Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2012, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2012, Page 19
Neytendur 19Miðvikudagur 27. júní 2012 n Fjöldi tjaldsvæða er í boði um allt land en töluverður munur getur verið á verði og þjónustu þeirra Bestu tjaldsvæðin 16 Hólar í Hjaltadal Einn merkasti sögu- og menningarstað- ur landsins. Í Hólaskógi eru afskapleg falleg rjóður sem veita gott skjól fyrir tjöld og vagna. Ótal gönguleiðir eru um svæðið, auk þess sem góð þjónusta er á svæðinu til dæmis veitingastaður og sundlaug. Verð: Sjá Hofsós Þjónusta: WC 3G+ / - 13 Hofsós Skjólgott tjaldsvæði með rafmagni, salernum, köldu og heitu vatni. Stutt er í nýju, margverðlaunuðu sundlaugina á Hofsósi. Verð: Fullorðnir: 1.000 kr. Önnur nótt: 800 kr. Elli- og örorkulífeyrisþegar: 800 kr. Önnur nótt: 600 kr. Rafmagn 600 kr. Aðeins greitt fyrir 12 ára og eldri. Þjónusta: n Tjaldsvæði á Sauðárkróki, Hofsósi, Hólum og Varmahlíð eru í samstarfi þannig að hægt er að gista fyrstu nóttina á einhverju af þessum fjórum tjaldsvæðum og fá þá lægra verð næstu nótt á eftir á einhverju af hinum tjaldsvæðunum. WC + / - 14 Sauðárkrókur Tjaldsvæðið á Sauðárkrók er staðsett miðsvæðis í bænum. Þaðan er stutt í alla þjónustu. Verð: Sjá Hofsós Þjónusta: WC 3G+ / - 17 Varmahlíð Fjölskylduvænt svæði með ótal afþreyingarmöguleikum í nágrenninu. Það er skógi vaxið og því mjög skjólgott. Tjaldsvæðið er í misstórum básum sem eru afmarkaðir með trjábeltum. Stutt er í alls kyns afþreyingu. Tveir fótbolta- vellir eru við tjaldsvæðið og aðeins 250 metra ganga eftir fallegum skógarstíg að sundlaug ásamt heitum potti. Að auki er sér barnalaug sem er heitari, með lítilli rennibraut fyrir allra minnstu gestina. Verð: Sjá Hofsós Þjónusta: WC 3G + / - 18 Hamrar við Kjarnaskóg Eitt stærsta og glæsilegasta tjald- svæði landsins í fögru umhverfi undir klettunum sunnan og ofan Akureyrar. Tjaldsvæðið er staðsett í útjaðri úti- vistarsvæðisins í Kjarnaskógi. Frábærar gönguleiðir í nágrenninu. Verð: Fullorðnir: 700 - 1.000 kr. Frítt fyrir 13 ára og yngri Þvottavél 400 kr. Rafmagn: 500 kr. Þjónusta: WC 3G + / - 12 Stóra Sandfell Tjaldsvæðið er að mestu í skógivöxnu landi og geta gestir ýmist tjaldað á sléttum flötum eða inni í rjóðrum. Um tjaldsvæðið rennur Króklækurinn sem er fallegur, grunnur og barnvænn lækur. Fallegar gönguleiðir eru í nágrenninu og má þar meðal annars nefna gönguleið í Hjálpleysudal sem er talinn vera dýpsti dalur landsins. Tjaldsvæðið er staðsett 17 kílómetra frá Egilsstöðum við þjóðveg eitt á leiðinni til Hafnar í Hornafirði. Aðkoma er góð fyrir allar tegundir ökutækja. Verð: Fullorðnir 900 kr. Ellilífeyrisþegar og öryrkjar 750 kr. Unglingar 15–17 ára í fylgd með fullorðnum 500 kr. Frítt fyrir 14 ára og yngri Frítt í sturtur Þjónusta: WC 3G+ / - 15 Systragil Tjaldsvæðið Systragil er í landi Hróarsstaða í Fnjóskadal, Suður– Þingeyjarsýslu. Frá Akureyri eru 36 kílómetrar í Systragil. Stutt er í sund í Stórutjarnaskóla og á Illugastöðum, þá er stangveiði í Fnjóská. Lítil búð er í göngufæri í Vaglaskógi og stutt yfir í 9 holu golfvöll í Lundi. Merktar gönguleiðir eru bæði í Vaglaskógi og upp með Systragili, Þingmannaleið. Tjaldsvæði er skjólgott tjaldsvæði fyrir tjöld, vagna og húsbíla. Verð: Fullorðnir: 900 kr. 67 ára og eldri 700 kr. Frítt fyrir börn Þjónusta: WC 3G + / - 11 Borgarfjörður eystri Borgarfjörður eystri er rómaður fyrir náttúrufegurð og þá sérstaklega fyrir sérstæðan fjallahring. Góð aðstaða er á tjaldsvæðinu og gönguleið frá tjald- svæðinu umhverfis og upp á Álfaborg. Þar er góð aðstaða fyrir hjólhýsi og húsbíla og þar eru rafmagnstenglar og sorptunnur eru á tjaldsvæðinu. Verð: Fullorðnir: 750 kr.* Rafmagn: 500 kr. * þriðja nóttin frí. Þjónusta: WC 3G + / - 10 Stokkseyri Tjaldsvæðið á Stokkseyri er mikið endurbætt svæði þar sem salernisað- staða hefur fengið yfirhalningu og sett hefur verið upp losunaraðstaða fyrir húsbíla. Rafmagn hefur verið endur- bætt og ætlunin er að fjölga tenglum fyrir komandi ferðasumar. Leikvöllur hefur verið settur upp fyrir börnin og göngustígur lagður sem endar í miðbæ Stokkseyrar. Verð: Fullorðnir: 800 kr. Frítt fyrir börn undir 12 ára Þjónusta: WC 3G Geir Gígja nefnir nokkra staði sem eru sannkallaðar útileguperlur sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara: þakgil Frábær staðsetning og umhverfi. Kerlingarfjöll Fært fyrir alla og nauðsynlegt að upplifa hálendi Íslands. Dæli, Víðidal Góð aðstaða á góðu tjald- svæði. Um að gera að skoða Kolugljúfur í leiðinni. Hamragarðar Rosalega skemmtilegt svæði við Seljalandsfoss. Nauðsynlegt að láta sig hafa það að vaða ískalda ána við tjaldsvæðið og skoða fossinn Gljúfrabúa inni í gljúfrinu. Hólaskjól Svæðið er í um það bil klukku- stundar akstur frá Kirkjubæjarklaustri og er á mörkum láglendis og hálendis. Fólk kemst þangað á fólksbílum en ekki lengra. Tjaldsvæðið er alveg í hrauninu og er rosalega skemmtilegt. Aðrir staðir 11 12 13 14 15 1817 16

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.