Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2012, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2012, Side 20
Ígló flottast í ár n Tvíburar Tinnu Ólafs alltaf í Ígló-fötum Þ etta er rosalegur heiður,“ segir Guðrún Tinna Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri barnafata- fyrirtækisins Ígló, en vörur og herferð Ígló í ár hefur verið valin það flottasta fyrir sumarið 2012 að mati Stylesight-fyrirtækisins. Sty- lesight er alþjóðlegt fyrirtæki með skrifstofur um allan heim en það að- stoðar kaupendur við að selja vör- ur fyrir næsta sölutímabil. Guðrún Tinna segir valið skipta miklu máli fyrir Ígló. „Við höfum aldrei verið í neinu sambandi við Stylesight en þeir höfðu samband við okkur í síð- ustu viku og greindu okkur frá því að við hefðum verið valin sem leiðandi barnafatamerki. Ígló er fjögurra ára íslenskt fyrirtæki með höfuðstöðvar á Íslandi. Við erum með ellefu versl- anir hér á landi og í nokkrum öðrum löndum svo þetta er frábært tækifæri fyrir svona lítið fyrirtæki.“ Helga Ólafsdóttir er aðalhönnuð- ur Ígló. Að sögn Guðrúnar Tinnu hugsar Helga um þægindi umfram allt annað þegar hún hannar föt á börn. „Hugsunin er að börnin vilji vera í þessum fötum hvort sem þau eru að fara í mat til afa og ömmu eða á leikskólann,“ segir hún og ját- ar því að tvíburarnir hennar sjálfrar, Grímur Fannar og Fanney Petra, sem komu í heiminn í byrjun febrúar, gangi helst ekki í öðru en Ígló-fötum. „Og eldri dæturnar líka. Sú fimm ára fer helst ekki í neitt annað. Þegar hún mætir á leikskólann vilja krakkarnir leita að Ígló-vininum sem er á öllum fötunum. Hins vegar spáir níu ára dóttir mín meira í fötin sjálf.“ indiana@dv.is 20 Lífsstíll 27. júní 2012 Miðvikudagur Varaskrúbb heima við Það hugsa flestar konur vel um húð- ina í andliti sínu en fæstar hugsa mikið um varirnar. Það er mjög gott að nota alltaf annað slagið svo- kallaðan varaskrúbb sem tekur þurrkinn og dauðu húðina af vörun- um því þurrar og skrælnaðar varir eru ekki fallegar, svo ekki sé minnst á óþægindin sem þeim fylgja. Varaskrúbb getur maður ann- aðhvort keypt í snyrtivöruverslun- um og svo getur maður auðveld- lega búið hann til heima hjá sér. Það eina sem þú þarft er júg- ursmyrsl, sykur og gamall tann- bursti. Þú blandar saman sykrinum og júgursmyrslinu og berð á með tannburstanum og nuddar varlega þangað til þér finnast varirnar vera orðnar mjúkar. Þrífðu svo varirnar með volgu vatni og mildri sápu og berðu varasalva á þær. Tveir af hverjum þremur lifa af krabbamein Dauðsföllum hefur fækkað í New York samkvæmt tölum heilbrigð- ismálastofnunar þar í borg. Talið er að tveir af hverjum þremur lifi af að fá krabbamein samkvæmt töl- um sem birtar voru á dögunum hjá krabbameinsfélagi í New York. Þetta er góð þróun því síðustu 30 ár, eða síðan félagið fór að skrá þessar töl- ur, þá hafa batalíkur sjúklinga ver- ið innan við 50 prósent. Læknirinn Clifford Hudis sem er sérfræðingur í brjóstakrabbameini sagði: „Þetta er mjög spennandi! Við erum að sjá miklar breytingar í öllum dánartöl- um og okkur miðar hratt fram í því að berjast gegn þessum sjúkdómum.“ Sex verstu mis- tökin í ræktinni 1 Einhliða æfingar Einhliða æfingar eins og til dæmis armlyftur eru ekki þýðingarmiklar. Að hreyfa einn vöðva í einu örvar vöðvaþræðina hvorki nógu mikið til að byggja upp vöðvana né krefst það nógu mikillar orku til að brenna hitaeiningum að einhverju ráði. Viljir þú byggja upp vöðva og verða skorin/n á sama tíma og þú brennir fitu þarftu að framkvæma æfingar sem krefjast mikillar orku og örva fleiri en einn líkamsvöðva í einu. 2 Líkamsræktartæki Fjölbreytt líkams-ræktartæki gera líkamsræktarsalinn vissulega meira aðlaðandi og spennandi. En í raun ætti ekki að nýta þessi tæki í neitt annað en að tylla fæti á til að laga skóreimar eða til að fá sér sæti og ná andanum. Vandamálið með öll þessi glæsilegu tæki er að þau breyta náttúrulegum hreyfingum þínum og tak- marka þær. Tækin geta valdið því að þú örvar vöðvana minna en ella sem þýðir að þú brennir færri hitaeiningum og nærð minni árangri. Það sem er enn verra er að tækin geta valdið óþarfa álagi á liði sem getur leitt til meiðsla með tímanum. 3 Langar tarnir af loftháðum æfingum Viljir þú léttast og brenna fitu þarftu vissulega að gera loftháðar æfingar. Þessar æfingar er þó auðvelt að gera kolrangt. Ef þú ert búin að vera að þjösnast á hlaupabrettinu eða gangstéttinni án þess að sjá árangur, fyrir utan liðamótaverki og ónýta hlaupaskó, þá ertu líklega ekki að gera hlutina rétt. Til að ná árangri er best að fara eftir prógrammi sem smám saman þyngist með tímanum. 4 Tilgangslausar kviðæfingar Ef þú vilt að maginn á þér líti út eins og þvottabretti þá er ekki rétta leiðin að gera kviðæfingar líkt og uppsetur. Það mun ekki skila þér neinum árangri eða „six pack“ eins og kviðvöðvarnir eru gjarnan kallaðir þegar þeir eru mjög skýrir. Æfingar sem beint er að kviðsvæðinu skila almennt litlum árangri viljir þú gera vöðvana sýnilegri. Besta leiðin er að brenna fitulaginu á kviðnum, því það er jú það sem felur vöðvana. 5 Nota sama æfingaplanið of lengi Ef not-ast er við sama æfingaplanið í langan tíma og sömu æfingarnar eru framkvæmdar aftur og aftur hættirðu að sjá árangur. Við erum gjörn á að detta í rútínu þegar kemur að ræktinni og gera þær æfingar sem við kunnum og líkar vel við. Þegar þú vilt ná árangri og sjá breytingar á líkaman- um verðurðu að stokka aðeins upp í hlutunum og breyta æfingaplaninu reglulega. 6 Langar æfingar Langar æfingar virka ekki betur en stuttar og skila ekki hraðari árangri. Ef þú ert búin að vera að þræla þér út í ræktinni í lengri tíma án þess að sjá breytingar á líkama þínum geturðu líklega haldið því áfram í langan tíma án þess að ná yfir höfuð einhverjum sjáanlegum árangri. Viljir þú verða skorin/n og komast í gott form eru það gæði æfinganna en ekki lengd þeirra sem skiptir máli. n Náðu árangri í ræktinni n Gæði æfinga skiptir meira máli en lengd Crayola- naglalakk Það er alltaf að verða meira og meira um það að beina auglýsinga- herferðum snyrtivöruframleiðenda að börnum. Árið 2007 kom MAC með snyrtivörulínu sem var tileink- uð Barbie og árið 2009 gerði Stila Cosmetics það sama, kom með snyrtivörulínu tileinkaða Barbie. Sama ár kom Two-Faced með snyrtivörulínu til heiðurs Strympu og árið 2010 kom MAC með snyrti- vörulínu með öllum „slæmu“ kon- unum úr Disney, til dæmis vondu stjúpunni úr Mjallhvíti og Grimm- hildi Grámann. Svo kom í fyrra lína með naglalakki frá OPI tileinkuð Prúðuleikurunum. Það nýjasta núna er Crayola- naglalakk en Crayola eru þekktir fyrir vaxlitina sína og þekkja flest ef ekki öll börn vörumerki þeirra. Þetta eru átta litir í litlum glösum í kassa sem er eins og kassarnir utan um vaxlitina. Kátar með krakkana Systurnar Dalla og Tinna Ólafsdætur ásamt börnum þegar faðir þeirra, Ólafur Ragnar Grímsson, opnaði kosningamiðstöð í maí síðastliðnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.