Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2012, Blaðsíða 10
E
igendur flugfélagsins Atl-
anta keyptu skuldir og eignir
móðurfélags þess, AAI Hold-
ing ehf., af kröfuhöfum þess í
apríl í fyrra og færðu yfir í ann-
að eignarhaldsfélag, Haru Holding
ehf. AAI Holding hefur nú verið tek-
ið til gjaldþrotaskipta og er skiptum
á félaginu lokið. Kröfuhafar félagsins
afskrifuðu rúmlega 1.200 milljónir
króna vegna gjaldþrots félagsins. At-
hygli vekur að félögin tvö, AAI Hold-
ing og Haru Holding, eru í eigu sömu
einstaklinga.
Atlanta rekur sautján þotur af
gerðinni Boeing og Airbus sem not-
aðar eru til farþega- og fraktflutninga
og eru þoturnar leigðar út til ann-
arra fyrirtækja erlendis. Flugfélagið
þykir vera afar gott fyrirtæki þó ekki
sé mikið um það rætt hér á landi þar
sem starfsemi þess er aðallega er-
lendis. Atlanta skilaði til að mynda
460 milljóna króna, 4 milljóna doll-
ara, hagnaði árið 2010.
Að sögn Guðmundínu Ragnars-
dóttur, skiptastjóra AAI Holding ehf.,
var eini kröfuhafi AAI Holding ehf.
sama félag og keypti skuldir þess af
þriðju aðilum í fyrra, áðurnefnt Haru
Holding. Staðan er því sú að að eig-
endur Atlanta keyptu upp skuldir
móðurfélags þess fyrir tiltekna upp-
hæð en svo var hluti af kröfum þess,
rúmlega 1.200 milljónir króna, af-
skrifaður við gjaldþrotameðferð fyrr-
verandi móðurfélags Atlanta sem
þeir áttu og stýrðu sjálfir. „Þetta er
eini kröfuhafinn í búinu,“ segir Guð-
mundína.
Eigendur AAI Holding ehf. og
Haru Holding ehf. eru Hannes Hilm-
arsson, forstjóri Atlanta, Helgi Hrafn
Hilmarsson, Stefán Eyjólfsson og
Geir Valur Ágústsson.
Skuldir upp á 33 milljarða króna
Í ársreikningi AAI Holding ehf. fyrir
árið 2010 er fjallað um viðskipti eig-
enda Atlanta með kröfurnar á félagið.
Þar kemur fram að eiginfjárstaða AAI
Holding ehf. hafi verið neikvæð um
70 milljónir dollara, rúmlega 8 millj-
arða króna, í lok árs 2010 og voru
uppi efasemdir um áframhaldandi
rekstrarhæfi félagsins. Á þessum
tíma námu eignir félagsins tæplega
218 milljónum dollara, um 25 millj-
örðum króna, en skuldirnar voru
tæplega 288 milljónir dollara, um 33
milljarðar króna. Um átta milljarða
króna munur var því á eignum og
skuldum félagsins. Eigendur félags-
ins voru þá eignarhaldsfélag í eigu
fjórmenninganna sem nafngreindir
eru hér að framan, Pund ehf., Geva
ehf., Stey ehf. og Dórem ehf.
Í skýringu aftast í ársreikningnum
segir hins vegar: „Í árslok 2010 voru
skuldir félagsins 70 milljónum doll-
ara hærri en eignir þess og það voru
uppi efasemdir um hvort félagið gæti
staðið við fjárhagslegar skuldbind-
ingar sínar. Í apríl 2011 keyptu stjórn-
endur Atlanta meirihlutann af skuld-
um AAIH við þriðju aðila. Skuldirnar
sem keyptar voru hafa verið færðar
yfir í nýtt eignarhaldsfélag. Fjárhags-
legri endurskipulagningu AAIH hef-
ur ekki verið lokið við undirritun árs-
reikninganna.“
Gert að loknu mati
Guðmundína segir að viðskiptin
með eignir Atlanta hafi verið gerð
að loknu verðmati á þessum eign-
um. Hún segir að upphæðin sem
er afskrifuð, rúmlega 1.200 millj-
ónir króna, sé það sem út af stend-
ur í viðskiptunum. Munurinn á
verðmæti eigna Atlanta og upphæð
skulda AAI Holding ehf. var því, sam-
kvæmt þessu, rúmlega 1.200 millj-
ónir króna. DV hefur hins vegar ekki
heimildir fyrir því hversu mikið ná-
kvæmlega eigendur Haru Holding
greiddu fyrir eignir Atlanta þegar
skuldir AAI Holding voru keyptar af
þessum þriðja aðila sem um ræðir.
Á hluthafafundi hjá Air Atlanta
þann 8. september síðastliðinn kom
fram að eigendabreytingar hefðu átt
sér stað hjá félaginu. Haru Holding
ehf. var þá orðið eini eigandi félags-
ins. Á fundinum voru gerðar nýj-
ar samþykktir fyrir félagið auk þess
sem hlutafé félagsins var lækkað úr
rúmlega fjórum milljörðum króna og
niður í 1,1 milljarð til að mæta tap-
rekstri. Hlutafé fyrirtækja og eignar-
haldsfélaga er oft lækkað í tengslum
við fjárhagslega endurskipulagningu
þeirra. Þá var hlutafé flugvélaeignar-
haldsfélag Atlanta, Northern Lights
Leasing, lækkað úr tæplega 2,5 millj-
örðum króna og niður í 500 milljónir
króna til að mæta taprekstri.
Staðan virðist því hafa verið sú,
samkvæmt þessu, að eigendur Air
Atlanta hafi samið við kröfuhafa
AAIH, væntanlega eitthvert fjár-
málafyrirtæki eins og Landsbankann
til dæmis, um kaup á kröfum þeirra
á hendur félaginu áður en það varð
gjaldþrota. Með þessum viðskiptum
varð eignarhaldsfélag þeirra, Haru
Holding ehf., eini hluthafi og kröfu-
hafi AAI Holding og þar með eigandi
að eignum þess.
Eimskip seldi meirihluta í
Atlanta
Núverandi eigendur Air Atlanta
keyptu flugfélagið af Eimskipafélagi
Íslands í lok árs 2007 á 63 milljónir
dollara. Um var að ræða þær eignir
sem voru inni í AAI Holding ehf. þar
til í fyrra og sem nú eru komnar inn
í Haru Holding ehf. Þáverandi eig-
endur Eimskipafélags Íslands voru
Magnús Þorsteinsson, Björgólfur
Guðmundsson, sonur hans Björgólf-
ur Thor og fleiri.
Í tilkynningu sem Hannes Hilm-
arsson sendi frá sér árið 2008, vegna
fréttaflutnings Viðskiptablaðsins um
að rekstur Atlanta hefði verið seldur
á 0 krónur, sagði hann að 54 milljónir
dollara af þessum 63 milljónum hefðu
verið greiddar til Eimskipafélagsins
á árinu 2008. „Endanlegt kaupverð
félaganna var $63 miljónir. Það sem
af er árinu 2008 hafa $54 miljónir eða
um 86% af kaupverðinu verið greidd-
ar til Hf. Eimskipafélags Íslands.“ Við
söluna lækkuðu skuldir Eimskips um
210 milljónir evra og eiginfjárhlutfall
félagsins breyttist úr 29 prósentum í
32 prósent. Atlanta var því verulega
skuldsett þegar núverandi eigendur
þess keyptu félagið.
Ekki náðist í Hannes Hilmars-
son, forstjóra Atlanta, á föstudag. DV
fékk þau svör hjá skrifstofu Atlanta
að hann væri utan þjónustusvæðis
og gæti því ekki tekið símann. Stefán
Eyjólfsson, einn af stjórnarmönnum
Atlanta og hluthafi í félaginu, benti
blaðamanni á að tala við Geir Val
Ágústsson, fjármálastjóra félagsins,
en ekki náðist í hann.
10 Fréttir 4. júní 2012 Mánudagur
Seldu Sér eignir AtlAntA
út úr gjAldþrotA félAgi
n Flugfélagið Atlanta í hendur sömu eigenda eftir fjárhagslega endurskipulagningu „Þetta er eini kröfu-
hafinn í búinu. Atburðarás
AAI Holding Haru Holding
1 Skref: Haru Holding kaupir skuldir AAI Holding af kröfu-
höfum félagsins fyrir ótilgreint verð í
apríl 2011
2 Skref: AAI Holding tekið til gjaldþrotaskipta í byrjun árs
2012. Haru Holding er eini kröfuhafinn
og afskrifar rúmar 1.200 milljónir vegna
gjaldþrotsins.
3 Skref: Haru Holding situr uppi með allar eignir AAI Holding og
hluta af skuldunum. Félögin tvö eru í
eigu nákvæmlega sömu aðila.
Forstjórinn Hannes Hilmarsson er for-
stjóri Air Atlanta og stærsti hluthafinn.
Hann á jafn mikinn hlut í félaginu eftir
fjárhagslega endurskipulagningu þess og
fyrir hana.
Seldi Atlanta Eimskipafélagið seldi
núverandi eigendum Atlanta félagið í árslok
2007. Magnús Þorsteinsson var einn af
eigendum Eimskips á þeim tíma. Atlanta var
þó mjög skuldsett.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
25 milljarða eignir Air Atlanta á eignir
upp á um 25 milljarða króna en félagið
leigir þotur til farþega- og fraktflutninga
víða um heim, meðal annars í Sádi-Ar-
abíu. Hér sést ein af þotum félagsins.