Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2012, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2012, Blaðsíða 4
„Ég er saklaus“ 4 Fréttir 4. júní 2012 Mánudagur Huang Nubo í viðtali: Vill loftbelg á Grímsstaði „Vinir mínir vilja setja upp mið­ stöð vöruflutninga og hestabúgarð á ferðamannastaðnum mínum og mér líst vel á það,“ segir kínverski fjárfestirinn Huang Nubo, í við­ tali við kínversku fréttasíðuna crienglish.com sem er enski hluti fréttastofunnar China Radio Inter­ national. Viðtalið er dagsett þann fjórða maímánaðar undir fyrir­ sögninni „Viðskiptajöfur innsiglar leigusamning við Ísland.“ Þar segist hann meðal annars hafa í hyggju að bjóða upp á ferðir með loftbelg. Hann segir í viðtalinu að íslensk stjórnvöld hafa tekið sér og sínum áformum fagnandi. Í viðtalinu er aðeins er talað um að Huang hafi gert samning til 99 ára en hvergi er minnst á að hugmyndin sé að hann muni leigja Grímsstaði til 40 ára en aðeins jörðina þar sem hótelbygg­ ing mun rísa til 99 ára. Í viðtalinu segir Huang Nubo meðal annars að hann muni fram­ kvæma viðskiptaáætlun sína á næstu fimm árum og að á staðnum muni verða hótel, reiðleiðir, golf­ völlur og einnig verði boðið upp á ferðir með loftbelg. Halldór Jóhannsson, talsmaður Huang Nubo, segir við DV að það sé túlkunaratriði hvort formlega sé búið að gera samning við Nubo um leigu á jörðinni á Grímsstöðum á Fjöllum. „Það sem við vitum er að ívilnunarnefndin er búin að sam­ þykkja þetta, hún er búin að fara yfir þetta. Málið er hjá ráðherra og við höfum enga ástæðu til að ætla annað en að það bara haldi áfram þar sem það er búið að fara í gegn­ um það nálarauga sem að lög gera ráð fyrir.“ Halldór segir að þeir Nubo hafi aldrei rætt neitt annað en það sem snýr að ferðaþjónustu og að hann kannist ekki við ummæli Nubo um að vinir hans hafi áhuga á að koma upp einhvers konar miðstöð vöru­ flutninga. Aðspurður hvort kæmi til greina að vinir Nubo kæmu að verkefninu og þá með aðrar hug­ myndir um nýtingu jarðarinnar en þær sem hann hefur verið að kynna spyr Halldór blaðamann hvað ætti að geta verið á Grímsstöðum. Þegar blaðamaður nefnir hugmyndir Nubo um loftbelgjaferðir segist Halldór eiga eftir að sjá það gerast. „Þetta eru náttúrulega bara frum­ hugmyndir sem hann er að varpa þarna fram, það er lítil reynsla af því hér á landi en það er hins vegar mjög vinsælt víða erlendis svona loftbelgjaflug.“ É g er saklaus ég hef engar undir­ skriftir falsað,“ segir Kristján Óli Níels Sigmundsson, einn þeirra sem safnaði undirskrift­ um til stuðnings framboði Ást­ þórs Magnússonar til forseta. Krist­ ján hefur verið nefndur „maðurinn sem felldi Ástþór“, á vefmiðli Eiríks Jónssonar fréttamanns. Kristján segist ekki hafa hugmynd um hvers vegna hans nafn sé nefnt í þessu samhengi. „Mér hefur ekki verið tjáð um málið frekar, né hef ég fengið að sjá þessa meintu fölsuðu undirskriftalista. Ekki hef ég fengið að sjá hvort mitt nafn sé sjálft falsað.“ Alvarlegar ásakanir Hann er afar ósáttur við að hann hafi verið nafngreindur án þess að fá færi á að andmæla. Hann segir Eirík ekki hafa haft samband við sig við gerð fréttarinnar. Að auki hafi hann nafngreint hann og birt mynd af honum. Kristján segir þús­ undir Íslendinga hafa lesið fréttina þar sem mannorð hans sé svert. „Að vera sakaður um að hafa falsað hundruð undirskrifta er fáránlegt,“ segir Kristján og bætir við að ólík­ legt sé að nokkrum dytti í hug að falsa fjölda undirskrifta til þess eins að fella Ástþór Magnússon. „Ég tek þessu mjög alvarlega. Ég gæti aldrei hugsa mér að falsa hundruð undir­ skrifta fyrir einn né neinn.“ Kristján segist ekki ætla að tjá sig meira um málið. Hann er staddur erlendis og hefur verið síðan fyrri hluta maí­ mánaðar vegna sumarvinnu. Ástþór til varnar „Það liggja engar sannanir fyrir þessu. Ég get ekki ásakað þennan dreng. Ekki get ég séð út úr þessum listum að þeir séu falsaðir,“ segir Ástþór Magnússon aðspurður um réttmæti ásakana á hendur Krist­ jáni. Hann segir að allt söfnunar­ fólk framboðsins hafi skrifað undir sína lista. Þannig hafi verið hægt að rekja þá lista sem orkuðu tvímælis til eins manns. „Þá er farið að skoða alla lista frá þessum manni. Ég veit ekki fyrir víst hvort þetta er falsað. Það er bara eitthvað sem lögregl­ an verður að rannsaka. Ég get ekk­ ert sakað hann um falsanir.“ Sjálf­ ur telur Ástþór að málið hafi fyrst og fremst sýnt fram á bresti í lög­ gjöf. „Ég held að þarna sé bara að afhjúpast stórkostlegt gat í kerfinu,“ segir Ástþór og bætir við að hann hafi ekki haft nægan tíma til að fara yfir málið. Telur brotið á sér Ástþór segir mikla óvissu í málinu og að hann hafi ekki tekið ákvörðun um næstu skref. Hann gagnrýnir kjör­ stjórn fyrir að hafa ekki gert athuga­ semd við undirskriftalistana fyrr. „Þeir lágu á listunum í fimm vikur án þess að vinna upp úr þeim. Það er líklegast brot á stjórnsýslulögum.“ Verðlaun og leikir „Okkur er það sönn ánægja að bjóða þeim Facebook vini okkar sem safn­ ar flestum meðmælendum með for­ setaframboðinu í heimsókn til Spán­ ar,“ segir á síðu framboðs Ástþórs á Facebook. Hann hefur verið gagn­ rýndur fyrir að nota gjafir og happ­ drætti við meðmælendasöfnun. Þannig sagði Sigurður Líndal laga­ prófessor við Morgunblaðið að í fljótu bragði sæi hann ekki að það ógildi framboð til embættis forseta þótt frambjóðandi heiti fólki gjöf­ um fyrir að safna meðmælendum. Sigurður sagðist þó telja slíkt með öllu óviðeigandi. DV bar undir Ást­ þór hvort hann hafi ef til vill boðið hættunni heim, að kappsemin hafi hlaupið með söfnunarfólk í gönur, segist hann ekki telja svo. „Nei, þetta tengist því ekki. Þessi náungi er ekki Facebook­vinur.“ Ástþór segir aðra frambjóðendur greiða fólki fyrir að safna meðmælendum. „Það eru all­ ir með fólk að vinna í þessu og með einhverjum hætti er því launað. Þessi maður fékk bensínpeninga og ferða­ pening. Þetta tengist því ekki. Hann kemur öðruvísi inn í þetta mál.“ n Kristján Sigmundsson er sagður hafa falsað meðmælendalista Ástþórs „Það liggja engar sannanir fyrir. Ég get ekki ásakað þennan dreng. Maðurinn sem felldi Ástþór Nafn Kristjáns, ásamt mynd, birtist í fjölmiðlum. Hann er ósáttur við að ekki hafi verið haft samband við hann og honum gefið færi á að bera af sér sakir. MyNd: SkjÁSkoT EirikuroNSSoN.iS Tekur ekki undir ásakanir Ástþór Magnússon segist ekki geta sakað Kristján um að hafa falsað undirskriftir. Hann segir málið fyrst og fremst afhjúpa galla í kerfinu. Atli Þór Fanndal blaðamaður skrifar atli@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.