Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2012, Side 13
Fréttir 13Miðvikudagur 11. apríl 2012
n Forsvarsmenn Já Ísland og Heimssýnar svara spurningum um kosti og ókosti aðildar að ESB
Evrópuher eða
aukin samvinna
Hverjir eru fimm stærstu kostir við
aðild Íslands að Evrópusambandinu?
1 Flest leiðinlegasta fólkið í ís-lenskum stjórnmálum hverfur
úr landi. Samfylkingin tryggir
sér og sínum stærstan hluta
af embættismannakvótanum
sem ESB veitir inngöngu-
ríkjum.
2 Íslenskir bankar verða yfirteknir af evrópskum. Rök-
stuðningur er óþarfur.
3 Deilur um fiskveiðiauðlindina leggjast af á Íslandi. Við inn-
göngu yfirtekur ESB sjávarút-
vegsmálin. Innanlandsdeilur
um kvóta og fiskveiðistjórnun
heyra sögunni til.
4 Þýsku verður gert hærra undir höfði. Tunga Lúthers, Kant
og Heideggers er afbragðs-
mótvægi við engilsaxnesku
síbyljuna.
5 Íslensk ungmenni fá tækifæri til að læra heraga í Evrópu-
hernum, sem ESB er að byggja
upp leynt og ljóst.
Hverjir eru fimm stærstu ókostir við
aðild Íslands að Evrópusambandinu?
1 Fullveldið tapast og forræði íslenskra mála færist í stórum
stíl á meginland Evrópu sem
er í yfir 2.000 kílómetra fjar-
lægð. Góðviljaðir embættis-
menn með engan skilning á
íslenskum staðháttum munu
ráða meiru um íslensk stjórn-
mál en Íslendingar sjálfir.
2 Rökin fyrir lýðveldinu tapa gildi sínu. Þjóðinni verður
kennt að bíða eftir velferðar-
tékkanum frá Brussel enda
orðin ósjálfbjarga. Við borgum
meira til ESB en við fáum
tilbaka. Lífskjör okkar verða
reiknuð niður í evrópskt
meðaltal.
3 Íslensk ungmenni verða fall-byssufóður fyrir evrópsk stríð.
4 Landhelgin færist á forræði Evrópusambandsins. Sjálf-
stæðisbaráttan á Íslandsmið-
um 1950–1975 er vanhelguð.
Spænskir togarar á styrkjum
frá ESB slátra fiskimiðunum
á nokkrum árum líkt og þeir
gerðu við Skotland og Írland.
5 Íslendingar verða ekki lengur þjóð meðal þjóða. Við verðum
aftur hjálenda líkt og við
vorum frá 1262 til 1918. Eymd
og volæði einkenndi það
tímabil sögunnar.
Leiðinlega fólkið
hverfur úr landi
Nafn: Páll Vilhjálmsson
Starf: Framkvæmdastjóri Heimssýnar –
Félags sjálfstæðissinna í Evrópumálum
Afstaða til ESB-aðildar: Á móti
n Stærsta rútufyrirtæki heims horfir til Reykjaness
Þ
eir hafa verið með hug-
myndir varðandi sam-
setningu á rafrútum,“ segir
Kjartan Þór Eiríksson, fram-
kvæmdastjóri Þróunarfélags
Keflavíkurflugvallar. Tveir fulltrúar
félagsins fóru á dögunum til Kína
meðal annars til að fylgja eftir heim-
sóknum forsvarsmanna kínverska
rútufyrirtækisins Yutong Bus. Með í
för var Árni Sigfússon bæjarstjóri.
Að sögn Kjartans hafa Kínverj-
arnir horft til Evrópu við framleiðslu
á rútunum og þeir hafa meðal ann-
ars skoðað aðstæður á Reykjanesi.
Um er að ræða stærsta framleið-
anda á rútum í heimi. Félagið seldi
til dæmis 28 þúsund rútur á heims-
vísu árið 2009.
Setja saman rútur og hýsa gögn
Að sögn Kjartans er málið á algjöru
frumstigi en hann segir að Kínverj-
ar hafi heimsótt Þróunarfélagið um
það bil tvisvar á ári til að skoða að-
stæður til ýmiss konar uppbygging-
ar og fjárfestingar. Þeirra á meðal
séu sendinefndir á vegum Yutong.
„Þeir komu til okkar á síðasta ári og
eru með hugmyndir um rafrútur,
jafnvel að setja batteríin í hérna, eða
setja saman einhverja hluta hér.“
Hann segir að þeir hafi jafnframt
hugmyndir um hýsingu gagna fyr-
irtækisins í íslensku gagnaveri eða
vilji jafnvel reisa sitt eigið gagnaver
hér á landi. „Við kynntum fyrir þeim
það sem við höfum verið að þróa
hér heima,“ segir Kjartan.
Ekkert í hendi
Kjartan segir að ferðin hafi tekið tólf
eða fjórtán daga. Þeir hafi heim-
sótt höfuðstöðvar nokkurra fyrir-
tækja sem hafi verið í mismunandi
borgum. Það hafi tekið tíma. Tveir
menn hafi farið á vegum Þróun-
arfélagsins en Árni hafi farið sem
fulltrúi Reykjanesbæjar. „Við hittum
líka aðra aðila sem komið hafa til
okkar, til dæmis tengt heilsuferða-
mennsku.“
Hann segir að margt í þessum
dúr sé í vinnslu hjá Þróunarfélag-
inu en ekkert sé enn í hendi. Eng-
ir samningar hafi verið gerðir eða
undirbúnir. Stór verkefni sem þetta
sem Yutong hafi áhuga á, geti tek-
ið ár eða áratugi í vinnslu og upp-
byggingu. „Á hverju ári kemur fjöldi
aðila til okkar með hugmyndir og
svo dettur kannski eitt og eitt verk-
efni inn,“ segir hann en vonast til að
bygging gagnaversins á Ásbrú ryðji
brautina þannig að fleiri sjái hag
sinn í að framkvæma. Nálægð við al-
þjóðlegan flugvöll, nægt landrými
og stórskipahöfn séu á meðal kosta
svæðisins.
Keflavíkurflugvöll sem
skiptistöð
Árni Sigfússon bæjarstjóri segir í
minnisblaði um ferðina, dagana
2. til 16. mars, að í henni hafi hann
sinnt margvíslegum undirbúnings-
erindum í þágu Reykjanesbæjar,
Keilis, Reykjaneshafnar og Þróunar-
félagsins. Verkefnin hafi meðal ann-
ars varðað möguleika á samstarfi við
stjórnsýslu tveggja borga og héraða
í Kína, til að liðka fyrir viðskipta- og
menningarsamskiptum milli land-
anna. „Þá var fylgt eftir fundum
sem kínversk fyrirtæki hafa átt hér á
landi s.l. 3 ár á sviði ferðaþjónustu,
uppbyggingu gagnavera, möguleika
á verksmiðjurekstri, skólasamstarfi
og fjárfestingum.“ Áhersla hafi ver-
ið lögð á styrkleika Reykjanessvæð-
isins og þeirra svæða í Kína sem
gætu átt sameiginlega hagsmuni
tengda sérþekkingu á jarðhita, teng-
ingum við alþjóðaflugvöll, alþjóða-
höfn, ferðaþjónustu og almennum
fjárfestingum. Haldnir hafi verið
19 fundir með aðilum í stjórnsýslu,
fyrirtækjarekstri og fjárfestingum
í Kína. Á einum þeirra var meðal
annars rætt um áhuga á að koma á
samstarfi flugvallaryfirvalda í borg-
inni Xianyang og Keflavíkurflugvall-
ar í að nota flugvöllinn sem skipti-
stöð fyrir farþega- og fraktflug á milli
Xianyang og Norður-Ameríku. Í Xia-
nyang er einn stærsti flugvöllurinn í
Kína.
Efla frumkvöðlamenningu
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar,
eða Kadeco, er þróunarfélag sérhæft
í fasteignaþróun, verkefnum sem
auka samkeppnishæfni fyrirtækja á
Reykjanesi og verkefnum sem efla
frumkvöðlamenningu á Reykjanesi.
Félagið var stofnað árið 2006 í kjöl-
far þess að bandaríski herinn yfirgaf
varnarsvæðið á Keflavíkurflugvelli.
Félagið er í eigu ríkisins en tilgang-
ur þess er að koma varnarsvæðinu í
borgaraleg not, eins og það er orðað
á heimasíðu félagsins. „Við höfum
lagt áherslu á stuðning við minni
sprotafyrirtæki þar sem minna hef-
ur verið að gera í stærri verkefnum.
Það er töluvert af minni sprotafyrir-
tækjum hjá okkur,“ segir hann. n
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
„Þeir komu til okkar
á síðasta ári og
eru með hugmyndir um
rafrútur, jafnvel að setja
batteríin í hérna, eða
setja saman einhverja
hluta hér.
Stærstir í heimi
Fyrirtækið Yutong
Bus seldi 28 þúsund
rútur árið 2009.
STÓRHUGA
KÍNVERJAR