Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2012, Blaðsíða 15
Á
meðfylgjandi myndum má
sjá hvernig hundar eru með-
höndlaðir í Kína áður en
þeim er slátrað.Þeir skornir
niður í bita og eldaðir á kín-
verskum veitingastöðum, fyrir fram-
an gestina, þrátt fyrir hörð mótmæli
dýraverndunarsamtaka.
Engin dýraverndunarlög í gildi
Hópur kínverskra aðgerðasinna í
Yulin-borg í Guangxi-héraði lét til
skarar skríða á hundamarkaði og
mótmælti harðlega meðferðinni
á dýrunum. Listamaðurinn Pian
Shan Kong kraup fyrir framan hrúgu
af hundshræjum og játaði syndir
mannanna á sama tíma og hann bað
dýrin afsökunar á grimmdinni með
táknrænum hætti.
Engin dýraverndunarlög sem
banna illa meðferð á dýrum eru í
gildi í Kína, þrátt fyrir öflug mótmæli
dýraverndunarsamtaka. Þá hefur
fjölgað mikið í samtökum gæludýra-
eigenda sem hafa sprottið fram í kín-
verskum borgum undanfarin ár.
Barðir til dauða
Hundaát er mjög algengt í Kína,
sérstaklega þegar kalt er í veðri á
veturna, en sú aðferð sem stunduð
er í sumum héruðum, að berja
hundana til dauða, til þess að auka
blóðstreymi í kjötið, verður sífellt
umdeildari.
Þegar fólk hefur lítið á milli hand-
anna og sér jafnvel fram á að eiga
ekki fyrir mat, er hundaát jafnframt
samþykkt sem eins konar neyðarráð-
stöfun.
Björguðu 500 hundum
Í apríl tókst kínverskum aðgerða-
sinnum að bjarga meira en 500
hundum sem átti að slátra, þegar
þeir sátu fyrir stórum flutn-
ingatrukki og náðu að stöðva för
hans. Dýraverndunarsamtök segja
að flestir hundanna í bílnum hafi
vart verið með lífsmarki þar sem
þeir höfðu mátt lifa við hörmulegar
aðstæður, þar sem allt of mörgum
hundum var troðið saman í búr
án vatns og matar á rúmlega 1.600
kílómetra akstursleið. Af þeim
hundum sem voru í bílnum höfðu
11 þegar drepist af völdum ofþorn-
unar.
Fréttir 15Miðvikudagur 27. júní 2012
n Grimmileg meðferð á hundum í Kína n Barðir til dauða til að auka blóðstreymi
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is
Hundum slátrað
til manneldis
Með bestu lyst Eins og sjá má virðast Kínverjarnir á myndinni taka hraustlega til matar
síns. Engin dýraverndunarlög eru í gildi í Kína.
Á leið til slátrunar Eins og sjá má er
hundunum torðið mörgum saman í búrin.
Dæmi eru um að þeir séu barðir til ólífs til
þess að auka blóðfæðið og mýkja kjötið.