Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2012, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2012, Blaðsíða 19
til að lífskjör hér verði sambærileg við það sem gerist í nágrannalönd- unum, til dæmis Norðurlöndunum, Hollandi og Þýskalandi. DV hefur fengið dæmi um hús- næðislán, bæði í evrulöndum sem og í ESB-löndum sem hafa þó ekki enn tekið upp gjaldmiðilinn. Endurskoðað eftir 10 ár Þjóðverji keypti íbúð á þessu ári og tók lán upp á 170.000 evrur eða um það bil 28 milljónir króna, miðað við gengi evrunnar í dag. Þriðjung láns- ins fékk hann hjá KfW Bank með 3,3 prósenta vöxtum og tvo þriðju hjá Deutsche Bank með 3,89 prósenta vöxtum. Lánið verður endurskoðað eftir 10 ár og sett upp aftur, vextir end- urskoðaðir og breytt ef þörf er á. Fram að því eru vextirnir fastir en það er trygging bankanna gegn áföllum. Höfuðstóll hækkar aldrei Íslensk hjón tóku húsnæðislán í Svíþjóð í ágúst á síðasta ári. Lánin voru þrjú, hvert um sig upp á 70.000 sænskar krónur eða 2.100.000 sænsk- ar krónur. Þau eru með breytilegum vöxtum og með binditíma frá 2 til 5 ára. Með því að binda þau taka þau sem minnsta áhættu. Eitt lánið er með vaxtaþaki og fara vextirnir aldrei yfir vissa prósentu þó verðbólgan aukist. Hjónin borga 8.000 sænskar krón- ur á mánuði og fyrstu tvö árin borga þau einungis vexti en að þeim tíma liðnum fara þau að borga inn á höf- uðstólinn sem hækkar aldrei. Eins og staðan er í dag borga Svíar hæstu vextina af Norðurlandaþjóðunum en ástæðan fyrir því er að bankarnir eru að tryggja sig ef fjármálakreppa skyldi skella á. Vextirnir á þessum þremur lán- um eru 4,34, 4,69 og 4,10 prósent og afborganir breytast örlítið um hver mánaðamót. Auk þess fá þau ótekju- tengdar vaxtabætur í júní sem jafn- gilda einum þriðja af vöxtum. Lækkað um rúm 30 prósent Íslensk kona tók húsnæðislán í Eng- landi árið 2001 upp á 80.000 pund til 25 ára. Vextirnir eru breytilegir en ávallt 0,25 prósent yfir stýrivöxtum Bank of England. Eftirstöðvar þess eru í dag 55.000 pund og hefur lánið því lækkað um 31,25 prósent. Samkvæmt upplýsingum af heimasíðu Seðlabanka Íslands var pundið 141 króna þann 1. ágúst 2001. Lán konunnar var því á þeim tíma 11.280.000 í íslenskum krónum. Samkvæmt reiknivél Já Ísland stæði slíkt lán, tekið á Íslandi árið 2001, í 14.850.000 krónum og hækkunin hefði því numið 31,64 prósentum. Tekið skal fram að hér eru born- ar saman eftirstöðvar jafn hárra lána sem tekin voru á Íslandi annars vegar og Englandi hins vegar og ekki er tek- in inn í dæmið staða íslensku krón- unnar gagnvart pundinu. Hér er ein- ungis um samanburð í prósentum að ræða, lesendum til glöggvunar. L eitarforritið Google og ráða- menn í Kína hafa lengi deilt um aðferðir leitarvélarinnar til þess að sía út niðurstöður eftir fyrir- fram skilgreindum málefnum. Í mörg ár hafa notendur Google í Kína ekki getað notað bönnuð eða viðkvæm orð án þess að eiga á hættu að missa samband við leitarsíðuna í nokkrar mínútur. Nú býður Google notendum sínum í Kína nýtt tól í bar- áttunni sem vekur miklar óvinsæld- ir ráðamanna í Kína. Þegar notendur forritsins slá inn orð sem samkvæmt reynslu Google rjúfa tenginguna býð- ur forritið þeim sjálfkrafa upp á aðra möguleika og varar þá notendur sína við því að orðið sé bannað. Orðið ritskoðun er ekki nefnt í til- kynningu Google um þjónustuauka sinn en þessi möguleiki forritsins þyk- ir þó gefa sterklega til kynna að kín- versk stjórnvöld hafi eitthvað að fela. „Við höfum sagt það áður að við viljum að sem flestir íbúar heimsins hafi að- gang að þjónustu okkar. Von okkar er að þessar tilkynningar til notenda okk- ar verði til þess að bæta reynslu af leit- arforriti okkar í meginlandi Kína, seg- ir Google í tilkynningu. Google hefur áður hótað því að loka fyrir starfsemi sína í Kína sem er stærsti netmarkaður heimsins með 350 milljónir notenda en hefur ákveðið að láta ekki undan í baráttunni fyrir óritskoðuðu neti. Ritskoðun kínverskra stjórnvalda felur meðal annars í sér að bannað er að ræða málefni á borð við sjálf- stæðisbaráttu Tíbet og og Falun Gong- hreyfinguna á vefsíðum í Kína ásamt nokkrum öðrum viðfangsefnum sem stjórnvöld þar í landi telja „viðkvæm“. n Notendur Google í Kína varaðir við slái þeir inn bönnuð orð Google gegn ritskoðun í Kína Blóm lögð við skilti Google í Beijing Stjórnvöld í Kína eyða miklu púðri í að hefta upplýsingaflæði. Ísland með dýrustu húsnæðislánin n Samkvæmt Já Ísland borga Íslendingar nær þrjú hús með húsnæðislánum sínum n Evrópubúar borga ígildi eins og hálfs „Ég held að það sé borðleggjandi að kostirnir við þetta verði þeir að þeir vextir sem heimilin greiða í dag muni lækka og það sem er enn mikilvægara er að verð- tryggingin muni einfald- lega leggjast af sjálfkrafa. Mánudagur 4. júní 2012 Neytendur 19 Hæstu lánin Það er dýrt að borga af fasteignum sínum hér á landi. MyNd: dV Lán upp á 11.280.000 kr. tekið árið 2001 til 25 ára Samt. greitt: Þar af vextir og verðb. Af nafnvirði höfuðst. Ógreiddar verðb. Samtals eftirst. Lán á Íslandi 11.560.743 kr. 8.331.100 kr. 8.050.357 kr. 6.798.831 kr. 14.849.189 kr. Lán í evrulandi 10.125.614 kr. 5.237.614 kr. 6.392.000 kr. 0 kr. 6.392.000 kr. Mismunur 1.432.129 kr. 3.093.486 kr. 1.658.357 kr. 6.798.831 kr. 8.457.189 kr. Íslenskt lán - verðtryggt, 5,10 Evruland - jafnar afborganir, 5,46% Lán upp á 15.000.000 kr. sem tekið var árið 2005 til 40 ára Samt. greitt: Þar af vextir og verðb. Af nafnvirði höfuðst. Ógreiddar verðb. Samt. eftirst. Lán á Íslandi 6.841.207 kr. 5.700.884 kr. 13.859.677 kr. 8.656.599 kr. 22.516.277 kr. Lán í evrulandi 6.067.406 kr. 3.536.156 kr. 12.468.750 kr. 0 kr. 12.468.750 kr. Mismunur 733.801 kr. 2.164.728 kr. 1.390.927 kr. 8.656.599 kr. 10.047.527 kr. Íslenskt lán - jafnar greiðslur, 4,15 % Evruland - jafnar afborganir, 3,81 % Lán upp á 20.000.000 kr. sem tekið var árið 2000 til 25 ára Lán á Íslandi 24.968.356 kr. 18.108.247 kr. 13.139.891 kr. 13.620.784 kr. 26.760.674 kr. Lán í evrulandi 21.775.357 kr. 11.842.023 kr. 10.066.667 kr. 0 kr. 10.066.667 kr. Mismunur 3.192.999 kr. 6.266.223 kr. 3.073.224 kr. 13.620.784 kr. 16.694.008 kr. Íslenskt lán - jafnar greiðslur, 5,10 % Evruland - jafnar afborganir, 6,33 % Lán upp á 5.000.000 kr.sem tekið var árið 2008 til 10 ára Lán á Íslandi 3.615.375 kr. 1.754.400 kr. 3.139.025 kr. 1.260.509 kr. 4.399.534 kr. Lán í evrulandi 3.099.212 kr. 890.898 kr. 2.791.667 kr. 0 kr. 2.791.667 kr. Mismunur 516.163 kr. 863.521 kr. 347.358 kr. 1.260.509 kr. 1.607.867 kr. Íslenskt lán - jafnar greiðslur, 5,75 % Evruland - jafnar afborganir, 5,15 % Dæmi um útreikninga úr reiknivélinni á síðu Já Ísland

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.