Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2012, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.2012, Síða 24
24 Sport 4. júní 2012 Mánudagur n Öflugir knattspyrnumenn sitja heima yfir EM n Englendingar óheppnir Úrvalsmenn sitja heima N ú eru einungis fjórir dagar þar til keppni hefst á Evrópumótinu í knattspyrnu í Úkr­ aínu og Póllandi en þann 8. júní mætast annars vegar Pólland og Grikkland og hins vegar Rússland og Tékk­ land í opnunarleikjum móts­ ins. Þótt flestir helstu og bestu evrópskir leikmenn heims mæti til leiks eru þó ýms­ ir þekktir leikmenn sem ekki komast á mótið vegna meiðsla eða af öðrum orsökum, auk þess sem margir öflugir leik­ menn voru ekki valdir í hóp þjálfara sinna. DV kíkti á nokkra þá stærstu sem ekki munu spila fyrir landslið sitt í Evrópukeppninni að þessu sinni. Stórt skarð hjá Spánverjum Líklega er David Villa þekktasti leikmaðurinn sem ekki tekur þátt á EM að þessu sinni. Villa slasaðist í leik með félagsliði sínu Barcelona í vetur og hefur ekki náð sér að fullu. Efist ein­ hver um það skarð sem hann skilur eftir sig nægir að minna á að Villa var bæði markahæsti maður spænska landsliðsins á Heimsmeistaramótinu 2010 og á Evrópumótinu 2008. Á báðum mótum stóðu Spán­ verjar uppi sem sigurvegarar og þeim er þrátt fyrir allt aftur spáð titli í þetta skiptið. Annar mikilvægur leik­ maður spænska landsliðs­ ins undanfarin ár, Carles Puy­ ol, er einnig fjarri góðu gamni að þessu sinni og sömuleiðis vegna meiðsla. Lagðist hann undir hnífinn vegna þrálátra hnémeiðsla strax að lokinni deildarkeppninni á Spáni og hefur ekki náð sér að fullu. Mikill missir hjá enskum Það á ekki af enskum að ganga fyrir þessa keppni. Þrír sterk­ ir leikmenn liðsins hafa orð­ ið frá að hverfa síðustu daga vegna meiðsla sem sannar­ lega veikja möguleika liðsins til muna. Gareth Barry, Frank Lampard og Gary Cahill spila ekki á EM að þessu sinni og ekki bætir úr skák að marka­ maskínan Wayne Rooney er í banni í fyrstu tveimur leikjum landsliðsins. Þá var um tíma óttast að John Terry yrði líka frá eftir æfingaleik við Belgíu um helgina. Sá ótti reynd­ ist ástæðulaus og hann verð­ ur klár í slaginn þann 11. júní þegar England mætir Frakk­ landi í fyrsta leik þessara liða. Munar um minni spámenn Engin alvarleg meiðsl hrjá stærstu stjörnur annarra landsliða á mótinu þegar þetta er skrifað en meðal þeirra sem taldir eru til mikilvægra leik­ manna og verða fjarri vegna meiðsla má nefna Yoann Go­ urcuff hjá Frakklandi sem einmitt slasaðist í æfinga­ leik Frakklands gegn Íslandi fyrir skömmu. Þá glímir Yann M´Vila við smávægileg meiðsl og þykir tæpur. Áður hafði Loic Remy verið útilokaður vegna meiðsla. Einn leikreyndasti leikmað­ ur Rússa, Vasili Berezutski, er úti meiddur og munar um hann í þeim hópi. Sömuleið­ is kom Roman Shiskin ekki til greina vegna veikinda. Carlos Martins spilar ekki með Portú­ gal né heldur danski mark­ vörðurinn Thomas Sörensen og Lukasz Fabianski hjá Pól­ landi. Þá er töluvert síðan John Ruddy, einn varamarkv­ arða Englands, féll úr hópnum vegna fingurmeiðsla. Albert Örn Eyþórsson blaðamaður skrifar Lampard úr leik en Terry líklega með Enn syrtir í álinn hjá enska landsliðinu. Rétt fyrir upphaf Evrópu- mótsins í knattspyrnu eru þrír sterkir leikmenn úr leik vegna meiðsla. Tveir góðir Engin spurning er að missir er að þeim Carles Puyol og David Villa hjá spænska landsliðinu. Úrslit Pepsí-deildin FH-Fylkir 8–0 1–0 Guðjón Árni Antoníusson (23.), 2–0 Atli Guðnason (28.), 3–0 Albert Brynjar Ingason (36.), 4–0 Björn Daníel Sverrisson (46.), 5–0 Freyr Bjarnason (57.), 6–0 Atli Viðar Björnsson (80.), 7–0 Hólmar Örn Rúnarsson (82.), 8–0 Björn Daníel Sverrisson (89.) Grindavík-ÍA 2–2 1–0 Tomi Ameobi (34.), 1–1 Jón Vilhelm Ákason (45.), 2–1 Pape Mamadou Feye (63.), 2–2 Mark Doninger (85.) Fram-KR 1–2 0–1 Viktor Bjarni Arnarsson (58.), 1–1 Kristinn Ingi Halldórsson (77.), 1–2 Óskar Örn Hauksson (84.) Staðan 1 ÍA 6 4 2 0 11:7 14 2 FH 6 4 1 1 14:3 13 3 KR 6 4 1 1 12:8 13 4 Valur 6 3 0 3 9:6 9 5 Stjarnan 6 2 3 1 11:10 9 6 Keflavík 6 2 1 3 8:9 7 7 Selfoss 6 2 1 3 8:10 7 8 Breiðablik 6 2 1 3 3:6 7 9 Fram 6 2 0 4 7:9 6 10 Fylkir 6 1 3 2 7:14 6 11 ÍBV 6 1 2 3 8:8 5 12 Grindavík 6 0 3 3 10:18 3 Næstu leikir Fylkir-Fram 14. jún. 19.15 Stjarnan-Valur 15. jún. 19.15 ÍA-ÍBV 15. jún. 20.00 KR-Selfoss 16. jún. 14.00 Breiðablik-Grindavík 16. jún. 14.00 Keflavík-FH 16. jún. 14.00 Markahæstir 5 Mörk Björn Daníel Sverrisson (FH) Kjartan Henry Birgisson (KR) 3 Mörk Kristinn Ingi Halldórsson (Fram) Matthías Guðmundsson (FH) Atli Jóhannsson (Stjarnan) Fráleitt verð segir Ferguson Stjóri Manchester United, Alex Ferguson, harðneitar að greiða uppsett verð fyrir þá þrjá leikmenn sem stað­ fest er að félagið hafi áhuga á að kaupa fyrir næstu leiktíð. Eru það þeir Luka Modric hjá Tottenham, Cheick Tiote hjá Newcastle og Leigh ton Beines hjá Everton. Ef greiða ætti uppsett verð kosta þess­ ir þrír leikmenn rúma 14,4 milljarða króna miðað við gengið. Líklegt þykir að Tiote endi hjá Chelsea en vitað er um áhuga Roman Abramo­ vich á kappanum og þar eru peningar ekki vandamál. Trúin flytur fjöll David Beckham er einn fárra sem telja að Englendingar eigi raunverulega möguleika á að hampa Evrópumeist­ aratitlinum í knattspyrnu þetta árið. Fullyrðir kappinn að það sé ekki vegna ætt­ jarðarástar heldur búist and­ stæðingarnir ekki við miklu og það sé oft þá sem knatt­ spyrnuliðum gangi hvað best. Kappinn verður sjálf­ ur ekki í hópnum að þessu sinni en hann var ekki val­ inn til þátttöku. Eins og lesa má um hér á síðunni verða margir þekktir enskir leik­ menn fjarri góðu gamni vegna meiðsla.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.