Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2012, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2012, Síða 25
spila 120 mínútur áður en þeir lögðu Englendinga af velli í víta- spyrnukeppni. Þjálfari Ítala hef- ur sagt að Þjóðverjar hafi að þessu leyti forskot í leiknum á fimmtu- dag. Lið þeirra sé betur hvílt. Spurður hvort hann telji að Þjóðverjar eigi mikið inni í leik sínum segir Heimir að þeir hafi lent í vandræðum á móti Portú- gölum í riðlinum. Sá leikur hafi getað farið á báða vegu. Þeir hafi svo mætt Hollendingum sem hafi valdið miklum vonbrigðum og Dönum sem þeir unnu naumlega. Grikkir hafi svo ekki verið mikið fyrirstaða. „Ég er ekki viss um að Þjóðverjar eigi mikið inni, kannski eitthvað,” segir hann. Joachim Löw kom spark- spekingum á óvart þegar hann setti markahæsta mann liðsins, Gómez, á bekkinn á móti Grikkj- um. Miroslav Klose tók þá stöðu hans. „Löw er afar hrifinn af Klose þó mér persónulega finn- ist Gómez betri leikmaður. Það er spurning hvað gerist en mér finnst Gómez vera betri kostur á móti Ítölum.“ Loks má nefna að óvíst var að lykilmaður í liði Þjóðverja, Bastian Schweinsteiger, tæki þátt í undan- úrslitaleiknum. Nýjustu fregnir herma þó að hann verði með. Leika vörn tiL sigurs Samir Nasri hljóp illa á sig n Ímyndin í molum eftir uppþot S amkvæmt könnun franska stór- blaðsins L‘Equipe vill ríflega helmingur lesenda að Sam- ir Nasri, leikmaður Manchest- er City og franska landsliðsins, verði gerður brottrækur úr landsliðinu eft- ir hegðun sína á Evrópumótinu. Nasri hljóp illa á sig, bæði í samtölum við þjálfara og fjölmiðlamenn á mótinu. Púki virtist hafa hlaupið í hann eftir að Frakkland tapaði fyrir Spánverjum í 8-liða úrslitum keppninnar. Nasri brást hinn versti við spurningum frétta- manna. „Þú og þínir eru alltaf að skrifa vondar fréttir af okkur,“ sagði hann við fréttamann hjá AFP fréttastofunni. Sá sagðist ekki vilja ræða meira við Nasri sem var ekki hættur og sagði: „Hopp- aðu upp í rassgatið á þér.“ Því næst brá hann á það ráð að bjóða blaðamann- inum út fyrir til að slást. Ekki liggur fyrir hvað olli óánægju leikmannsins en hann er sagður hafa verið ósáttur við að hafa byrjað á vara- mannabekknum gegn Spánverjum. Skemmst er að minnast þess að á síðasta stórmóti í knattspyrnu var al- gert upplausnarástand í franska lands- liðshópnum. Fyrir því fór Patrice Evra fyrirliði en fréttaflutningur af liðinu fjallaði nánast eingöngu um sundr- ungu innan hópsins. Annar bragur hefur að mestu verið á franska lands- liðinu eftir að Laurent Blanc tók við liðinu, þar til nú. Ímynd Nasri í Frakk- landi er í rúst. Sport 25Miðvikudagur 27. júní 2012 n Heimir Guðjónsson segir ekkert stoppa Spánverja n Vörnin lykillinn n Spáir framlengingu í öðrum leiknum - W G W- F S GP W F G F - Q P G16 P S FW S P G Q ´60 ´76 ´92´68 ´84 ´00´64 ´80 ´96´72 ´88 ´04 ´08 P Forkeppni 16 16-liða úrsl. R Umspil G Riðlak. Q 8-liða úrsl. S Undanúrsl. F Úrslit W Sigur Graphic Story Size Artist Date Reporter Research Code SOCCER-EURO/SF2 SOCCER-EURO/ 10 x 17.5 cm Cabrera/RNGS 25 / 06 / 12 - Cabrera SPO © Copyright Reuters 2012. All rights reserved. http://link.reuters.com/ryt68q Graphic Story Size Artist Date Reporter Research Code SOCCER-EURO/SF2 SOCCER-EURO/ 10 x 17.5 cm Cabrera/RNGS 25 / 06 / 12 - Cabrera SPO © Copyright Reuters 2012. All rights reserved. http://link.reuters.com/ryt68q Graphic Story Size Artist Date Reporter Research Code SOCCER- URO/SF2 SOCCER- URO/ 10 x 17.5 cm Cabrera/RNGS 25 / 06 / 12 - Cabrera SPO © Copyright Reut rs 201 . All rights re erved. http://link.reut rs.com/ryt68q r i t r i rtist t rt r s r - / - / . r r / / / - r r yri t t rs . l ri ts r s rv . tt ://li k.r t rs.c /ryt Þýskaland Ítalía Styrkleikalisti FIFA: 3 Styrkleikalisti UEFA: 2 Styrkleikalisti FIFA: 12 Styrkleikalisti UEFA: 8 Úrslit í leikjum liðana á EM 2012 Þýskaland–Portúgal 1–0 Fyrsti leikur Spánn–Ítalía 1–1 Holland–Þýskaland 2–1 Annar leikur Ítalía–Kóatía 1–1 Danmörk–Þýskaland 1–2 Þriðji leikur Ítalía–Írland 2–0 Þýskaland–Grikkland 4–2 8-liða úrslit England–Ítalía 2–4* 0 / 7 3 / 7Innbyrðis sigrar / Fjöldi viðureigna* Líklegt leikskipulag liðanna4-2-3-1 3-5-2 Þýs Íta Síðari undanúrslit Þjóðarleikvangurinn Varsjá, Póllandi * Á stórmótum Harðjaxlar Moutinho, sem hér er í baráttu við Þjóðverjann Bastian Schweinsteiger gæti leikið lykilrullu í fyrri undanúrslitaleiknum. skilja leiðir Óvíst er hvort Nasri verði valinn í franska landsliðshópinn í bráð. HeiMildir: reuters, ueFa, FiFa Úrslit Borgunarbikar karla KA - Grindavík 2 – 3 0-1 Björn Berg Bryde (7.) 0-2 sjálfsmark KA (22.) 1-2 Jóhann Helgason (40.) 2-2 Gunnar Örn Stefánsson (88). 3-2 Oluwatomiwo Ameobi (90.) ÍBV - Höttur 6 – 1 1-0 Christian Steen Olsen (2.) 1-1 Garðar Már Grétarsson (9.) 2-1 Tryggvi Guðmundsson (24.) 3-1 Gunnar Már Guðmundsson 4-1 (29.) Christian Steen Olsen (35.) 5-1 Aaron Robert Spear (66.) 6-1 Þórarinn Ingi Valdimarsson (78.) Selfoss - KB 4 – 0 1-0 Jón Daði Böðvarsson (24.) 2-0 Ólafur Karl Finsen (30.) 3-0 Abdoulaye Ndiaye (77.) 4-0 Jon André Röyrane (81.) Afturelding - Fram 2 – 3 0-1 Steve Lennon (32.) 1-1 Arnór Þrastarson (55.) 1-2 Sveinbjörn Jónasson (60.) 2-2 John Henry Andrews (68.) 2-3 Sveinbjörn Jónasson (77.) Þróttur R. - Valur 2 – 1 0-1 Hörður Sveinsson (23.) 1-1 Oddur Björnsson (49.) 2-1 Karl Brynjar Björnsson (120.) KR - Breiðablik 3 – 0 1-0 Kristinn Jónsson (18., sjálfsmark), 2-0 Kjartan Henry Finnbogason (86.), 3-0 Þorsteinn Már Ragnarsson (94.) Víkingur R. - Fylkir 2–1 1-0 Agnar Darri Sverrisson (15.) 2-0 Aron Elís Þrándarson (63.) 2-1 Árni Freyr Guðnason (75.) 28. júní kl. 18:45 *VÍtaspyrnukeppni Giroud farinn til Arsenal Arsenal hefur staðfest að franski landsliðsmaðurinn Olivier Giroud sé genginn til liðs við fé- lagið frá Montpellier. Giroud sem er 25 ára gamall komst í gegn- um læknisskoðun hjá Arsenal í vikunni en hann lék með Frökk- um á EM. Giroud var frábær í frönsku deildinni í vetur og skoraði 21 mark. Hann átti stór- an þátt í því að Montpellier varð franskur meistari. Wenger hefur sagt að leikmaðurinn muni koma með nýja vídd inn í sóknarleik Arsenal. Kynslóðaskipti hjá Englandi Roy Hodgson landsliðsþjálfari Englands hefur sagt í viðtölum eftir að liðið datt út á EM fyrir skömmu að hann muni í fram- tíðinni treysta meira á yngri leikmenn. Að komið sé að kyn- slóðaskiptum hjá enska liðinu og að leikmenn eins og Alex Oxlade-Chamberlain, Danny Welbeck, Kyle Walker, Jack Wil- shere, Phil Jones og fleiri ungir leikmenn verði meira áberandi. Stærstu stjörnur Englands eins og Gerrard, Lampard, Terry og fleiri séu komnir af léttasta skeiði og því nauðsynlegt að horfa til framtíðar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.