Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2012, Qupperneq 10
TeksT á við fæðingarþunglyndi
10 Fréttir 27. júní 2012 Miðvikudagur
Á
gústa Sif Aðalsteinsdóttir
eignaðist sitt fyrsta barn
fyrir þremur mánuðum.
Hún naut meðgöngunn-
ar og beið spennt ásamt
manni sínum eftir komu barnsins
í heiminn. Eftir að barnið fæddist
byrjaði Ágústa að finna fyrir mik-
illi vanlíðan sem ágerðist stöðugt.
Það var ekki fyrr en hún var kom-
in á fremsta hlunn með að gera
barni sínu mein að hún áttaði sig
á að eitthvað væri að og bar sig eft-
ir hjálp. Í dag er hún í meðferð við
fæðingarþunglyndi og hlakkar til
að fara njóta móðurhlutverksins.
Þessi hugrakka stúlka stígur nú
fram og segir sögu sína um barátt-
una við fæðingarþunglyndi í von
um að opna umræðuna og að kon-
ur sem upplifa fæðingarþunglyndi
sjái að það er hjálp að fá. Enginn
eigi að þurfa að þjást í hljóði.
Spennt fyrir barninu
„Ég var rosalega spennt fyrir með-
göngunni og var rosalega spennt
fyrir því að eignast barn. Þetta var
í raun algjör drauma meðganga
og ég gat unnið alveg fram að
fæðingu.“
Ágústa gekk með tvær vikur
fram yfir áætlaðan fæðingar-
dag og var því ákveðið að koma
fæðingunni af stað. „Ég kveið svo-
lítið fyrir því að vera sett af stað.
Ég hafði bara heyrt hryllingssögur
af því hjá konum. En svo var þetta
bara ekkert mál. Ljósmæðurnar á
fæðingardeildinni voru yndislegar
og við vorum bara að tala saman
og fíflast inn á milli. Við vorum
rosalega spennt fyrir að vera loks-
ins að fá barnið í hendurnar eftir
alla þessa bið. “
Fann ekki fyrir neinu
Fæðingin gekk hratt og vel fyrir sig
en þegar drengurinn var lagður á
brjóst Ágústu segist hún ekki hafa
fundið fyrir neinum tilfinningum.
„Allar konur segja að maður finni
þessa yfirþyrmandi ást til barns-
ins síns en ég bara lá þarna og vissi
ekkert hvað ég ætti að gera. Ég var
bara alveg dauð. Mér leið ekkert
illa, en var hissa yfir því að finna
ekki fyrir neinu. Ég horfði bara á
hann og passaði að hann rynni
ekki af mér og niður á gólf.
Maðurinn minn klippti á nafla-
strenginn og byrjaði svo að taka
myndir af stráknum sínum á með-
an hann var mældur og vigtaður.
En það voru engar myndir tekn-
ar af mér og mér fannst það rosa-
lega særandi. Ég hugsaði með mér
hvort ég liti svona illa út en þorði
ekki að segja neitt. Vildi ekki vera
leiðinlega mamman sem vildi
alltaf vera að láta taka myndir af
sér. Svo fór mér að líða eins og ég
væri ekkert með í þessu, ég væri
bara manneskjan sem fæddi hann
og mínu hlutverki þá í raun lokið.“
Hélt að enginn vildi hitta sig
Fjölskyldan fór því næst yfir á
Hreiðrið þar sem Ágústa hafði bú-
ist við að vinir og ættingjar kæmu
og litu nýja fjölskyldumeðliminn
augum. „Ég átti von á því að fólk
kæmi í heimsókn, enda hafði mað-
ur séð aðrar konur á deildinni taka
á móti fjölskyldum sínum. Allir að
taka myndir og allir brosandi og
allt svo æðislegt. Sú eina sem kom í
heimsókn til okkar var mamma og
ég upplifði það þannig að fólk vildi
ekki koma. Mér fannst ekki eins og
fólk vildi gefa mér næði til að hvíla
mig heldur að það vildi ekki koma.
Mér fannst eins og við værum ekki
merkilegri en þetta og enginn væri
spenntur fyrir því að hitta okkur.“
„Langaði að hlaupa út og láta
mig hverfa“
Þegar líða tók á daginn byrjaði
sonurinn að láta heyra í sér. Ágústa
segir vanmáttarkenndina hafi
byrjað þegar hún gat ekki huggað
son sinn og sjálf barðist hún við að
halda tárunum í skefjum. „ Þegar
hann byrjaði að gráta stressaðist
ég öll upp og hugsaði bara; ó guð,
hvað á ég að gera. Mér var farið að
líða illa þarna. Ég skildi ekki barnið
mitt og ég vissi ekki hvað ég átti að
gera. Mig langaði að gráta, hlaupa
út og láta mig hverfa. Mér fannst
ég hræðileg, ég vissi ekkert hvernig
maður hugsar um barn.
Eftir svona tíu til fimmtán mín-
útur kom ljósmóðir inn til okkar og
spurði hvort okkur vantaði hjálp.
Þá leið mér enn verr því mér fannst
engin alvöru móðir þurfa hjálp við
að hugsa um barnið sitt. En ljós-
móðirin gaf mér góð ráð í sam-
bandi við brjóstagjöfina en svo
var það bara eiginlega búið. Mér
fannst það svolítið óþægilegt. Mér
fannst eins og barninu væri bara
hent framan í mig og svo var ljós-
móðirin bara farin. Ég hefði viljað
að það væri kíkt á okkur svolítið
oftar því maður er svo rosalega
óöruggur þegar maður er svona
nýbakað foreldri.“
Öryggi í ljósmóðurinni
Þau dvöldu á Hreiðrinu fyrstu
nóttina eftir að barnið fæddist en
sökum kvíða svaf Ágústa ekki mik-
ið um nóttina og vaknaði reglulega
upp með andfælum. Morguninn
eftir beið hún með eftirvæntingu
eftir að vera útskrifuð af fæðingar-
deildinni og bjóst við að henni
myndi fara að líða betur þegar
heim væri komið. Sú varð ekki
raunin.
„Ég hugsaði með mér hvað yrði
gott að komast heim. Þar myndi
mér líða vel og allt yrði þægilegt og
gott. En um leið og við lögðum af
stað frá fæðingardeildinni þá hellt-
ist yfir mig kvíði. Mér fannst kvíðin
og stressið ágerast eftir því sem ég
nálgaðist heimili okkar. Mig lang-
aði ekki heim lengur. Ég sendi ljós-
móðurinni. sem hafði verið með
mig á heilsugæslunni, sms og sagði
henni að drengurinn væri fædd-
ur. Ég vissi ekkert hvort spítalinn
myndi hafa samband við hana eða
hvort að ég ætti að gera það.
Ljósmóðirin kom um tuttugu
mínútum seinna og það var
æðislegt. Mér leið svo vel að hafa
hana hjá mér. Mér fannst ég miklu
öruggari og þegar hún var hjá mér
fannst mér ég vera að standa mig
vel. Ég hafði einhvern til að leið-
beina mér. Mér leið enn illa en var
samt öruggari.“
Ætlaði ekki að gefa ábót
Það bætti ekki úr skák að brjósta-
gjöfin gekk brösuglega og ofan á
vanlíðanina bættist samviskubit yfir
því að þurfa að gefa barninu ábót
úr pela. En drengurinn var óvær og
grét nánast fyrstu þrjá sólarhringana
eftir að þau komu heim. „Hann var
orðin hás af gráti og ég skildi ekki af
hverju hann var að gráta svona mik-
ið. Mamma fór og keypti þurrmjólk
handa honum en ég ætlaði sko ekki
að fara gefa barninu mínu þurr-
mjólk. Hvernig móðir væri ég þá?
Það var ekki fyrr en á fjórða
degi, eftir að hafa grátið nær stans-
laust allan daginn yfir því að geta
ekki gefið barninu mínu að borða,
að mamma blandaði í pela og við
gáfum honum tvær þrjár skeiðar.
Hann svaf þá í fjóra tíma og ég fékk
loksins einhvern svefn. Núna hélt
ég að þetta myndi allt fara að koma
og ég myndi fara að finna þessa
yfir þyrmandi ást til barnsins.“
Setti upp gervibros
Ágústa sá nú fram á bjartari tíma
og hélt að nú myndi líðan henn-
ar skána. Vanlíðanin var þó enn
til staðar og hún hafði ekki viður-
kennt hana fyrir neinum. Enn
hafði hún ekki gert sér grein fyr-
ir að hún gæti mögulega þjáðst af
fæðingarþunglyndi heldur upp-
lifði sig einfaldlega sem vanhæfa
móður. Hún segist hafa sett upp
gervibros í hvert skipti sem fólk
spurði hana um líðan sína. „Ég
svaraði alltaf að strákurinn væri
svo góður og æðislegur og að ég
hefði það alveg frábært. Það gekk
vel en mér fannst ég bara ekki vera
að standa mig. Ég skammaðist
mín fyrir hvernig mér leið og mér
fannst ég ekki vera móðir. Finnst
það ekki ennþá. Mér finnst bara
eins og ég sé að passa barn.“
Erfitt að segja frá
tilfinningunum
Hún treysti sér ekki til að tala um
tilfinningar sínar við manninn sinn
og segir ástæðuna vera þá að hann
hafi haft mjög fyrirfram ákveðnar
hugmyndir um hvernig lífið ætti að
vera eftir að barnið kæmi í heiminn.
Þar passaði þunglyndi og vanlíðan
ekki inn í myndina. „Ég er nýbúin
að segja honum hvernig mér líð-
ur. Hann hefur svo rosalega sterkar
skoðanir á því hvernig foreldr-
ar eiga að vera. Hann var búinn að
segja mér þessar skoðanir sínar svo
ég passaði mig að segja ekki neitt
við hann. Að hans mati var það að
eignast barn, það æðislegasta sem
til er og það er það örugglega, en ég
er ekki enn farin að finna það. Það
var rosalega erfitt fyrir mig að segja
honum hvernig mér leið því hann
tók því mjög illa. Honum fannst ég
vera að hafna sér og barninu okk-
ar og hann skildi ekki af hverju mér
leið svona. Hann er nýfarinn að
fatta það að ég þarf að læra að þykja
vænt um barnið okkar. Ég þarf að
læra að láta mér líða vel.“
Erfitt að missa ljósmóðurina
Vika var liðin frá fæðingunni og
Ágústa kveið fyrir því að bráðum
myndi ljósmóðirin hætta að vitja
hennar. „Mér leið hræðilega yfir
því að ljósmóðirin kæmi ekki aftur
til mín. Seinasta daginn sem hún
kom, langaði mig að grípa um fæt-
ur hennar, gráta og biðja hana um
að flytja til mín, en ég brosti bara
mínu breiðasta og þakkaði fyr-
ir hjálpina. Mig langaði að deyja
þegar ég sá hana labba út um
dyrnar. Eftir þetta einangraðist ég
líka mikið því að maðurinn minn
fór aftur í vinnu og mamma mín
líka. Ég var bara ein. Mig langaði
til að væla í manninum mínum og
biðja hann um að vera heima leng-
ur. En ég gerði það ekki.“
Leið eins og aumingja að
hætta brjóstagjöf
Eftir sex vikna basl með brjóstagjöf-
ina ákvað Ágústa að hætta að reyna.
„Ég fékk eiginlega enga mjólk í
brjóstin. Það var samt alltaf verið
að ýta á mig að reyna lengur. Það
var ekki sagt við mig berum orð-
um að ég yrði að gefa honum brjóst
en það var það sem ég heyrði. Að
ég væri ekki góð móðir ef ég væri
ekki með barnið mitt á brjósti. Og ef
barnið fengi ekki brjóstamjólk yrði
hann alltaf veikur og bara aumingi.
Það var svo mikið stress og pressa
að það kom bara engin mjólk í
brjóstin. Þá reif ég mig algjörlega
niður og fór að hugsa af hverju ég
n Ágústa Sif Aðalsteinsdóttir hefur gengið í gegnum erfiðleika síðan sonur hennar fæddist
Ágústa Sif og sonurinn „Um leið og við lögðum af stað frá fæðingardeildinni þá helltist yfir mig kvíði. Mér fannst kvíðin og stressið
ágerast því nær sem ég kom heimili okkar. Mig langaði ekki heim lengur.“ Mynd/Sigtryggur Ari
„ Ég skildi
ekki
barnið mitt og
ég vissi ekki
hvað ég átti
að gera. Mig
langaði að
gráta, hlaupa
út og láta mig
hverfa.
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is