Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2012, Page 16
Sandkorn
Þ
orsteinn Már Baldvinsson,
forstjóri útgerðarfyrirtækis
ins Samherja, beitti nýrri
tegund af efnahagsþving
unum í síðustu viku. Þá lét
hann þýskt dótturfyrirtæki Samherja
hætta viðskiptum við Ísland vegna
rannsóknar Seðlabanka Íslands á
meintum brotum fyrirtækisins á lög
um um gjaldeyrismál. Þýska félagið
mun meðal annars ekki landa úr
skipum sínum á Íslandi vegna þessa.
Til stóð að 3.500 tonn af slægðum
þorski frá fyrirtækinu yrðu unnin í
fiskvinnslu Samherja á Dalvík næstu
fjóra mánuðina.
Í máli Þorsteins í fjölmiðlum
hefur komið fram að Samherji muni
ekki endurskoða ákvörðun sína fyrr
en Seðlabankinn lætur af hendi
gögn um hin meintu sakarefni fyrir
tækisins sem til rannsóknar eru.
Vegna þessa verður íslenska hag
kerfið, meðal annars fiskvinnslan
á Dalvík, af fjármunum og vinnu
fyrir þýskt dótturfélag Samherja. 150
starfsmenn fiskvinnslunnar munu
því finna beint fyrir aðgerðinni;
ákvörðunin er „rothögg“ fyrir starfs
fólkið á Dalvík samkvæmt yfirverk
stjóra vinnslunnar.
Með þessari aðgerð hefur Sam
herji stillt Seðlabanka Íslands, sem er
opinber eftirlitsstofnun, upp við vegg
og í reynd sett honum afarkosti. Afar
fáir aðilar hér á landi, sem til rann
sóknar eru fyrir meint lögbrot, hafa
hingað til reynt að stilla rannsakend
um sínum upp við vegg með þessum
hætti. Útgerðarrisinn Samherji, ann
ar stærsti kvótaeigandi á Íslandi sem
einnig er með fjölþætta starfsemi er
lendis, hefur nú stigið þetta vafasama
skref. Með því hefur fyrirtækið mis
notað vald sitt og efnahagsstyrk.
Yfirleitt eru það þjóðríki, ekki
einkafyrirtæki eða einstakir lög
aðilar, sem beita önnur þjóðríki
efnahagsþvingunum. Frægasta
dæmið um slíkar efnahagsþvinganir
er líklega viðskiptabannið sem
Bandaríkin settu á Kúbu á sjöunda
áratugnum í kjölfar valdatöku Fidels
Castro í landinu. Nýlega kynnti
Barack Obama Bandaríkjaforseti
sömuleiðis harðari efnahags
þvinganir gegn Íran út af kjarnorku
áætlunum landsins. Nú hefur einka
fyrirtækið Samherji reynt að beita
ríkisstofnun, sem er hluti af þjóðrík
inu, sambærilegum efnahagsþving
unum og sum þjóðríki beita stund
um önnur.
Sannleikurinn er svo auðvitað
sá að Seðlabanki Íslands getur ekki,
þótt hann vildi, brugðist við þessum
efnahagsþvingunum með því að
láta Þorstein Má og Samherja fá
þær upplýsingar sem þeir vilja fá til
að fyrirtækið endurskoði ákvörðun
sína. Þá væri opinber eftirlitsaðili að
láta undan þvingunum einkaaðila
í máli sem er til rannsóknar vegna
meintra lögbrota. Sama hvort lög
brotin eru fyrir hendi eða ekki er
rannsóknin á þeim í gangi. Opinber
eftirlitsstofnun getur ekki búið til
fordæmi fyrir því að einkaaðili fái
sínu framgengt með slíkum hótun
um. Þvinganir Samherja gegn Seðla
banka Íslands eru því dæmdar til
að mistakast þar sem Seðlabankinn
getur ekki látið undan hótunum og
skapað þetta fordæmi.
Ímyndum okkur til dæmis fárán
leika þeirrar hugmyndar að Jón Ás
geir Jóhannesson hefði hótað því
að loka Bónusverslunum á völdum
stöðum á landinu, þegar Baugsmálið
stóð sem hæst, vegna einhverra
atriða í rannsókninni sem honum
mislíkaði. Nú eða ef Ólafur Ólafsson
hefði hótað því að segja upp starfs
fólki Samskipa og hætta flutningum
til og frá Íslandi vegna rannsóknar
sérstaks saksóknara á þætti hans
í alThani málinu. Samanburður
inn við þessi tvö dæmi sýnir hversu
grófar hótanir Þorsteins og Samherja
eru. Þetta er vanhugsuð aðgerð sem
beinist því í raun á endanum ein
göngu gegn verkafólkinu sem starfar
hjá Samherja. Tilgangur Þorsteins
og Samherja getur ekki hafa verið
sá. Starfsmenn Samherja munu hins
vegar væntanlega ekki skella skuld
inni af viðskiptabanninu á Þorstein
og Samherja heldur á Seðlabankann
og rannsókn hans.
Ég verð að viðurkenna að ég hef
hingað til haft talsvert álit á Þor
steini Má Baldvinssyni sem við
skiptamanni. Hann, ættingjar hans
og viðskiptafélagar þeirra hafa á
síðustu árum byggt upp eitt öflug
asta sjávarútvegsfyrirtæki á Íslandi
og í Evrópu. Þar að auki hefur Þor
steinn sjálfur ekki verið staðinn að
lögbrotum eða vafasömum gerning
um í sínum viðskiptum, svo ég viti
til, þrátt fyrir að hafa verið aðsóps
mikill í íslensku viðskiptalífi um
áratugaskeið. Hrunið hefur heldur
ekki kastað rýrð á hann þrátt fyrir
aðkomu hans að Glitni síðustu mán
uðina fyrir hrunið 2008.
En sú staðreynd að Þorsteinn
beitir slíkum þvingunaraðgerðum
gegn opinberri eftirlitsstofnun
til að fá sínu framgengt sýnir að
frekja hans og egó er komið fram
úr öllu hófi. Þorsteinn virðist hafa
glatað jarðtengingu sinni með
því að grípa til efnahagsþvingana
gegn opinberum aðila. Seðlabank
inn, og aðrir opinberir aðilar sem
þvinganir Samherja beinast að,
þurfa að standa í lappirnar gagn
vart útgerðar risanum. Annars yrði
til hættulegt fordæmi þar sem fjár
hagslegur styrkur getur haft áhrif
á þá grundvallarhugmynd að allir
eigi að vera jafnir fyrir lögunum.
Auðræðið yrði þá ofan á en ekki
lögræðið.
Bitur biskup
n Karl Sigurbjörnsson, bisk
up Íslands, var bitur og fór
mikinn í síðustu páskahug
vekju sinni þar sem hann
fullyrti að fermingarbörn
hefðu orðið fyrir grófu að
kasti fyrir að staðfesta skírn
sína. Karl taldi að Þjóðkirkj
an hefði staðið af sér það
sem hann túlkar sem árásir.
Samt liggur fyrir að stór hluti
fólks hefur sagt sig úr Þjóð
kirkjunni og meðlimir eru
í sögulegu lágmarki. Karl
sjálfur er á förum en ógöng
urnar eru ekki síst raktar til
framgöngu hans í embætti.
Vinsæl Þóra
n Þóra Arnórsdóttir fjöl
miðlakona nýtur mikilla
vinsælda sem forsetafram
bjóðandi og
fylkir fólk
sér að baki
henni. Með
al þeirra sem
vildu ólmir
vera með
mælendur
hennar eru Önfirðingar.
Þær vinsældir má rekja til
þess að Þóra og eiginmaður
hennar, Svavar Halldórsson,
sáu um rekstur gistiheimilis
á Kirkjubóli í Öndunarfirði
síðasta sumar og unnu þá
hug og hjörtu heimamanna.
Hrollur í Ólafi
n Sú bylgja fylgis sem risið
hefur með Þóru Arnórsdóttur
er sögð vekja hroll í herbúð
um Ólafs Ragnars Grímsson-
ar, forseta
Íslands,
sem gefur
kost á sér
til að sitja
hluta næsta
kjörtíma
bils og vill
þjóna þjóð sinni launalaust.
Helstu stuðningsmenn Ólafs
Ragnars er að finna í röðum
öfgamanna á hægri kant
inum og þeirra sem aðhyll
ast harða þjóðernishyggju.
Þannig hefur orðið umpól
un í fylgi hans sem áður var
á vinstri kantinum. Speking
ar Ólafs velta nú fyrir sér út
spili sem tryggi endurkjör.
Lambinu úthýst
n Lengi hefur verið umdeilt
að íslenska lambakjötið
er niðurgreitt með bein
greiðslum og selt á slikk
í útlöndum. Þetta benti
Guðni Ölversson í Noregi á
og þakkaði almenningi á Ís
landi fyrir að páskalambið
á borði hans var hræódýrt.
Önnur skondin hlið á rugl
inu er sú að í sjálfri Bænda
höllinni er rekinn sá vin
sæli veitingastaður Grillið.
Gesti þar rak í rogastans
fyrir páska þegar þeir vildu
fá lambakjöt en fengu ekki.
Þjónninn sagði að það væri
ekki í boði þessa dagana.
Ég bara
datt niður
Hún knúsar
og kelar
Margrét Dagmar Ericsdóttir um leikkonuna Kate Winslet. – DV
Þvinganir Þorsteins
Leiðari
Ingi Freyr
Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Allir forsetans menn
Þ
au undur og stórmerki hafa
gerst að óvígur her kvenna og
karla gerir nú atlögu að Bessa
stöðum í því skyni að ná undir
sig forsetaembættinu. Og þetta eru
ekki bara hefðbundnir rugludallar
með sjónarspil til að vekja á sér at
hygli um stund. Nei, nú eru komnir
fram á sjónarsviðið sterkir kandídatar
sem eru til alls líklegir. Forseti Ís
lands, Ólafur Ragnar Grímsson, er í
fallhættu í fyrsta sinn á sínum ferli.
Svarthöfði er dæmigerður bolur
sem á sínum tíma barðist gegn kjafti
og klóm gegn því að Ólafur Ragnar
yrði kosinn sem forseti Íslands.
Frambjóðandinn átti á þeim tíma að
baki fortíð sem framsóknarmaður
og síðar gallharður kommúnisti sem
sigldi undir fána Alþýðubandalags
ins. Ólafur náði fljótt þeim áfanga
að verða formaður í flokki sínum
og ráðherra. Sem slíkur stóð hann
fyrir nauðsynlegri einkavæðingu
á útgerðar fyrirtæki sem þóknan
legir menn fengu afhent. Ólafur var
óvenjusnarpur og grimmur fjármála
ráðherra sem á meðal þjóðarinnar
fékk nafnið Skattmann. Var þar vísað
til ofurmennisins Súpermanns sem
gat flogið og hvaðeina. Þegar fjaraði
undan Ólafi í landsmálunum lagði
hann undir sig forsetaembættið þrátt
fyrir áköf mótmæli Svarthöfða og
annarra hægrimanna á kanti öfg
anna.
Nú eru liðin mörg ár. Ólafur hef
ur ýmist verið elskaður hástöfum
af þjóð sinni eða fyrirlitinn. Hann
var um tíma farþegi í einkaþotum
auðmanna útrásarinnar. Og á milli
lúxus ferðanna hengdi hann fálka
orður á ýmsa þá sem nú eru álitnir
þrjótar. Helstu skjólstæðingar for
setans á Bessastöðum voru þeir vík
ingar sem lögðu undir sig fjármála
kerfi heimsins. Þetta voru mennirnir
sem forsetinn lýsti sem svo að hefðu
borðið hróður þjóðar sinnar víða.
Allt lék í lyndi á Bessastöðum en svo
kom hrunið.
Forsetinn ástsæli var í miklum
vanda. Útrásarvíkingarnir voru
taldir helstu sökudólgar þess að illa
fór á Íslandi. Forsetinn brá skjótt
við og hann afneitaði vinum sínum.
Hann fór um landið með áætlunar
flugi eða á fábrotnum farartækjum
og fundaði með fátæku fólki. Hann
fordæmdi þá sem voru örlagavaldar
í hruninu. Svo var samið um Icesave
og forsetinn sagði nei. „Við borgum
ekki skuldir óreiðumanna í útlönd
um,“ hafði helsti fjandmaður for
setans sagt. Ólafur tók undir með
honum og rifti með þjóðaratkvæða
greiðslu óhæfusamningi ríkisstjórn
arinnar. Svarthöfði táraðist af gleði
og gekk þegar í raðir stuðnings
manna forsetans.
Og nú er þetta þannig að minni
pokafólk sem aldrei hefur unnið
þjóð sinni gagn vill byltingu á Bessa
stöðum. Svarthöfði mun mynda
skjaldborg á hægri vængnum til að
koma í veg fyrir það óhæfuverk að
forsetinn verði felldur. Allir menn
forsetans munu standa saman í að
verja Ísland fyrir lágkúrunni.
Svarthöfði
Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Lilja Skaftadóttir Ritstjórar: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) og Reynir Traustason (rt@dv.is) Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is)
Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Umsjón innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri: Stefán T. Sigurðsson (sts@dv.is)
Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Hönnunarstjóri: Jón Ingi Stefánsson (joningi@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: DV.is
F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð
Heimilisfang
Tryggvagötu 11
Hafnarhvoli, 2. hæð
101 Reykjavík
FRéTTASkoT
512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
AÐALnúmeR
RiTSTJÓRn
ÁSkRiFTARSími
AuGLýSinGAR
16 11. apríl 2012 Miðvikudagur
„Ákæruvald og
eftirlitsaðilar geta
ekki látið hótanir um
efnahagsþvinganir hafa
áhrif á rannsóknir sínar.
Kristján Jón Pálsson fékk hjartaáfall 16 ára. – DV