Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2012, Blaðsíða 8
Á
hverjum mánudegi er Elín
Arna Arnarsdóttir ásamt
fleirum stödd á Austurvelli
og gefur þeim sem á þurfa
að halda, súpu og brauð
eða hrísgrjónagraut og slátur. „Við
byrjuðum á þessu fljótlega eftir
áramótin og það var alveg þörf á
þessu. Við erum með þjónustu
sem heitir United Reykjavík og við
köllum það „að elska fólk til lífs.“
Við viljum fá fleiri inn í þetta og er
þetta starf unnið af kærleika. Það
eru allir velkomnir sama hvaðan
þeir koma, ekki síst þeir sem finnst
þeir einskis virði í þjóðfélaginu. Við
gefum matinn á mánudögum milli
17:30 og 18:30 við styttuna á Aust-
urvelli. Matargjöfin sem slík er eig-
inlega algjört aukaatriði fyrir okk-
ur því við viljum aðallega að fólkið
finni að við erum til staðar fyrir
það.“
Margir óvirkir alkóhólistar í
starfinu
United Reykjavík er þjónusta sem
byggir á trúarlegum grunni og er
með aðsetur í CTF-kirkjunni á Há-
teigsvegi í Reykjavík og Elín Arna
segir að það mæti yfirleitt 100-
200 manns á samkomur þeirra og
alltaf um 10-15 manns í matar-
gjöfina. „Við erum þrjú sem höf-
um tekið ábyrgð á þessu frá upp-
hafi og það er alltaf hann Óli vinur
okkar sem gerir súpuna. Það eru
margir óvirkir alkóhólistar í United
Reykjavík og sum okkar hafa sömu
reynslu og þessir einstaklingar
sem koma til okkar í matargjöf-
ina og hafa því skilning á ástandi
þeirra,“ segir Elín Arna.
Margir sem koma að borða og
spjalla
„Það er mjög mikið af fólki sem
kemur og fær að borða hjá okkur.
Langflestir eru í mjög mikilli neyslu
og sumir eiga jafnvel ekki í nein hús
að vernda. Við vonum auðvitað að
fólkið hætti neyslu sinni því þeir
sjá klárlega árangur hjá okkur, hjá
United Reykjavík, sem þeir myndu
sjálfir vilja ná. Að auki kannast þeir
við einhver okkar líka, kannski frá
því að hafa verið í meðferð, eða bara
af götunni og í neyslu og þeir sjá, í
okkur, að það er hægt að snúa lífinu
til betri vegar, segir Elín.
„Ég hef ekki búið sjálf á göt-
unni en ég var einu sinni í mikilli
eiturlyfja neyslu,“ segir Elín Arna og
tekur fram að þau hafi ekki verið að
auglýsa matargjöfina neitt og þess
hafi ekki gerst þörf hingað til. „Við
höfum bara látið þetta spyrjast út á
meðal þeirra sem eiga ekki heim-
ili. Við höfum líka skipt okkur niður
og labbað um og spjallað við fólk og
fengið þá sem á þurfa að halda til að
koma með okkur. Þeim finnst voða-
lega gott að sitja bara og spjalla og
við sjáum hvað það, eitt og sér, er
þeim mikils virði.“
8 Fréttir 27. júní 2012 Miðvikudagur
„Langflestir eru í
mjög mikilli neyslu
og sumir eiga jafnvel ekki
í nein hús að vernda.
n Heimilislaust fólk og fíklar fá súpu og heimilismat hjá United Reykjavík
Kidda Svarfdal
blaðamaður skrifar kidda@dv.is
Bjóða í mat
á Austurvelli
Herdís Þorgeirsdóttir:
Þiggur ekki
styrki frá
fyrirtækjum
Herdís Þorgeirsdóttir forseta-
frambjóðandi þiggur enga fjár-
styrki frá fyrirtækjum. Herdís
leggur mikla áherslu á að vera
óháð fyrirtækjum og peningaöfl-
um í kosningabaráttu sinni. „Ef
peningaöflin ráða úrslitum um
það hverjir eru kjörnir til áhrifa
kunnum við að sitja uppi með
handbendi þeirra,“ segir Herdís.
Í umfjöllun DV um fjárfram-
lög til forsetaframbjóðenda á
mánudaginn kom fram að Her-
dís þæði styrki frá fyrirtækjum,
en í opnu bókhaldi sem hún birt-
ir á Facebook-síðu sinni, má sjá
23.000 króna millifærslu frá Sím-
anum inn á reikning fram-
boðsins, þrátt fyrir að skýrt sé
tekið fram að framboðið taki ekki
við styrkjum frá fyrirtækjum. Jón
Þór Ólafsson, kosningastjóri
Herdísar, segir að þessi millifær-
sla sé ekki styrkur frá Símanum.
„23.000 krónur sem koma fram í
opnu bókhaldi Herdísar eru
vegna símasöfnunar sem við vor-
um með,“ segir hann. Leiðréttist
það hér með.
„Hún varð
stjörf“
Vinningshafinn sem hreppti 73
milljónir króna með því að kaupa
lottómiða í Leirunesti á Akureyri
þann 9. júní þegar hann keypti
bensín hafði ekki hugmynd um
að hann hefði hlotið stórvinning
þegar hann bað um að farið yrði
yfir miðann hans í gær. Akureyri
vikublað hefur þetta eftir öruggum
heimildum, en heimildarmaður
þeirra segir vinningshafann, konu,
hafi sett hljóðan. „Hún varð stjörf,“
segir heimildarmaður Akureyr-
ar vikublaðs sem grunar að konan
hafi ekki sofið eftir að hafa fengið
fréttirnar. Vinningshafans hafði
verið leitað í nokkrar vikur.
Matargjafir
„Það kemur mjög
margt fólk til okkar
og fær að borða,“
segir Elín Arna
Arnarsdóttir.
Mynd sigtryggur ari