Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2012, Síða 2
2 Fréttir 11. apríl 2012 Miðvikudagur
Nóg að gera hjá lögreglu:
Ekið á dreng
á vespu
Ekið var á dreng á rafmagnsvespu
í Hveragerði um kvöldmatarleytið
á páskadag. Í tilkynningu frá lög-
reglu kemur fram að slysið hafi
orðið á gangbraut á Breiðumörk á
móts við Hverabakarí. Ökumað-
ur bifreiðar sem hlut átti að máli
stöðvaði og ræddi við drenginn og
fékk hjá honum upplýsingar en
veitti honum engar upplýsingar
á móti. Drengurinn slasaðist ekki
en tjón varð á vespunni. Lögregl-
an biður umræddan ökumann að
hafa samband við lögreglu í síma
480-1010.
Síðar sama kvöld, klukkan 23,
var tilkynnt um alvarlegt umferð-
arslys á Biskupstungnavegi við
Kerið. Þar hafði bifreið með þrem-
ur innanborðs oltið á veginum og
út af honum. Annar farþeganna
var ekki í bílbelti og kastaðist út í
veltunni. Þremenningarnir voru
fluttir með sjúkrabifreið á Slysa-
deild Landspítala. Ökumaðurinn
og annar farþeginn reyndust með
minni háttar meiðsl en farþeginn
sem kastaðist út var lagður inn á
sjúkrahúsið. Ekki liggja fyrir upp-
lýsingar um líðan hans.
Upp úr klukkan sex á laugar-
dagsmorgun bárust innbrotsboð
frá Vallaskóla til öryggisfyrirtæk-
is. Í ljós kom að rúða á kennslu-
stofu hafði verið brotin og gerð
tilraun til að stela skjávarpa en
það ekki tekist. Ekki er vitað hver
var að verki en hans er leitað. Um
páskahelgina voru 20 ökumenn
kærðir fyrir hraðakstur í umdæmi
lögreglunnar á Selfossi, þrír fyrir
akstur undir áhrifum fíkniefna og
einn fyrir akstur undir áfengis-
áhrifum.
Baráttan um Bessastaði:
Þóra stofnar
kosningasjóð
Stofnaður hefur verið kosninga-
sjóður vegna framboðs Þóru Arn-
órsdóttur fjölmiðlakonu. Þetta
segir á opinberri Facebook-síðu
framboðsins. Þar segir Þóra að
hvorki hún né Svavar muni fá
upplýsingar um hverjir það eru
sem styrkja framboðið heldur ein-
ungis hver staða sjóðsins sé hverju
sinni.
„Sem fyrr segir verður þetta
allt rekið af mikilli hófsemd og
ekkert tekið að láni, við ætlum
bara að eyða því sem kemur inn
og ekki krónu meir,“ segir í Face-
book-færslunni frá Þóru. Þar
minnir hún einnig á reglur varð-
andi söfnun sem þessa en þær
kveða á um að enginn megi gefa
meira en 400.000 og tengdir aðilar
ekki meira en 500.000.
Verði afgangur af því sem safn-
ast í kosningasjóðinn segist Þóra
ætla að hann það til góðgerða-
mála. „Ég hef það fyrir satt að það
hafi gerst hjá Vigdísi Finnboga-
dóttur,“ segir Þóra.
E
kki er hægt að koma auga á
ástæðu þess að fyrirtæki hætti
löglegri starfsemi vegna hús-
leitar í þágu rannsóknar á
meintum lögbrotum,“ segir í
svörum Seðlabankans við fyrirspurn
DV vegna ákvörðunar þýsks dóttur-
félags Samherja um að hætta við-
skiptum við íslenska lögaðila í kjölfar
rannsóknar Seðlabankans á fyrir-
tækinu. DFFU, dótturfélag Samherja,
er grunað um brot á lögum um gjald-
eyrishöft. Fram kemur í svari Seðla-
bankans að innflutningur á vöru
og þjónustu sé ekki heftur af lögum
um gjaldeyrismál en dótturfyrirtæki
Samherja er sakað um brot á þeim
lögum. Seðlabankinn geti því ekki
skýrt ákvörðun DFFU. Fyrirtækinu
býðst þó aðstoð við að fara að lög-
um. „Sérhver einstaklingur eða lög-
aðili getur óskað eftir leiðbeiningum
stjórnvalds ef hann er í vafa um hvort
tiltekin, fyrirhuguð viðskipti hans
fari gegn ákvæðum laga,“ segir enn
fremur í svari bankans.
Í tilkynningu fyrirtækisins í tilefni
ákvörðunar um að selja ekki fisk til
Íslands segir að ákvörðunin sé hörm-
uð en að fyrirtækið sjái ekki aðra leið
færa á meðan ekki sé upplýst hvaða
lögbrot fyrirtækið sé grunað um. Í
svari bankans segir að lög heimili að
DFFU sé neitað um aðgengi að gögn-
um málsins í allt að þrjár vikur. Þá
kemur einnig fram að nýlegar breyt-
ingar á lögum um gjaldeyrishöft hafi
ekkert með aðstæður Samherja að
gera. Lagabreytingin ætti samkvæmt
því ekki að hafa áhrif á DFFU.
Aðstoð vegna hráefnisskorts
Samherji á rétt á bótum frá Atvinnu-
tryggingarsjóði fari svo að vinnslu
Samherja á Dalvík verði lokað tíma-
bundið vegna hráefnisskorts. Því
gæti svo farið að ákvörðun dóttur-
fyrirtækis Samherja verði til þess að
tryggja móðurfyrirtækinu greiðslur
úr Atvinnutryggingarsjóði vegna
vinnslustöðvunar sökum hráefnis-
skorts.
DFFU hafði þar til húsleitin var
gerð í hyggju að landa um 3.500
tonnum af óslægðum fiski til vinnslu
hér á landi. Fyrsta löndun togara fyr-
irtækisins var áætluð 15. apríl næst-
komandi en togarinn landar alla
jafna um 200 tonnum í hvert skipti.
Ljóst er af ákvörðun fyrirtækisins að
ekkert verður af því.
Atvinnutryggingarsjóður til
bjargar
Íslensk fiskvinnslufyrirtæki geta sótt
um greiðslur í Atvinnutryggingarsjóð
stöðvist vinnsla af völdum hráefnis-
skorts. Tilkynna þarf Vinnumála-
stofnun um yfirvofandi hráefnisskort
með dags fyrirvara. Atvinnutrygg-
ingarsjóður greiðir að hámarki 6.990
krónur á dag með hverjum starfs-
manni í fullu starfi með kauptrygg-
ingarsamningi. Til viðbótar dagpen-
ingunum er fyrirtækjunum greitt
lífeyrissjóðsiðgjald sem er 8 prósent
og tryggingargjald atvinnurekenda
sem er 5,34 prósent. Hafa verður í
huga að þessi aðferð er viðhöfð svo
koma megi í veg fyrir að mikill fjöldi
starfsmanna skrái sig á atvinnuleys-
isbætur, með tilheyrandi umsýslu, í
örfáa daga vegna hráefnisskorts. Til
að fá greiðslurnar þurfa fyrirtækin
þegar að hafa greitt starfsfólki sínu
laun.
Reiknað með lokun
„Ég er byrjaður að reikna með lokun,“
segir Gestur Geirsson, framkvæmda-
stjóri landvinnslu hjá Samherja, í
samtali við DV. „Þetta verður mjög
erfitt ef við náum ekki þessu þýska
hráefni. Við erum svo sem ekkert
búin að sjá fram úr því.“ Hann seg-
ir löndun Kaldbaks á þriðjudag vera
hluta af afla sem áður hafi verið áætl-
aður. Togarinn kom til hafnar með
um 300 tonn sem fóru til vinnslu á
Dalvík og Akureyri. Gestur segir þá
löndun ekki vera viðbót við það sem
áður var áætlað. Hann segir vinnslu
fyrirtækisins á Dalvík vinna um þús-
und tonn af fiski á mánuði. Það sé því
hráefni til tæplega fjögurra mánaða
sem koma hefði átt frá Þýskalandi.
„Við getum sótt um einhverja daga til
Atvinnutryggingarsjóðs. Hann greið-
ir 80 prósent af strípaðri dagvinnu,“
segir Gestur en bætir við að starfsfólk
fyrirtækisins treysti á álagsgreiðslur
og bónusa sem ekki séu greiddir þeg-
ar hráefni skortir. Slíkar greiðslur eru
ekki tryggðar af Atvinnutryggingar-
sjóði.
„DFFU telur sig ekki geta stundað
viðskipti að óbreyttum forsendum.
Þær forsendur hafa ekkert breyst,“
segir Gestur aðspurður hvort ekki sé
útlit fyrir að þýska dótturfyrirtækið
skipti um skoðun og ákveði að selja
áfram hráefni til Íslands.
Ekki til umræðu að segja fólki
upp
„Við erum með hráefni út þessa viku
og eitthvað fram í næstu viku,“ seg-
ir Sigurður Jörgen Óskarsson, fram-
leiðslustjóri Samherja á Dalvík.
Hann segir óvíst hvort vinnsla stöðv-
ist þótt augljóslega hafi það áhrif að
DFFU hyggist ekki selja fyrirtæk-
inu hráefni eins og áætlað hafði ver-
ið. „Við erum að endurskipuleggja
vinnsluna og verið er að leita leiða
til að verða sér úti um hráefni annars
staðar frá,“ segir Sigurður.
„Uppsagnir eru líklega það síð-
asta sem menn gera og eru ekki
einu sinni til umræðu,“ svarar Sig-
urður spurningunni hvort starfsfólk
vinnslunnar þurfi að óttast atvinnu-
missi. „Það er mikill auður í fólkinu
sem vinnur hérna. Flestir hafa unnið
lengi og eru orðnir mjög sérhæfðir.
Ég get hins vegar ímyndað mér að ef
við fáum ekki þessi 3.500 tonn að við
förum fljótlega að sjá þriggja daga
vinnuviku.“
Bæjarstjóri skilur Samherja
„Það er mjög mikilvægt fyrir Dal-
víkinga að þetta leysist sem fyrst og
Seðlabankinn upplýsi hvaða atriði
þetta eru svo að viðskiptin geti hald-
ið áfram snurðulaust,“ segir Svanfríð-
ur Inga Jónasdóttir, bæjarstjóri Dal-
víkurbyggðar, er DV leitaði viðbragða
hennar við ákvörðun Deutsche
Fischfang Union, dótturfélags Sam-
herja, um að hætta tímabundið öll-
um viðskiptum við íslenska lögaðila.
Svanfríður segist skilja að fjöl-
þjóðleg fyrirtæki líkt og Samherji
sem búi við gjaldeyrishöft verði að
gæta vel að reglum. Reglur um gjald-
eyrishöft hafi nýlega verið hert. „Ég
skil það vel að erfitt sé fyrir fyrirtæki
að halda áfram í rekstri milli landa
á meðan fyrirtækin hafa ekki skýrar
upplýsingar,“ segir Svanfríður. Hún
lítur ekki svo á að Samherji sé með
þessu að beita Seðlabankann þrýst-
ingi. „Þetta snýst bara um að fá upp-
lýsingar til þess að fyrirtækið geti
haldið áfram að vinna með eðlileg-
um hætti. Ég lít á það sem svo að all-
ir séu að gera sitt besta í þessu máli.“
Ekki góð tíðindi
„Hvort Samherji er í deilu við Seðla-
Búa sig undir
vinnslustöðvun
Atli Þór Fanndal
blaðamaður skrifar atli@dv.is
„Ég er byrjaður að
reikna með lokun.
Gestur Geirsson
framkvæmdastjóri landvinnslu hjá Samherja
„Það sem mestu
skiptir er að fólkið
okkar hafi vinnu.
Björn Snæbjörnsson
formaður Einingar-Iðju
n Seðlabankinn býður Samherja og DFFU aðstoð við að fara að lögum
Reiknað með lokun Hjá Samherja fengust þau svör að búist væri við tímabundinni lokun
vinnslunnar á Dalvík.