Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2012, Side 11
Fréttir 11 Miðvikudagur 11. apríl 2012
Gjafmildir Íslendingar
n Tólf milljónir króna hafa safnast til styrktar börnum á Sahel-svæðinu
V
ið erum afar þakklát fyrir stuðn-
inginn og það mikla traust
sem UNICEF er sýnt,“ segir
Stefán Ingi Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri UNICEF á Íslandi. Söfn-
un UNICEF, Barnahjálpar Samein-
uðu þjóðanna, fyrir börn í lífshættu á
Sahel-svæðinu gengur vonum framar.
Þúsundir Íslendinga hafa þegar svar-
að neyðarkalli UNICEF sem sent var
út í síðustu viku. Alls hafa 12 milljónir
króna safnast hjá UNICEF á Íslandi og
er söfnunin enn í fullum gangi. Sahel-
svæðið er stórt svæði í Afríku sem nær
frá Atlantshafinu í vestri að horni Afr-
íku í austri.
„UNICEF er á staðnum í öllum átta
ríkjunum á Sahel-svæðinu þar sem
þurrkar og uppskerubrestur hafa sett
börn í lífshættu. UNICEF hefur þekk-
ingu, reynslu og getu til að bjarga lífi
vannærðra barna og reynslan sýnir
að 95% vannærðra barna sem fá með-
höndlun á þessu svæði lifa af. Flest
börnin ná sér á einungis fáeinum vik-
um,“ segir Stefán Ingi í tilkynningu frá
UNICEF á Íslandi.
Framlögin frá Íslandi verða meðal
annars notuð til að meðhöndla börn
sem þjást af alvarlegri bráðavannær-
ingu. Meðal þess sem börnin fá er víta-
mínbætt jarðhnetumauk, svokallað
Plumpy‘nut, sem er sérstaklega þróað
fyrir bráðavannærð börn og er fullt af
próteinum og nauðsynlegum snefil-
efnum. Börnin fá þrjá skammta á dag í
fáeinar vikur eða þar til þau ná sér.
Einn pakki kostar 56 krónur. Með
framlögunum frá Íslandi getur UNI-
CEF sem dæmi útvegað 214.000
skammta af þessari kraftaverkafæðu.
„Hver króna skiptir máli og það er
gleðilegt að sjá að fólk hér á landi finn-
ur fyrir samtakamættinum. Það áttar
sig á að það hefur raunverulega mögu-
leika á að koma börnum á Sahel-svæð-
inu til hjálpar,“ segir Stefán Ingi.
Hægt er að styrkja neyðarsjóð
UNICEF á Íslandi með því að hringja
í söfnunarsímanúmerin 908-1000
(1.000 krónur), 908-3000 (3.000 krón-
ur) og 908-5000 (5.000 krónur).
n Viðskiptavinir hafa 14 daga til að hætta við smálán
Fjórtán dagar
til að skila láninu
H
ægt er að komast hjá því að
borga þann mikla vaxta-
kostnað sem fylgir því að
taka smálán hjá íslensku
smálánafyrirtækjum. Sam-
kvæmt lögum og reglum um neyt-
endavernd hafa viðskiptavinir 14
daga frest til að endurskoða ákvörð-
un um að taka lán. Það er þó ekki
ókeypis að segja upp láni sínu innan
14 daga þrátt fyrir að ekki megi rukka
fólk um sérstakt uppsagnargjald á
samningnum.
Smálánafyrirtækin viðurkenna öll
þennan rétt viðskiptavina en krefjast
skriflegrar uppsagnar á lánasamn-
ingnum. Það er talsvert flóknara en
gengur og gerist í lántöku hjá fyrir-
tækjunum en hjá flestum þeirra er
nóg að senda textaskilaboð með far-
síma til að fá lán.
Þarf alltaf að greiða kostnað
Þrátt fyrir að neytandi ákveði að
hætta við smálán sem hann hefur
tekið hafa smálánafyrirtækin rétt
á því að rukka viðkomandi um
greiðslu á þjónustugjaldi. Þjón-
ustugjaldið, líkt og vextirnir, eru
almennt háir hjá þessum fyrir-
tækjum og þarf til að mynda neyt-
andi að greiða 2.500 krónur í kostn-
að annan en vexti af 10.000 króna
láni til fjórtán daga hjá smálána-
fyrirtækjunum Hraðpeningum og
Kredia.
Þessi fjórtán daga frestur hefst um
leið og viðskiptavinur smálánafyrir-
tækjanna hefur fengið skilmálana
senda í pósti. Það er því í raun bara
eitt tækifæri fyrir neytendur að hætta
við smálán og eru nokkur fyrirtækj-
anna sem kveða sérstaklega á um
það í samningum sínum við við-
skiptavini að eftir að samningi hefur
verið sagt upp er ekki möguleiki á
frekari lánum.
Gildir um öll fjarsölulán
Lög um réttindi neytenda til að
falla frá gerðum lánasamningum
gilda ekki bara um smálán heldur
um langflest fjarsölulán. Aðeins eru
nefndar þrjár takmarkanir á þess-
um rétti neytenda í lögunum. Það
er sú fjármálaþjónusta sem get-
ur sveiflast í verði innan frestsins,
eftir verðbreytingum á fjármála-
mörkuðum, án þess að þjónustu-
veitandi hafi stjórn þar á, ferða- og
farangurstryggingar eða aðrar sam-
bærilegar vátryggingar sem hafa
skemmri gildis tíma en einn mánuð
og þeir samningar sem hafa verið
efndir að fullu af báðum samnings-
aðilum að ósk neytanda.
Neytendur komast ekki hjá því í
neinu tilfelli að borga kostnað sem
kveðið er á um í lánasamningnum.
Hins vegar er kveðið á um að kostn-
aðurinn eigi að vera í sanngjörnu
hlutfalli við þá þjónustu sem innt
er af hendi, miðað við heildarfjár-
hæð fjarsölusamningsins. Ekki er
tilgreint nánar hvað þetta sann-
gjarna hlutfall er.
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Ekki ókeypis að hætta
Viðskiptavinir geta sagt upp
gerðum lánasamningi við
smálánafyrirtækin en komast
samt ekki hjá því að borga
kostnað sem fylgir láninu.
Vannærð börn Framlag
Íslendinga hingað til dugar til
að kaupa 214 þúsund skammta
af kraftaverkafæðunni
Plumpy‘nut.
Vafi leikur á rekstrarhæfi
eiganda Iceland Express
lífinu. Ég ætla bara að sjá um mín
fyrirtæki núna.“
Í viðtalinu var Pálmi meðal
annars spurður að því hvort hann
gæti greitt þrotabúi Fons til baka
þá fjóra milljarða króna sem fyrir-
tækið skuldaði. Svaraði Pálmi því
til að hann ætti ekki slíka fjármuni:
„Nei, það er ekki til í orðabókinni.
Auð vitað gæti ég ekki greitt hana
til baka. Það er af og frá. Ég á ekki
einu sinni brot af þessum pening-
um. Ekki nema Iceland Express
fari að ganga rosalega vel.“ Þá sagði
Pálmi einnig í viðtalinu að hann
ætti enga falda sjóði í útlöndum.
Miðað við þessi orð Pálma ligg-
ur ekki fyrir hvernig Nupur gat lán-
að Feng þá 3,5 milljarða sem fé-
lagið hefur meðal annars notað
til að niðurgreiða rekstur Iceland
Express og Astraeus. Staða Fengs
er hins vegar orðin þannig, þrátt
fyrir þetta, að rekstrarhæfi félags-
ins, og þar með dótturfélaga þess,
er í hættu. n
„Nú er ég bara
Pálmi; nú er ég
bara rekstrar maður og
ég er með önnur gildi í
lífinu.