Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2012, Qupperneq 14
14 Erlent 11. apríl 2012 Miðvikudagur
Ráðherra vill lögleiða fíkniefni
n Áströlsk skýrsla gefur til kynna að baráttan gegn fíkniefnum sé töpuð
B
ob Carr, utanríkisráðherra
Ástralíu, telur að baráttan
gegn fíkniefnum sé töpuð.
Carr vill að lögum í landinu
verði breytt á þá leið að lítilsháttar
fíkniefnabrot verði ekki lengur refsi-
verð. Þessi orð lét Carr falla í kjölfar
útgáfu nýrrar skýrslu um fíkniefna-
notkun í landinu og hvaða leiðir
væru færar til að bregðast við vand-
anum. Niðurstöður voru á þá leið
að stríðið væri tapað og stjórnvöld
ættu að íhuga nýjar leiðir í baráttu
sinni.
Skiptar skoðanir eru um niður-
stöður skýrslunnar. Julia Gillard,
forsætisráðherra Ástralíu, vill að lög
verði hert til að fækka fíkniefnabrot-
um. „Fíkniefni drepa fólk og sundra
fjölskyldum. Lögreglan á að fá þau
úrræði sem þarf til að vinna bug á
þessum vanda,“ segir hún.
Carr, sem sjálfur missti bróður sinn
eftir að hann tók of stóran skammt af
heróíni, segir að með því að lögleiða
neyslu fíkniefna gæti lögregla ein-
beitt sér að stærri málum. „Með því
móti væri lögreglan ekki stanslaust
á hælum þeirra sem eru með eina e-
töflu í vasanum eða þeirra sem reykja
marijúana.“
Áður en Carr varð utanríkisráð-
herra var hann leiðtogi Verkamanna-
flokksins í Nýja Suður-Wales þar sem
hann gerði talsverðar breytingar á
fíkniefnalöggjöf fylkisins. Hann lög-
leiddi notkun marijúana og opnaði
miðstöð fyrir heróínfíkla þar sem þeir
gátu fengið sprautu sér að kostnaðar-
lausu.
„Rauði þráðurinn er sá að núna
er komin yfir 40 ára reynsla af banni
við fíkniefnum og það bann hefur
engu skilað,“ segir Michael Woold-
rige, fyrrverandi heilbrigðisráðherra
Ástralíu, um niðurstöðu skýrslunnar
sem framkvæmd var af samtökunum
Australia21.
T
ískuhönnuðurinn Karen
Millen segist skamm-
ast sín fyrir tískukeðjuna
Karen Millen. Keðjan, sem
Karen Millen stofnaði og
átti allt til ársins 2004 þegar hún
seldi Baugi Group hana, hefur hót-
að henni málsókn. Karen Millen
hyggur nefnilega á endurkomu
í tískuverslanabransann undir
nafninu Karen eða KM og það get-
ur keðjan sem ber nafn hennar
ekki sætt sig við að svo stöddu.
Gengur aldrei í Karen Millen-fötum
„Ég geng aldrei í fötum frá Kar-
en Millen,“ segir Karen Millen
í samtali við breska blaðið The
Guardian. „Mér finnst vörur fyrir-
tækisins hafa staðið nokkuð mikið
í stað og afkomutölurnar endur-
spegla það. Þó að ein og ein flík frá
þeim sé falleg, þá falla þær í skugg-
ann af því að meirihlutinn af lín-
unni er ekki nægilega góður. Karen
Millen er bara fatalína og hún end-
urspeglar mína sýn ekki á nokk-
urn hátt. Stundum finnst mér það
dálítið erfitt að ég hef enga stjórn
á því hvað þeir hanna. Stundum
getur það verið vandræðalegt.“
Gemma Metheringham, for-
stjóri tískukeðjunnar Karen
Millen, segist vera mjög undrandi
á ummælum Millen. „Jafnvel áður
en hún seldi fyrirtækið, þá held ég
að hún hafi verið búin að missa
áhuga á því. Auðvitað hefur línan
okkar breyst mikið og þróast síð-
an hún átti fyrirtækið og því ekkert
skrýtið að hún falli ekki að hennar
smekk núna.“
Metheringham hóf störf hjá
Karen Millen sem hönnunarstjóri
árið 1999, en það var Karen Millen
sjálf sem réð hana til starfa. Tveim-
ur árum síðar seldi hún helming-
inn í fyrirtækinu til Kaupþings og
árið 2004 missti hún meirihlutayf-
irráð í félaginu þegar Karen Millen
sameinaðist tískukeðjunni Oasis
undir nafninu Mosaic Fashions,
sem var í eigu Baugs Group. Þrátt
fyrir að hafa misst yfirráð yfir keðj-
unni hélt Millen áfram um 7 pró-
senta eignarhlut í félaginu og þá-
verandi eiginmaður hennar Kevin
Standord hélt um 3,75% hlut auk
þess sem hann átti um 8 prósenta
hlut í Baugi Group. Hrunið fór illa
með Baug, sem nú er gjaldþrota,
og Stanford tapaði miklu. Mosaic
Fashions er líka gjaldþrota og fá
kröfuhafar þess því lítið í sinn hlut,
en slitastjórn Kaupþings tók yfir
eignirnar. Millen segist nú hafa
verið blekkt og ætlar ekki að unna
sér hvíldar fyrr en hún eignast
tískukeðjuna Karen Millen aftur.
Móðir og stjúpmóðir
Karen Millen
Slitastjórn Kaupþings á 90 pró-
senta hlut í Karen Millen og hef-
ur orðrómur verið á kreiki um að
fyrirtækið verði senn selt. Mether-
ingham segir þó að það hafi aldrei
verið litið á það sem raunhæfan
möguleika að Karen Millen keypti
aftur fyrirtækið.
Fyrirtækið stefnir á að auka
sölu sína utan Bretlands um hálf-
an milljarð punda fyrir árið 2016.
Metheringham segist líta svo á
að hún sé eins konar stjúpmóðir
fyrirtækisins. „Ég sé hverja einustu
teikningu. Mér finnst það mjög
mikilvægt að hafa einhvern sem
heldur utan um allt.“
Ef Metheringham er stjúpmóðir
fyrirtækisins þá er Karen Millen
móðir fyrirtækisins. Eins og oft
vill verða eru móðir og stjúpmóðir
ósammála.
Karen Millen
skammast sín
n Segist hafa verið blekkt þegar hún seldi Íslendingum fyrirtækið„Ég geng aldrei í
fötum frá Karen
Millen.
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is
Karen Millen
Seldi fyrirtækið
Karen Millen
til íslenskra
fjárfesta. Eftir
mikið umrót
vill hún eignast
fyrirtækið aftur.
13 ára bjargaði
heilli rútu
Jeremy Wuitschick vann hetju-
dáð þegar hann stökk til og af-
stýrði stórslysi á skólarútu. Hann
varð þess var þegar ökumað-
ur rútunnar fékk hjartaáfall og
missti meðvitund á fullri ferð.
Wuitschick stökk á fætur og tókst
að koma í veg fyrir árekstur. Þetta
gerðist í Washington í Bandaríkj-
unum á mánudag en 12 voru í
rútunni þegar atvikið varð. Annar
nemandi hóf þegar í stað að veita
rútubílstjóranum hjartahnoð
eftir fremsta megni og sá þriðji
hringdi á neyðarlínuna. Engan af
nemendunum 12 sakaði en bíl-
stjórinn liggur þungt haldinn á
spítala. Atvikið náðist á mynd-
band og sýnir glöggt hve snör við-
brögð Wuitschick sýndi við þessar
aðstæður. „Ég hugsaði bara að ég
vildi ekki deyja,“ sagði strákurinn
við KING-TV.
Lögreglan hefur hrósað ung-
mennunum fyrir skjót og hárrétt
viðbrögð.
Romney vinnur
einn málaflokk
Mitt Romney, sem sækist eftir út-
nefningu Repúblikanaflokksins
til forseta Bandaríkjanna, þykir
líklegri en Obama til að ná tökum
á efnahag landsins. Samkvæmt
nýjustu könnunum er þetta eini
flokkurinn þar sem Romney sigrar
Obama. 47 prósent Bandaríkja-
manna telja að Romney geti leyst
efnahagsvandann en aðeins 43
prósent telja Obama færan um
slíkt. Í heilbrigðismálum, utanrík-
ismálum og kvenréttindum skorar
Obama mun hærra en Romney,
svo dæmi séu tekin.
Skoðanakannanir sýna að
Obama þykir viðkunnanlegri en
Romney.
Vildi drepa fleiri
Illmennið Anders Behring Breivik
segist harma að hafa ekki tekist
að drepa fleiri samlanda sína, að
því er verjandi hans, Geir Lippes-
tad, sagði í samtali við Aftenpost-
en. Hann sjái beinlínis eftir því að
hafa ekki gengið lengra í ódæðis-
verkum sínum. Réttarhöldin yfir
honum hefjast á mánudaginn í
næstu viku en þar mun Breivik
greina sjálfur frá málsatvikum.
Breivik var metinn sakhæfur af
sálfræðingum nýverið og hann ku
mjög ánægður með það. Hann er
sagður líta svo á að það hefði verið
niðurlægjandi fyrir hann ef hann
hefði verið metinn ósakhæfur.
Vill lögleiða fíknefni Bróðir Bobs lést eftir að hafa tekið of stóran skammt af heróini.
Bob telur að stríðið gegn fíkniefnum sé tapað.