Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2012, Page 3
„KennitöluflaKK
er eKKi ólöglegt“
Fréttir 3Miðvikudagur 27. júní 2012
Þ
að var lagt upp með það
í upphafi að ekkert væri
hannað. Þóra er bara hrein
og bein og við vildum bara
að fólk fengi að kynnast
henni eins og hún er,“ segir Sigrún
Þorgeirsdóttir, kosningastjóri fram-
boðs Þóru Arnórsdóttur, aðspurð út
í þátt auglýsingastofunnar Jónssons
og Le‘Macks í hönnun framboðsins
en auglýsingastofan starfar fyrir
framboðið og hannaði meðal annars
vef Þóru, samkvæmt upplýsingum
frá þeim sem starfa við framboðið.
Sigrún segir hugmyndina að Þóru-
deginum ekki eiga uppruna sinn á
auglýsingastofunni heldur komi sú
hugmynd frá stuðningskonu fram-
boðsins.
„Nei, nei, þetta voru allt sjálf-
boðaliðar sem hönnuðu daginn.
Það voru allt sjálfboðaliðar og Jóns-
son og Le‘Macks kom ekkert nálægt
því,“ segir Sigrún og bætir við að
gríðarlegur fjöldi sjálfboðaliða starfi
við framboðið þar á meðal grafískir
hönnuðir.
Sjálfsprottin herferð
Í fréttatilkynningu frá stuðnings-
fólki Þóru Arnórsdóttur kemur
fram að markmið dagsins hafi ver-
ið að stuðningsfólk kæmi saman
og nyti dagsins. „Í Iðnó í Reykjavík
var boðið upp á sérstaka Þórudags-
dagskrá þar sem fjöldi góðra gesta
leit við, þeirra á meðal Gjörninga-
klúbburinn, Valgeir Guðjónsson,
White Signal, rithöfundarnir Hall-
grímur Helgason og Sindri Freys-
son, séra Þórir Stephensen, Fel-
ix Bergsson og Hjalti Þorkelsson
úr Múgsefjun auk þess sem Þóra
ávarpaði stuðningsfólk sitt. Á efri
hæð Iðnó var dagskrá fyrir börnin
þar sem boðið verður upp á and-
litsmálun, upplestur, origami- og
spunasmiðju.“
Hvaðan koma Þórubolir?
Aðspurð um svokallaða Þóruboli
sem dreift var sagði Sigrún: „Þóru-
bolirnir voru svona grasrótar líka.
Hann var fyrst í slíkum bol hann
Unnsteinn í Retro Stefson. Það varð
bara strax eftirspurn eftir þeim bol.
Það var ekki hannað á auglýsinga-
stofunni eða slíkt.“ Aðspurður hvern-
ig hönnun bolsins kom til benti Unn-
steinn Stefánsson á Gauk Úlfarsson
fyrrverandi kosningastjóra Besta
flokksins. Gaukur er talinn lykilmað-
ur í framboði Þóru og hefur Ólafur
Ragnar Grímsson meðframbjóðandi
Þóru meðal annars sagt hann raun-
verulegan kosningastjóra hennar. Að
öðru leyti vildi Unnsteinn ekki tjá sig,
enda erlendis.
„Fínt svona“
Framboði Þóru Arnórsdóttur er
gjarnan spyrt saman við Samfylk-
inguna en almennt mælist stuðning-
ur við framboð hennar mestur meðal
þeirra sem segjast kjósa þann flokk.
Það vekur athygli að auglýsingastof-
an Jónsson & Le‘Macks kemur að
hönnun á auglýsingum og ímynd
Þóru. Það gengur þó erfiðlega að fá
skýr svör um hlutverk stofunnar í
framboðinu en spurningum DV um
þátt og störf Jónsson & Le‘Macks hef-
ur iðulega verið svarað með því að
drepa málinu á dreif.
Stofa sem vekur athygli
Það er fleira en störf auglýsinga-
stofunnar fyrir Þóru sem vakið hafa
athygli. Meðal helstu viðskiptavina
stofunnar utan útgerðarmanna eru
Sjálfstæðisflokkurinn, Landsbank-
inn og Lífeyrissjóður verkfræðinga.
Að auki starfar stofan fyrir Festu,
miðstöð um Samfélagsábyrgð, sem
og Rio Tinto Alcan sem er einmitt
einn eigenda stofunnar. Stofan komst
nýlega í fréttirnar vegna starfa sinna
fyrir útgerðarmenn en auglýsinga-
herferðin Landið og miðin var unnin
þar. Herferðin þótti umdeild en Agn-
ar Tr. Le‘Macks framkvæmdastjóri
sagði við DV að hann teldi þær innan
ramma siðareglna SÍA, Sambands ís-
lenskra auglýsingastofa.
Myndin án leyfis
Geta má að árið 2009 kærði VG
auglýsingar Sjálfstæðisflokksins
til siðanefndar vegna auglýsingar
flokksins þar sem mynd af Steingrími
J. Sigfússyni var birt án hans leyfis.
Því andmælti auglýsingastofan fyrir
hönd Sjálfstæðisflokksins, viðskipta-
vinar stofunnar. Stofan taldi heim-
ilt að birta myndina enda hafi ekki
verið um auglýsingu á vöru að ræða.
Þá taldi auglýsingastofan kosn-
ingaauglýsingar ekki hefðbundnar
auglýsingar m.a. vegna þess að þær
eru ekki merktar auglýsingastofu.
Siðanefndin féllst ekki á rökstuðning
Jónsson og Le‘Macks um að kosn-
ingaauglýsingar falli ekki undir 8. gr.
siðareglna. Þá taldi siðanefndin aug-
lýsingarnar brjóta í bága við anda
siðareglnanna. Grundvallarhug-
myndir siðareglnanna eru, að allar
auglýsingar skulu vera löglegar, sið-
legar, heiðarlegar og segja sannleik-
ann. Auglýsing skal samin með tilliti
til félagslegrar ábyrgðar og þess gætt
að viðteknum hefðum um sanngirni
í samkeppni sé fylgt,“ segir í úrskurði
nefndarinnar.
Atli Þór Fanndal
blaðamaður skrifar atli@dv.is
n Auglýsingastofa Þóru starfar fyrir Sjálfstæðisflokkinn og útgerðarmenn„Eingöngu sjálf-
boðaliðar skipu-
lögðu Þórudaginn.
Le‘Macks starfar
fyrir framboð Þóru
Hannað eða
sjálfsprottið
Kosningastjóri Þóru
segir Þórudaginn
sjálfsprottinn meðal
stuðningsfólks og að
atburðurinn sé ekki
hannaður af auglýs-
ingastofu.
Útgerðarmenn Landið og Miðin –
gervigrasrótarherferð útgerðarmanna er
hönnuð og unnin af Jónsson og Le‘Macks. Á
myndinni er Adolf Guðmundsson formaður
LÍÚ.
Stjórnmálaflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn og formaður hans Bjarni Benediktsson er
listaður sem einn af stærstu viðskiptavinum stofunnar.
n Persónuníð, kennitöluflakk, lögsóknir og játningar á íslenskum Apple-markaði
Lén tengd eiganda Buy.is
Meðal léna sem tengjast eiganda
vefverslunarinnar eru:
buy.is
china4you.com
minningargreinar.is
markadslausnir.is
hundafot.is
jakkafot.is
nuddpottar.is
skolalif.is
framhaldsskolafrettir.is
haskolafrettir.is
grunnskolafrettir.is
Fyrirtæki tengd rekstri
Buy.is eða Friðjóni
1720 ehf.
1820 ehf.
1920 ehf.
1949 ehf. - Fyrirtækið tekur við
millifærslum vegna kaupa úr verslun
buy.is um þessar stundir.
1990 ehf. - Lýst gjaldþrota 2011
1992 ehf. - Lýst gjaldþrota 2012
B Import ehf.
Centurion Group ehf.
Import ehf.
Netverslun ehf.
Terra ehf.
Tölvuverkstæðið ehf.
FBG ehf. - Lýst gjaldþrota 2011
Innflutningur og ráðgjöf ehf. - Lýst
gjaldþrota 2011
Centurion Ísland ehf. - Lýst gjald-
þrota 2008
verslunar ehf. sem er fyrirtæki í
eigu sama aðila en með lokuðu
virðis aukanúmeri. Því hefur þó
verið breytt og greiðsluupplýs-
ingar birtast nú á vefnum. Auk
félagsins 1949 ehf. er Friðjón
skráður stjórnarmaður fyrir-
tækjanna 1720 ehf., 1820 ehf.,
1920 ehf., 1990 ehf., 1992 ehf.,
B Import ehf., Centurion Group
ehf., Import ehf., Netverslun
ehf., Terra ehf, og Tölvuverk-
stæðisins ehf.
Í rekstrarsögu Friðjóns kem-
ur fram að frá 2008 hafa fimm
fyrirtæki í hans eigu farið í þrot.
Síðast fyrirtækið 1992 ehf. sem
kom að rekstri buy.is
Játning í samhengi
„Ég hef líklega kostað ríkið ein-
hverja peninga í gegnum tíðina
en ef þið setjið mitt flakk í sam-
hengi við til dæmis tap ríkisins
og höfundarétthafa vegna ólög-
legs niðurhals, þá kemst ég ekki
einu sinni á blað,“ segir Friðjón í
játningu á spjallsvæðinu. Hann
neitaði að ræða við DV þrátt
fyrir ítrekuð símtöl og bréf þar
sem óskað var eftir hans sjón-
armiðum fyrir fréttina. „Það er
að mínu mati síðasta úrræðið að
skipta um kennitölu en á með-
an það er löglegt að gera slíkt, þá
sé ég ekkert athugavert við það,
svo fremi sem það skaðar engan
annan. Ég skipti um kennitölu
til þess að tryggja að ábyrgðar-
þjónusta haldist og buy.is lifi.“
Friðjón segir á spjallsvæðinu að
umræðan eigi rót sína að rekja
til samkeppnisaðila hans sem
vilji eiga markaðinn. „Ég heiti
Friðjón, ég er kennitöluflakkari,
þunglyndissjúklingur, faðir,
góður maður og á og rek buy.is.“