Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2012, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2012, Síða 6
Vill koma böndum á fjárhættuspil 6 Fréttir 11. apríl 2012 Miðvikudagur Ástþór á svig við sannleikann n Bauð sig fram til Alþingis í síðustu kosningum Á stþór Magnússon forsetafram- bjóðandi segir ekki satt í svari sínu til Írisar Erlingsdóttur bloggara þegar hann er spurð- ur út í þátttöku sína í stjórnmálum. Spurningin sem Íris beindi til Ást- þórs var: „Ert þú meðlimur í stjórn- málaflokki eða pólitískum sam- tökum? Ef svo er, hvaða flokki eða samtökum?“ Ástþór fór í svari sínu út fyrir spurninguna sem slíka og sagðist aldrei hafa starfað með stjórnmála- flokkum. „Ég tilheyri engum stjórn- málaflokkum og hef aldrei starfað með neinum þeirra. Ég hef engar tengingar við stjórnmálaflokkana né starfað með þeim og þess vegna vel til þess fallinn að vera hlutlaus umboðsmaður allrar þjóðarinnar á Bessastöðum,“ sagði hann. Staðreyndin er hins vegar sú að Ástþór bauð fram undir merkjum Lýðræðishreyfingarinnar í síðustu alþingiskosningum. Hann var fyrsti maður á lista í Reykjavíkurkjördæmi norður auk þess að vera einn helsti talsmaður flokksins út á við. Flokkur- inn hlaut 1.107 atkvæði og náði eng- um manni á þing. Flokkurinn hefur verið starfandi talsvert lengur en síðan 2009 sam- kvæmt því sem kemur fram á heima- síðu hans. Þar segir að Lýðræðis- hreyfingin hafi verið stofnuð árið 1998 þegar hópur fólks hafði sam- band við Ástþór með það í huga að undirbúa framboð til Alþingis. Ekki þótti hins vegar tímabært að flokk- urinn myndi bjóða fram þá en það gerði hann hins vegar rúmum tíu árum síðar. Segir ekki allt Ástþór Magnússon virðist hafa gleymt þátttöku sinni í Lýðræðishreyfing- unni sem bauð fram til Alþingis árið 2009. Ö gmundur Jónasson innan- ríkisráðherra vill að gripið verði til lagasetningar til að sporna við þátttöku Íslend- inga í erlendum fjárhættu- spilum á netinu. Hann segist ætla að leggja fram frumvarp um málið með haustinu. Ekki liggur þó ná- kvæmlega fyrir hvaða leiðir eru fær- ar í þessum málum en aðrar þjóðir í kringum okkur hafa sumar hverjar bannað erlendar fjárhættuspilasíð- ur og þar með komið í veg fyrir að fyrirtækin á bak við síðurnar hefji viðskipti við íbúa í landinu. „Það sem verið er að gera er að láta vinna heildarstefnumótun um happdrætti og fjárhættuspil,“ segir Ögmundur um málið. Hann segist gera ráð fyrir að skýrsla um málið liggi fyrir áður en þing kemur sam- an í haust og að með haustinu verði hægt að leggja fram tillögu að laga- og reglugerðarbreytingum. „Þarna er að mörgu að hyggja og þarna þarf að taka heildstætt á þessum mál- um.“ Ögmundur vill þó ekki rugla saman hefðbundnum happdrætt- um og fjárhættuspilum sem stund- uð eru á netinu og í spilakössum. Skattur eða lokað á starfsemi Stjórnvöld í löndum á borð við Ítalíu og Bandaríkin hafa farið þessa leið og bannað fjárhættuspil á netinu með einhverjum undantekningum. Í öðrum ríkjum, til dæmis Frakk- landi, hafa stjórnvöld farið þá leið að skattleggja sérstaklega þau fyrir- tæki sem bjóða upp á slíka þjónustu frekar en að banna starfsemi þeirra með einhverjum hætti. „Það er áhyggjuefni hvernig net- spilun er að þróast og það þarf að setja henni skorður,“ segir Ögmund- ur sem segist persónulega vera þeirrar skoðunar að það ætti að loka á hana með öllu. „Þetta er hugsan- lega hægt að gera í samkomulagi við kortafyrirtæki, að það séu settar ein- hverjar hömlur, en þetta er eitt af því sem er innifalið í okkar athugunum,“ segir hann og bætir við að markmið- ið sé að koma böndum á fjárhættu- spilastarfsemi á netinu og víðar. Ekki er ljóst hvaða áhrif slíkar að- gerðir hefðu í för með sér á Íslandi en í samtali við DV hefur minnst einn pókerspilari sem hefur um- talsverðar tekjur af fjárhættuspilun á netinu sagst muni flytja úr landi til að geta haldið áfram að spila. Ein- staka Íslendingar hafa talsverðar tekjur af spilamennsku á netinu en ekki er kunnugt hvort einhver Ís- lendingur hafi fjárhættuspil að að- alstarfi líkt og þekkist erlendis. Fjárhættuspil ólögleg á Íslandi Fjárhættuspil eru að mestu leyti ólögleg samkvæmt íslenskum lög- um. „Ef ég fengi öllu ráðið yrði allt þetta meira og minna bannað en ég er ekki einráður í þessum efnum og skoða hvað hægt er að gera í sam- komulagi,“ segir Ögmundur sem leggur skýra áherslu á að hann geri skýran greinarmun á fjárhættuspil- um og hefðbundnum happdrættum. Íslensk getspá er einn þeirra að- ila sem hefur undanþágu frá reglum um fjárhættuspil en fyrirtækið hef- ur umboð fyrir Víkingalottó og svo íslenska Lottóinu. Eins hefur Há- skóli Íslands talsverðar tekjur af happdrættinu sem skólinn rekur. SÁÁ hefur líka leyfi til að reka spila- kassa en félagið veitir einnig ráð- gjöf til þeirra sem eiga við spilafíkn að stríða. Ögmundur segir að spila- kassarnir séu einnig eitt af því sem verið sé að skoða í ráðuneytinu. Ástæðan fyrir því að Íslendingar geta hins vegar stundað fjárhættu- spil og veðmál á netinu er sú að fyr- irtækin sem standa að baki þjónust- unni starfa fyrir utan landsteinana. Vefsíðurnar sem Íslendingar geta heimsótt eru því starfræktar á stöð- um þar sem slík starfsemi er lögleg að öllu leyti eða að hluta. n Innanríkisráðherra vill koma í veg fyrir fjárhættuspil á netinu„Það er áhyggju- efni hvernig netspilun er að þróast og það þarf að setja henni skorður Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is Vandamál Ögmundur Jónasson boðar frumvarp um fjár- hættuspil þar sem tekið verður á slíku á netinu. Fjárhættuspil á netinu Ef ég fengi öllu ráðið yrði allt þetta meira og minna bannað en ég er ekki einráður í þessum efnum,“ segir Ögmundur meðal annars um málið. Þóttist vinna fyrir Microsoft Lögreglan biður fólk að vera á varðbergi fyrir erlendum svika- hröppum sem reyna að svíkja fé af fólki í gegnum netið. Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að íslensk hjón hafi fengið símtal frá manni á mánudagskvöld sem kynnti sig sem starfsmann hugbúnaðarfyrir- tækisins Microsoft í Bretlandi. Sagði hann hjónunum að þau þyrftu að setjast við tölvuna vegna villu sem komið hefði upp. Fólkið grunaði strax að ekki væri allt með felldu og sú reynd- ist raunin. Ekki kemur fram hvort hjónin hafi orðið fyrir tjóni af sam- skiptunum við manninn. Lög- reglan varar þó við einstaklingum sem setja sig í samband við fólk hér á landi en yfirleitt liggur eitt- hvað annað en hjálpsemi og góð- mennska að baki. Þeir sem fá óvenjuleg símtöl frá útlöndum eru beðnir um að koma ábendingum til lögreglu en hægt er að senda þær á netfangið svikapostur@rls.is. sextán ölVaðir og nítján dópaðir Sextán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuð- borgarsvæðinu um páskana. Þrettán þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, tveir í Garðabæ og einn í Hafnarfirði. Fimm voru teknir á skírdag, fjórir á laugardag, þrír á páskadag og fjórir á annan í páskum. Þetta voru fjórtán karlar á aldrin- um 15–44 ára og tvær konur, 26 og 45 ára. Fjórir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi. Þetta kemur fram í tilkynn- ingu frá lögreglu. Í henni segir enn frem- ur að nítján ökumenn hafi verið teknir fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Sextán þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi, Hafnarfirði og Garðabæ. Þrír voru teknir á skírdag, átta á laugardag, sex á páskadag og tveir á annan í páskum. Þetta voru átján karlar á aldrinum 16–38 ára og ein kona, 20 ára. Fimm þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og þrír hafa aldrei öðlast ökuréttindi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.