Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2012, Qupperneq 17
Dómstóll götunnar
Svo hófust hræðilegustu
klukkutímar lífs míns
Því má vera
illa við mig
Ég hreinlega
hataði karlmenn
Jóna Margrét Ólafsdóttir kleif Hvannadalshnjúk í sinni fyrstu fjallgöngu. – DVValgerður Bjarnadóttir vill ekki láta vorkenna sér. – DV Berglind Þórsdóttir segir lífið hafa hrunið eftir nauðgun. – DV
Harmageddon í Bolungarvík
„Ég er ekki búin að taka
ákvörðun.“
Ásgerður Hildur Ingibergsdóttir
36 ára vinnur á tannlæknastofu
„Ég á eftir að ákveða mig.“
Páll Heiðar Jónsson
20 ára námsmaður
„Mér líst best á Þóru í augna-
blikinu.“
Halla Gunnarsdóttir
20 ára nemi
„Ég ætla að mæta á staðinn og
ekki kjósa neinn. Ég vil ekki hafa
forseta.“
Brynja Óskarsdóttir
62 ára félagsráðgjafi
„Já, ég er búin að ákveða það.“
Þóra Arnfinnsdóttir
68 ára hjúkrunarfræðingur á ellilífeyri
Hvern ætlar þú
að kjósa sem
forseta?
B
æjarráð Bolungarvíkur sendi
frá sér harðorða ályktun í vik
unni á móti kvótafrumvarpi
ríkisstjórnarinnar. Frumvarpið
hefði kostað, samkvæmt útreikning
um bæjarráðsins, útgerðina í Bol
ungarvík 500 m.kr. árið 2011. Það er
dágóð upphæð og hljómar vissulega
eins og allt sé á leiðinni til helvítis
komist þetta frumvarp ríkisstjórnar
innar á koppinn. Undir þetta tekur
formaður Sambands íslenskra sveit
arfélaga sem ríður nú um héruð og
boðar harmageddon.
Frumvarpið er í rauninni arfa
slappt – þar er ég sammála bæjar
ráðinu og formanni Sambandsins.
Á meðan rök bæjarráðsins eru þau
að þetta kosti of mikið þá er fallein
kunnin í mínum huga sú að frum
varpið færir útgerðarmönnum í
rauninni auðlindina á silfurfati og
staðfestir þar með óréttlætið með
lögum. Hversu mikið útgerðin þarf
að borga fyrir afnot af auðlindinni
er í raun auka atriði og hver heilvita
maður sér að það verður aldrei meira
en útgerðin þolir. En ég ætla ekki að
fjalla um það. Það er kominn tími til
að tala um peningana og útgerðina
og hvað þessi svokallaða ekki ríkis
styrkta atvinnugrein hefur kostað Ís
lendinga, ekki síst í Bolungarvík.
Peningarnir í vasa örfárra
Árið 2011 var um 13.000 tonnum af
fiski landað í Bolungarvík. Verðmæti
þessa afla er um 3 til 3,5 milljarðar
– óunnið. Þegar búið er að vinna
aflann erum við að tala um 8 millj
arða. Svona hefur þetta verið í áratugi
– þó vissulega sé árið 2011 með þeim
bestu síðustu 2 áratugina. Peningarn
ir hreinlega flæða um Brjótinn. Þrátt
fyrir þetta hefur ekki verið malbikuð
gata í Bolungarvík um langt árabil.
Viðhald félagsheimilisins var bæjar
sjóði nær ofviða og skuldir hafa sligað
sveitar félagið svo lengi sem elstu
menn muna. Peningarnir fara rakleitt
í gegnum gatið á fjallinu og þaðan í
vasa örfárra. Svona er þetta hringinn
í kringum landið – þ.e. þar sem enn
má veiða fisk og ekki er búið að selja
kvótann í burtu.
Skuldir og tómir kassar
En hvernig hefur þetta verið hjá
sjávar útvegsfyrirtækjunum í Vík
inni? Peningarnir, sem hið opinbera
hefur varið svo útgerðin og fyrirtæki
hennar megi dafna, eru umtals
verðir – svo ekki sé minnst á allar
gengisfellingarnar. Þannig lagði hið
opinbera (sveitarfélagið þar með
talið) yfir 100 m.kr. í að dýpka höfn
ina svo loðnubræðslan gæti haldið
áfram. Allir vissu að það var óraun
hæf framkvæmd enda kom á daginn
að ekkert loðnuskip hefur landað
frá því að þetta var gert (meira en
áratugur liðinn). Fyrirtækið hefur
að auki fengið afskrifuð hafnargjöld,
fasteignagjöld o.fl.
Bæjarsjóður byggði vatnsveitu
á sama tíma fyrir rækjuvinnsluna í
bænum. Framkvæmdin kostaði tugi
milljóna og kemur aldrei til með að
borga sig. Rækjuvinnslan lék klass
ískan leik sambærilegra fyrirtækja:
Rekstrinum skipt í nokkur félög hvar
eitt safnaði skuldum á meðan eig
endurnir tryggðu afkomu sína í öðr
um félögum. Ekki ólíkt því sem Sam
herji gerir með þýska félaginu sem
núna heldur Dalvíkurbyggð í heljar
greipum. Í dag er engin rækjuvinnsla
eða loðnuvinnsla í Bolungavík – bara
skuldir og tómir kassar sem grotna
niður engum til góða.
Tugmilljarða afskriftir
Loks er það loftbóluvitleysan frá því
að litla kvótakerfinu var komið á.
Fjöldi harðduglegra sjómanna seldi
kvóta og gerðist milljóna og jafn
vel milljarðamæringar. Þeir inn
leystu ósýnilegan hagnað og settu
í óskyldan rekstur. Sumir þessara
aðila héldu áfram útgerð og léku
þann leik að stofna mörg félög hvar
peningarnir flæddu en skuldirnar
hlóðust jafnframt upp. Afskriftir
vegna þessara félaga nú eftir hrun
eru gríðarlegar. Þær sjást ekki bara
með því að skoða afskriftir sjávarút
vegsfyrirtækja – það eru mörg önnur
félög í eigu útgerðarmanna sem töp
uðu ógrynni fjár. Afskriftir sjávarút
vegsfyrirtækja og eigenda þeirra í
Bolungarvík hlaupa á tugmilljörð
um eftir hrun.
Það væri ekki úr vegi fyrir bæjar
ráð Bolungarvíkur að hugsa hvernig
í ósköpunum stendur á því að 8
milljarða árlegt aflaverðmæti virð
ist ekki nema að litlu leyti enda í
vösum þeirra sem veiða og verka
aflann, leggja til og viðhalda höfn
inni hvar aflanum er landað. Það er
undarlegt að bæjarráðið verji kerfi
sem er skrúfað þannig saman að
holurnar í götunum stækka, bygg
ingar grotna niður og aflaheimild
irnar verði hugsanlega allar seldar
Samherja, Brimi eða Ísfélaginu á
morgun eða hinn.
„Peningarnir
fara rakleitt
í gegnum gatið á
fjallinu og þaðan í
vasa örfárra
Vorið væntanlegt Gæsirnar í Grasagarðinum í Reykjavík taka vorinu jafn fagnandi og við mennirnir og svo virðist sem ein þeirra hafi viljað slást í för með mannfólkinu.
Mynd: Eyþór ÁrnaSonMyndin
Umræða 17Miðvikudagur 11. apríl 2012
Aðsent
Grímur Atlason
Fyrrverandi bæjarstjóri í Bolungarvík
1 Gott kynlíf þrátt fyrir spik og skalla Kynlífsfræðingur segir að gæði
og magn kynlífs fari ekki dalandi með
aldrinum.
2 Framdi sjálfsmorð eftir net-einelti Þýska fyrirsætan Claudia
Boerner er talin hafa framið sjálfsmorð
eftir hrottalegt internet-einelti.
3 „Þetta hefur verið litað af kvenhatri frá upphafi“ Leik-
konan Ashley Judd lætur konur, karla
og fjölmiðla heyra það í pistli.
4 Kate Winslet á Íslandi Skellti sér á Hvannadalshnjúk ásamt Margréti
Dagmar Ericsdóttur um páskana.
5 Hver er réttur stjúpforeldra? Elísabet Sóley Stefánsdóttir á engan
lagalegan rétt gagnvart stjúpdóttur
sinni sem hún tók þátt í að ala upp.
6 Kona kærir nauðgun á Ísafirði Kona á Ísafirði kærði nauðgun sem
átti sér stað í heimahúsi í bænum
aðfaranótt páskadags.
7 Þóra búin að stofna kosningasjóð Þóra Arnórsdóttir
forsetaframbjóðandi hefur stofnað
sjóð fyrir komandi baráttu.
Mest lesið á DV.is