Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2012, Blaðsíða 26
26 Fólk 11. apríl 2012 Miðvikudagur
Egill gleymdi hvar hann faldi eggin
n Páskaeggjaleit Egils Helgasonar og Sigurveigar Káradóttur tók langan tíma
H
jónin Egill Helgason og
Sigurveig Káradóttir eru
miklir matgæðingar og
fóru ekki varhluta af því
að fagna páskum með páska-
eggjaáti eins og flestir lands-
menn.
Á heimili þeirra fór fram
páskaeggjaleit sem er ekki í frá-
sögur færandi nema fyrir þær
sakir að Egill steingleymdi hvar
hann hafði falið egg Sigurveig-
ar og var leitin því fremur erfið.
Þá sagði Egill frá því á Facebook-
síðu sinni að sonur hans væri
ófundvís á súkkulaðið.
„Hér fer fram páskaeggja-
leit, en Kári er einn ófundvís-
asti maður á jörðinni. En faðir
hans gleymdi hvar hann hafði
falið annað páskaeggið, það var
páskaegg móðurinnar. Það jaðr-
ar við elliglöp,“ segir Egill frá og
konan hans segir leitina hafa
verið mikla þolraun og í reynd
hafi hana grunað að Egill hafi
alls ekki gleymt að fela eggið
heldur hefði borðað það. „Lág-
mark að muna hvar maður fel-
ur eggin. Hélt á tímabili að þú
hefðir borðað mitt og værir í
vanda staddur,“ sagði Sigurveig
létt í bragði í athugasemd við
færsluna. „Hann hélt áfram að
segja „heitt, heitt“ en ég var búin
að leita á öllum stöðum í her-
berginu, nema inni í honum. Þá
heyrðist: „Heyrðu, ég var bara
að hugsa um að fela það þarna.
Það er annars staðar.“
Leitin fór þó vel og eggin
fundust öll að lokum.
Orðin móðir
Fréttakonan skeleggja María
Sigrún Hilmarsdóttir er
orðin móðir. Hún eignaðist
heilbrigðan dreng rétt eftir
miðnætti 10. apríl. Tveimur
dögum áður, sunnudaginn
8. apríl gerði María Sigrún
sér lítið fyrir og las kvöld-
fréttirnar í Sjónvarpinu en
hún hafði tekið sér frí frá
fréttunum sjálfum en var
enn að sinna starfi sínu sem
fréttaþulur. Eiginmaður
Maríu Sigrúnar er Pétur
Árni Jónsson, útgáfustjóri
Viðskiptablaðsins, en þau
giftu sig í fyrrasumar. Þetta
er fyrsta barn þeirra hjóna.
Skemmti sér
á Íslandi
Ísdrottningin Ásdís Rán
naut þess að eyða páskafrí-
inu á Íslandi en hún hefur
verið búsett í Búlgaríu und-
anfarið. Ásdís, sem nýlega
varð einhleyp, kíkti út á
lífið með vinkonum sínum
yfir páskahátíðina og sást
til hennar víða um bæinn,
meðal annars á veitinga-
staðnum Sushi Samba.
Einnig sást hún í félags-
skap stjörnulögfræðingsins
Sveins Andra Sveinssonar
en þau munu vera ágætis
vinir.
Ástfangin?
Söngkonan Anna Mjöll
virðist vera að jafna sig
eftir skilnaðinn við aldr-
aða milljarðamæringinn
Cal Worthington. Anna var
spurð í viðtalið við Lífið,
fylgirit Fréttablaðsins, hvort
hún héldi: „… að hún gæti
orðið ástfangin á ný.“ Anna
kvað svo vera og sagði: „…
verður maður ekki alltaf ást-
fanginn á ný. Ég held ég sé
orðin það nú þegar“ og má
því leiða líkur að því að það
sé einhver sérstakur í lífi
hennar.
B
andaríska leikkonan
Kate Winslet var í fríi
á Íslandi um páskana
með kærasta sínum
Ned Rocknroll og
börnum sínum tveimur, Miu
og Joe.
Kate var hér á landi vegna
vináttu sinnar við Margréti
Dagmar Ericsdóttur, móður
Kela sólskinsdrengs, og ferð-
aðist með henni um Suður-
landið. Þær vinkonur sáust
meðal annars skoða Gullfoss
og Geysi og festu þær bíl sinn
á hverasvæðinu en fengu að-
stoð leiðsögumanna á svæð-
inu eftir um klukkustundarbið
og varð ekki meint af.
Hláturmild og vinaleg
Heimildarmaður DV sem varð
á vegi þeirra vinkvenna á ferða-
lagi þeirra segir Kate hafa verið
afskaplega vinalega og hlátur-
milda en hafa beðist undan
því að ferðalag hennar færi í
fjölmiðla. Þetta er í fyrsta sinn
sem hún heimsækir landið og
hún óskar sér þess að fá frið til
þess að njóta lífsins hér á landi
enda hreifst hún mjög af nátt-
úru landsins. Kate þótti standa
sig afar vel í fjórtán tíma göngu
upp á Hvannadalshnjúk og
var enginn eftirbátur göngu-
félaganna. „Smágerð en ótrú-
lega sterk og falleg,“ sagði einn
göngumanna.
Þrátt fyrir að Kate óskaði
þess að fara huldu höfði í frí-
inu samþykkti hún þó mál-
staðarins vegna að fara í stutt
viðtal fyrir Kastljós og hitti Jó-
hannes Kr. Kristjánsson frétta-
mann ásamt Margréti. Kate
Winslet, sem er heimsfræg
fyrir leik sinn í kvikmyndum á
borð við Titanic og Sense and
Sensibility, hefur á undanförn-
um misserum helgað sig vit-
undarvakningu um einhverfu
með Margréti. Þær stofnuðu
meðal annars góðgerðasam-
tökin Golden Hat Foundation
og nýverið gaf hún út bókina
The Golden Hat sem er tileink-
uð syni Margrétar, Kela.
Vel innrætt
Margrét og Kate urðu góð-
ar vinkonur frá fyrstu kynn-
um eins og Margrét sagði frá
í viðtali í DV fyrir páska. „Það
er ekki síst vegna þess hversu
einstök hún er. Hún skilur okk-
ur svo vel og það er svo ofsa-
lega góð tilfinning,“ sagði hún
í viðtalinu og gaf dæmi sem
sýnir gott innræti hennar.
„Kate hringir oft og einu sinni
heyrði hún í Kela í bakgrunn-
inum. Hún spurði: „Er þetta
Keli, er þetta Keli?“ Og hún
vildi endilega fá að tala við
hann. Ég vissi eiginlega ekki
hvað ég átti að segja. Í fyrsta
lagi af því Keli talar ekki. Og í
öðru lagi, þá hafði enginn beð-
ið mig um að fá að tala við Kela
í símann.
Kate sagðist auðvitað vita
það. „En hann hlustar,“ sagði
hún þá og fékk loks að tala við
hann.
„Þetta er einmitt það sem
við berjumst fyrir. Að fólk viti
að einhverfir hlusta. Þeir heyra
og skilja og það er svo mikil-
vægt að við berum virðingu
fyrir því. Þótt einhverfir virðist
vera fjarri þá eru þeir það ekki.
Við þurfum bara að nálgast þá
öðruvísi.“
Vináttan og samstarfið
við Kate Winslet hefur verið
mikið ævintýri að sögn Mar-
grétar. „Kate hefur unnið allt
sitt starf í sjálfboðavinnu. Frá
því að hún talaði inn á mynd-
ina hefur hún helgað sig þessu
verkefni og mikinn kostnað
við stofnun góðgerðasam-
takanna hefur hún greitt með
sjálfboðavinnu sinni og með
því að fá aðra til þess að vinna
með sér.“
Þeir sem vilja festa kaup á
bókinni góðu geta gert það á
heimasíðu samtakanna, gol-
denhatfoundation.org. Allur
ágóði af bókinni og myndinni
rennur beint til góðgerða-
samtakanna til hjálpar ein-
hverfum. Bókin er væntanleg
í bókabúðir hér á landi bráð-
lega.
Kate fór huldu
höfði á Íslandi
n Vill geta heimsótt Ísland án þess að það veki umtal
Kate, Keli og Margrét Kate Winslet er góð vinkona fjölskyldunnar og
heilluð af Kela.
Kate á Íslandi Kate og Margrét hittu Jóhannes Kr. Kristjánsson fréttamann að máli á Hótel Nordica.
Skemmtileg fjölskylda Egill gleymdi hvar hann faldi egg Sigurveigar sem var farið að gruna að hann hefði hrein-
lega borðað það.