Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2012, Page 6
Uppnám í kappræðUm
6 Fréttir 4, júní 2012 Mánudagur
E
f einhver vilji hefði verið fyr-
ir hendi þá hefði vel verið
hægt að mæta kröfum okkar,“
segir Ari Trausti Guðmunds-
son forsetaframbjóðandi um
atburðarásina sem lauk með því að
þrír forsetaframbjóðendur gengu úr
beinni útsendingu Stöðvar 2 í Hörpu
á sunnudagskvöld. Ari Trausti segir í
samtali við DV að honum hafi fyrr um
daginn lent saman við Frey Einarsson,
ritstjóra fréttastofu Stöðvar 2, eftir að
frambjóðendum hafði verið gert ljóst
hvernig útsendingunni yrði háttað.
Óhætt er að segja að upphaf
kappræðnanna hafi verið drama-
tískt. Þorbjörn Þórðarson og Helga
Arnardóttir báru fyrstu spurninguna
upp við Andreu Ólafsdóttur, þar sem
hún stóð við hlið Ara Trausta. Þau tvö
áttu fyrst að svara spurningum frétta-
manna og spurningum frá almenn-
ingi. Því næst áttu Hannes Bjarnason
og Herdís Þorgeirsdóttir að sitja fyrir
svörum en að endingu Ólafur Ragnar
Grímsson og Þóra Arnórsdóttir en
upphaflega stóð til að þau tvö síðast-
nefndu myndu ein mæta í sjónvarps-
sal. Hinum átti ekki að bjóða.
Gengu úr sjónvarpssal
Andrea svaraði ekki spurningunni
sem að henni var beint heldur sagðist
ætla að lesa upp yfirlýsingu frá þeim
Ara Trausta og Hannesi. „Ljóst er að
sá kappræðufundur sem okkur var
boðið til er í raun fundur með spurn-
ingum og svörum til tveggja fram-
bjóðenda í einu og þar með fjarri öll-
um umræðum frambjóðendanna sex.
Af þessu fréttum við í dag, að Þóra og
Ólafur Ragnar standa saman í lokin,
eins og upphaflega var áætlað. Sem
lágmarkskröfu höfum við sett fram
þá eindregnu beiðni, gerðum það í
dag með fréttatilkynningu, að dregið
yrði um röð frambjóðenda í pör, bæði
hvað varðar tímaröðina, og einstak-
linga sem standa saman,“ sagði Ari
Trausti. Andrea greip orðið: „Þessu
hafnar fjölmiðillinn af tæknilegum
ástæðum, innan við klukkustund fyrir
útsendingu. Að þessu fengnu ákváð-
um við, ég, Ari Trausti og Hannes, að
yfirgefa fundinn, og skora á Þóru og
Ólaf Ragnar að gera slíkt hið sama.
Okkur er misboðið. Lýðræðið er jafn-
rétti, og jafnrétti er mannréttindi. Við
viljum láta koma vel fram við okkur. Af
öllum fjölmiðlum.“ Þegar þau höfðu
lokið við að lesa yfirlýsingu gengu þau
úr sjónvarpssal.
Lenti saman við Frey
Ari Trausti hafði að eigin sögn frum-
kvæði að því að kynna sér hvernig fyr-
irkomulaginu yrði háttað. Þegar það
lá fyrir hafi þau fjögur; hann, Hann-
es, Herdís og Andrea gert þá kröfu að
endurraðað yrði á mælendaskrá af
handahófi. Því hafi ekki verið svarað.
„Svo komum við niður eftir. Ég kem
fyrstur og næ tali af Þorbirni. Hann
er óttalega sleginn yfir þessu og spyr
mig hvort mér finnist þetta sann-
gjarnt.“ Hann segist hafa svarað því
játandi. „Hann spyr mig líka hvort ég
sé búinn að ræða við Þóru og Ólaf,“
segir hann og bætir við að hann hafi
sagt honum að það væri þeirra hlut-
verk. Þorbjörn hafi síðan spurt hvað
þau myndu gera ef ekki yrði farið að
óskum þeirra fjögurra, um að varpa
hlutkesti um röðun frambjóðenda.
„Ég sagðist myndu íhuga það en gæti
ekki svarað fyrir þau hin. Þá lenti
mér saman við Frey Einarsson sem
ásakaði mig um að reyna að seilast
til dagskrárgerðaráhrifa með því að
vera að reyna að skipta mér af þessu.
Það fannst mér verulega ósann-
gjarnt,“ segir Ari Trausti við DV.
„Óöryggi“ í ljósi skoðanakannana
„Fyrir mér var þetta bara svona eins
og að þau hafi viljað búa til einhver
vandræði úr þessu,“ segir Freyr Ein-
arsson, ritstjóri fréttastofu Stöðvar 2,
í samtali við DV. Hann segir að hon-
um hafi fundist Ari Trausti vera að
setja sig í hlutverk dagskrárgerðar-
manns, en ekki stjórnmálamanns.
Með ósk um breytta röðun frambjóð-
enda væri hann að biðja um tækni-
lega flókinn hlut með skömmum fyr-
irvara. Hugmyndin hafi komið allt of
seint, eða um tveimur tímum fyrir
útsendingu. „Þetta var mjög flókin
útsetning. Hún var gerð án handrits
og við viljum ekki vinna þannig og
vinnum aldrei þannig.“
Honum fannst krafa frambjóð-
endanna ósanngjörn. „Ég held svona
í ljósi skoðanakannana að þetta sé
bara eitthvað óöryggi.“
„Okkur var bara misboðið“
Andrea segir í samtali við DV að að-
dragandinn að þættinum, að bjóða
bara Þóru og Ólafi upphaflega, hafi
verið fyrir neðan allar hellur. Það hafi
verið mjög ólýðræðisleg nálgun. „Við
hljótum að krefjast þess í samfélagi
þar sem við viljum búa við lýðræði og
jafnan aðgang að jafnræðis sé gætt,“
segir hún. Hún bætir við að Þóra hafi
með því að neita að taka þátt stillt
Stöð 2 upp við vegg. Það hafi orðið til
þess að Stöð 2 bauð hinum frambjóð-
endunum líka. Hún gagnrýnir að Stöð
2 hafi ekki gert þeim ljóst hvernig fyr-
irkomulagi þáttarins yrði háttað fyrr
en um miðjan sunnudaginn. „Sem
er í raun og veru bara þannig að Stöð
2 ákveður að hafa þetta bara eins og
þau ætluðu nema bara minni tíma
fyrir þau tvö. Og okkur var bara mis-
boðið.“
Ari Trausti gefur lítið fyrir þau
rök, sem hann segir að Stöð 2 hafi
borið fyrir sig, að ekki væri hægt
að breyta röðuninni af tæknilegum
ástæðum. Tæknilegu flækjurnar hafi
ekki verið meiri en svo að hægt var
að halda fundinum áfram þó þau
hafi þrjú gengið út. Ari Trausti segir
að fyrirkomulagið sem Stöð 2 hafi
boðið upp á hafi ekki átt neitt skylt
við kappræður. Frambjóðendunum
hafi ekki verið gefinn kostur á að
svara hver öðrum. „Þetta var alltaf
kynnt sem kappræðufundur, með
því skil ég að þú sért að tala við hina
frambjóðendurna.“
„Þessi ákvörðun er bara fullkomlega á
valdi frambjóðendanna,“ segir Ágúst
Þór Árnason, aðjúnkt við Háskólann á
Akureyri, um ákvörðun þriggja forseta-
frambjóðenda að ganga út í upphafi kapp-
ræðna Stöðvar 2 á sunnudag. Þau Andrea
Ólafsdóttir, Ari Trausti Guðmundsson
og Hannes Bjarnason tilkynntu í upphafi
fyrstu spurningu kvöldsins að þau ætluðu
sér ekki að taka þátt.
Aðspurður hvort frambjóðendurnir hafi
með þessu ef til vill ekki nýtt tækifæri til
að kynna sín málefni segir Ágúst að ekki
sé víst að þau hefðu getað komið skoðun
sinni á framfæri með jafn ákveðnum
hætti hefðu þau setið kappræðurnar til
enda. „Mér finnst þetta ekki óeðlilegt
miðað við það sem á undan hafði gengið.
Þau nota raunar miðilinn sem hafði ætlað
að ganga framhjá þeim til að koma sínum
skilaboðum á framfæri. Ég tel að það geti
alveg talist lögmætt. Það má segja að
þau leggi þarna áherslu á einhvers konar
prinsippafstöðu.“
Ágúst telur af og frá að frambjóðendurnir
þrír hafi með þessu gengið á ritstjórnar-
vald Stöðvar 2. „Nei, það get ég ekki séð,“
segir hann aðspurður hvort um óeðlilegt
inngrip í ákvörðun ritstjórnar sé að ræða.
Ágúst segir mikilvægt að hafa í huga að
sjónvarp er áhrifamikill miðill. Það sé í
sjálfu sér ekki óeðlilegt að gera kröfur um
starfshætti við leyfisveitingu. „Ég myndi
telja að Stöð 2 hafi með því að ætla að
útiloka hluta frambjóðenda í upphafi sýnt
að þeir eru ekki staddir á þeim stað sem
eðlilegt telst fyrir áhrifamikinn fjölmiðil í
lýðræðisríki. Þeir eru núna að fá það greitt
til baka,“ segir Ágúst.
„Ég þakka Ara Trausta fyrir innlegg hans
í dagskrárgerðina. Hann hefur greinilega
engu gleymt frá árum sínum á stöð 2,“
sagði Þorbjörn Þórðarson, fréttamaður
Stöðvar 2, eftir að yfirlýsing frambjóð-
endanna var lesin upp. Þorbjörn spurði því
næst hvort frambjóðendurnir ætluðu að
halda ákvörðun sinni til streitu og væru
vissir í sinni sök. Ágúst undrast þessi við-
brögð Þorbjarnar sem beinast að einum
frambjóðenda. atli@dv.is
Eigin vinnubrögð í bakið
Lögmæt ákvörðun Ágúst Þór Árnason
segir Stöð 2 hafa sýnt að miðillinn er ekki
á þeim stað sem eðlilegt getur talist í
lýðræðisríki.
n Ara Trausta lenti saman við ritstjóra n „Bara eitthvað óöryggi,“ segir ritstjórinn
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Jóhann Páll Jóhannsson
blaðamaður skrifar johannpall@dv.is
Kristjana Guðbrandsdóttir
blaðamaður skrifar kristjana@dv.is
Aðstöðumunur
Kappræðufundur Stöðvar 2 í Hörpu var ekki opinn almenningi í hefðbundnum skilningi.
Aðgöngumiðum í sal var dreift til hvers frambjóðanda sem sá um að dreifa þeim áfram
til stuðningsmanna. Fyrirkomulag sem þetta er þekkt meðal annars frá kappræðum í
Bandaríkjunum. Hins vegar er ljóst að þau Ólafur Ragnar Grímsson og Þóra Arnórsdóttir
höfðu töluvert forskot á að tryggja mætingu eigin stuðningsfólks sem og að ýta undir
spurningar framboði sínu til hagsbóta enda boðuð til fundarins nokkru áður en öðrum
frambjóðendum bauðst að taka þátt. Andrea, Ari Trausti, Herdís og Hannes fengu fyrst
boð um að mæta til fundarins á laugardag og áttu því erfiðara með vik með að boða
eigið stuðningsfólk. atli@dv.is
„Fyrir mér var þetta
bara svona eins
og að þau hafi viljað búa
til einhver vandræði úr
þessu.
Andrea Ólafsdóttir „Okkur er misboðið.
Lýðræðið er jafnrétti, og jafnrétti er mann-
réttindi.“
Fóru ekki Herdís, Þóra og Ólafur Ragnar stóðu þrjú eftir í Hörpu eftir að hin gengu út.
Ari Trausti „Af þessu fréttum við í dag, að
Þóra og Ólafur Ragnar standa saman í lokin,
eins og upphaflega var áætlað.“
Mynd: SkjáSkOT AF veF víSiS