Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2012, Síða 26
Dragdrottningar stálu senunni
n Sungu og dönsuðu og slettu rækilega úr klaufunum
D
ragdrottningarnar
Robert og Georg
stálu senunni í
þriggja ára afmælis-
partíi Pjattrófanna í veislu
sem var haldin á veitinga-
staðnum Austri.
„Ég elska dragdrottn-
ingar, þær eru mestu pjatt-
rófurnar,“ sagði yfirpjatt-
rófan Margrét Hugrún
Gústavsdóttir en hún og
drottningarnar tóku bros-
andi á móti gestum. Í veisl-
unni sungu dragdrottn-
ingarnar, brugðu sér í gervi
Marilyn Monroe og léku á
als oddi. Einnig var reiddur
fram berjakokteill sem
heitir Pjattrófan og er kom-
in á vínseðil Austurs.
26 Fólk 12. mars 2012 Mánudagur
Ásdís Rán
læst úti
Þótt að glamúrdrottningin
Ásdís Rán lifi hinu ljúfa lífi
í Búlgaríu á fyrirsætan sína
slæmu daga eins og við hin.
Allavega ef marka má fés-
bókarfærslu hennar. Þar
skrifar Ásdís að henni hafi
tekist að læsa sig úti heima
hjá sér og gleyma öllu inni í
íbúðinni. Þar með talið sím-
anum sínum. Ekki stóð á
viðbrögðum fésbókarvina
Ásdísar en einn benti henni
góðlátlega á að kannski fæl-
ist lausnin í nýjum hárlit.
Ekki fylgdi sögunni hvern-
ig Ásdís komst inn aftur en
samkvæmt færslunni var það
ekki fyrr en langt var liðið á
daginn.
Orðinn pabbi
Fréttamaðurinn ljúfi, Sindri
Sindrason, í Íslandi í dag
er orðinn pabbi. Þetta kom
fram í Lífinu, fylgiriti Frétta-
blaðsins. Hann og sambýlis-
maður hans, Albert tóku litla
stúlku í fóstur á dögunum.
Sindri hefur lítið sést á skján-
um síðan að hann fór í föð-
urhlutverkið en mun snúa
til baka á næstu dögum þar
sem sú litla er komin með
pláss á leikskóla.
Snuðar sam-
flokksmenn
Sóley Tómasdóttir, borgar-
fulltrúi VG í Reykjavík, ýjaði
að því á fimmtudag að hún
myndi ekki fara aftur í fram-
boð.
Þetta sagði Sóley í Beinni
línu á DV.is. Sóley var þá
spurð hvort hún stefndi
á borgastjórastólinn eftir
næsta kjörtímabil.
„… ég efast stórlega um
að vera í framboði fyrir
næsta kjörtímabil. Langar
ekki að ílengjast í pólitík,“
svaraði Sóley. Það vakti at-
hygli að aðspurð um verðuga
arftaka nefndi Sóley enga
úr VG í borginni á nafn svo
sem Líf Magneudóttur eða
aðra samflokksmenn heldur
spurði þann sem spurði
hana á Beinni línu, Hildi
Lilliendahl, hvort hún væri
ekki bara til. Yfirpjattrófan Margrét Hugrún Gústavsdóttir yfirpjattrófa með fleiri pjöttuðum.
Róbert og Georg Stálu senunni í afmælispartíi
Pjattrófanna.
É
g vona að ég snúi aft-
ur. Þetta er svo rosa-
lega skemmtilegt. Mér
finnst ég líka loksins
vera búin að finna mig
í sjónvarpinu,“ segir Yesmine
Olsson sem lauk nýverið við
sína aðra sjónvarpsþáttaser-
íu þar sem hún hefur kennt
Íslendingum að elda fram-
andi rétti.
Yesmine er alltaf með
mörg járn í eldinum. Hún
opnaði nýlega síðuna yesm-
ine.is þar sem lesendur geta
skoðað uppskriftir og upp-
lýsingar um námskeið. „Svo
verð ég líka með tandoori-
ofna til sölu. Svona eins og
ég notaði í þáttunum. Ég
leitaði lengi að svona ofnum
og er nú farin að flytja þá
inn. Ég er viss um að þetta
verði tandoori-sumar,“ segir
Yesmine hlæjandi og bætir
við að hún ætli einnig að
selja hnífa líkt og þennan
bleika sem hún notaði í þátt-
unum. „Það gerðist alveg
óvart. Ég fékk hnífinn í gjöf
frá vinkonu og varð strax ást-
fangin af honum. Þetta er
besti hnífur sem ég hef próf-
að og viðbrögðin við honum
voru svakaleg,“ segir Yesm-
ine og bætir við að það sé
einnig hægt að fá bláan hníf.
Yesmine fæddist á Sri
Lanka en var ættleidd til
Svíþjóðar og hefur búið á
Íslandi síðustu 13 ár. Hún
talar íslensku með sterkum
hreim en segist vona að það
trufli ekki áhorfendur. „Það
eru allavega ekki margir sem
hafa sagt það við mig en
vissulega hef ég heyrt sitt-
hvað,“ segir hún en bætir við
að hún sé mjög stolt af því
að vera fyrsti útlendingurinn
til að fá eigin þátt í íslensku
sjónvarpi. „Ég er meira en
til í að bæta mig í íslensk-
unni til að fá að halda þessu
áfram en ég vona samt að
mér hafi hingað til tekist að
koma því til skila sem ég hef
verið að gera,“ segir hún og
bætir við að hún sé þakklát
fyrir traustið sem RÚV sýni
henni. „Ég er sem betur fer
með mjög góðan framleið-
anda, Helga Jóhannesson,
sem er einnig íslenskukenn-
arinn minn. Hann er líka í
Bollywood-sýningunni og
það skiptir mig öllu máli að
vinna með fólki sem skilur
það sem maður er að gera.“
Yesmine blandar gjarnan
íslensku, sænsku og ensku
saman. „Ætli ég hugsi ekki
á öllum þremur tungumál-
unum. Þetta breyttist þegar
ég eignaðist börnin. Ég reyni
að tala sænsku við stelp-
una mína en verð að tala ís-
lensku við stjúpson minn
sem er eldri,“ segir hún og
bætir við að dóttirin, sem er
fimm ára, tali bæði íslensku
og sænsku.
Aðspurð segist Yesmine
hafa mest gaman af því að
elda með nýjum kryddum.
„Ég er mjög opin fyrir að
prófa eitthvað nýtt. Það þarf
ekkert endilega að vera ind-
verskt – bara eitthvað fram-
andi,“ segir hún og bætir við
að maðurinn hennar sjái
um að elda hefðbundinn ís-
lenskan mat. „Hann er frek-
ar klár í eldhúsinu og sér um
þetta íslenska. Annars eld-
um við mikið saman. Það er
okkar sameiginlega áhuga-
mál.“ indiana@dv.is
Hugsar á þremur
tungumálum
n Yesmine er stolt af því að vera útlendingur með eigin þátt
„Ég er meira en
til í að bæta
mig í íslenskunni til
að fá að halda þessu
áfram.
Elskar krydd
Yesmine elskar
að elda framandi
rétti en lætur
manninn sinn um
að elda íslenska
matinn.