Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2012, Síða 18
E
ld
sn
ey
ti Bensín Dísilolía
Algengt verð 268,3 kr. 265,3 kr.
Algengt verð 268,1 kr. 265,2 kr.
Höfuðborgarsv. 268,0 kr. 265,0 kr.
Algengt verð 268,3 kr. 265,3 kr.
Algengt verð 269,9 kr. 265,3 kr.
Melabraut 268,1 kr. 265,2 kr.
18 Neytendur 11. apríl 2012 Miðvikudagur
Glaðlegt
viðmót
n Lofið að þessu sinn fær Te
og Kaffi í Austurstræti
en viðskiptavinur vill
fá að lofa kaffistaðinn
fyrir góða þjónustu og
glaðlegt viðmót.
Skjárinn
dæmdur
ónýtur
n Lastið fær Nýherji en DV fékk eft
irfarandi sent: „Tölvuskjár móður
minnar gafst upp og fór hún með
hann í viðgerð hjá Nýherja þar sem
hann var keyptur. Eftir nokkurra
vikna bið fékk hún símtal þar sem
henni var tjáð að viðgerð á skjánum
kostaði 40.000 krónur en upphaf
lega kostaði hann í kringum 25.000
krónur þegar hún keypti hann
fyrir nokkru. Henni var sagt að það
væru tveir möguleikar í stöðunni;
Nýherji mundi taka skjáinn aftur
eða hún mundi borga 5.800 krónur
í skoðunargjald og gæti tekið hann
með sér. Þegar hún kom heim með
hann ákvað ég að skoða þetta og
tók hann í sundur. Þá sá ég að hann
hafði aldrei verið opnaður þar sem
snúrur í honum innanverðum voru
enn límdar með upphaflegu lím
bandi. Ég gerði við hann sjálfur fyrir
um það bil 400 krónur.“
n DV hafði samband við Nýherja
sem gaf eftirfarandi svar: „Einn af
okkar reyndustu tæknimönnum
fær það verkefni að bilanagreina
skjáinn og kemur í ljós að skjárinn
slekkur á sér eftir nokkra stund.
Hann opnar skjáinn og sér að stýr
ing fyrir lýsingu er biluð. Daginn
eftir að komið er með skjáinn lætur
hann eiganda vita að viðgerð borgi
sig ekki og spyr hvort farga eigi
skjánum. Eigandi sækir skjáinn og
lætur vita stuttu síðar að tekist hafi
að lagfæra skjáinn þrátt fyrir allt.
Þá er skoðunargjaldið umsvifalaust
endurgreitt enda um ranga bilana
greiningu að ræða. Það er harmað
að bilanagreining eins
okkar besta tækni
manns reyndist ekki
rétt í þessu tilfelli. Því
að um tafir og vinnu
svik sé að ræða er
mótmælt. Vonandi endist
viðgerð sonarins vel og að
eigandinn eigi eftir að njóta
tölvuskjásins vel og lengi.“
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
Lof&Last
L
ífskorn, Heilkornabrauð, Heil
kornakubbur og Heilkorna
flatkökur eru dæmi um heil
kornabrauðmeti sem selt er
í búðum í dag. Það er trefja
ríkara og kolvetnasnauðara en
annað brauð sem selt er í verslun
um. Þær raddir sem hvetja til meiri
neyslu á heilkornavörum verða sífellt
háværari. Svo virðist vera sem fram
leiðendur séu farnir að taka það til
sín því nú sjást æ fleiri brauðtegund
ir og önnur matvæli sem sögð eru
heilkornamatvara á markaðnum. DV
hefur fjallað um hollustu slíkra mat
væla og greindi frá því fyrir skömmu
að með því að neyta þeirra dragir þú
úr líkum á að fá hjarta og æðasjúk
dóma, sykursýki II og sumar tegund
ir krabbameina. Auk þess bætir þú
meltinguna og það hjálpar til við að
halda æskilegri líkamsþyngd.
Næringarfræðingur gefur ráð
Ekki eru gefnar út magnbundnar
ráðleggingar um heilkorn í mat
vælum hér á landi, ólíkt því sem er
í Danmörku en þar gilda strangar
reglur um hvað megi teljast til heil
kornamatvæla og eftirlit haft með
því. Hér þurfa neytendur því að lesa
innihaldslýsingu og næringaryfir
lit til að átta sig á magni heilkorns,
sykurs, salts, trefja og fitu í vörunum.
Það getur vafist fyrir mörgum og því
hefur DV tekið saman upplýsingar
um innihald nokkurra brauðtegunda
og næringargildi þeirra. Blaðamað
ur fékk góða aðstoð Elísabetar Mar
geirsdóttur, næringarfræðings og
stofnanda Betu næringarráðgjafar,
en Elísabet skoðaði innihald hverrar
tegundar og leiðbeinir hér lesendum
um hollustu eða óhollustu þeirra.
Hún mælir með því að fólk skoði
hvaða mjöltegundir eru efst á inni
haldslýsingum. Það sé mest af því
sem er fremst og minnst af því sem
er aftast. „Ef það stendur heilt hveiti,
heilmalað hveiti, heilhveitikorn eða
heilmalaður rúgur framarlega í inni
haldslýsingu þá er um trefjaríkara
brauð að ræða.“
Heilkornabrauðin eru langbest
n Næringarfræðingur ber hér saman nokkrar tegundir brauða
„Ef það stendur
heilt hveiti, heil-
malað hveiti, heilhveiti-
korn eða heilmalaður
rúgur framarlega í inni-
haldslýsingu þá er um
trefjaríkara brauð að
ræða.
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Lífskorn frá Myllunni
Elísabet: „Lífskornið inniheldur meira af rúgmjöli en hveiti og er þar af leiðandi ólíkt öðrum
hefðbundnum samlokubrauðum. Það er nokkuð trefjaríkt og mun trefjaríkara en flest önnur
brauð sem fást í stórmörkuðum. Tvær brauðsneiðar innihalda um 198 hitaeiningar, 6,3
grömm af trefjum og 9,9 grömm af próteinum.“
Næringargildi Næringargildi í
í 100 gr. einni sneið
Orka (kkal) 220 99,0
Prótein (g) 11 4,95
Kolvetni (g) 37 16,65
Viðb. sykur (g) 0 0,0
Fita (g) 3 1,35
Mettuð (g) 0 0,0
Trefjar (g) 7 3,15
Natríum (mg) 490 220,5
Innihald: Vatn, heilmalaður rúgur (25%), heilhveiti (13%), hveiti, hveitiglútein, þurrkað
súrdeig úr rúgi, kurlað hveitikorn (2%), rúgsigtimjöl, ger, repjuolía, salt, maltextrakt úr hveiti,
bindiefni, (E415, E471, E472e), sýrustillir (E262), askorbinsýra. Samtals 40% af heildarþyngd
vöru eru heilkorn, 75% af heildarþyngd mjöls.