Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2012, Blaðsíða 25
F
ranski miðjumaður-
inn Hatem Ben Arfa
hefur verið í frábæru
formi fyrir Newcastle í
ensku úrvalsdeildinni
að undanförnu. Mark hans
gegn Bolton um helgina sýndi
hæfileika hans svo um mun-
aði. Gríðarlega góð móttaka á
bolta, hraði, hraðabreytingar,
jafnvægi og yfirvegun í að klára
færi. Klárlega eitt af mörkum
ársins. Lengi hefur verið vitað
af hæfileikum Bens Arfa þótt
hann hafi aldrei náð að full-
nýta þá. Fíflagangur hans og
leiðindi hafa gert honum erf-
itt fyrir en hann hefur nú þeg-
ar brennt tvær risastórar brýr
að baki sér í Frakklandi. Alan
Pardew, stjóri Newcastle, virð-
ist þó geta haldið rétt á spilun-
um hvað varðar Ben Arfa og á
meðan hann gerir það eru nær
engin takmörk fyrir því hvað
þessi 25 ára gamli Frakki getur
gert.
„Lyon ekki stórlið“
Ben Arfa lék með nokkrum
barna- og unglingaliðum áður
en stórlið Lyon fékk hann til sín
fimmtán ára gamlan árið 2002.
Hann braust inn í aðalliðið
tveimur árum síðar og spilaði
með Lyon til ársins 2008. Það
voru þó stormasamir tímar,
sér í lagi undir lokin. Ben Arfa
var orðinn ansi góður með sig
og þoldi ekki að Karim Ben-
zema, framherji Real Madrid í
dag, rændi frá honum athygl-
inni. Þeir urðu mikli óvinir
og lét Alain Perrin, þáverandi
þjálfari Lyon, hafa þessi orð
eftir sér: „Ég myndi ekki segja
að þeir færu út að borða sem
bestu vinir.“
Þegar svo virtist sem allt
væri fallið í ljúfa löð í herbúð-
um Lyon og Ben Arfa meira
að segja búinn að skrifa undir
nýjan samning fór allt í háa-
loft. Ben Arfa lenti saman við
Sebastien Squillaci, núver-
andi leikmann Arsenal, á æf-
ingu og þýddi það endalok
Frakkans hjá Lyon. Þrátt fyrir
áhuga margra liða ákvað Ben
Arfa ekki að færa sig úr frönsku
deildinni og samdi við Mar-
seille. Eftir að hann skrifaði
undir sagði hann við staðar-
blað í Marseille að Lyon „skorti
fágun og væri ekki stórlið“. Eitt-
hvað sem Lyon-menn tóku
ekki vel. Ein brú brennd þar.
Strax í slag í Marseille
Ben Arfa var búinn að æfa með
Marseille í innan við mánuð
þegar vandræðin hófust þar.
Hann lenti í slag við Djibril
Cisse, núverandi framherja
QPR, á æfingu. Það var þó ljóst
í hugum manna hjá Marseille
að Ben Arfa væri framtíðin og
var Cisse því lánaður til Sun-
derland um leið. Ben Arfa spil-
aði vel fyrir Marseille en alltaf
voru einhver vandræði í kring-
um hann. Hann lenti aftur í
átökum við liðsfélaga við upp-
hitun fyrir leik og neitaði svo
að koma inn á sem varamað-
ur í öðrum leik. Hann var svo
sektaður um 10.000 pund fyrir
að mæta ekki á fyrstu æfingu
liðsins undir stjórn Didiers
Deschamps. Ben Arfa spilaði
þó aldrei betur en undir stjórn
Deschamps.
Sumarið 2010 var Ben Arfa
ákveðinn í að fara og tók því
upp á sama bragði og hann
hafði gert hjá Lyon. Hann
mætti ekki til æfinga hjá Mar-
seille og neitaði þar að ræða
við nokkurn mann. Hann var
ákveðinn í að fara til Newcastle
og flaug meira að segja í leyfis-
leysi til Bretlands í von um
að liðin myndu ná að semja
um kaupverð. Það tókst ekki í
fyrsta skipti en eftir stutta veru
í Frakklandi gekk samning-
urinn í gegn. Newcastle fékk
hann á láni út tímabilið í fyrra
og hafði forkaupsrétt á honum
fyrir yfirstandandi tímabil.
Má gera það sem hann vill
Frakkinn fór vel af stað með
Newcastle en var óheppinn að
fótbrotna eftir aðeins nokkra
leiki. Þrátt fyrir meiðslin og
sögur af eilífum vandræðum
ákváðu Newcastle-menn strax
í janúar í fyrra að tryggja sér
þjónustu Bens Arfa til fram-
búðar. Arfa hefur heldur betur
launað Newcastle það traust
með góðri frammistöðu og
hefur hingað til hagað sér eins
og maður. Hann er nú búinn
að skora fimm mörk í síðustu
tólf leikjum, þar á meðal með
frábæru einstaklingsframtaki
gegn Arsenal, Blackburn, WBA
og Bolton.
Eftir markið stórkostlega
gegn Bolton var Alan Pardew,
stjóri Newcastle, spurður út í
Ben Arfa. Hann segir leynd-
armálið með strákinn vera að
leyfa honum að gera það sem
hann vill úti á vellinum. „Ég er
ekkert að leiðbeina honum of
mikið í sókninni. Hann verð-
ur bara að fá að vera í sínum
eigin heimi. Hann stjórnar
heiminum þegar hann er með
boltann en ég þarf að stjórna
þegar hann er ekki með hann.
Við höfum virkilega einbeitt
okkur að því að gefa honum
frjálsræði þegar hann er með
boltann og leyfum honum al-
veg að skapa það sem hann
vill.“
Sport 25Miðvikudagur 11. apríl 2012
Hræddir
við Barein
Þrátt fyrir miklar áhyggjur
Formúlu-liðanna vegna
ástandsins í furstadæm-
inu Barein stendur enn til
að næsta keppni fari þar
fram um helgina. Liðstjóri
einn úr Formúlunni tjáði sig
nafnlaust í mánudagsútgáfu
blaðsins The Guardian þar
sem hann sagði: „Mér líður
mjög illa með að vera fara
til Barein. Ef ég á að vera
alveg hreinskilinn vonast
ég svo sannarlega til að það
verði hætt við mótið eins og
í fyrra.“ Mikil ólga er í land-
inu og gæti farið svo að her-
inn lokaði öllum götum og
svæðum í kringum Form-
úlu-brautina til þess eins að
keppnin geti farið fram.
Stutt stopp hjá
Mertesacker
Þýski miðvörðurinn Per
Mertesacker sem kom til
Arsenal á lokadegi félaga-
skiptagluggans í ágúst síðast-
liðnum hefur engan veginn
staðið undir væntingum.
Hann meiddist svo í febrúar
og hefur Arsenal unnið sex af
sjö leikjum sínum síðan þá.
Nú segja breskir miðlar að
Mertesacker sé á útleið strax
í sumar en það sé undir því
komið að Wenger rífi upp
veskið og kaupi Jan Verton-
ghen frá Ajax. Mertesacker
kostaði Arsenal 8 milljónir
punda en Vertonghen sem
er afar eftirsóttur gæti kostað
Arsenal í það minnsta tvö-
falda þá upphæð.
Ekki búið enn
Manchester City er búið
að koma sér í nær ómögu-
lega stöðu hvað varðar titil-
baráttuna í ensku úrvals-
deildinni með því að hleypa
Manchester United átta
stigum fram úr sér þegar að-
eins sex leikir eru eftir. Þær
400 milljónir punda sem
Mansour sjeik hefur fjár-
fest í liðinu virðast ekki ætla
að skila meistaratitli þetta
tímabilið en James Milner,
miðjumaður liðsins, segir
þolinmæði vera dyggð. „Við
þurfum bara að vera þolin-
móðir. Við erum að læra og
það er það mikilvægasta í
þessu. United hefur verið
að vinna titlana frá stofnun
úrvalsdeildarinnar og kann
þetta utanbókar. Við erum
með ungt lið og eigum eftir
að upplifa þetta sem lið,“
segir Milner.
Hatem Ben Arfa
Newcastle
Þjóðerni: Franskur Uppruni: Túnis
Fæddur: 7. mars 1987 (25 ára)
Ferill:
Lyon: 87 leikir og 11 mörk
Marseille: 91 leikir og 15 mörk
Newcastle: 29 leikir og 7 mörk
Frakkland: 8 leikir og 2 mörk
Titlar:
Franskur meistari:
n 4 Lyon (2004–05, 2005–
06, 2006–07, 2007–08 )
n 1 Marseille (2009/2010)
Franskur bikarmeistari:
n 1 Lyon (2008)
Verðlaun:
Ungi leikmaður ársins í Frakk-
landi 2007/2008
AlAn pArdew
kAnn á Ben ArfA
n Hatem Ben Arfa farið á kostum í ensku úrvalsdeildinni að undanförnu
Fer á kostum
Ben Arfa er búinn
að vera magnaður
hjá Newcastle að
undanförnu.
Tómas Þór Þórðarson
blaðamaður skrifar tomas@dv.is
Til vandræða Ben Arfa fór til
Newcastle án leyfis.
Stakk Lyon í bakið Sagði klúbbinn skorta fágun.