Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2012, Side 13
Erlent 13Mánudagur 4. júní 2012
Lamaðar rottur læra að ganga á ný
M
aðurinn á myndinni er
69 ára en ef horft er á
vinstri vanga mannsins
lítur hann út fyrir að vera
mun eldri en ef horft er á
þann hægri. Hann var vörubílstjóri í
28 ár og sökum þess var vinstri hlið
andlitsins mun meira í sólarljósi um
ævina en hin hliðin. Það er vel þekkt
staðreynd að geislar sólarinnar fara
illa með húðina en hér sést það nán-
ast svart á hvítu, ef svo má segja.
Fjallað var um ástand mannsins
í bandaríska læknatímaritinu The
New England Journal of Medicine
en þar kom fram að vinstri hlið and-
lits hans hafi orðið fyrir geislum sól-
arinnar í marga klukkutíma á dag í
gegnum rúðuna bílstjóra megin á
vörubílnum í 28 ár. Niðurstaðan er
sláandi.
Sannar hið margkveðna
Þykir þessi mynd sanna hið marg-
kveðna að fólk verður að vara sig á
geislum sólarinnar. Það á ekki síst við
nú þegar sumarið er gengið í garð. Ef
húð verður fyrir útfjólublárri geisl-
un, annaðhvort frá sólarljósi eða úr
lömpum, eykst hættan á illkynja æxli
sem nefndur er sortuæxli. Það á upp-
runa sinn í litafrumum húðarinnar
og getur myndast í fæðingarblettum
sem eru fyrir eða komið í ljós sem
nýir blettir. Auðvelt er að fjarlægja
það með skurðaðgerð á meðan það
er staðbundið en ef það nær að dreifa
sér til eitla og síðan annarra líffæra
getur það verið með illvígari æxlum.
Ljósir í áhættuhópi
Er tíðni þessara æxla há meðal fólks
sem vinnur úti í sólríkum löndum
og hefur tíðni meðal Íslendinga auk-
ist til muna síðastliðin ár. Á það sér-
staklega við þá sem eru ljósir á hör-
und því dökkur húðlitur verndar, og
ráðleggur landlæknisembættið fólki
að nota sólarvörn með háum varnar-
stuðli.
Á Vísindavef Háskóla Íslands
kemur fram að átján konur og tólf
karlar greinist að meðaltali með
sortuæxli á hverju ári en það er í 6.
sæti hjá konum og 12. sæti hjá körl-
um yfir algengustu krabbameinin á
Íslandi.
Gerir fólk eldra
Ef hættan á að fá sortuæxli er ekki næg
ástæða fyrir fólk til að nota sólarvörn
þá ætti þessi umræddi maður að vera
víti til varnaðar fyrir þá sem er annt
um útlit sitt því eins og myndin gefur
til kynna þá leika útfjólubláir geislar
sólarinnar húðina grátt og láta fólk líta
út fyrir að vera mun eldra en það er í
raun og veru. Ávinningurinn af því að
nota sólarvörn er því ekki aðeins aukn-
ar lífslíkur heldur einnig fagurra fés.
Vinstri hliðin er
eldri en sú hægri
Birgir Olgeirsson
blaðamaður skrifar birgir@dv.is
n Vörubílstjóri var óvarinn fyrir sólargeislum í 28 ár n Sláandi munur
Illa farinn Vinstri vangi mannsins lítur mun verr út en sá hægri sökum útfjólublárra geisla.
„Ég var með
Obama“
Það er ekki óvanalegt að sumir
krakkar skrópi í skólanum. Ástæð-
urnar eru venjulega þær að skóla-
ganga þann daginn þótti of mikil
byrði og vanalega er afsökunina
eitthvað á þessa leið: „Ég var svo
slöpp/slappur að ég komst ekki
í skólann.“ En afsökun Tyler
Sullivan var hreint ekki í þessum
anda. Meira í áttina við: „Ég komst
ekki því ég var að hanga með for-
setanum.“
Tyler fékk meira að segja hand-
skrifað bréf til kennarans frá
Obama, en á því stendur: „Vin-
samlegast afsakið Tyler … hann
var með mér,“ og undir bréfið ritar
Obama sjálfur.
Margir fórust
í Lagos
Yfir 150 farþegar eru taldir hafa
farist eftir að flugvél brotlenti á
íbúðahverfi í borginni Lagos í
Nígeríu í dag. Um var að ræða vél
á vegum Dana Air sem flaug frá
Abuja til Lagos með 153 um borð.
„Enginn komst af,“ sagði Harold
Demurin, yfirmaður flugmála í
Nígeríu, við fréttastofu Daily Mail
í Nígeríu.
Flugvélin brotlenti í miðju
íbúðahverfi og enn á eftir að stað-
festa fjölda látinna vegna slyssins.
Lagos er stærsta borg Níger-
íu, sem er fjölmennasta ríki Afr-
íku. Áætlað er að það íbúafjöldi
borgarinnar sé um 15 milljónir og
ríkir þar þjóðarsorg. Dana Air er
talið tiltölulega öruggt flugfélag en
flugöryggi í Nígeríu er hins vegar
bágborið.