Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2012, Qupperneq 3
Nýtingarréttur:
Núverandi kerfi
Ótímabundinn nýtingar-
réttur sem miðast við
veiðireynslu áranna 1980
til 1983.
Stjórnarflokkarnir sögðu:
S Núverandi aflaheimildir verði innkallaðar
eins fljótt og auðið er. Tímasett hámark
er 20 ár. Samfylkingin hefur talað fyrir
fyrningarleið, þar sem fimm prósent afla-
hlutdeildar fyrnist á hverju ári. Eitt helsta
markmið flokksins er að; „tryggja þjóðinni
ótvíræð yfirráð til framtíðar.“
VG Flokkurinn talaði fyrir innköllunar- og
endurráðstöfunarleið. Lögð er til árleg
innköllum upp á fimm prósent, þótt þrjú
prósent af því megi leggja til biðkvóta og
fresta innköllun um sex ár. Flokkurinn lýsir
sig tilbúinn að skoða „áfangaleið“ þar sem
aflaheimildir haldast óbreyttar upp að
ákveðnu lágmarki en aukningu umfram það
er úthlutað eftir öðrum reglum.
Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnarinnar
Lagður verði grunnur að innköllun og endur-
ráðstöfun aflaheimilda á 20 ára tímabili í
samræmi við stefnu beggja flokka.
Frumvörpin
Núverandi handhafar geta gert 20 ára nýt-
ingarsamninga án framlengingarákvæðis.
Samningarnir eru uppsegjanlegir eftir fimm
ár. Frumvarpið gerir ráð fyrir að núverandi
handhafar aflaheimilda fái stærstan hluta
heimilda. Aflamarksaukning þorsks umfram
177 þúsund tonn rennur til skiptanna til
handahafa og í potta frumvarpsins.
Gjaldtaka
Núverandi kerfi
Útgerðarfélög
greiða auðlinda-
gjald sem reiknað
er af framlegð.
Gjaldið er í dag 13,3
prósent af framlegð
útgerðar. Til grundvallar
veiðigjaldinu liggja aflaverð-
mæti útgerðar. Það er í dag 9,50 krónur á
þorskígildiskíló.
Stjórnarflokkarnir sögðu:
S Stefna flokksins í fiskveiðistjórnun er
að „tryggja þjóðinni ótvíræð yfirráð allra
sjávarauðlinda til framtíðar og fullan arð
af því eignarhaldi.“ Gjaldtaka á samkvæmt
samþykktum flokksins að vera í formi
leigugjalds fyrir aflaheimildirnar.
VG Þriðjungur aflaheimilda verði á
opinberum leigumarkaði sem útgerðir og
vinnsla geta boðið í. Þar færi gjaldheimta
fram í formi leigugjalda. Þriðjungi aflaheim-
ilda er úthlutað til sjávarbyggða um land
allt sem úthlutar þeim áfram. Gjaldheimta
er á forræði hvers sveitarfélags og er í formi
leigu.
Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnarinnar
Fjallar ekki sérstaklega um gjaldtöku vegna
auðlindarinnar en þó er lagt til að stofnaður
verði auðlindasjóður sem fer með ráðstöfun
fiskveiðiréttinda í þjóðareign. Arður af þeim
sjóði á að renna til atvinnuuppbyggingar.
Frumvörpin
Fast veiðigjald er átta krónur á hvert þorskí-
gildiskíló, að auki verður sérstakt veiðigjald
innheimt og miðast við þorskígildi. Sérstakt
veiðigjald skal vera 70 prósent af stofni til
útreiknings sem er umframarður útgerðar
þegar búið er að draga frá rekstarkostnað
líkt og olíu- og launakostnað.
Framsal
Núverandi kerfi
Litlar takmarkanir eru á
heimildum til framsals
á kvótahlutdeild. Flutn-
ingur úr krókakerfinu
yfir í aflamarkskerfi er
óheimill, þótt flytja megi
kvóta hina leiðina. Framsal
á heimildum umfram veiðigetu skips er
einnig óheimilt. Í núverandi lögum má finna
ákvæði um forkaupsrétt sveitarfélaga
hafi sala aflaheimildar úr byggðarlagi eða
sveitarfélagi afgerandi áhrif á atvinnulíf á
svæðinu. Ákvæðið hefur ekki verið notað í
nokkur ár.
Stjórnarflokkarnir sögðu:
S Framsal aflamarks í núgildandi afla-
markskerfi verði einungis miðað við
brýnustu þarfir flotans. Útgerðum verði
skylt að skila þeim auðlindum sem þær
nýta ekki.
VG Vinstri grænir hafa talað gegn við-
skiptum með aflahlutdeildir. Í lands-
fundarályktun ársins 2009, þeirri sömu og
kosningaloforð flokksins byggðu mikið á, er
talað um nauðsyn þess að setja skilyrði og
takmarkanir um meðferð aflaheimilda, til
að mynda framsal og veðsetningu. Óheimilt
er að framselja byggðartengdar heimildir
samkvæmt ályktun fundarins.
Stefnuyfirlýsing flokkanna
Lofað er takmörkuðu framsali á aflaheim-
ildum, aukinni veiðiheimild og endurskoðun
á heimildum til tilfærslu á milli ára.
Frumvörpin
Framsal er heimilt að uppfylltum skilyrð-
um. Skip sem aflaheimildir eru fluttar
á skal hafa veiðileyfi og ekki má flytja
heimildir á skip svo að bersýnilega séu
heimildirnar umfram veiðigetu þess.
Þá skulu fylgja upplýsingar um kaup-
verð aflahlutdeilda. Þegar aðilaskipti
verða að fiskiskipi eða aflahlutdeild er
flutt milli fiskiskipa skerðist aflahlutdeild
um 3% við skiptin og er úthlutað í 2. flokk
heimilda. Heimild til framsals fellur niður
árið 2032. Ráðherra er heimilt að neyta for-
kaupsréttar á aflaheimildum sé flutningur
þeirra talinn hafa veruleg áhrif á atvinnulíf
svæðisins.
Pottar
Núverandi kerfi
Meðal sérstakra
potta í núverandi
kerfi eru úthlut-
anir til strandveiða,
línuívilnun, byggða-
kvótar sem og rækju- og
skelbætur. Þá er kvóti vegna
frístundaveiða sem og áframeldis á þorski.
Samtals eru rúmlega 20 þúsund þorsk-
ígildistonn í ýmsum pottum núverandi
kerfis. Þá voru rækjuveiðar gefnar frjálsar á
síðasta fiskveiðiári.
Stjórnarflokkarnir sögðu:
S Auðlindasjóður sjái um varðveislu og ráð-
stöfun fiskveiðiréttinda sem að loknum 20
ára fyrningartíma verði öll á leigumarkaði.
Þess utan er gert ráð fyrir að strandveiðar
verði heimilar í einhvern tíma, það má því
gera ráð fyrir að sérstakur strandveiðipottur
hafi verið hluti af loforðum flokksins fyrir
síðustu kosningar.
VG Stefna VG gerði ráð fyrir mun víðtækara
pottakerfi en samstarfsflokkurinn en boðuð
var svokölluð þrískipting innkallaðra heim-
ilda. Þriðjungur átti að renna til leigumark-
aðs á hverju ári þar sem útgerðir gátu leigt
heimildir til allt að sex ára. Þriðjungur átti
að ganga til sveitarfélaga og verða þannig
bundinn sjávarbyggðum landsins. Síðast
var þriðjungur ætlaður handhöfum veiði-
heimilda sem innkallaður var frá gegn
hóflegu kostnaðargjaldi.
Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnarinnar
Fyrirkomulag potta er ekki útlistað í sam-
starfsyfirlýsingunni. Það kemur fram að
auðlindasjóður skuli fara með ráðstöfun
fiskveiðiréttinda. Strandveiðar verði gerðar
frjálsar yfir sumartímann. Þá er eitt mark-
miða breytinganna að efla byggð í landinu.
Frumvörpin
Auk núverandi potta verða rúmlega fimm-
tán þúsund þorskígildistonn til kvótaþings
sem rekið verður af Fiskistofu. Kvótaþing á
að vera vettvangur viðskipta með aflamark.
Verði heildarafli þorsks á fiskveiðiárinu
2012/2013 ákveðinn meiri en afli yfirstand-
andi árs, það er 177.000 tonn, skulu fyrstu
4.500 tonnin af þeirri aflaaukningu renna til
flokks 2. Samanlagt verða um 36 þúsund í
frumvarpinu.
Þjóðareign
Núverandi kerfi
1. grein: Nytja-
stofnar á
Íslandsmiðum eru
sameign íslensku
þjóðarinnar. Mark-
mið laga þessara er
að stuðla að verndun
og hagkvæmri nýtingu
þeirra og tryggja með því trausta atvinnu
og byggð í landinu. Úthlutun veiðiheimilda
samkvæmt lögum þessum myndar ekki
eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði
einstakra aðila yfir veiðiheimildum.
Stjórnarflokkarnir sögðu
S Þjóðareign á sjávarauðlindunum verði
bundin í stjórnarskrá.
VG Með sérstöku ákvæði í stjórnarskrá verði
tekinn af allur vafi um að fiskveiðistofnarnir
umhverfis landið séu sameign þjóðarinnar.
Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnarinnar
Með sérstöku ákvæði í stjórnarskrá verði
undirstrikað að fiskistofnarnir umhverfis
landið séu sameign þjóðarinnar.
Frumvörpin:
1. grein: Nytjastofnar á Íslandsmiðum
eru sameiginleg og ævarandi eign
íslensku þjóðarinnar. Íslenska ríkið
veitir tilskilin leyfi, fer með og ráðstafar
hvers kyns heimildum til nýtingar.
Slík veiting eða ráðstöfun myndar ekki
eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði
einstakra aðila yfir þeim.
Að sögn oddvita ríkisstjórnarinnar er greinin
orðuð til samræmis við tillögur stjórnlaga-
ráðs að breyttri stjórnarskrá en í þeim segir
einmitt að auðlindir séu sameiginleg og
ævarandi eign þjóðarinnar.
Heimild Sáttargjörð um fiskveiðistefnu
- landsfundarályktun Samfylkingar frá
2009. Landsfundarályktanir VG um breytta
fiskveiðistjórnun frá 2009. Stjórnarsáttmáli
Samfylkingar og VG. Lög um stjórn fiskveiða
og frumvörp sjávarútvegsráðherra um
stjórn fiskveiða og veiðigjald.
Fréttir 3Mánudagur 4. júní 2012
Héraðsdómur Norðurlands vestra
dæmdi karlmann í sex mánaða
fangelsi óskilorðsbundið á fimmtu-
dag fyrir kynferðisbrot gegn fimm-
tán ára stúlku. Maðurinn starfaði
áður sem lögreglumaður í litlu bæj-
arfélagi og þjálfaði einnig unglinga
í íþróttum á staðnum. Eins og DV
greindi frá í fyrra og fram kom í
dómnum hafði maðurinn einnig til
margra ára verið náinn vinur fjöl-
skyldu fórnarlambsins.
Stúlkan sem maðurinn braut
gegn, hafði mætt á heimili manns-
ins snemma morguns í september
2010 fyrir íþróttaæfingu. Maður-
inn braut þar gegn stúlkunni með
að káfa innanklæða á henni. Hann
káfaði á rassi hennar og klofi og
svívirti hana með fingrunum. Því
næst stakk hann fingrunum upp í
sig. Meðan á þessu stóð sagði hann
henni að hún væri flott, að því er
segir í dómnum.
Héraðsdómur sýknaði manninn
af brotinu í mars á síðasta ári, þrátt
fyrir að framburður stúlkunnar
hefði þótt trúverðugur. Saksóknari
áfrýjaði þá málinu til Hæstarétt-
ar sem ómerkti sýknudóminn og
sendi málið aftur í hérað.
Maðurinn var settur í leyfi frá
störfum sínum sem lögreglumað-
ur á meðan rannsókn málsins fór
fram en samkvæmt heimildum
DV er hann ekki lengur starfandi
sem lögreglumaður. Fram kemur í
niðurstöðu héraðsdóms að ákærði
hafi brotið með háttsemi sinni
gegn fimmtán ára stúlku sem er
dóttir vinahjóna hans til margra
ára. Þá sé brot hans alvarlegra með
hliðsjón af því að ákærði var starf-
andi lögreglumaður á þessum tíma
og þjálfaði unglinga, þar á meðal
stúlkuna í íþróttastarfi. „Brást hann
trúnaði brotaþola með alvarlegum
hætti með háttsemi sinni. Verður
það virt ákærða til refsiþyngingar.“
DV tók viðtal við stúlkuna og
móður hennar skömmu eftir að
héraðsdómur sýknaði manninn.
Þá lýstu mæðgurnar áfallinu sem
þær urðu fyrir þegar maðurinn var
sýknaður þrátt fyrir að dómurinn
hefði komist að þeirri niðurstöðu
að framburður stúlkunnar væri
trúverðugur. Tveir sálfræðingar
sem gerðu sálfræðimat á stúlkunni
sögðu ekkert hafa komið í ljós í frá-
sögn hennar sem gæfi til kynna að
hún væri að segja ósatt og ljóst væri
að hún væri heiðarleg. Í dómnum
voru rakin nokkur atriði sem þóttu
styrkja hennar málstað verulega og
þar stendur orðrétt: „Telur dómur
að með þessu hafi töluverðar líkur
verið leiddar að sekt ákærða.“ Það
var hins vegar framburður sonar
mannsins sem og eindregin neitun
hans sem gerði það að verkum að
ekki var hægt að sanna sekt ákærða
svo hafið væri yfir allan skynsam-
legan vafa og var hann því sýkn-
aður í héraði.
Að þessu sinni fóru dómarar
og aðrir málsaðila í Héraðsdómi
Norðurlands á vettvang á meðan
málsmeðferðin fór fram og kynntu
sér aðstæður á vettvangi. Bæði
brotaþoli, hinn ákærði ásamt aðal-
vitni málsins, sem er sonur hins
ákærða, voru einnig fengin á vett-
vang til að lýsa hvernig atvik horfðu
við þeim. Að því loknu fóru fram
skýrslutökur af aðilum og vitnum
fyrir dómi. Þar var maðurinn eins
og áður segir dæmdur í sex mán-
aða fangelsi og til að greiða stúlk-
unni 300 þúsund krónur í skaða-
bætur.
stríðið um kvótann
nær nýjum hæðum
Loforð flokkanna
n Stjórnarflokkarnir farnir að bakka frá kosningaloforðum sínum n LÍÚ hefur áður hótað að binda flotann við bryggju
Þjónar kostnaði Frið-
rik J. Arngrímsson segir
dýrt að stöðva flotann
en nægir hagsmunir
séu í húfi til að aðgerðin
borgi sig.
Lögga dæmd fyrir
kynferðisbrot