Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2012, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2012, Qupperneq 10
10 Fréttir 11. apríl 2012 Miðvikudagur V afi leikur á rekstrarhæfi eig- anda ferðaskrifstofu Pálma Haraldssonar, Iceland Ex- press. Móðurfélag Iceland Express heitir Eignarhalds- félagið Fengur og tapaði það rúmum 1,5 milljörðum króna árið 2010. Tap- ið er þó að mestu leyti, rúmar 1.300 milljónir, niðurfærsla á viðskiptavild út af taprekstri dótturfélaga Fengs, Iceland Express og Astraeus. Þetta kemur fram í ársreikningi Fengs fyrir árið 2010 sem skilað var til ársreikn- ingaskrár þann 28. mars síðastliðinn. Eigið fé Fengs er hins vegar ennþá já- kvætt, stendur í 285 milljónum, og er eiginfjárhlutfallið 19 prósent. Fram kemur í skýringu í ársreikn- ingnum að gangi fjárhagsleg endur- skipulagning félagsins ekki eftir sé rekstrarhæfi þess „brostið“. Endur- skoðandi félagsins setur fram ábend- ingu um rekstrarhæfi félagsins í upp- hafi reikningsins þar sem vísað er til þessarar skýringar. „Án þess að gera fyrirvara um álit okkar viljum við vekja athygli á skýringu 18 í ársreikn- ingi þar sem vísað er í atburði eftir lok reikningsskiladags sem valda því að rekstrarhæfi félagsins sé brostið nema til komi nýtt eigið fé eða skuld- um verði breytt í eigið fé. Framsetn- ing eigna og skulda félagsins miðast við áframhaldandi rekstur þess.“ Skarphéðinn vill ekki tjá sig Iceland Express er eitt af þremur ís- lenskum flugfélögum og ferðaskrif- stofum sem fljúga áætlunarflug frá Íslandi til útlanda allt árið. Hin tvö flugfélögin eru Icelandair og WOW air. Aukin samkeppni færðist í flug- bransann á Íslandi í fyrra þegar Skúli Mogensen tilkynnti um stofnun flug- félagsins WOW air. Þar að auki munu ýmis erlend flugfélög fljúga til og frá landinu í sumar, meðal annars Easy Jet og þýsku flugfélögin Air Berlin og Germanwings. Mikil samkeppni verður því á flugmarkaðnum til og frá Íslandi í sumar. Skarphéðinn Berg Steinarsson, framkvæmdastjóri Fengs og forstjóri Iceland Express, segir að hann muni ekki tjá sig um hvernig rekstrarhæfi félagsins sé háttað um þessar mund- ir og hvort fjárhagslega endurskipu- lagningin hafi gengið eftir. „Ég segi ekki eitt aukatekið orð við þig.“ Erfiðleikar vegna Astraeus Fengur átti breska flugfélagið Astra- eus sem fór í greiðslustöðvun síðla árs í fyrra, líkt og komið hefur fram í fjölmiðlum. Astraeus var leiguflug- félag sem sá um áætlunarflug fyrir Iceland Express. Fengur lánaði Ice- land Express 1.200 milljónir króna í fyrra til að mæta tapi Iceland Ex- press vegna rekstrarerfiðleika Astra- eus. Tap íslensku ferðaskrifstofunnar út af slitameðferð breska flugfélags- ins gæti numið 700 til 800 milljón- um króna en hlutafé þess er metið á 0 krónur í ársreikningnum. Tap Ice- land Express út af falli Astraeus er tilkomið vegna fyrirframgreiðslna á flugvélaleigu og óflognum flugtím- um. Þá kemur fram í ársreikningn- um að heildartap Iceland Express vegna rekstrarársins 2011 gæti num- ið á bilinu 1.500 til 1.600 milljónum króna. Þetta yrði mikill viðsnúningur frá rekstri félagsins árið þar á undan þegar félagið skilaði 55 milljóna króna hagnaði. Óvissa um endurgreiðslu Í ársreikningnum kemur fram að mik- il óvissa ríki um það hvort Iceland Express geti endurgreitt Feng 1.200 milljóna króna lánið sem félagið fékk í fyrra. Vegna þessa er bent á að eign- arhlutur Fengs í Iceland Express sé í reynd tapaður þar sem bókfært verð hans er einungis tæplega 470 millj- ónir króna. Orðrétt segir um þetta í ársreikningnum: „Eignarhaldsfélag- ið Fengur hefur lánað Ísland Express um 1.200 milljónir króna á árinu 2011. Í ljósi þessa er ljóst að eignarhluturinn í Ísland Express sem eignfærður er í ársreikningi 2010 að fjárhæð 469 millj- ónum króna er tapaður auk þess sem mikil óvissa ríkir um getu félagsins til að endurgreiða lánið frá árinu 2011.“ Iceland Express gæti því, sam- kvæmt þessu, mögulega ekki greitt Feng til baka lánið sem félagið fékk frá Feng. Þetta þýðir að Fengur tapar þeim fjármunum auk þess taps sem það hefur orðið fyrir út af falli Astra- eus, meðal annars vegna taps á 222 milljóna króna láni sem Fengur veitti breska flugfélaginu í fyrra. Krafa Fengs á hendur Astraeus hefur þegar verið afskrifuð í bókum Fengs, líkt og segir í ársreikningnum: „Hlutafé í Astraeus, ásamt kröfu á félagið, hefur verið af- skrifað að fullu í bókum Eignarhalds- félagsins Fengs og því ekki fært til verðs í ársreikningi í árslok 2010.“ Í eigu félags í Lúxemborg Fengur hefur getað fjármagnað þessi dótturfélög sín vegna þess að félagið fékk nærri 3,6 milljarða króna að láni frá móðurfélagi sínu í Lúxemborg, Nupur Holding, árið 2009. Þetta kom fram í ársreikningi Fengs árið 2009. Þessir fjármunir voru endurlánaðir til dótturfélaga Fengs. Það sem hefur gerst eftir útgáfu þess ársreiknings er að Fengur er nú í eigu annars félags í Lúxemborg, Academy S.a.r.l. Fengur, og þar með talið Iceland Express, er því á endanum í eigu annars aðila nú en árið 2009. Pálmi vildi ekki greina frá því í við- tali við DV í fyrra hvernig hann fjár- magnaði lánið til Fengs. Það eina sem hann vildi segja var að lánið sýndi að hann nyti ennþá lánstrausts: „Það kemur þér bara ekkert við hvernig ég fjármagna mín félög […] Ég nýt ennþá lánstrausts.“ Miðað við ársreikning Fengs fyrir árið 2010 er félagið búið að endur- greiða Nupur Holding lánið sem fé- lagið fékk frá því árið 2009. Skuldir félagsins við tengd félög minnkuðu úr nærri 3,5 milljörðum króna árið 2009 og niður í 0 krónur árið 2010. Ekki kemur fram í ársreikningnum hvernig Fengur fjármagnaði endurgreiðslu á láninu til Nupur Holding. Milljarða arðgreiðslur Arðgreiðslur til félaga í Lúxemborg sem eru í eigu Pálma hafa verið tals- verðar síðustu árin. Pálmi greiddi sér meðal annars 4,4 milljarða króna arð út úr eignarhaldsfélagi sínu Fons árið 2007 vegna hagnaðar félagsins árið áður. Fons var móðurfélag Ice- land Express og Astraeus á árunum fyrir hrunið. Sá arður fór til móður- félags Fons, Matthew Holding S.A., þar í landi. Ljóst er því að Pálmi átti að minnsta kosti fjármuni í Lúxemborg á árunum fyrir hrunið þó ekki sé hægt að fullyrða að peningarnir sem notað- ir voru til að fjármagna lánið til Fengs hafi verið hluti af arðinum sem Pálmi tók sér út úr íslenskum eignarhalds- félögum á árunum fyrir hrunið. Þá hélt breska blaðið The Sunday Times því fram í febrúar í fyrra að aflandsfélagið Pace Associates, sem skráð er í Panama, hefði tekið við arð- greiðslum fyrir hluthafa Iceland-keðj- unnar á árunum fyrir hrun. Pálmi átti um 30 prósenta hlut í keðjunni þeg- ar mest var en hann seldi þann hlut til eignarhaldsfélagsins Styttu í ágúst 2008. Upphæðin sem The Sunday Times sagði að greidd hefði verið út sem arður til hluthafa Iceland var 290 milljónir punda, meira en 50 milljarð- ar króna. Miðað við eignarhlut sinn hefur Pálmi fengið meira en 15 millj- arða króna af arðinum sem greiddur var út úr Iceland-keðjunni. Ætlaði að einbeita sér að rekstri Talsverða athygli hefur vakið hversu mikla fjármuni Pálmi Haraldsson hefur verið reiðubúinn að leggja Iceland Express til. Hann virðist reiðubúinn að hætta miklu til að halda ferðaskrifstofunni gangandi. Í helgarviðtali við DV á fyrri hluta árs 2010 sagðist Pálmi ætla að ein- beita sér að rekstri fyrirtækja sinna í framtíðinni: „Ég er bara búinn að taka mína stefnu í lífinu. Nú er ég bara Pálmi; nú er ég bara rekstrar- maður og ég er með önnur gildi í Vafi leikur á rekstrarhæfi eiganda Iceland Express n Tap Iceland Express 2011 gæti numið 1.500 til 1.600 milljónum Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Um rekstrarhæfi Fengs „Í kjölfar þeirra atburða sem fjallað er um hér að framan í skýringu 18 er ljóst að fjárhagsstaða félagsins er ekki góð. Stjórnendur og eigendur félagsins eru að vinna að endurskipulagningu félagsins, en ljóst er að ef ekki kemur til nýtt eigið fé eða að skuldum verði breytt í eigið fé eins og fyrirhugað er, þá er rekstrarhæfi félagsins brostið. Ásreikningurinn er settur fram miðað við áframhaldandi rekstrarhæfi.“ „Ég nýt ennþá lánstrausts Lánar fyrirtækjum sínum Móðurfélag Astraeus og Iceland Express, sem er í eigu Pálma Haraldssonar, hefur lánað þessum félögum háar fjárhæðir til að bjarga þeim fyrir horn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.