefni. Þú ert hamingjusamari Hreyfing, sérstaklega utandyra, vinnur á streitu og eykur vellíðan. Framleiðsla á hamingjuhorm- ónum og minni streita leiðir til mun meiri lífsgleði. Hefur aldrei átt bíl Oddný Sturludóttir fer allra sinna ferða á hjóli. Mynd eyÞór árnaSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.